Morgunblaðið - 15.04.2003, Blaðsíða 36
✝ Lárus ÞórarinnJósepsson Blön-
dal var fæddur á
Siglufirði 12. júlí
1912. Hann lést á
Dvalar- og hjúkrun-
arheimilinu Holts-
búð í Garðabæ 8.
apríl síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Jósep Blöndal, f.
19.8. 1875, d. 8.6.
1966, og Guðrún
Guðmundsdóttir
Blöndal, f. 31.7.
1880, d. 17.2. 1960.
Systkini Lárusar
eru: 1) Sigríður Bjarney, f. 15.11.
1908, d. 24.7. 1934. 2) Kristín, f.
12.1. 1910, d. 11.1. 1931. 3) Guð-
mundur Sigurbjörn Theódór, f.
24.5. 1911, d. 12.1. 1986. 4) Bryn-
dís, f. 12.10. 1913. 5) Anna, f.
22.11. 1914, d. 19.6. 1983. 6) Hall-
dór, f. 29.3. 1917, d. 28.6. 1993. 7)
Haraldur Hans, f. 29.3. 1917, d.
22.6. 1964. 8) Óli, f. 24.9. 1918. 9)
Lára Margét Kristín, f. 21.3.
1920, d. 12.1. 1921.
Hinn 27.7. 1945 kvæntist Lárus
Guðrúnu Sigríði Jóhannesdóttur
Blöndal, f. 21.10. 1923. Börn
þeirra eru: 1) Steingrímur, f.
19.2. 1947, d. 13.6. 1970, kvæntur
Ingunni Þóroddsdóttur, f. 11.9.
1949, og áttu þau soninn Stein-
grím Þórarin, f. 31.1. 1968. 2)
Kristín, f. 31.1. 1948, d. 18.8.1983
og átti hún með Jónasi Gústafs-
syni, f. 19.6. 1948, soninn Lárus
Steingrím, f. 3.6. 1974, sem ólst
upp hjá móðurforeldrum sínum.
Hann er í sambúð með Írísi
Magnúsdóttur, f. 5.3. 1973, og
eiga þau Kristínu Maríu, f. 2.6.
2002. 3) Jóhannes Valgarð, f.
25.8. 1949, kvæntur Maj Britt
Pálsdóttur, f. 16.10. 1952, og eiga
þau þrjár dætur; a) Karlottu, f.
1.11. 1973, b) Eivor Pálu, f. 29.4.
1976, í sambúð með Alexander
Peterson, f. 2.7. 1980, c) Önnu
Kristínu, f. 22.9. 1988. 4) Jósep
Blöndal, f. 5.11. 1950, kvæntur
Hedvig Krane, f. 9.11. 1954, og
eiga þau þrjú börn: a)Erlend, f.
1.10. 1985, b) Lísu, f. 16.3. 1989,
c) Nínu, f. 20.1. 1994. 5) Gunnar
Blöndal, f. 7.11. 1952, kvæntur
Margréti Hólm Magnúsdóttur, f.
12.12. 1956, og eiga þau fjögur
börn: a) Guðrúnu Kristínu, f.
18.7. 1976, gift Sigurði Sveini
Sigurðssyni, f. 24.2. 1976, b)
Önnu Bryndísi, f. 25.10. 1978, í
sambúð með Haraldi Líndal Pét-
urssyni, f. 13.4. 1978, og eiga þau
einn son, c) Magnús,
f. 14.1. 1989, d)
Orri, f. 10.10. 1990
6) Guðmundur Sig-
urbjörn Theodór, f.
6.8. 1954, kvæntur
Ingu Pálmadóttur,
f. 19.7. 1955, og eiga
þau tvær dætur; a)
Hrefnu Fönn, f.
14.10. 1987, b) Hlín,
f. 19.3. 1991. Fyrir
átti Inga börnin
Ingólf og Sunnu. 7)
Guðrún, f. 28.7.
1956 gift Theodór
Gunnari Sigurðs-
syni, f. 23.11. 1956, og eiga þau
þrjú börn: a) Gunnlaug Kristin, f.
24.8. 1984, b) Þorbjörgu Liesel, f.
30.11. 1987, c) Lárus Heiðar, f.
15.8. 1990. 8) Lárus Rafn, f. 5.11.
1961, kvæntur Soffíu Ófeigsdótt-
ur, f. 7.3. 1961, og eiga þau þrjár
dætur: a) Ernu Kristínu, f. 29.4.
1984, b) Mörtu Guðrúnu, f. 9.2.
1988, c) Brynju Rut, 10.9. 1994.
9) Anna Bryndís, f. 22.7. 1963.
10) Jón Ásgeir, f. 13.5. 1966,
kvæntur Huldu Ólafsdóttur, f.
