Morgunblaðið - 26.04.2003, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.04.2003, Blaðsíða 18
ERLENT 18 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ BANDARÍSK og bresk stjórnvöld fögnuðu því í gær að tekist hefði að hafa hendur í hári Tariqs Aziz, fyrr- verandi aðstoðarforsætisráðherra Íraks, en hann gaf sig sjálfviljugur fram í Bagdad í fyrradag. Banda- ríkjaher er nú að yfirheyra Aziz en vonast er til að hann geti veitt vís- bendingar um það hvort Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, sé á lífi og hvar hann heldur sig ef svo er. Aziz er ekki sagður hafa verið í innsta hring Saddams þó að þeir hafi þekkst frá því á sjötta áratug síðustu aldar. Hann er kaþólskrar trúar og var því hálfutangátta í ríkisstjórn forsetans sem einkum var skipuð súnní-múslimum. Þá er hann ekki skyldur Saddam, en sem kunnugt er tilheyrðu flestir af helstu ráðgjöfum Saddams al-Tikriti-ættinni, eins og forsetinn sjálfur. Skiptar skoðanir eru því um það hversu mikill fengur Aziz telst vera. Eru raunar flestir sammála um að þó að Aziz hafi áreiðanlega haft áhrif á stjórn mála í Írak þá hafi hann ekki haft veruleg völd. Sú staðreynd, að Aziz var aðeins númer 43 á lista Bandaríkjamanna yfir eftirlýsta ráðamenn Saddam-stjórnarinnar, er sögð til marks um þetta. Tariq Aziz átti á hinn bóginn sæti í byltingarráði Íraks og hann var því eftirlýstur fyrir stríðsglæpi gegn Kúveit, Íran og Írökum sjálfum. Þá er hann sjálfsagt einna þekktastur íraskra ráðamanna – ef Saddam sjálfur er undanskilinn. Einkum bar mikið á Aziz fyrir og eftir Persaflóa- stríðið árið 1991, þegar hann gegndi embætti utanríkisráðherra, og eins þegar í brýnu skarst milli Íraka og Bandaríkjamanna árið 1998. Varð utanríkisráðherra 1983 Aziz talar ensku reiprennandi og kunni að tala máli Íraks á alþjóðleg- um vettvangi. Fyrir vikið hafði hann áunnið sér nokkra virðingu írösku þjóðarinnar. Á hinn bóginn mátti ráða af samtölum við fólk í Bagdad í gær að margir töldu Aziz eiga skilið sömu meðferð og forsetinn sjálfur. „Hann var harðstjóri eins og Sadd- am. Saddam valdi ekki góðmenni í stjórn sína, hann kunni best við morðingja og þjófa,“ sagði Sadek Ali, 32 ára gamall Bagdad-búi, í samtali við AFP-fréttastofuna. Aziz fæddist í Mosul árið 1936 sem Mikhail Yuhanna en breytti seinna nafni sínu; Tariq Aziz þýðir „glæst fortíð“ á arabísku. Hann las enskar bókmenntir við Listaháskólann í Bagdad og gerðist síðan kennari og blaðamaður. Hann gekk til liðs við Baath-flokkinn árið 1957 og vann að því með Saddam að steypa af stóli konungi landsins, sem Bretar höfðu komið til valda. Saddam varð sjálfur forseti Íraks árið 1979 og útnefndi Aziz utanrík- isráðherra fjórum árum síðar. Er Aziz sagður hafa átt stóran þátt í því að Írakar tryggðu sér stuðning vest- urveldanna í stríðinu gegn Íran, sem stóð 1980–1988. Aziz hitti m.a. Don- ald Rumsfeld, núverandi varnar- málaráðherra Bandaríkjanna, árið 1983 en Rumsfeld var þá sérlegur sendimaður Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta. Aziz hitti einnig Reagan sjálfan að máli en Írak og Bandaríkin tóku upp stjórnmálasamskipti 1984 eftir sautján ára hlé. Eftir Persaflóastríðið hækkaði Saddam Aziz í tign og gerði hann að varaforsætisráðherra. Telja sumir að þessi uppstokkun hafi í reynd komið til af því að Saddam var ósátt- ur við að