Morgunblaðið - 26.04.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Netsalan ehf., Garðatorgi 3, 210 Garðabæ
Sími 565 6241, 544 4210 - fax 544 4211, netf.: netsalan@itn.is
Heimasíða: www.itn.is/netsalan. Opið á virkum dögum frá kl. 10–18.
Opið í dag, laugardag, frá kl. 10-17
og sunnudag frá kl. 11-16
McLOUIS HÚSBÍLAR
Fyrsta sending UPPSELD - önnur á leiðinni
SÖLU- OG KYNNINGARSÝNING
Innifalið í verði 100.000 kr. úttektarávísun
í nýrri verslun sem verður opnuð í maí.
Fellihýsin eru tilbúin á götuna með bremsubúnaði.
Takmarkað magn. Til afgreiðslu strax
Epic 1906 9 fet.
Verð kr. 798.000
*himinn fylgir ekki
STÓRTILBOÐ
VIKING FELLIHÝSI
AÐEINS Í DAG OG SUNNUDAG
*
DAGUR umhverfisins var haldinn
hátíðlegur í fimmta sinn í gær og
meðal atburða dagsins var veiting
umhverfisviðurkenningar umhverf-
isráðuneytisins. Viðurkenninguna
hlaut Árvakur hf., útgáfufélag Morg-
unblaðsins, og er það í annað sinn
sem félagið hlýtur hana.
Siv Friðleifsdóttir umhverfis-
ráðherra afhenti Haraldi Sveinssyni,
formanni stjórnar Árvakurs, viður-
kenninguna við athöfn í Morgun-
blaðshúsinu í gærmorgun. Siv sagði í
ávarpi sínu að dagur umhverfisins
væri fæðingardagur Sveins Páls-
sonar, fyrsta íslenska náttúrufræð-
ingsins, sem hefði einna fyrstur hvatt
til aðgerða gegn eyðingu skóga á Ís-
landi. Ráðherra sagði umhverfisráðu-
neytið hafa í nokkur ár veitt við-
urkenningu fyrirtækjum sem skarað
hafi framúr í umhverfismálum.
Morgunblaðið væri nú að fá við-
urkenninguna öðru sinni þar sem
prentsmiðja blaðsins fékk hana fyrir
árið 1995. Siv sagði stjórnendur Ár-
vakurs hafa um árabil verið í far-
arbroddi í umhverfismálum. Sem
dæmi um það nefndi hún að fyr-
irtækið hefði í fyrra fengið vottaðan
alþjóðlega umhverfisstjórnunarstað-
alinn ISO 14001 sem væri mjög
strangur.
Heiður að viðurkenningunni
Haraldur Sveinsson sagði það heið-
ur að fá að taka við viðurkenningunni.
Hana mætti þakka frábærum stjórn-
endum og starfsfólki fyrirtækisins
sem legði sig fram á þessum sviðum.
Ólafur Brynjólfsson, umhverfis- og
gæðastjóri Morgunblaðsins, segir að
umhverfisstefna taki til allra þátta í
starfseminni og að henni sé stöðugt
unnið. Hann segir fyrirtækið hafa
verið vel á vegi statt í umhverf-
ismálum þegar ákveðið var árið 1998
að hefjast handa við að uppfylla kröf-
ur alþjóðlega staðalsins. Hann segir
árangri í umhverfismálum einna best
lýst með því að nefna að árið 1999 hafi
182 tonn af óflokkuðu sorpi farið frá
fyrirtækinu en í fyrra aðeins 66 tonn.
Megi ekki síst þakka það að nú sé all-
ur pappír á ritstjórn og skrifstofum,
þar með talin dagblöð og tímarit,
flokkaður og sendur úr landi. Þá
muni mikið um að tekist hafi að
minnka pappírsrýrnun í prentsmiðju
blaðsins og af því sé mikill fjárhags-
legur ávinningur. Einnig hafi notkun
margs konar vökva og efna stórlega
minnkað og afgangs prentfarfi sé
sendur út til framleiðenda. Þennan
árangur megi þakka sífelldum um-
bótum sem unnið sé að á þessu sviði.