25.5. 1969, og eiga þau þrjú börn:
a) Alexander Jósep, f. 11.7. 1996,
b) Silju Björk, f. 11.4. 1998, c)
Birtu Rós, f. 13.6. 2002.
Áður átti Lárus soninn Birgi, f.
15.11. 1944. Hann er kvæntur Ás-
laugu Steingrímsdóttur f. 2.6.
1946. Börn þeirra eru: a ) Emil, f.
5.1. 1967, kvæntur Önnu Maríu
Guðmundsdóttur, f. 23.6. 1968,
og eiga þau tvö börn, b) Anna
Sigríður, f. 25.12. 1970, gift
Kristni Bjarnasyni, f. 5.8 .1970
og eiga þau tvö börn, c) Þröstur,
f. 6.11. 1975.
Lárus rak um áratuga skeið
frá árinu 1937 Bókaverslun Lár-
usar Þ. J. Blöndal og Aðalbúðina
hf. á Siglufirði. Hann starfaði
einnig um árabil sem fulltrúi
Skattstjórans á Norðurlandi
vestra. Hann var lengst af um-
boðsmaður Flugfélags Íslands og
síðar Flugleiða auk Morgun-
blaðsins og Vísis á Siglufirði.
Lárus tók þátt í ýmsu félagsstarfi
á Siglufirði, var m.a. einn af
stofnendum Lionsklúbbsins á
Siglufirði og virkur í starfi Sjálf-
stæðisflokksins. Lárus bjó á
Siglufirði til sjötíu ára aldurs en
þá flutti hann búferlum til
Garðabæjar þar sem hann bjó
alla tíð síðan.
Útför Lárusar verður gerð frá
Vídalínskirkju í Garðabæ í dag
og hefst athöfnin klukkan 15.
Með nokkrum fátæklegum orðum
langar mig að minnast þess manns
sem fyrir 25 árum leiddi dóttur sína
til altaris og gaf mér hönd hennar.
Ég áttaði mig á því löngu síðar að í
rauninni var hann ekki að láta dótt-
ur sína af hendi, heldur að bæta
mér í sína stóru fjölskyldu. Þetta
var að sjálfsögðu ekki meðvituð
ráðagerð. Lárus var bara þannig
gerður að það laðaðist allt að hon-
um. Ef til væri Íslandsmet í glað-
lyndi, jákvæðni og bjartsýni þá ætti
Lárus örugglega það met. Það voru
sennilega þessir eiginleikar sem
fleyttu honum áfram gegnum alla
brotsjói lífs hans. Ég var forvitinn
að fá upp úr honum uppskriftina af
þessum eiginleikum og spurði hann
oft um þetta. En það var, eins og
búast mátti við, til einskis. Upp-
skriftina er ekki hægt að fjölfalda.
Sem betur fer skilur hann þó eftir
sig heilmikið erfðaefni hér í þessu
lífi. Hann eignaðist ekki minna en
ellefu börn og enn fleiri afa- og
langafabörn.
Eitt af þeim einkennum Lárusar
sem mér er minnisstæðust er hlát-
urinn hans. Innilegur og smitandi.
Til allrar hamingju skilaði sér sá
eiginleiki áfram til konu minnar.
Það var einmitt hlátur hennar sem
vakti fyrst athygli mína á stúlkunni.
Ég á þar af leiðandi Lárusi svo
óendanlega mikið að þakka og vona
að hann finni fyrir þakklæti mínu
yfir landamærin.
Við ræddum oft um lífið, tilgang
þess og áframhaldið. Lárus var ekki
í nokkrum vafa um að lífið heldur
áfram í víddum sem við ekki skilj-
um. Hann kveið ekki þeirri stundu,
sem bíður okkar allra, að yfirgefa
hið holdlega líf og ganga inn á
næsta stig þróunarinnar. Hversu
oft hefur hann ekki sagt að hann
vilji sjá gleðina í fyrirrúmi þegar
hans stund komi? Þannig hefur það
líka alltaf verið þegar börnin hans
safnast saman hjá honum. Gleðin er
á einhvern hátt alltaf einkennandi
fyrir þær samkomur. Síðast sum-
arið 2002 þegar haldið var upp á ní-
ræðis afmæli hans var hann tilefni
sameiningar og gleði. Jafnvel nú
þegar hann hefur haldið til annars
sviðs gefur hann okkur tilefni til að
safnast saman og hefur óskað þess
að við samgleðjumst honum yfir
þeim áfanga. Já, Lárus Þórarinn
Jósepsson Blöndal var enginn
venjulegur maður. Minning hans
mun lifa með okkur að eilífu.
Theodór G. Sigurðsson.
LÁRUS ÞÓRARINN
JÓSEPSSON
BLÖNDAL
Fleiri minningargreinar um Lár-
us Þórarin Jósepsson Blöndal bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
MINNINGAR
36 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Ég kveð þig pabbi, klökkum
huga, kærleiksrík var þín lund.
