Morgunblaðið - 15.04.2003, Page 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2003 37
✝ Þóra Böðvars-dóttir fæddist á
Bíldudal 9. febrúar
1918. Hún lést á
Landspítalanum við
Hringbraut hinn 5.
apríl síðastliðinn eft-
ir stutta sjúkrahús-
legu. Foreldrar
hennar voru Böðvar
Pálsson kaupfélags-
stjóri og útvegsbóndi
á Bakka í Ketildölum
í Arnarfirði, síðar
Bíldudal, f. 12. febr-
úar 1889 á Prests-
bakka í Hrútafirði,
d. 20. febrúar 1982, og eiginkona
hans Lilja Árnadóttir, f. 26. maí
1895 á Tjaldanesi í Arnarfirði, d. 8.
febrúar 1965. Systkini Þóru voru
Páll, f. 6. desember 1919, d. 23.
ágúst 1921, jarðsettur í Selárdal,
og Auður, f. 19. ágúst 1922, d. 9.
maí 1982.
Auður giftist 1952 Héðni Finn-
bogasyni héraðsdómslögmanni, f.
10. maí 1923 í Hítardal í Mýra-
sýslu, d. 23. febrúar 1985, og eign-
uðust þau fimm börn. Þau eru: 1)
Lilja, kennari f. 1952, gift Þórði
Sverrissyni og eiga þau þrjú börn.
2) Bolli, hagfræðingur, f. 1954,
kvæntan Ástu St. Thoroddsen og
eiga þau fjögur björn. 3) Sverrir, f.
1957, d. 1964. 4) Böðvar, viðskipta-
fræðingur, f. 1963, kvæntur Ás-
gerði Theodóru Björnsdóttur og
eiga þau fjögur börn. 5) Sigríður,
ferðamálafræðingur, f. 1963 gift
dóttur ferðamálafræðingi og eiga
þau Auði Örnu, Brynju og tví-
burana Bjarka og Fannar.
2) Jakobína Ragnheiður Adams,
búsett í Gig Harbor í Wash-
ingtonfylki í Bandaríkjunum, f. 7.
ágúst 1943, gift James W. Adams
fyrrv. flugstjóra hjá United Air-
lines. Dóttir hennar er Tina Lor-
raine Curran kennari í Gig Har-
bor, f. 14. janúar 1971, gift
Andrew G. Curran slökkviliðs-
manni og eiga þau synina Kellan
Andrew og Liam Robert.
Föðurætt Þóru var við Djúp og
nefnd Vatnsfjarðarættin. Foreldr-
ar Böðvars voru Páll, prófastur á
Prestsbakka í Hrútafirði, Ólafsson
og Arndís, dóttir Péturs Friðriks-
sonar Eggerz, kaupfélagsstjóra og
bónda í Akureyjum í Breiðafirði,
Friðrikssonar og Jakobínu Páls-
dóttur Melsteð amtmanns, Þórðar-
sonar.
Séra Páll var af ættum Síðu-
presta í beinan karllegg, sonur
séra Ólafs Pálssonar, prests og
prófasts í Vatnsfirði og fyrrv.
dómkirkjuprests, Pálssonar,
prests í Ásum, og í Guttormshaga,
Ólafssonar. Kona séra Ólafs í
Vatnsfirði var Guðrún Ólafsdóttir
Stephensen í Viðey Magnússonar.
Þóra fæddist á Bíldudal, ólst
upp á Bakka í Arnarfirði og bjó í
Reykjavík frá árinu 1939. Hún
stundaði nám heima við og á Núpi í
Dýrafirði veturinn 1934–35.
Hún hóf störf í miðasölu Þjóð-
leikhússins skömmu eftir opnun
þess 1951 og starfaði þar allt þar
til hún fór á eftirlaun árið 1985,
eða í 34 ár.
Útför Þóru fer fram frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Sigurði V. Sveinssyni
og eiga þau tvö börn.
Þóra giftist 13. jan-
úar 1940 Ásgeiri
Markúsi Jens Guð-
mundssyni húsa-
smíðameistara f. 28.
febrúar 1916 að Sönd-
um í Dýrafirði, d. 6.
maí 1950. Foreldrar
hans voru Guðmundur
Helgason, húsasmíða-
meistari, f. 12. ágúst
1886 á Hofi í Dýra-
firði, d. 22. júlí 1951,
og Jakobína Ásgeirs-
dóttir, f. 6. september
1896 í Álftamýri í Arnarfirði, d. 28.
nóvember 1958. Þóra og Ásgeir
eignuðust tvö börn. Þau eru: 1)
Böðvar Páll, húsasmíðameistari
og matsfulltrúi hjá Fasteignamati
Ríkisins, f. 11. febrúar 1941. Kona
hans er Greta María Sigurðardótt-
ir, fulltrúi hjá Flugmálastjórn Ís-
lands, og eiga þau fjögur börn.