Minnir Ólafur í lokin á að rétt stefna í
umhverfismálum framkalli góða
ímynd fyrirtækis, hafi fjárhagslegan
ávinning í för með sér og jákvæð áhrif
á allan rekstur.
Dagurinn
tileinkaður farfuglum
Dagur umhverfisins er í ár tileink-
aður farfuglum og af því tilefni veitir
umhverfisráðherra 500 þúsund króna
styrk til að koma upp aðstöðu fyrir al-
menning til fuglaskoðunar á Höfn í
Hornafirði. Þá hefur Náttúru-
fræðistofnun Íslands unnið fræðslu-
efni um íslenska farfugla fyrir grunn-
skólanema og er það aðgengilegt á
vef stofnunarinnar, ni.is.
Árvakur hlýtur
umhverfisverðlaun
Morgunblaðið/Jim Smart
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra afhendir Haraldi Sveinssyni, stjórnarformanni Árvakurs, umhverfisviður-
kenninguna við athöfn í gærmorgun. Verkið er eftir leirlistakonuna Guðnýju Hafsteinsdóttur.
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur ógilt yfirlýsingu fulltrúa
B-lista Framsóknarflokksins og
óháðra í bæjarstjórn Vestmanna-
eyjabæjar um breytta röð vara-
manna listans. Andrés Sigmunds-
son, bæjarfulltrúi B-lista, segist
munu hlíta úrskurði ráðuneytisins.
„Ef það er ekki heimilt að breyta röð
varamanna þá bara hlítum við því,“
segir hann. „Það verður að hafa sinn
gang og það gildir jafnt um mig sem
aðra. Ég verð þá bara að halda heils-
unni.“
Í mars sl. lýsti hann því yfir þegar
hann sleit meirihlutasamstarfi við
Sjálfstæðisflokk í bæjarstjórninni í
og gekk til samstarfs við Vestmanna-
eyjalistann, að hann tilnefndi Skær-
ing Georgsson sem 1. varamann sinn
í bæjarstjórn í stað Guðríðar Ástu
Halldórsdóttur sem skipaði 2. sætið
á framboðslista flokksins.
Framsóknarfélag Vestmannaeyja
studdi ekki við bakið á Andrési þegar
hann myndaði nýja meirihlutann í
bæjarstjórninni og kærði Guðríður
yfirlýsingu Andrésar til félagsmála-
ráðuneytisins.
Ráðuneytið segir m.a. í úrskurði
sínum að samkvæmt orðanna hljóð-
an í ákvæði sveitarstjórnarlaga taki
varamenn almennt sæti í þeirri röð
sem þeir eru kosnir þegar aðalmaður
forfallast varanlega eða um stundar-
sakir.
Ráðuneytið segir að samkvæmt
sveitarstjórnarlögum geti aðalmenn
lista ákveðið, í þeim tilvikum sem
framboðslisti er borinn fram af
tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum
eða samtökum, að mismunandi röð
varamanna gildi eftir því hver aðal-
manna hefur forfallast. Yfirlýsing
um slíkt samkomulag skuli lögð fram
á fyrsta eða öðrum fundi sveitar-
stjórnar eftir kosningar.
Uppfylla skal þrjú skilyrði
Til að þessi undantekning frá hinni
almennu reglu um röð varamanna
eigi við þurfi þrjú skilyrði að vera
uppfyllt:
1. Framboðslisti þarf að hafa verið
borinn fram af tveimur eða fleiri
stjórnmálaflokkum eða samtökum.
2. Framboðslisti þarf að hafa hlot-
ið tvo eða fleiri aðalmenn kjörna í
sveitarstjórn, sem eru fulltrúar
tveggja eða fleiri stjórnmálaflokka
eða samtaka er að listanum standa.
3. Yfirlýsingu um samkomulag
kjörinna aðalmanna þarf að leggja
fram á fyrsta eða öðrum fundi sveit-
arstjórnar eftir kosningar.
Ráðuneytið segir að upplýst sé að
Andrés Sigmundsson hafi verið eini
fulltrúi B-lista Framsóknarflokksins
og óháðra sem hlaut kosningu til
setu í bæjarstjórn Vestmannaeyja-
bæjar við almennar sveitarstjórnar-
kosningar hinn 25. maí 2002. Jafn-
framt liggi fyrir að yfirlýsing um
frávik frá venjulegri röð varamanna
var ekki lögð fram fyrr en á bæjar-
stjórnarfundi sem haldinn var 26.
mars 2003 og sé hún því of seint fram
komin.
