Morgunblaðið - 15.04.2003, Blaðsíða 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2003 13
Er allt í góðu hjá þér, ennþá?
Vátryggingafélag Íslands Ármúla 3 108 Reykjavík Þjónustuver 560 5000 www.vis.is
Þegar allt gengur vel og allir eru frískir og heilbrigðir er
sjálfsagt að huga að því að tryggja fjárhagslegt öryggi
fjölskyldunnar. Slys eða veikindi gera aldrei boð á
undan sér. Hafðu fjárhagslegt öryggi þitt og
fjölskyldunnar tryggt. Þú færð Lífís líf- og
sjúkdómatryggingar hjá VÍS og Landsbankanum.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
6
5
5
6
KEILIR, nýtt olíuskip Olíudreif-
ingar ehf., lagðist í fyrsta sinn að
íslenskri bryggju á föstudag þegar
skipið kom með skipaolíu til Fá-
skrúðsfjarðar.
Skipið var smíðað í Shanghai í
Kína en kjölur þess var lagður fyr-
ir um tveimur árum. Skipið, sem
er hannað af Ráðgarði skiparáð-
gjöf ehf., er 103 metra langt og
tekur um 5.200 rúmmetra af olíu
og er því stærsta skip sem smíðað
hefur verið fyrir Íslendinga á síð-
ari árum en jafnframt fyrsta olíu-
skipið sem smíðað er sérstaklega
fyrir Íslendinga í nærri aldarfjórð-
ung eða frá því Stapafell kom nýtt
hingað til lands árið 1979. Keilir er
tíunda olíuskipið í eigu Íslendinga
en þau hafa ekki öll verið smíðuð
sérstakalega fyrir Íslendinga.
Keilir leysir af hólmi olíuskipin
Kyndil og Stapafell og segir Hörð-
ur Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Olíudreifingar, að með Keili breyt-
ist nokkuð mynstrið í deifingar-
þjónustu fyrirtækisins. „Skipið
verður bæði í stranddreifingu en
sækir einnig olíu til útlanda. Á
heimsiglingunni frá Kína tók Keilir
til dæmis pálmaolíu í Indónesíu og
flutti til Lettlands og fór jafnframt
tvær ferðir með olíu frá Lettlandi
til Þýskalands, áður en það tók ol-
íu í Svíþjóð og sigldi til Íslands.
Skipið mun á næstu vikum fara tvo
hringi í kringum landið og losa olíu
á strandhöfnum.“
Áherslan á öryggismálin
Hörður segir að skipið kosti
fullbúið tæpan einn milljarð króna.
Við hönnun skipsins hafi höfuð-
áherslan verið lögð á öryggimálin.
„Um borð er meðal annars full-
kominn slökkvibúnaður, auk þess
sem skipið er með tvöföldum byrð-
ing og er þannig sérstaklega
styrkt til siglinga í ís. Skipið er
ennfremur hannað með tilliti til ís-
lenskra aðstæðna. Það ristir aðeins
6,3 metra fulllestað og kemst
þannig inn í flestar hafnir landsins.
Þá eru á skipinu tvær bógskrúfur í
stað einnar ef önnur skyldi bila. Þá
er í skipinu varaaflsvél sem trygg-
ir að hægt er að koma skipinu til
hafnar ef aðalvélin skyldi bila.“
Alls eru 10 manns í áhöfn Keilis.
Skipstjóri á Keili er Páll Ægir Pét-
ursson. Skipið verður til sýnis við
Miðbakkann í Reykjavík á morg-
un, miðvikudag, milli kl. 15.00 og
17.00.
Fyrsta nýsmíðin í
nærri aldarfjórðung
Morgunblaðið/JGÓ
Nýtt olíuskip leggst í fyrsta sinn að íslenskri bryggju
IÐNAÐAR- og viðskiptaráðuneyti
boðar til kynningarfundar um niður-
stöður starfshóps um „Mannaflaþörf
og sérhæfni vegna stóriðjufram-
kvæmda fyrir árin 2003–2008“.
Fundurinn verður haldinn á Hótel
KEA á Akureyri á morgun, 16. apríl,
og stendur frá kl. 12–13.30. Í frétta-
tilkynningu frá ráðuneytinu segir
m.a.:
„Iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
Valgerður Sverrisdóttir, mun ávarpa
fundinn, en síðan verða niðurstöður
starfshópsins kynntar. Einnig verða
á fundinum erindi og hagnýtar
ábendingar frá verkfræðistofum/að-
ilum með mikla reynslu er varða
þátttöku í stóriðjuverkefnum, um
það hvernig íslensk fyrirtæki geta
sem best undirbúið sig í þeim til-
gangi að ná sem mestum árangri
varðandi tilboð og verkefni í fyrirsjá-
anlegum stóriðjuframkvæmdum.“
Kynningar-
fundur um
stóriðjufram-
kvæmdir
Mörkinni 3, sími 588 0640.
Opið mán-fös kl.11-18 - lau kl. 11-15
Brúðkaupsgjafir
Br
úð
ar
gj
af
al
is
ta
r