Morgunblaðið - 15.04.2003, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 15.04.2003, Blaðsíða 48
KVIKMYNDIR 48 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYNDIR Regnboginn – 101 kvikmyndahátíð FJÓRUM VIKUM SÍÐAR (28 DAYS LATER) Leikstjóri: Danny Boyle. Handrit: Alex Garland. Kvikmyndatökustjóri: Anthony Dod Mantle. Tónlist: John Murphy. Aðal- leikendur: Cillian Murphy, Naomie Harris, Brendan Gleeson, Megan Burns, Christ- opher Eccleston. 110 mín. Fox Search- light. Bretland 2002. „HLUTIRNIR hafa ekkert breyst, við höfum verið að drepa hvert annað frá upphafi,“ segir at- vinnuhermaðurinn West (Christ- opher Eccleston), í ógnvænlegri framtíðarsýn og magnaðri hrollvekju en bíógestum hefur staðið til boða um langa hríð. Önnur persóna í Fjórum vikum síðar, segir sem svo: „Mann- kynið á sér ekki nema augnablik í ei- lífðinni. Þó að við séum þurrkuð út, breytir það litlu.“ Það er mergur málsins í nýjasta verki Danny Boyle, þessa mistæka en athyglisverða leikstjóra sem gerði hinar mögnuðu Trainspotting og Shallow Grave, hina mun slakari A Life Less Ordinary og The Beach, forvitnilega mynd þó mislukkuð væri. Jim (Cillian Murphy), sendill í Lundúnum, lendir í slysi og rankar við sér á sjúkrahúsi 28 dögum síðar. Í millitíðinni hafa hrikalegir atburðir átt sér stað, djöflaveira nánast út- rýmt mannlífi í stórborginni. Jim heldur út á auðar götunar þar sem ekkert lífsmark er lengi vel að finna uns á hann er ráðist af frávita fórn- arlömbum veirunnar sem morðóð bíða dauða sins. Jim finnur um síðir, nokkra, ósmit- aða einstaklinga, þeir hafa náð send- ingum frá herfylki norðan Manchest- er. Þangað tekur þessi litli og skelkaði hópur stefnuna, nær ákvörð- unarstaðnum – en tekur betra við? Væntanlegum bíógestum er ekki hollt að vita meira um gang mála í lengst af einni hrikalegustu mynd síðari ára. Boyle vinnur úr nýju handriti eftir Alex Garland (The Beach) og hér er samvinna þessara athyglisverðu listamanna mun ár- angursríkari og eftirminnilegri þó að báðar myndirnar gjaldi fyrir endi sem er meira veikburða en það sem á undan er gengið. Garland hefur tak- markaða trú á mannkyninu í tákn- rænni hrollvekju um hverjir við erum þegar á hólminn er komið þrátt fyrir alla „siðmenninguna“. Hann hefur tekið þann kostinn að velja í örfá hlutverkin unga og kraftmikla leik- endur með hinum reyndari Brendan Gleeson og Charles Eccleston í bland. Leikurinn er magnaður, sagan lengst af óhugnanleg, einföld og kraftmikil og brellurnar hrikalegar. Fjórum vikum síðar er framúr- skarandi mynd, hvalreki fyrir unn- endur vísindaskáldsögulegra hroll- vekja og fyrirgefst að mestu ekki alveg fullnægjandi lokalausn. Það er því undarlegt að myndinni sé stillt upp í örfáa daga og ekki einu sinni sýnd sú virðing að texta hana. Ekki virðist heldur búist við aðsókn því þegar undirritaður sá verkið á sunnudagskvöld kl. 22, var löng bið- röð við miðasöluna þar sem einn starfsmaður hafði ekki undan. Þó að mættur væri akademískum 10 mín. fyrir sýningu missti ég af einhverjum mínútum fyrir bragðið, sem er það versta sem getur komið fyrir bíó- gesti. Reyndar var bætt við öðrum starfsmanni í miðasöluna en þá var of seint í rassinn gripið. Nokkrir kunn- ingjar mínir ætluðu að sjá mynd á há- tíðinni á laugardaginn en þegar röðin var loks komin að þeim var alltof langt liðið á myndina að þeirra mati og hættu við. Það þarf greinilega að bæta úr þessum atriðum á annars matarmikilli og þakkarverðri hátíð. Ef …                     !      "#$% '  (  $  ) $*  + $,  -. $,  / $ 0  ) &  # 0 + $,  -. $,    ,  1   /  23    Fjórum vikum síðar er „fram- úrskarandi mynd, hvalreki fyrir unnendur vísindaskáldsögulegra hrollvekja“, segir í umsögn. Sæbjörn Valdimarsson KVIKMYNDIR Regnboginn – 101 kvikmyndahátíð HIMINN/HEAVEN Leikstjórn: Tom Tykwer. Handrit: Krzyszt- of Kieslowski og Krzysztof Piesiewicz. Kvikmyndataka: Frank Griebe. Aðal- hlutverk: Cate Blanchett, Giovanni Ribisi og Remo Girone. BNA, Bretl., Frakkl., Ít., Þýs. 96 mín. Miramax Films 2002. SAGT er að Himinn sé fyrsti hluti nýrrar trílógíu sem þeir félagar Kiesl- owski og Piesiewicz, hafi verið byrj- aðir að skrifa þegar sá fyrrnefndi dó. En saman skrifuðu þeir Dekalog myndirnar og litina þrjá, Hvítan, Rauðan og Bláan. Hversu langt þeir voru komnir með handritið veit ég ekki, en mér finnst það því miður frekar endaslappt og órökrétt. Sagan segir frá Philippu (Blanch- ett), enskukennara í Torino á Ítalíu. Hún hefur horft upp á eiginmanninn og nokkra nemendur sína deyja úr eiturlyfjaneyslu, og hefur ítrekað reynt að segja yfirvöldum frá höfuð- paur eiturlyfjadreifingarinnar, en án árangurs. Hún tekur því lögin í eigin hendur og kemur sprengju fyrir á skrifstofu höfuðpaursins. Hún er síð- an sett í yfirheyslur vegna málsins, þar sem ungur lögreglumaður (Rib- isi) verður ástfanginn af henni. Sögur þeirra félaga eru móralskar og oft leiðir velviljuð gjörð til ills, sem aftur leiðir til góðs. Sprengja Philippu hefur hörmulegri afleiðingar en hún hafði gert ráð fyrir, og hún segist ætla að svara til saka fyrir það sem hún hafi gert, en gerir það síðan ekki. Af hverju ekki? Af því að hún varð svo ástfangin? Sá endir finnst mér alger- lega á skjön við það sem ég áleit myndina eiga að vera um, mér til mik- illa vonbrigða. Og eiginlega fannst mér endirinn óréttlátur gagnvart þeirri sterku per- sónu sem Cate Blanchett tekst að skapa á svo látlausan og yfirvegaðan hátt. Í þessari hægu og ljóðrænu mynd, er leikur hennar sterkasti hlut- inn, og þá ekki síst í upphafinu sem er bæði spennandi og áhrifaríkt. Sá ann- ars ágæti leikari Ribisi nær engan veginn að njóta sín við hlið hennar. Það er spurning hvort einhver ann- ar geti leikstýrt Kieslowsky handriti en hann sjálfur. Alla vega finnst mér Tykwer ekki hafa fulla stjórn á því sem hann er að gera, þótt verkefnið hafi óneitanlega verið spennandi fyrir hann. Hildur Loftsdóttir Endasleppur boðskapur Getur einhver annar leikstýrt Kieslowsky-handriti en hann sjálfur? Smurbrauðsverður innifalinn Miðasala Iðnó í síma 562 9700 Hin smyrjandi jómfrú sýnt í Iðnó Mið 16.april kl 20 Örfá sæti Laug 19.apríl kl 20 Laug 25.apríl kl 20 Sunn 26.apríl