Morgunblaðið - 15.04.2003, Side 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2003 35
✝ Jóhanna Guð-jónsdóttir var
fædd í Hrauntúni í
Leirársveit 30. des-
ember 1913. Hún lést
á Dvalarheimilinu
Höfða hinn 8. apríl
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru Ólöf
Þorbergsdóttir og
Guðjón Jónsson. Guð-
jón og Ólöf fluttu að
Melkoti í sömu sveit
1921. Systkini Jó-
hönnu eru: Þorgrím-
ur, f. 11. sept. 1909, d.
17. ág. 1910, Sigríður
Þorgerður, f. 10. okt. 1910, gift
Haraldi Gísla Bjarnasyni, Þorberg-
ur, f. 20. sept. 1911, Ágúst Sigurð-
ur, f. 28. ág. 1912, kvæntur Elísa-
betu Þorbjörnsdóttur, og Auður
Sunnubraut 8. Árið 1990 fluttust
þau að Dvalarheimilinu Höfða
Akranesi. Börn Jóhönnu og Gunn-
ars eru: 1) Ólöf Gunnarsdóttir, f.
23.12. 1943, gift Viðari Einarssyni.
Börn þeirra eru: a) Gunnar Jóhann,
maki Þorbjörg Ragnarsdóttir, börn
þeirra eru Ragnar Þór og Ólöf. b)
Elín , maki Gerd Hammerström,
börn þeirra eru Viðar Máni, Ólöf
Svava, Mia og Jonas. c) Þorbergur
Auðunn, maki Auður Magnúsdóttir,
börn þeirra eru Óttar Ingi, Elísabet
Huld og Laufey Eva. d) Einar, maki
Kristín Sveinsdóttir, börn þeirra
eru Karen Ósk, Elísa Björk og Heba
Bjarg. e) Erlingur, barn hans er
Sigrún Líf. 2) Reynir Gunnarsson, f.
25.1. 1948, kvæntur Sigríði Viktor-
íu Gunnarsdóttur, börn þeirra eru:
a) Nína Borg, maki Jón Örn Arn-
arsson, börn þeirra eru Reynir Ver,
Ólöf Eir og Arna Ósk. b) Jóhanna
Ólöf, barn hennar Sigríður Viktoría
Líndal. c) Berglind.
Útför Jóhönnu verður gerð frá
Akraneskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Kristín, f. 29.maí 1916.
Af systkinum Jóhönnu
er Þorbergur einn eft-
irlifandi og býr hann á
Dvalheimilinu Höfða á
Akranesi.
Jóhanna ólst upp í
föðurhúsum. Hún fór
ung að vinna fyrir sér
og vann ýmis störf,
meðal annars sem
vinnukona á Akranesi.
Hinn 22.11. 1942
giftist Jóhanna Gunn-
ari Jörundssyni vél-
stjóra, f. 10.11. 1915 í
Álfadal á Ingjalds-
sandi, d. 25.12. 1992. Foreldrar
hans voru hjónin Jörundur Ebene-
zersson og Sigríður Árnadóttir. Jó-
hanna og Gunnar bjuggu allan sinn
búskap á Akranesi, lengst af á
Ég var ekki gamall þegar ég kynnt-
ist Jóhönnu Guðjónsdóttur fyrst. Við
unnum saman við fiskvinnslu í
Heimaskaga ásamt öðru fólki á öllum
aldri, og þar kynntist ég því hversu
auðvelt henni reyndist að umgangast
alla með vinsemd og virðingu og gera
engan mannamun eða láta aldur
skipta máli til eða frá Hanna eins og
hún var kölluð var einstaklega kát og
skemmtileg kona og varð ég þeirrar
gæfu aðnjótandi að öðlast vináttu
hennar þarna í Heimaskaga forðum
og hélst sá vinskapur óslitið þar til
hún kvaddi þetta líf 8. apríl sl. Ekki
óraði mig fyrir því þegar ég kynntist
Hönnu fyrst að ég ættir eftir að verða
tengdasonur hennar og hennar ágæta
eiginmanns Gunnars Jörundssonar.
Eftir að við Lóa, dóttir þeirra hjóna,
giftum okkur og hófum búskap varð
heimili þeirra Hönnu og Gunnars
okkar annað heimili þangað var gott
og gaman að koma. Það var mikið fjör
og mikið gaman þegar börnin okkar
Lóu heimsóttu afa og ömmu og oft var
erfitt að greina á milli hver var elstur
og hver yngstur þegar horft var á
leikina sem í gangi voru hverju sinni.
Hanna var mjög söngelsk og var
hafsjór af kvæðum, vísum og söngv-
um sem hún kenndi börnum mínum
og öðrum barnabörnum sínum sem
elskuðu ömmu sína. Hanna hafði
mjög gaman af lestri góðra bóka og
spila á spil, hún var ötul við það á með-
an heilsa hennar leyfði. Hanna elskaði
fjölskyldu sína af heilum hug og helg-
aði henni allt sitt líf og var okkur öll-
um mjög kær. Við fjölskyldan ferð-
uðumst talsvert saman og eru
ferðalögin okkur ógleymanleg og var
þáttur Hönnu í þeim ekki sístur að
gera góða ferð betri.