Það var svo sárt að sjá þig þjást, á
þinni dauðastund. Hvíl í friði, kæri
pabbi, kærleik þú sýndir mér. Nú
leiðir þig Guð í ljóssins heimi, sú
líkn er handa þér. Ljóshærð
stúlka – lítil hnáta – er leit fyrst
pabba sinn. Nú kveð ég þig í litlu
ljóði og lofa kærleik þinn.
Til pabba frá Lilju Báru.
HINSTA KVEÐJA
✝ Steinþór Guð-mundur Hall-
dórsson fæddist á
Svarthamri í Álfta-
firði 20. febrúar
1931. Hann lést á
Landspítalanum
Hringbraut 4. apríl
síðastliðinn. Foreldr-
ar Steinþórs voru
Rannveig Svanhvít
Benediktsdóttir (hús-
móðir og verkakona),
f. 12.9. 1904, d. 5.3.
1985, og Halldór
Kristinn Sigurður
Ásgeirsson (bóndi,
sjómaður og síðan verkamaður í
Reykjavík), f. 14.1. 1904, d. 12.5.
1990. Systkini hans eru: Jóhanna
Guðmundína Huld Sumarliðadótt-
ir, f. 26.12. 1923; Steinþór Krist-
ján Halldórsson, f. 9.6. 1926, d.
1.7. 1927; Kristjana Björg Gyð-
ríður Halldórsdóttir, f. 17.9. 1927;
Anna Sigurjóna Halldórsdóttir, f.
27.8. 1929; Sigríður Katrín Hall-
dórsdóttir, f. 21.3. 1932, d. 9.5.
1984; Hinrikka Guðmundína Hall-
dórsdóttir, f. 6.5. 1942, d. 18.12.
2002.
Steinþór var kvæntur Erlu
Kroknes Jóhannsdóttur sem hann
missti 1.2. sl. Þau voru gift í nærri
43 ár. Þau áttu fjögur börn. Þau
eru: 1) Guðrún Jó-
hanna, eiginmaður
Ásvaldur Jónatans-
son, börn þeirra
Svanur Veigar Þrá-
insson, Erla Sigur-
laug og Unnur Ósk.
2) Jóhanna Ágústa,
eiginmaður Ágúst
Rafn Kristjánsson,
börn þeirra Árni
Pétur, Edda Fanný
og Eva Rún. 3) Bene-
dikt, eiginkona Jó-
hanna Árnadóttir,
börn Rannveig Svan-
hvít og Natan Orri.
4) Ásgerður Helga, eiginmaður
Sigurður Enoksson, börn Enok
Steinar, Hrafnhildur Anna og
Steinþór Guðmundur. Fyrir átti
Steinþór eina dóttur, Lilju Báru,
eiginmaður Kristinn Gunnarsson,
börn Steinþór, Svanhildur og
Styrmir og eitt barnabarn, Krist-
ófer.
Steinþór starfaði hjá samvinnu-
félaginu Ísborg í tvö ár, hjá SVR.
Strætisvögnum Reykjavíkur frá
1954–1960, hjá Ísbirninum frá
1960–1968, hjá ÍSAL frá 1969–
1995 og hjá Kerfóðrun 1995–2001.
Útför Steinþórs Guðmundar
verður gerð frá Áskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Elsku pabbi. Nú kveð ég þig með
miklum söknuði, það er erfitt að sætta
sig við orðinn hlut. Fyrst fer mamma
frá okkur skyndilega og svo þú tveim-
ur mánuðum síðar eftir mikla baráttu
við þín veikindi. Eftir er ég dofin og sé
ekkert réttlæti í lífinu en innst inni
veit ég að nú líður þér mjög vel, laus
við allar kvalir og kominn til mömmu
aftur eins og þú hefðir farið eina sjó-
ferð, en margar eru minningarnar
sem koma upp þegar ég sest niður og
skrifa þessi orð. T. d. þegar ég var lítil
og átti að fara á róló eins og ég oft fór,
en í þetta skiptið vissi ég að þú værir
heima og vildi ekki fara heldur vera
heima hjá þér og mömmu, en þú sagð-
ir að ég ætti að fara í smástund. Þú
settir mig á bögglaberann hjá systur
minni sem átti að fara með mig, en
hún komst bara niður sundið því að ég
setti báða fætur á milli teinanna til að
stoppa hjólið. Ég man að það var ekki
farið á róló þann daginn og var ég
mjög ánægð með það. Eða þegar þú
kenndir mér að hjóla á reiðhjól án
hjálpardekkja. Svona koma ótal
minningar upp í kollinn um ykkur
mömmu núna, en mikið langaði mig
að tala við ykkur núna fyrir helgi. Þar
sem hlutir í lífi mínu hafa breyst fann
ég hvað allt var tómt og tómarúmið er
ekki hægt að fylla. En við systkinin
höfum hvert annað eins og alltaf, og
vona ég að það breytist ekki því að
þau eru allt sem ég á eftir fyrir utan
minn eiginmann og börn.
