Morgunblaðið - 26.04.2003, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 26.04.2003, Blaðsíða 27
NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 27 LANDIÐ súkkulaði og gos með góðu meðlæti. Krakkarnir höfðu sjálfir ásamt foreldrum sínum allan veg og vanda af uppsetningu og undirbúningi sýningarinnar svo og af veitingun- um. Þau hafa verið í allan vetur að vinna fyrir þessu ferðalagi. Þau gerðu sjálf jólakort og seldu, hafa vikulega unnið við að færa sorppoka að sorpbílnum, selt gellur og fisk o.fl. Þetta er örugglega þroskandi og gott fyrir krakkana að standa í öllu þessu. Stefnan sett á Kaupmannahöfn Nemendur 10. bekkjar grunn- skólans á Hellissandi hafa sl. 12 ár jafnan farið til útlanda að prófum loknum. Fyrstu fjögur árin var far- ið til Frakklands. Síðan hefur verið farið til Danmerkur og síðustu árin bara til Kaupmannahafnar. Ferðinni nú er heitið til Kaup- mannahafnar strax að loknum sam- ræmdum prófum. Þar verður stopp- að í 6 daga, farið í Tívólí, skoðuð söfn og markverðir staðir. Svo verð- ur haldið heim. Á SUMARDAGINN fyrsta stóðu krakkar í 10. bekk grunnskólans á Hellissandi fyrir fjölbreyttri og áhugaverðri sýningu á alls konar munum sem fólk hér í Snæfellsbæ hefur búið til í tómstundum sínum. Á sýningunni kenndi margra grasa allt frá fallegum bútasaums- teppum til vel gerðra keramiks- muna. Mikið var af postulíni sem hafði verið málað og skreytt. Svo var þarna allt möguleg annað, m.a. tveir íslenskir kvenbúningar. Þá sýndu nokkrar konur línudans af kunnáttu . Þær voru skemmti- lega búnar í fallegum kúrekabún- ingum. Tilgangur þessarar sýngar var að safna peningum til að standa undir kostnaði við væntanlega utanlands- ferð nemandanna í bekknum, auk þess að að gefa fólki tækifæri til að sjá þessa fallegu muni. Það kostaði ekkert inn á sýninguna en pening- unum náðu þau af gestunum með því að selja þeim veitingar, kaffi, Safna fé fyrir utanlandsferð Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir Á sýningunni voru bútasaumsteppi, keramikmunir, postulín sem hafði ver- ið málað og skreytt, tveir íslenskir kvenbúningar og margt fleira. Hellissandur VERKUN á þorramat er almennt góð, samkvæmt niðurstöðum skýrslu um eftirlit Umhverf- isstofnunar og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga með gæðum þorra- matar. Mikill meirihluti sýna, eða 96 af 101, var talinn fullnægja viðmiðunarreglum Hollustu- verndar ríkisins fyrir örveru- rannsóknir á matvælum og neysluvatni. Fimm sýni voru talin ófullnægjandi og var eitt sýni með of mikinn fjölda gerla, eða of háa líftölu sem svo er nefnd. „Greinilegt er að hreinlæti við meðhöndlun á þorramat er víðast hvar fullnægjandi. Niðurstöður eru mjög svipaðar og í samskonar rannsókn árið 2002 og sýna að ástandið er gott. Næsta ár væri athugandi að skoða aðra þætti tengda kjötvinnslu,“ segir í greinargerð Umhverfisstofnunar. Eftirlitið fór fram frá desem- ber á liðnu ári og fram í febrúar 2003 og var tilgangurinn sá að kanna gæði súrmatar víðs vegar um landið. Tekin voru sýni á átta heilbrigðiseftirlitssvæðum, það er 85 sýni af súrsuðu kjötmeti og 16 sýni af ósýrðum mat frá stór- eldhúsum, veislueldhúsum, fram- leiðendum og úr verslunum. Um var ræða sýni af lundabagga, bringukolli, súrri sviðasultu, súr- um hrútspungum, súrri lifr- arpylsu, súrum blóðmör, blönd- uðum þorramat, rengi, súrri grísasultu og pressuðu kjöti. Einnig voru sýni tekin af ósýrðri sviðasultu, blóðmör, lifrarpylsu, magál og hákarli. Öryggi og hreinlæti Litið er á helstu atriði sem hafa áhrif á öryggi matvælanna og sýni rannsökuð með tilliti til fjölda gersveppa, myglusveppa, saurkólígerla og bacillus cereus, sem gefa vísbendingar um hrein- læti og gæði vörunnar. Einnig var mælt sýrustig og fjöldi mjólk- ursýrubaktería sem gefa súrmat hina sérstöku bragðeiginleika og geymsluþol. Í ósýrða matnum var heild- arfjöldi gerla talinn og hvort sjúkdómsvaldandi örverur væru til staðar, það er saurkólígerlar, clostridium og staphylococcus aureus. Eitt sýni greindist með of mik- inn heildargerlafjölda við 30 gráður og reyndist jafnframt mengað af saurkólígerlum, sem bendir til þess að almennu hrein- læti hafi verið ábótavant, segir í skýrslu Umhverfisstofnunar. Verkun á þorramat sögð góð Morgunblaðið/Golli Óhætt er að leggja þorramat sér til munns, í það minnsta frá heilbrigð- issjónarmiði. KÚS kús er vinsæl hveititegund í seinni tíð og er ekki bara fyrir meistarakokka að matreiða, eins og einhverjir kynnu að ætla. Hér fylgir sumarleg uppskrift frá dönsku neytendasamtökunum. Kús kús-salat með grænmeti fyrir fjóra 350 g kús kús 6 stórir tómatar 4 laukar 4 gulrætur 1 kúrbítur 1 msk ólífuolía 2 hvítlauksrif 1 rauður chili pipar Hnífsoddur af kanil Safi og börkur úr hálfri sítrónu Hrásykur eða hunang 1 dl fínt söxuð mynta 1 dl fínt saxað basil 4 sneiðar hráskinka eða fjórar lambamedalíur Hellið ísköldu vatni yfir kús kúsið og látið standa í 20 mínútur. Skerið tómatana til helminga og pressið safann og steinana varlega úr. Skerið tómatana í teninga. Sneiðið laukinn, gulræturnar og kúrbítinn og mýkið í ólífuolíu á djúpri pönnu. Kremjið hvítlaukinn og skerið niður chili-piparinn, bætið saman við ásamt kanilnum. Setjið tómatana saman við og látið krauma í fáeinar mínútur. Hellið sítrónusafanum út í og bætið örlitlu af hrásykri eða hunangi saman við. Hellið vatninu af kús kúsinu og setjið saman við grænmetið. Stráið salti og pipar yf- ir og lokið pönnunni. Látið standa í um það bil fimm mínútur. Stráið kryddjurtunum og sítrónuberkinum yfir og kryddið með salti og pipar eftir smekk. Berið fram með hrá- skinku eða lambakjöti. Kús kús-salat með grænmeti Kús kús er kjörið í salat með alls kyns grænmeti og kryddi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.