kl 20 Síðustu sýningar Stóra svið ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield Forsýning fi 24/4 kl 20 - Kr. 1.000 FRUMSÝNING su 27/4 - UPPSELT Mi 30/4 kl 20 - UPPSELT Fi 1/5 kl 20 - 1.maí tilboð kr. 1.800 Fö 2/5 klL 20, Lau 10/5 kl 20 PÚNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht Lau 26/4 kl 20, Su 4/5 kl 20, Su 11/5 kl 20 SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson Fö 25/4 kl 20, Lau 3/5 kl 20, Fö 9/5 kl 20 ATH: Sýningum lýkur í vor DÚNDURFRÉTTIR - TÓNLEIKAR Dark side of the Moon Mi 23/4 kl 20, Mi 23/4 kl 22:30 Nýja svið Þriðja hæðin Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga. Fax 568 0383 - midasala@borgarleikhus.is Miðasala 568 8000 PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler Lau 3/5 kl 20 Su 11/5 kl 20 Takmarkaður sýningarfjöldi Litla svið RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT Fö 25/4 kl 20, Lau 27/4 kl 20, Fö 2/5 kl 11 - UPPSELT, Fö 2/5 kl 20 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN í samstarfi við SJÓNLEIKHÚSIÐ Leikrit með söngvum - og ís á eftir! Lau 26/4 kl 14 SUMARÆVINTÝRI e. Shakespeare og leikhópinn Mi 23/4 kl 20, Lau 26/4 kl 20, Su 27/4 kl 20 MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS VÆRI HATTUR eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne Fö 25/4 kl 20, Fi 1/5 kl 20 KVETCH eftir Steven Berkoff í samstarfi við Á SENUNNI Fi 24/4 kl 20, Lau 3/5 kl 20 ATH: Síðustu sýningar 15:15 TÓNLEIKAR - BERGMÁL FINNLANDS Ferðalög - Poulenc-hópurinn, Lau 26/4 kl 15:15 „Salurinn lá í hlátri allan tímann enda textinn stórsnjall og drepfyndinn.“ Kolbrún Bergþórsdóttir DV Forsala á miðum í Sjallann Akureyri fer fram í Pennanum Eymundsson Glerártorgi. mið 16/4 SJALLINN AK. AUKAS.Nokkur sæti fim 17/4 SJALLINN AKUREYRI UPPSELT Iau 19/4 SJALLINN AKUREYRI UPPSELT lau 19/4 Þrjár systur; frumsýning í Nasa föst 25/4 Örfá sæti lau 26/4 Nokkur sæti mið 30/4 Sellófon 1. árs Nokkur sæti föst 2/5 Nokkur sæti lau 3/5 Nokkur sæti Leyndarmál rósanna sýn. mið. 16. apríl kl. 19 sýn. lau. 19. apríl kl. 19 Allra síðustu sýningar Uppistand um jafnréttismál sýn. lau. 19. apríl kl. 22.30 Allra síðasta sýning Búkolla sýn fim. 17. apríl kl. 14 sýn lau. 19. apríl kl. 14 sýn mán. 21. apríl kl. 14 Síðustu sýningar Miðasölusími sími 462 1400 www.leikfelag.is Laugard. 26. apríl kl. 14 Örfá sæti Sunnud. 27. apríl kl. 14 Örfá sæti Laugard. 3. maí kl. 14 Sunnud. 4. maí kl. 14 Miðvikud. 16. apríl kl. 20 Fimmtud. 24. apríl kl. 17 Síðustu sýningar Miðasala allan sólarhringinn í síma 566 7788 Bæjarleikhúsið Mosfellsbæ Eftir J.R.R. Tolkien Frumflutningur Guðbrandsmessa eftir Hildigunni Rúnarsdóttur í Langholtskirkju föstudaginn langa kl. 17:00 og sunnudaginn 27. apríl kl. 20.00 Flytjendur: Kór Langholtskirkju Kammersveit Langholtskirkju Ólöf Kolbrún Harðard., sópran Marta Hrafnsdóttir, alt Björn Jónsson, tenór Eiríkur Hreinn Helgason, bassi Stjórnandi: Jón Stefánsson Pantanir í síma 520 1300 og klang@kirkjan.is Miðasala í Langholtskirkju og við innganginn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.