Morgunblaðið - 26.04.2003, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 26.04.2003, Qupperneq 8
FRÉTTIR 8 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sumargla›ningur Afskorin blóm Garðskálaplöntur 20% fimmtudag til sunnudags í tilefni sumarkomu. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 2 09 34 04 /2 00 3 Potta- plöntur 20% afsláttur afsláttur af öllum blómum Hvernig vogarðu þér að óvirða réttinn með því að vera ekki líka með sinnepi, remúlaði og steiktum, ómyndin þín? Fyrirlestur um ættir og nöfn Synd að sjá á eftir gömlum og góðum nöfnum Nafnfræðifélagið ernokkuð reglulegameð fyrirlestra um hin ýmsu málefni sem tengjast nöfnum og gengst fyrir fyrirlestri í dag klukkan 13.30 sem hefur yfirskriftina Ættir og nöfn. Fyrirlesturinn verð- ur í Odda, Háskóla Ís- lands, stofu 101. Það er Guðfinna Ragnarsdóttir, menntaskólakennari og ritstjóri Fréttabréfs Ætt- fræðifélagsins sem flytur fyrirlesturinn sem kemur inn á siði, venjur, hefðir og margt, margt fleira sem viðkemur nafnavali ein- staklinga og ætta. Morg- unblaðið bað Guðfinnu að svara nokkrum spurning- um um fyrirlesturinn. – Hvað varð til þess að þú fékkst áhuga á ættum og nöfn- um? „Ég hef haft áhuga á ættfræði og nöfnum frá því að ég man eftir mér. Móðir mín er mjög ættfróð og ég ólst upp í nánum tengslum við stóran frændgarð þar sem mikið var spáð og spjallað. Ég teygaði því snemma í mig fróðleik um menn og málefni, sögur og sagnir. Aftur og aftur heyrði ég sömu nöfnin, sá hvernig þau hrísl- uðust í gegnum aldirnar, líkt og sögurnar og sagnirnar, útlitið og eiginleikarnir. Ég fann líka fljótt að ég hafði ákveðna sérstöðu þar sem ég bar nafn afa míns Guð- finns og ömmu minnar Sigur- bjargar. Ég fann að nafnið tengdi mig þeim og fortíðinni.“ – Og hvaðan koma svo nöfnin? „Þegar ég snéri mér að ætt- fræðinni fyrir alvöru sá ég þýð- ingu nafnanna og nafnavalsins. Sá hvernig menn gerðu allt til þess að koma upp nöfnum foreldra sinna og sinna nánustu. Meðan barnadauðinn var mikill voru börnin skírð sama nafninu hvert á fætur öðru þar til eitthvert þeirra lifði. Ég sá líka að algengt var að menn skírðu eftir látnum maka, látnum ættingjum eða nágrönn- um til þess að votta virðingu sína eða samúð. Þegar börnin urðu mörg var seilst æ lengra eftir nöfnum, ef búið var að koma upp nöfnum þeirra nánustu. Svo var líka algengt að menn vitjuðu nafns í draumi. Slíku mátti ekki neita, annað gat boðað illt. Á sum- um nöfnum hvíldu álög eins og á Bjarnanafninu hjá ættingjum Reynistaðarbræðra.“ – Hafa slík tengsl ætta og nafna verið mikið rannsökuð? „Íslensk mannanöfn hafa verið mikið rannsökuð, bæði útbreiðsla þeirra og uppruni en ég veit ekki til þess að gerð hafi verið úttekt á því hvaða ástæður lágu að baki nafnavalinu. Heldur ekki hvaðan nöfnin komu, þ.e.a.s. frá hvaða skyldmenni, hvar var leitað fanga eða hvaða þýðingu það hafði fyrir nafnavalið hvar barnið var í systkinahópnum. Ég hef heldur ekki gert neinar viðamiklar athuganir á þessu, að- eins skoðað þessi tengsl í þeim ættum sem að mér snúa.“ – Haldast nöfn lengi í ættum? „Það er auðvitað misjafnt en oftast fylgja ákveðin nöfn sömu ættinni mann fram af manni. Ég rakti t.d. Agnesarnafnið í ættinni minni aftur um 400 ár eða til 1590. Það hefur borist frá ömmu eða langömmu, í óslitinni keðju, kynslóð fram af kynslóð. Yngsta Agnesin í dag er aðeins þriggja ára. Það er gaman þegar unga fólkið heldur í hefðirnar. Á und- anförnum áratug hafa gömlu nöfnin æ oftar vikið fyrir tísku- nöfnum eins og Birta, Sara, Aron og Alexander. Það er synd að sjá á eftir gömlu góðu nöfnunum.“ – Eru nöfn tengd ákveðnum svæðum eða héruðum? „Já, oft er það, þótt algengustu nöfnin eins og Jón, Anna, Guðrún og Sigurður séu útbreidd um land allt. Í Húnavatnssýslunni er Agnesarnafnið mjög algengt, sömuleiðis Hólmfríður. Inghildar- nafnið er nánast eingöngu í Ölfus- inu. Jónsnafnið sem löngum hefur verið algengasta nafnið veldur okkur ættfræðiáhugamönnum oft vandræðum. Sérstaklega ef Jón- arnir eru Jónssynir. Meðal þeirra sem hafa verið hvað iðnastir við Jónsnafnið eru Önfirðingar. Í Manntali 1801 voru 483 íbúar í prestakallinu. Af þeim hétu 77 Jón og 32 þeirra voru Jónssynir.“ – Hafa nöfnin sérstaka þýðingu fyrir þá sem bera þau? „Já, ég held að nafnið skipti marga miklu máli. Það fylgir okk- ur alla ævi, það er eins konar stimpill. Það er og verður hluti af persónunni. Það er mín reynsla að nöfn sem komin eru úr ættinni verði einstaklingunum mjög kær. Að bera nafn úr ættinni er alltaf fjársjóður og forréttindi. Það er hluti menningarinnar og tengir okkur við ættina, söguna, sagn- irnar og fortíðina. Í ætt minni, þar sem mikið er ort, var nöfn- unum iðulega fléttað inn í ljóð og lausavísur, gátur og grín. Langalangafi minn orti til dæmis um barnabörnin sín um 1880: Agnes, Björn og Ólafur Inga, Valli, Hallgrímur. Gvendur, Jón og Guðfinnur Gústa, Steinunn, Hólmfríður. Af þessum tólf nöfnum lifa átta enn góðu lífi í ættinni. Guðfinna Ragnarsdóttir  Guðfinna Sigurbjörg Ragn- arsdóttir er fædd í Reykjavík 1943. Hún er jarðfræðingur og blaðamaður að mennt frá Stokk- hólmsháskóla. Lauk einnig prófi í uppeldis- og kennslufræðum frá Háskóla Íslands. Hefur kennt við Menntaskólann í Reykjavík frá árinu 1983. Guðfinna er ritstjóri Fréttabréfs Ættfræðifélagsins. Hún á tvö uppkomin börn og eitt barnabarn. …af þeim hétu 77 Jón og 32 þeirra voru Jóns- synir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.