Þau eru: a) Þóra Brynja læknislíf-
fræðingur og deildarstjóri hjá
Novo Nordisk í Kaupmannahöfn, f.
3. desember 1960, gift Árna Frið-
rikssyni húsasmíðameistara og
eiga þau Gretu Maríu. b) Ásgeir
Baldur, húsasmíðameistari í
Reykjavík, f. 8. október 1962 og á
hann soninn Böðvar Pál. c) Þórunn
Sif, kennari í Reykjavík, f. 9. febr-
úar 1964, hún á dótturina Aþenu
Eydísi. d) Sigurður Arnar kerfis-
fræðingur í Reykjavík, f. 10. jan-
úar 1966, kvæntur Sigríði Jónas-
Amma fékk mig í afmælisgjöf.
Þessi orð voru alltaf sögð þegar
hún kynnti mig fyrir frændfólki,
vinum, kunningjum og samstarfs-
fólki. Það var ekki svo sjaldan sem
ég fékk að heyra þessa setningu,
því að amma var vinamörg. Þegar
ég var unglingur og gekk með
henni niður Laugavegin voru ófá
stoppin sem gerð voru til að spjalla
um daginn og veginn, og fannst
mér hún þekkja alla. Hún amma
var ófeimin, hafði skoðun á öllum
hlutum og var það hennar helsta
yndi að spjalla við fólk. Hún hafði
alltaf eitthvað til málanna að leggja
enda var hún fluggreind, vel lesin
og fylgdist af miklum áhuga með
fréttum og því sem efst var á baugi
hverju sinni.
Hún amma yfirgaf þennan heim
á sama hátt og hún hafði lifað líf-
inu. Árvökul með skýran kollinn og
allt sitt á hreinu. Það var hennar
gæfa að geta búið á heimili sínu á
Leifsgötunni allt til dauðadags.
Leifsgatan var meira en bara
heimili ömmu, hún var heimili okk-
ar allra. Örugg höfn þar sem alltaf
var hægt að leita skjóls í hlýjum
örmum ömmu hvort sem var til að
stoppa í 20 mínútur eða til lengri
tíma. Ég var einmitt svo lánsöm að
fá að búa hjá henni með Aþenu
mína í eitt og hálft ár. Aþena var
fjögurra mánaða þegar örlögin
höguðu því þannig að okkur vant-
aði samastað og mátti amma ekki
heyra á annað minnst en að við
flyttum til hennar. Það var mikill
styrkur fyrir unga móður að geta
búið við það öryggi sem var að
finna hjá ömmu og þrátt fyrir
hennar innihaldsríka líf hafði hún
alltaf tíma fyrir okkur og tók fullan
þátt í umönnun hennar. Í samein-
ingu vöktum við yfir barninu þegar
þess þurfti með og sátum saman
inni á stofu og grétum þegar það
átti að venja hana við að sofna
eina. Á þessum tíma tengdumst við
amma mjög sterkum böndum sem
ekkert fékk rofið og er ég eilíflega
þakklát fyrir þennan dýrmæta
tíma sem við áttum saman. Og
seinna urðu samverustundirnar
fleiri, ógleymanleg ferð til Biddu í
Ameríku eitt sumarið, heimsókn til
mín þegar ég bjó í Danmörku, að
ógleymdri ferðinni okkar þriggja
til Bíldudals. Það var dýrmætt að
geta farið með ömmu til fæðing-
arstaðar hennar, og unun var að
hlusta á sögurnar sem hún sagði af
mannlífinu þar, langafa mínum og
langömmu. Hún gat bent á nánast
hvert einasta hús og sagt frá fólk-
inu sem þar bjó. Amma var alla tíð
ákaflega stolt af afkomendum sín-
um og fylgdist vel með öllu sem við
tókum okkur fyrir hendur. Hennar
sérstaka nána samband við son
sinn, föður minn, og dóttur skilaði
sér áfram til þeirra afkomenda. Ég
gleðst yfir því að Aþena fékk að
kynnast langömmu sinni og var
þeirra samband náið og innilegt.