Loks telji ráðuneytið upplýst að
B-listi Framsóknarflokks og óháðra
hafi ekki verið boðinn fram af tveim-
ur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða
samtökum, þar sem þeir óháðu kjós-
endur sem stóðu að framboðinu
höfðu ekki myndað með sér sérstök
samtök eða stjórnmálaflokk í skiln-
ingi sveitarstjórnarlaga. Sé það því
mat ráðuneytisins að skilyrði hafi
ekki verið fyrir hendi til að leggja
fram umrædda yfirlýsingu.
Óheimilt að breyta röð varabæjarfulltrúa í Eyjum
„Ég verð þá bara
að halda heilsunni“
HANN var óvenju afslappaður
kanínuhópurinn sem ljósmyndari
Morgunblaðsins mætti á Aust-
urvelli í gær og fældist ekki hið
minnsta við mannaferðir, öfugt
við kanínurnar í Öskjuhlíðinni
sem gjarnan hlaupa út og suður
um leið og á að festa þær á
mynd.
Ekki voru þarna síðbúnar
páskakanínur á ferð heldur hópur
útskriftarnema í Fjölbrautaskól-
anum í Garðabæ sem slettu úr
klaufunum í tilefni af því að nú
hillir undir stúdentsprófið. Það er
líka ekki seinna vænna að lyfta
sér ofurlítið upp áður en stremb-
in prófalota hefst í næsta mánuði.
Morgunblaðið/Jim Smart
Kankvísar kanínur
BÚIST er við að aðgerðir við björgun
Guðrúnar Gísladóttur KE-15 hefjist á
ný á næstu dögum en íslenskt björg-
unarteymi hélt utan til Noregs sl.
mánudag. Verið er að vinna að end-
urbótum á tönkunum sem eiga að
fleyta skipinu af hafsbotni og er von-
ast til að búið verði að ná því upp um
mánaðamót maí–júní.
Sem kunnugt er sökk skipið við
strendur Lófóten í Norður-Noregi í
júní síðastliðnum. Íshús Njarðvíkur
festi síðan kaup á bátnum og hyggst
freista þess að ná honum af hafsbotni
með hjálp sérstakra tanka sem
sökkva á niður að honum og verða síð-
an loftfylltir í þeim tilgangi að hífa
hann upp.
Í lok mars síðastliðins var aðgerð-
um hins vegar slegið á frest en að
sögn Ásgeirs Loga Ásgeirssonar leið-
angursstjóra er það fyrst og fremst
veðrið sem hefur sett strik í reikning-
inn. „Það er búið að vera einstaklega
leiðinlegt tíðarfar þarna í vetur og
ævinlega verið suðvestanátt, sem er
ein friðminnsta áttin á þessu svæði,“
segir hann. Norsk mengunaryfirvöld
gáfu fyrirtækinu frest til 1. maí næst-
komandi til að ná skipinu upp en út-
séð er um að það takist. Að sögn Ás-
geirs hefur málið hins vegar verið
unnið í fullu samráði og samvinnu við
norsk stjórnvöld. „Þau gera sér grein
fyrir því að við höfum ekki stjórn á
veðrinu. Ég held að við getum verið
sammála um að allir aðilar hefðu vilj-
að sjá þetta ganga hraðar fyrir sig en
menn hafa líka séð hvað hefur dvalið
því við vorum með allan viðbúnað
þarna sem hægt var að hafa til að geta
lokið verkinu eins fljótt og unnt var.“
Vonast er til að verkinu verði lokið
um mánaðamót maí–júní, verði veð-
urguðirnir leiðangrinum hliðhollari
en hingað til. Ásgeir segir að nú sé
unnið að því að betrumbæta tankana
sem nota á við björgunina þannig að
hægt sé að sökkva þeim hraðar og
beðið sé með að kalla til norska kaf-
ara, sem festa eiga þá á skipsskrokk-
inn, þar til því sé lokið.
Guðrún Gísladóttir í Noregi
Björgunaraðgerð-
ir hefjast á ný