Kæra Hanna mín, með þessum fá-
tæklegu orðum vil ég þakka þér sam-
verustundirnar og allt það sem þú
gerðir fyrir mig, Lóu mína, börnin
okkar, tengdabörn og barnabörnin
okkar. Guð geymi þig að eilífu.
Að lokum vil ég færa þér ástar-
kveðjur frá Lóu þinni.
Þinn
Viðar.
Elsku Hanna mín. Nú, þegar þú
hefur kvatt þennan heim, langar mig
að flytja þér þakkir með nokkrum fá-
tæklegum orðum. Að fá að kynnast
slíkri konu sem þú varst eru forrétt-
indi.
Þeim fækkar óðum sem geta sagt
frá löngu liðinni tíð og miðlað af fróð-
leik um þau kjör sem ungt alþýðufólk
bjó við í upphafi síðustu aldar. Það var
gaman að hlýða á þegar þú varst kom-
in „á flug“ í frásögninni, eins og við
kölluðum það, og upplifðir gamlar
stundir og miðlaðir okkur með þínum
skemmtilega frásagnarhæfileika.
Þú háðir baráttu við vanheilsu í
áraraðir og sífellt hallaði undan fæti
en ekki brást þér lundin létta. Þú
varst þeirri gáfu gædd að geta alltaf
slegið á létta strengi þegar þú máttir
mæla. Þó að þú værir sárþjáð gast þú
gert að gamni þínu og alltaf var stutt í
hláturinn þinn létta.
Ég kynntist þér fyrst 1971 þegar
dóttir mín, Silla, og Reynir sonur þinn
gengu í hjónaband. Það var mikill
hamingjudagur og við vorum svo
ánægðar með ungu hjónin. (Þú hefðir
nú sennilega orðað það þannig að við
hefðum verið að drepast úr monti.)
Frá þeim degi tengdist traust vinátta
milli okkar sem aldrei bar skugga á.
Þegar þú nú ert öll, Hanna mín, er
þín sárt saknað. En minningin um
góða og ástríka konu yljar um hjarta-
rætur og allir, börn, tendabörn og
barnabörnin eiga um þig yndislegar
minningar. Ég kynntist þér sem heil-
steyptri konu, sem aldrei lagði nema
gott eitt til manna og málefna og vildi
öllum vel.
Ég bið þér góðrar heimkomu til
ástvina þinna, sem á undan þér eru
farnir og ég veit að þér er tekið opn-
um örmum.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Aðstandendum öllum sendi ég mín-
ar innilegustu samúðarkveðjur. Guð
blessi ykkur öll.
Nína Sigurðardóttir.
JÓHANNA
GUÐJÓNSDÓTTIR
Erfidrykkjur
Heimalöguð kaffihlaðborð
Grand Hótel Reykjavík
Sími 514 8000
Minningarkort
Minningar- og
styrktarsjóðs
hjartasjúklinga
Sími 552 5744
Gíró- og kreditkortaþjónusta
LANDSSAMTÖK
HJARTASJÚKLINGA
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
.
1
2
7
0
.9
7
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGURVEIG HALLDÓRSDÓTTIR,
áður Dvergabakka 36,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir að morgni
fimmtudagsins 10. apríl.
Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju mið-
vikudaginn 16. apríl kl. 13.30.
Stefán V. Skaftason, Sigríður R. Hermóðsdóttir,
Halldór Skaftason, Ína Gissurardóttir,
Gyða Thorsteinsson,
Rósa Thorsteinsson, Árni S. Björnsson,
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ELÍN KRISTGEIRSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Neskirkju á morgun,
miðvikudaginn 16. apríl, kl. 15.00.
Guðný Guðmundsdóttir, Sveinn V. Jónsson,
Herborg Guðmundsdóttir, Trausti Már Ingason,
Helga Guðmundsdóttir, Guðni Sigþórsson,
Finnbjörg Guðmundsdóttir, Benedikt Davíðsson,
Oddný Guðmundsdóttir, Gestur Kristinsson,
Margrét Guðmundsdóttir, Arnór Eyþórsson,
Sveinbjörn Guðmundsson, Ólöf Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg systir mín, mágkona og frænka,
HELGA TRYGGVADÓTTIR,
Smiðjustíg 4
lést á líknardeild Landakotsspítala föstudaginn
11. apríl.
Agnar Tryggvason, Lára Þorsteinsdóttir,
Sverrir Agnarsson,
Edda Helga Agnarsdóttir, Jón Magnússon,
Tryggvi Þór Agnarsson, Erla Valtýsdóttir,
Lára Guðrún Agnarsdóttir, Kristján Sigurðsson
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KETILBJÖRG ERLENDÍNA
MAGNÚSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnu-
daginn 13. apríl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Gunnar Jens Magnússon, Þuríður Hólmgrímsdóttir,
Guðný M. Gunnarsdóttir,
Kristbjörg Þ. Gunnarsdóttir, Gunnar Guðmundsson,
barnabörn og langömmubarn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
BERGLJÓT GUTTORMSDÓTTIR,
Lynghaga 8,
Reykjavík,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
laugardaginn 12. apríl.
Útförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn
22. apríl kl. 13.30.
Sigríður H. Ólafsdóttir,
Guttormur Ólafsson, Aðalbjörg Ólafsdóttir,
Þorsteinn Ólafsson, Ásthildur S. Rafnar,
Eggert B. Ólafsson, Sigrún Pálsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.