Eitt af síðustu verkum ömmu var
að pakka inn fermingargjöfinni
hennar, sæng sem er henni mjög
dýrmæt. Hún lést daginn fyrir
ferminguna, en við fundum fyrir
hennar sterku nálægð í athöfninni
og sendi hún okkur öllum styrk til
að gera daginn sem gleðilegastan.
Það er ekki hægt að minnast á
ömmu án þess að geta tryggðar
hennar við afa sem var stóra ástin í
lífi hennar allt til dauðadags. Þó
svo að rúm 50 ár séu liðin frá
ÞÓRA
BÖÐVARSDÓTTIR
dauða hans, fékk hún alltaf tár í
augun þegar hún minntist hans.
Þau eru nú loksins sameinuð á
himnum og trúi ég að þeirra mikla
ást blómstri þar nú og saman vaki
þau yfir okkur, stolt og ánægð.
Elsku pabbi, mamma og Bidda,
missir okkar allra er mikill en
áfram lifir minning um konu sem
gaf okkur allt það besta sem hún
átti, skilyrðislausa ást sína. Það er
með þungum trega og söknuði sem
ég kveð hana elsku ömmu mína
sem ég var jafnstolt af og hún af
mér.
Ég kveð þig elsku amma með
orðunum sem þú sagðir alltaf við
mig: Guð geymi þig.
Þín
Sif.
Fleiri minningargreinar
um Þóru Böðvarsdóttur bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
EIRÍKUR OLSEN,
lést á hjúkrunarheimilinu Dalbæ, föstudaginn
11. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Árskógskirkju, Árskógs-
strönd, þriðjudaginn 15. apríl kl. 14.00.
Ella, Eiríkur, Elsa,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar,
JÓHANNA GUÐJÓNSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
sem lést þriðjudaginn 8. apríl sl., verður
jarðsungin frá Akraneskirkju þriðjudaginn
15. apríl kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
dvalarheimilið Höfða.
Ólöf Gunnarsdóttir, Viðar Einarsson,
Reynir Gunnarsson, Sigríður V. Gunnarsdóttir
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur hlýhug og samúð vegna fráfalls
ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
MARKÚSÍNU GUÐNADÓTTUR,
hárgreiðslumeistara.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkr-
unarheimilisins og dagdvalar Sunnuhlíðar fyrir
einstaka alúð og umönnun.
Helena Alma Ragnarsdóttir, Jón Ingvar Ragnarsson,
Sigurður Egill Ragnarsson, Bryndís S. Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Bróðir okkar,
HELGI INGÓLFSSON
matreiðslumeistari,
lést í Washington þriðjudaginn 8. apríl.
Útförin hefur farið fram.
Ásdís Ingólfsdóttir,
Jóhanna Ingólfsdóttir.
Eiginmaður minn,
PAUL EBERHARD HEIDE
úrsmiður,
Fannborg 9,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu-
daginn 3. apríl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Guðrún Ágústsdóttir.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
BERGÞÓRA ÞORGEIRSDÓTTIR,
lést á Sankti Franciskusspítalanum í Stykkis-
hólmi sunnudaginn 13. apríl.
Jarðaförin fer fram frá Stykkishólmskirkju
laugardaginn 19. apríl kl. 14.00.
Níelsa Magnúsdóttir, Jón Lárus Bergsveinsson,
Þórhildur Magnúsdóttir, Kristinn Ólafur Jónsson,
Guðrún Erna Magnúsdóttir, Pálmi Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, afi
og langafi,
SIGURÐUR HALLGRÍMSSON
vélfræðingur,
Granaskjóli 24,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 16. apríl kl. 10.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á líknarstofnanir.
Elín Aðalsteinsdóttir,
Hallgrímur Sigurðsson,
Rannveig Sigurðardóttir,
María Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, fóstri,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR YNGVI KRISTINSSON,
frá Löndum í Vestmannaeyjum,
Breiðvangi 8,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnar-
firði miðvikudaginn 16. apríl kl 15.00.
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeir, sem vildu minnast hans, láti Krabba-
meinsfélagið njóta þess.
Guðbjörg Bergmundsdóttir,
Kristinn Þórir Sigurðsson, Ásta Úlfarsdóttir,
Bergmundur Helgi Sigurðsson, Ingibjörg Sigurjónsdóttir,
Bergmundur Elli Sigurðsson, Ólöf Helga Júlíusdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.