Morgunblaðið - 26.04.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 111. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Auður nýrra
Íslendinga
Hvernig á að virkja auðinn sem
býr í innflytjendum? Lesbók 4
Beckham
til Spánar?
Knattspyrnumaðurinn knái er orðaður
við Real Madrid Íþróttir 63
DONALD Rums-
feld, varnarmála-
ráðherra Banda-
ríkjanna, segir að
stjórn George W.
Bush forseta
muni ekki líða að
klerkastjórn í lík-
ingu við þá sem
ræður í Íran verði
komið á laggirnar
í Írak. „Hávær minnihlutahópur sem
segist vilja breyta Írak í Íran mun
ekki hafa erindi sem erfiði,“ sagði
ráðherrann í gær. Hann sagði engan
vafa leika á því að ráðamenn í Teher-
an hefðu hvatt menn til að halda til
Íraks til að sjá til þess að niðurstað-
an af valdataflinu eftir einræði Sadd-
ams Husseins yrði stjórn sjítaklerka
eins og í Íran.
Íranar hafa vísað harkalega á bug
ásökunum Bandaríkjamanna um að
þeir standi fyrir íhlutun í írösk inn-
anlandsstjórnmál. Hafa stjórnvöld í
Teheran varað Bandaríkjamenn við
því að láta menn úr hernámsliðinu
fara yfir landamærin inn í Íran.
Rumsfeld
Washington. AFP.
Vona að Aziz/18
Rumsfeld
andvígur
klerkastjórn
MALARÍA verður tveim börnum að
bana á mínútu hverri í Afríku. Sam-
einuðu þjóðirnar greindu frá þessu í
gær, á malaríudeginum í Afríku, er
skýrsla samtakanna um sjúkdóminn
var birt í Abidjan í Kenýa og ráð-
stefna haldin í London.
Claire Short, alþjóðaþróunarráð-
herra Bretlands, sagði í gær að brýn
þörf væri fyrir mun „kraftmeiri að-
gerðir“ í baráttunni við sjúkdóminn,
sem valdi fleiri dauðsföllum en nokk-
ur annar sjúkdómur í Afríku.
Notkun flugnaneta sem úðuð eru
með skordýraeitri gæti dregið úr út-
breiðslu malaríu um 60% og minnkað
ungbarnadauða af völdum sjúk-
dómsins um 80%, segir Alþjóðaheil-
brigðisstofnunin.
„Kraftmeiri
aðgerða“ þörf
London, Abidjan. AFP.
ÍRÖSK sjítafjölskylda hleður eigum sínum á
vörubíl í þorpinu Al Nasser, norður af Kirkuk í
N-Írak í gær. Sjítarnir fluttu til þorpsins er Sadd-
am Hussein, fyrrverandi forseti landsins, lét
flytja mikinn fjölda arabískra íbúa landsins til
norðurhlutans fyrir rúmum áratug, en nú eru
sjítarnir hraktir frá heimilum sínum af Kúrdum
sem vilja heimta lendur sínar aftur.
Sjítar hraktir frá heimilum sínum
AP
♦ ♦ ♦
RÍFLEGA fjórðungur af helstu stjórnendum í
Búnaðarbanka Íslands hf. hefur sagt upp störfum
og gengið til liðs við Landsbankann eða mun gera
það á næstu mánuðum, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins. Þannig hafa tólf sagt upp af
fjörutíu stjórnendum, sem tilgreindir voru í skipu-
riti bankans 7. febrúar sl., þ.e. bankastjórum,
framkvæmdastjórum og forstöðumönnum. Þar er
um að ræða þrjá af fimm framkvæmdastjórum og
níu af 33 nafngreindum forstöðumönnum í skipu-
ritinu.
Flestar uppsagnir á verðbréfasviði
Fyrr í vikunni kom fram að þrír framkvæmda-
stjórar í Búnaðarbankanum, þau Sigurjón Þ.
Árnason, Elín Sigfúsdóttir og Yngvi Örn Krist-
insson, auk Ársæls Hafsteinssonar yfirlögfræð-
ings, tækju við bankastjóra- og framkvæmda-
stjórastöðum í Landsbankanum.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hafa
fimm forstöðumenn af tíu á verðbréfasviðinu, sem
Yngvi Örn stýrði, sagt upp störfum og sjö aðrir
starfsmenn á verðbréfasviði, samtals þrettán
starfsmenn að framkvæmdastjóranum meðtöld-
um. Þrír hafa sagt upp af átta forstöðumönnum á
rekstrarsviðinu, sem var undir stjórn Sigurjóns Þ.
Árnasonar, nýráðins bankastjóra Landsbankans.
Auk þeirra hefur einn starfsmaður enn af rekstr-
arsviðinu sagt upp. Þá eru tveir starfsmenn fyrir-
tækjasviðs, sem Elín Sigfúsdóttir stýrði, hættir
hjá Búnaðarbankanum og einn starfsmaður lög-
fræðideildarinnar, sem var undir stjórn Ársæls
Hafsteinssonar.