undirsátar hans yrðu jafn- þekkt andlit á erlendum vettangi og Aziz var þá. Uday og Aziz litlir vinir Fullyrt er að Uday, sonur Sadd- ams, hafi haft horn í síðu Aziz. Þeim hafi ekki verið vel til vina. Árið 1996 var Ziad, sonur varaforsætisráð- herrans, handtekinn og sakaður um spillingu en margir telja að þar hafi Uday einfaldlega verið að treysta eigin stöðu í valdabaráttu við Ziad – en báðir eru þeir Uday og Ziad sagð- ir hafa stýrt smyglhringjum. Ziad Aziz sat tvö ár í fangelsi en var síðan náðaður af Saddam og er ekki að sjá, að þessi uppákoma hafi haft áhrif á stöðu Aziz. Alls á Tariq Aziz fjögur börn, tvær dætur og annan son, Saddam Aziz. Aziz er sagður hafa notið lífsins lysti- semda til hins ýtrasta; hann sást gjarnan púa Havana-vindla og viskí var í uppáhaldi hjá honum. Sem fyrr segir var Aziz einn fárra kristinna manna í ríkisstjórn Sadd- ams Husseins. För hans til Páfa- garðs í vetur vakti talsverða athygli en varaforsætisráðherrann fyrrver- andi átti fund með Jóhannes Páli páfa skömmu áður en hernaðarátök- in í Írak hófust. „Myndi frekar vilja deyja“ Aziz kom síðast fram opinberlega 19. mars sl. en þá hélt hann frétta- mannafund í Bagdad til að bera til baka orðróm um að hann hefði flúið Írak. „Við erum reiðubúin til að berj- ast, tilbúin til að takast á við árás- araðilann og erum fullviss um sigur,“ sagði Aziz og veifaði skammbyssu til að sýna að enginn uppgjafartónn væri í íröskum ráðamönnum. „Við erum ekki þeirrar gerðar að gefast einfaldlega upp til þess að geta lifað ömurlegu lífi [í útlegð] í tvö eða þrjú ár,“ sagði Aziz í viðtali við ITN-sjónvarpsstöðina bresku í jan- úar. „Ætlast menn til þess, í ljósi sögu minnar sem bardagamaður og sem einn af leiðtogum Íraks, að ég fari í bandarískt fangelsi, t.d. til Guantanamo [fangabúða Banda- ríkjahers á Kúbu]? Ég myndi frekar vilja deyja,“ sagði Aziz þá. Vona að Aziz geti vísað á Saddam Tariq Aziz var ekki í innsta hring Saddams Husseins en var þó gjarnan málsvari Íraks á erlendum vettvangi As-Saliya í Katar, Washington. AFP, AP. Reuters Tariq Aziz ræðir við fréttamenn í Bagdad síðastliðið haust. ’ Saddam valdi ekkigóðmenni í stjórn sína, hann kunni best við morðingja og þjófa. ‘ ÍBÚAR í einu af fínni hverfum Bagd- ad-borgar segjast hafa orðið vitni að því þegar bandarískir hermenn komu til að handtaka Tariq Aziz, fyrrverandi varaforsætisráðherra Íraks, skömmu fyrir miðnætti í fyrrakvöld að íröskum tíma; um kvöldmatarleytið að íslenskum tíma. Í samtali við breska ríkisútvarpið, BBC, sagði fyrrum íraskur útlagi, Mohammed Mohsen al-Zubaidi – en hann hefur lýst sjálfan sig ríkis- stjóra í Bagdad – að hann hefði gefið Bandaríkjamönnum upplýsingar sem leiddu til þess að Aziz og fjöl- skylda hans voru handtekin. Banda- ríkjamenn segja hins vegar að Aziz hafi sjálfur gefið sig fram. Íbúar Zayuna-hverfisins í austur- hluta-Bagdad segja að undir mið- nætti á fimmtudag hafi Bandaríkja- her haft mikinn viðbúnað fyrir utan húsnæði mágkonu Aziz. Telja þeir að Aziz hafi hafst þar við og að hann hafi verið í hópi fólks sem Banda- ríkjamenn óku á brott þessa nótt. Mohammed Hillal, 34 ára forritari sem býr andspænis mágkonu Aziz, sagði að bandarísku hermennirnir hefðu komið í skriðdrekum og bryn- vörðum jeppum rétt fyrir miðnætti að íröskum tíma og að þeir hefðu verið farnir um hálftíma síðar. „Þeir fóru afar, afar hljóðlega.