Morgunblaðið - 26.04.2003, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 9
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
nýtur 37,8% fylgis og Samfylking-
in 28,3% fylgis ef marka má skoð-
anakönnun sem Viðskiptaráðgjöf
IBM gerði fyrir Stöð 2 dagana 22.
til 23. apríl. Framsóknarflokkurinn
mælist með 13,4% fylgi, Frjáls-
lyndi flokkurinn með 11,5% fylgi
og Vinstrihreyfingin – grænt
framboð með 8% fylgi. Aðrir flokk-
ar eru með samtals 0,9% fylgi.
Væri þetta niðurstaða kosning-
anna fengi Sjálfstæðisflokkurinn
24 þingmenn, Samfylkingin 18
þingmenn, Framsóknarflokkurinn
9 þingmenn, Frjálslyndi flokkur-
inn 7 þingmenn og vinstri-grænir
5 þingmenn.
Úrtakið í könnuninni var lag-
skipt slembiúrtak fólks á aldrinum
18 til 89 ára. Spurðir voru 1.000
einstaklingar. Skv. upplýsingum
frá Viðskiptaráðgjöf IBM voru
tæplega 20% aðspurðra óákveðin
eða neituðu að svara en um 5%
sögðust ekki ætla að kjósa eða
skila auðu.
Spurt var: Hvaða flokk ætlar þú
að kjósa í komandi alþingiskosn-
ingum? Ef ekki fékkst afstaða var
spurt: Hvaða flokk telur þú líkleg-
ast að þú myndir kjósa?
Í könnun sem Viðskiptaráðgjöf
IBM gerði dagana 12. til 14. apríl,
var Sjálfstæðisflokkurinn neð 36,8
fylgi og Samfylkingin með 33,9%
fylgi. Munurinn var því innan
skekkjumarka.
Framsóknarflokkurinn var með
10,8% fylgi, frjálslyndir með 7%
fylgi og vinstri-grænir með 8,6%.
Aðrir flokkar voru með 3%. Nið-
urstöðurnar byggðust á svörum
800 einstaklinga á aldrinum 18 til
67 ára.
Sjálfstæðisflokkur með
37,8% fylgi hjá IBM
Fallegar sumarpeysur
Kvarterma - hnepptar - ermalausar
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Fallegur sumarfatnaður
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið í dag kl. 10-14
Franskir sumarbolir
15% afsláttur
RýmingarsalaTek að mér að útbúa ilmkjarnaolíublöndur fyrir börn ogfullorðna við hvers kyns kvillum. Hægt er að fá blöndur til
til innöndunar, baðblöndur eða til að bera á líkamann.
Verð frá 500 kr. Lísa B. Hjaltested ( www.yogastudio.is )
Auðbrekku 14, Kópavogi,
símar 544 5560 og 820 5562,
www.yogastudio.is
með Ásmundi Gunnlaugssyni
Uppbyggjandi námskeið fyrir þá sem eiga við streitu, kvíða
eða fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegnum miklar
breytingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til þess að slaka á og
öðlast aukið frelsi og lífsgleði. Ásmundur, sem m.a. byggir
námskeiðið á eigin reynslu af kvíða, tekur fyrir þætti eins og jógastöður,
öndunaræfingar, slökun og andleg lögmál sem stuðla að velgengni,
jafnvægi og heilsu. Ekki er krafist reynslu af jóga. Yfirgripsmikið og
traust námskeið frá árinu 1994. (www.yogastudio.is)
Hefst þriðjudaginn 6. maí – Þri. og fim. kl. 20:00.
JÓGA GEGN KVÍÐA
ILMKJARNAOLÍU - RÁÐGJÖF LÍSU
Ómótstæðilegir
fyrir sumarið
Síðan 1966
Ásta Kjartansdóttir,
sími 897 7484, netfang astakj@isl.is
Rauðagerði 26, 108 Reykjavík.
Opið þriðjudaga frá kl. 13-19,
laugardaga frá kl. 10-14.
Verð 5.500 kr.