Einn forstöðumannanna fimm á verðbréfasvið-
inu hafði sagt upp störfum og ráðið sig hjá Lands-
bankanum fyrir nokkru, áður en uppsagnir fram-
kvæmdastjóranna voru tilkynntar. Að honum
frátöldum hafa 22 starfsmenn Búnaðarbankans
sagt upp á undanförnum dögum, að sögn Sólons R.
Sigurðssonar bankastjóra.
12 af 40 farnir til Landsbanka
Ríflega fjórðungur helstu stjórnenda Búnaðarbanka hefur sagt upp störfum
Samtals 22 starfsmenn
hafa ákveðið að færa sig
um set undanfarna daga
Flestar uppsagnir/12
SIGRI frambjóðandinn Carlos Menem í for-
setakosningunum í Argentínu á morgun er
ólíklegt að hann manni stjórn sína sömu emb-
ættismönnum og sátu í stjórnartíð hans 1989–
1999 þar eð 23 þeirra hafa verið ákærðir fyrir
spillingu. Sjálfur sat Menem í stofufangelsi í
167 daga sakaður um vopnasmygl, en með
umdeildum hæstaréttarúrskurði var hann
látinn laus 2001.
Skoðanakannanir sýna, að Menem nýtur
mests fylgis, á bilinu 19 til 22%, en rétt á hæla
honum koma þeir Nestor Kirchner og Ric-
ardo Lopez Murphy. Ljóst er, að enginn
þeirra fær þau 40%, sem þarf til að sigra í
kosningunum á morgun, og því verður kosið á
milli tveggja efstu manna 18. maí.
Eduardo Duhalde, fráfarandi forseti, styð-
ur Kirchner sem eftirmann sinn en hann og
Menem og Murphy eiga allir rætur sínar í
Perónistaflokknum, sem gengur margklofinn
til kosninganna.
Í forsetatíð sinni 1989 til 1999 vann Menem
sér það helst til frægðar að kveða niður óða-
verðbólguna og binda gengi gjaldmiðilsins,
pesósins, við dollara. Það síðarnefnda átti svo
sinn þátt í efnahagshruninu. Menems er hins
vegar einnig minnst fyrir spillingu, bruðl og
kvennamál sem vöktu hneyksli.
Það kemur í hlut væntanlegs forseta að
semja við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, IMF,
hreinsa til í bankakerfinu, hækka tolla og
semja aftur um þjóðarskuldina. Á síðasta ári
minnkaði landsframleiðslan um 10,9% og þá
voru 38% vinnufærra manna atvinnulaus.
Reuters
Menem sigurviss fyrir framan mynd af Juan
Peron, fyrrverandi Argentínuforseta.
Menem með nauma forystu
Buenos Aires. AFP.
Sólveig í
sviðsljósi
Sólveig Arnarsdóttir nýtur
velgengni í Þýskalandi Fólk 65
UM helgina kólnar
á öllu landinu og má
búast við miklum
vindi og snjókomu
um norðan- og aust-
anvert landið. Gera
má ráð fyrir að
kuldinn verði mest-
ur á þriðjudag en
aftur fari að hlýna á
föstudag, að sögn
Theodórs Hervars-
sonar veðurfræð-
ings hjá Veðurstofu
Íslands.
„Þessu veldur
kalt heimskautaloft
sem streymir hing-
að úr norðri. Því fylgir stíf norðan- og austanátt
og verður vindur á bilinu 10–15 metrar á sek-
úndu um landið en gæti farið upp í 20 metra á
Vestfjörðum,“ segir Theodór. Hann segir að slík-
ur kuldi sé ekki óeðlilegur miðað við árstíma.
Búast má við næturfrosti um allt land og gæti
orðið allt að 5 gráða frost á Norður- og Austur-
landi. Hiti mun verða um og yfir frostmarki að
deginum til en hlýjast um sunnan- og vestanvert
landið. Skýjað verður að mestu leyti um allt land.
Óttast ekki um gróður
Eins og kom fram í Morgunblaðinu í vikunni
hefur gróður á Norðurlandi víða tekið vel við
sér, m.a. á Akureyri. Stefán Gunnarsson, yfir-
verkstjóri garðyrkjumála hjá Akureyrarbæ, á
ekki von á að kuldakastið nú muni valda sér-
stökum skemmdum á gróðri. „Þegar slydda er
og lágskýjað erum við ekkert mjög hræddir þó
að því fylgi næturfrost. Auðvitað vitum við af
þessu – við erum t.d. með ræktun á sumar-
blómum og öðru fyrir bæinn og menn verða að
sjálfsögðu vakandi fyrir þessu, t.d. verðum við
með vakt á gróðurhúsinu. En við erum ekkert
óskaplega órólegir – það þarf meira til en svona
örlítið kast.“
Kalt heim-
skautaloft
streymir
til Íslands
Talið er að nýgræðing-
urinn þoli kuldakastið.
Kuldakasti spáð um
allt land næstu daga
Morgunblaðið/Kristinn