“ Hillal sagði að hermennirnir hefðu verið útbúnir nætursjón- aukum og að íbúum hússins hefði verið ekið á brott í jeppa með svört- um bílrúðum og í hvítum BMW. Kvaðst hann telja að Aziz hlyti að hafa samið um það fyrir fram hvern- ig standa ætti að handtöku hans því ekki hefði verið hleypt af byssum á meðan á þessu stóð. Sagður hafa fengið hjartaáfall Sagt var frá því á CNN-sjónvarps- stöðinni að Aziz hefði viljað tryggja að allt færi vel fram. Var haft eftir ættingjum hans að Aziz hefði tvíveg- is fengið hjartaáfall nýverið og að menn hefðu haft hyggjur af heilsu hans. Hillal kvaðst viss um að enginn þeirra, sem byggju í sama hverfi og Aziz hefði hafst við í undanfarna daga, hefði sagt til hans. „Það var ekki vandamál fyrir Tariq Aziz að vera á þessum slóðum. Hann var kannski vondur maður en ekkert okkar hringdi í Bandaríkjamennina. Slíkt væri í andstöðu við trú okkar,“ sagði Hillal. Sóttur af hermönnum skömmu fyrir miðnætti Bagdad. AFP. GEORGE W. Bush, forseti Banda- ríkjanna, hefur gefið í skyn í fyrsta sinn, að hugsanlega muni engin ger- eyðingarvopn finnast í Írak. Segir hann, að verið geti, að Saddam Huss- ein, fyrrverandi forseti landsins, hafi eytt þeim eða falið áður en stríðið hófst. Í ræðu, sem hann flutti í fyrradag í verksmiðju í Ohio, sem framleiðir Abrams-skriðdrekana, sagði hann, að sannleikurinn um gereyðingar- vopnin myndi koma í ljós en leitin að þeim hefði „engan árangur borið enn“. Þeir Bush og Tony Blair, forsætis- ráðherra Bretlands, réttlættu inn- rásina og stríðið með því, að nauð- synlegt væri að tortíma írösku gereyðingarvopnunum og steypa stjórn Saddams Husseins. Bush sagði, að leitin að vopnunum héldi áfram og búist væri við, að fyrrum háttsettir menn í stjórn Saddams myndu gefa mikilvægar upplýsing- ar. „Svo mikið er þó víst,“ sagði Bush, „að Bandaríkjunum stafar ekki leng- ur hætta af gereyðingarvopnum Saddams.“ Í viðtali við NBC-sjónvarpið sagði Bush, að vísbendingar væru um, að Saddam væri annaðhvort látinn eða mikið særður. Dauði hans yrði þó ekki tilkynntur fyrr en örlög hans væru endanlega kunn. Þá sagði Bush að hugsanlega myndi það taka allt að tvö ár að skapa skilyrði til þess að láta heima- menn taka við völdum í Írak. Bush Bandaríkjaforseti í ræðu Óvíst að gereyð- ingarvopn finnist Lima, Ohio. Los Angeles Times. Reuters George W. Bush í verksmiðju í Ohio, sem framleiðir Abrams-skriðdrekana. BANDARÍKJAHER hafði í gær hendur í hári fyrrverandi yfirmanns í írösku leyniþjónustunni, Farouk Hijazi. Var Hijazi handtekinn nærri landamærunum að Sýrlandi. Hijazi var ekki meðal þeirra 55 manna sem Bandaríkjastjórn hefur lagt mesta áherslu á að handtaka en er engu að síður talinn mikilvægur fengur því fullyrt er að hann hafi árið 1993 verið þriðji valdamesti maður- inn í írösku leyniþjónustunni. Það ár höfðu Írakar uppi áform um að ráða George Bush, forseta Bandaríkjanna 1989–1993, af dögum. Átti að gera tilraun til að sprengja bíl Bush í loft upp er hann heimsækti Kúveit. Óstaðfestar fregnir herma jafn- framt að Hijazi hafi í desember 1998, er hann var sendiherra Íraks í Tyrk- landi, farið til Afganistan og átt þar fund með Osama bin Laden, leiðtoga al-Qaeda-hryðjuverkasamtakanna. Leyniþjón- ustumaður handtekinn Washington. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.