Þið mamma höfðuð gaman af
barnabörnum ykkar, fóruð oft með
þau í sumarbústaðinn sem er perla á
sinn hátt. Mér er minnisstætt þegar
við vorum í útilegu með systur
mömmu og hennar fjölskyldu þegar
ég var með lausa tönn aðeins sex ára
og þú kipptir tönninni úr, og þegar ég
fór að sofa lagðist þú, pabbi, við hlið-
ina á mér og bankaðir á bakið á mér
þar til ég sofnaði. En alltaf var hægt
að leita til þín, pabbi, og einnig til
mömmu þegar einhvað þurfti að gera
og ekki stóð á hjálpinni frá ykkur.
Stundum hugsaði ég að nóg væri að
hafa heitt á könnunni og kleinur með,
þá varst þú himinlifandi með það
bakkelsi, elsku pabbi, og núna strax
sé ég að Steinþór litli er eins hvað
kleinur varðar, það fylgir nafninu geri
ég ráð fyrir.
Nú kveð ég þig, pabbi minn, með
söknuði. Megi englar Guðs umvefja
þig. Nú veit ég að þið mamma haldist í
hendur og fylgist með okkur þarna
handan.
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig
hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég
langa ævi.
(23. Davíðssálmur.)
Þín
Ásgerður Helga.
Mig langar til að minnast tengda-
pabba míns Steinþórs G. Halldórs-
sonar með nokkrum fátæklegum orð-
um. Hann lést 4. apríl eftir erfið
veikindi en hann stóð sig eins og hetja
í baráttu við illvígan sjúkdóm. Það
varð eitthvað að láta undan. Hann
missti konu sína snögglega 1. feb.
2003 og varð það ekki til að hjálpa til í
baráttunni við þennan sjúkdóm.
Þegar ég kynntist Steinþóri varð ég
var við mikinn mann (þó að hann væri
smávaxinn) og góðan. Þau hjónin voru
gullkorn í mínum augum og voru alltaf
til staðar þegar maður þurfti á hjálp að
halda. Það eru risastór skörð höggvin í
fjölskyldu þegar svona fólk fer. En það
fer á góðan stað og Steinþór hittir Erlu
sína sem beið eftir honum og tekur
honum hlýjum örmum.
Ég á eftir að sakna hans mjög mik-
ið. Hann var alls staðar þar sem ein-
hvern vantaði hjálp eða eitthvað. Og
ég veit að hann er hér einhvers staðar
að fylgjast með og hjálpar manni í því
sem maður er að gera. Allar ferðir
upp í sumarbústað hafa verið minn-
isstæðar. Þar er paradís á jörð og þar
var hann öllum stundum þegar hann
var ekki í vinnunni. Þar voru hjónin
búin að gera glæsileg híbýli eins og
þeirra var von og vísa. Ég gaf þér lof-
orð áður en þú fórst frá okkur og mun
standa við það, Steini minn. Skilaðu
kveðju til allra sem ég þekki þarna
hinum megin og ég þakka fyrir að fá
að kynnast þér og Erlu. Takk fyrir
allt. Enok, Hrafnhildur og Steinþór
biðja að heilsa öllum og þau munu
sakna ykkar mjög mikið.
Megi guð styrkja ykkur, Guðrún,
Benni, Gústa, Ásgerður, Lilja, og fjöl-
skyldur ykkar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Þinn tengdasonur,
Sigurður Enoksson.
STEINÞÓR G.
HALLDÓRSSON
Fleiri minningargreinar
um Steinþór G. Halldórsson bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
AÐALHEIÐUR SIGURÐARDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðviku-
daginn 16. apríl kl. 15.00.
Sverrir Guðmundsson, Þórdís Ingvarsdóttir,
Sigrún Sverrisdóttir,
Jón Óskar Sverrisson,
Ingvar Þorsteinn Sverrisson,
Aðalsteinn Sverrisson
og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
VALGERÐUR ÓSK BJÖRNSDÓTTIR,
lést á Fjórðungssjúkrhúsinu á Akureyri, Seli,
fimmtudaginn 3. apríl sl.
Útför hennar fór fram föstudaginn 11. apríl.
Ólöf Snorradóttir,
Björn Magnús Snorrason, Ragnheiður Karlsdóttir,
Ólafur Dan Snorrason, Kristbjörg Ingólfsdóttir,
Þorbjörg Snorradóttir,
Daníel Snorrason, Hrafnhildur Karlsdóttir
og barnabörn.