Morgunblaðið - 15.04.2003, Blaðsíða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MIKIL undirboð verktaka í bygg-
inga- og mannvirkjagerð byggjast
oftar en ekki á fölskum forsendum.
Það sem verra er,
opinberir aðilar,
fyrirtæki og ein-
staklingar taka
svona tilboðum,
eftir að hafa skoð-
að skil á stað-
greiðslu skatta,
lítillega trygging-
ar í banka sem er
stundum „fiff “.
Er þetta nægjan-
legt? Þarf ekki að kanna mannafla,
menntun, reynslu og skil á vörslu-
sköttum, lífeyrissjóð, sjúkrasjóð og
fleira, sem og tækjakost?
Hvað stór hluti mannaflans eru
undirverktakar og hvernig er staða
þeirra? Eru þeir menntaðir, standa í
skilum og kunna til verka? Eru þess-
ir aðilar að keppa á jafnréttisgrunni
t.d. varðandi vinnuaðstöðu, þ.e varn-
ir gegn slysum, matar- og hreinlæt-
isaðstöðu, fata- og verkfæra-
geymslu, eru tryggingar í lagi? Því
miður er þetta alloft ekki í lagi,
byggingarfulltrúar, vinnueftirlit,
samkeppnistofnun og skattayfirvöld
horfa framhjá reglum og bera við
skorti á starfsmönnum. Stór fyrir-
tæki eins og Landsvirkjun, Vega-
gerðin og sveitarfélög eru að taka
svona tilboðum. Einstaklingar lenda
auðvitað í því að taka of lágum til-
boðum og lenda jafnvel verr í mis-
tökunum en stórfyrirtækin sem hafa
góða sjóði. Það er ekki bara verk-
kaupi sem fær skell heldur í mörgum
tilfellum fjölskyldur og aðstandend-
ur smærri fyrirtækja ásamt þeim
sem skrifa uppá verk, (leppar) lán og
tryggingar. Það á að vera samkeppni
um verk, en hún verður að byggjast
á réttlátum og sambærilegum
reglum. Byggingarfulltrúar, vinnu-
eftirlit, bankar þeir sem veita trygg-
ingar, samkeppnisstofnun og skatta-
yfirvöld mega ekki firra sig ábyrgð.
Opinberir verkkaupar verða að vera
ábyrgir, það er ekki nægjanlegt að
kaupa eftirlit frá virtri verkfræði-
stofu ef hún ræður síðan til sín und-
irverktaka, einstaklinga með mennt-
un, en stundum svo ábyrgðarlausa
að þeir standa ekki skil á sköttum og
skyldum. Undirboð sem eru 10 – 20
% undir kostnaðaráætlun eiga að
skoðast sérstaklega og það er spurn-
ing hvort ekki á að hafna þeim sem
eru lægri.
Eftirlitsaðilar sem nefndir eru hér
að framan þurfa að fylgjast hver með
öðrum.
Fjölskyldur og einstaklingar með-
alstórra og lítilla fyrirtækja lenda
alltof oft í því að fjárhagslegt um-
hverfi þeirra hrynur á örskots-
stundu. Þær eru oftast ungar og eng-
inn ber ábyrgð.
Við verðum að geta treyst því að
velmenntað fólk á Íslandi hafi þekk-
ingu á samfélaginu og burði til að
fara eftir almennum lögum og leik-
reglum.
ÁRMANN ÆGIR MAGNÚSSON,
Lyngheiði 24, 810 Hveragerði.
Undirboð, opinberar
stofnanir og eftirlit
Frá Ármanni Ægi Magnússyni
Ármann Ægir
Magnússon
!
"#
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
UNGIR framsóknarmenn í Reykja-
vík skora á Unga jafnaðarmenn í
Reykjavík á málþing í opnu bréfi í
Morgunblaðinu
11. apríl. Okkur
er bæði ljúft og
skylt að taka
áskorun þeirra,
þó með augljós-
um breytingum á
nálgun við um-
ræðuefnið, en
framsóknar-
mennirnir vilja
ganga svo langt
að mynda ríkisstjórnarsáttmála með
okkur nú þegar.
Við bjóðum aftur á móti unga
framsóknarmenn velkomna í kosn-
ingamiðstöð okkar, á tíma sem hent-
ar báðum fylkingum, til kappræðna
um:
a) Afhverju Framsóknarflokkur-
inn hafi séð ástæðu til að skerða
barnabætur um 8 milljarða
króna frá árinu 1995.
b) Afhverju ógnarlangir biðlistar
eru eftir hjúkrunarrýmum fyrir
aldraða og ýmsum læknisað-
gerðum eftir 8 ára samfellda
stjórnarsetu Framsóknar-
flokksins.
c) Afhverju Íslendingar standa
langt að baki öðrum Norður-
landaþjóðum í opinberum fram-
lögum til menntamála.
Samfylkingin gengur óbundin til
kosninga eins og aðrir flokkar. Sam-
fylkingin hefur mótað stefnu sína og
mun ganga til ríkisstjórnarsam-
starfs á grundvelli stefnunnar.
Grundvallaratriði verður að tryggja
að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir setj-
ist í forsætisráðherrastól svo Sam-
fylkingin fái þau tæki sem þarf til að
fylgja stefnu sinni eftir, ekki bara í
orði, heldur líka á borði.
Kjósendur sem knýja vilja fram
tímabærar breytingar á landsstjórn-
inni kjósa Samfylkinguna 10. maí.
Framsóknarflokkurinn fær dóm
kjósenda fyrir framgöngu sína síð-
astliðin 8 ár í þingkosningum 10.
maí.
Að öðru leyti þökkum við góð orð í
okkar garð og bjóðum unga fram-
sóknarmenn sem og alla aðra vel-
komna í hóp þeirra sem leggja vilja
Samfylkingunni lið við að koma nú-
verandi stjórnarherrum frá völdum
og snúa frá misskiptingarstefnu og
sérhagsmunagæslu ríkisstjórnarinn-
ar, hverrar dagar verða vonandi
brátt taldir. Það er kominn tími til að
breyta.
ANDRÉS JÓNSSON,
formaður stjórnar Ungra jafn-
aðarmanna í Reykjavík.
Tími til að breyta
Frá Andrési Jónssyni, formanni
Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík,
ungliðahreyfingar Samfylking-
arinnar í Reykjavík
Andrés
Jónsson