Morgunblaðið - 26.04.2003, Side 10

Morgunblaðið - 26.04.2003, Side 10
FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÞJÓÐGARÐUR – ekki Kára- hnjúkavirkjun, stóð á stóru skilti sem umhverfissinnar mættu með á opinn fund sem Náttúruverndar- samtök Íslands og fleiri frjáls fé- lagasamtök héldu á Hótel Borg á degi umhverfisins í gær með fulltrúum Sjálfstæðisflokks, Sam- fylkingar, Framsóknarflokks, Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Frjálslynda flokksins. Skiltið átti ágætlega við þar sem mestur tími fundarins fór í að ræða um Kárahnjúkavirkjun. Flokkarnir ræddu þó einnig hvort líta ætti á hálendið sem eina af helstu auðlindum Íslands og hvort þeir væru hlynntir að háspennu- lína verði lögð frá Mývatni eða Bárðardal til fyrirhugaðrar Kára- hnjúkavirkjunar. Einnig var rætt um fyrirhugaðan þjóðgarð norðan Vatnajökuls, rammaáætlanir um virkjanakosti á hálendi Íslands og fleira. Katrín Fjeldsted, Sjálfstæðis- flokki, sagði að umhverfismálum á Íslandi þokaði í rétta átt og taldi meðal annars upp að ferskvatn væri nú metið sem náttúruauðlind, samstarfi við frjáls félagasamtök hafi verið komið á ásamt því að flokknum hafi tekist að vekja at- hygli á ástandi hafsbotnsins. Margrét Sverrisdóttir, Frjáls- lynda flokknum, sagði flokkinn mjög umhverfisvænan. Hún sagði að líta ætti á hálendi Íslands sem auðlind. „Friðlýsa skal fleiri og stærri svæði á hálendinu,“ sagði Margrét. Hún sagði flokkinn mót- fallinn því að háspennulína yrði lögð í gegnum fyrirhugaðan þjóð- garð. Hún sagði sinn flokk styðja gerð þjóðgarðs norðan Vatnajök- uls, en hann yrði ekki að veruleika ef hreyft væri við svæðinu. Hún sagði Frjálslynda vilja halda áfram með rammaáætlanir um virkjana- kosti á hálendi Íslands. Margrét sagði flokkinn vilja stuðla að frið- un á háhitasvæðum en jafnframt nýtingu jarðhita. Styður 20 ára áætlun Kolbrún Halldórsdóttir, Vinstri- hreyfingunni – grænu framboði, sagði að erfitt væri að treysta orð- um Framsóknarflokks um um- hverfismál. Hún sagði flokkinn hafa haldið því fram árið 1998 að hann ætlaði ekki að virkja friðuð svæði. Nú stæði hann hins vegar að Kárahnjúkavirkjun. „Núverandi ríkisstjórn hefur hundsað náttúruvernd. Við erum flokkur sem setur rammaáætlanir í forgang. Við vildum bíða með all- ar framkvæmdir þar til ramma- áætlanir væru gerðar. Áætlanir verða að liggja fyrir áður en næstu virkjanir verða framkvæmdar,“ sagði Kolbrún. Hún lagði einnig áherslu á að umhverfismennt og umhverfisvernd yrðu efldar. Kol- brún sagði flokkinn styðja áætl- anagerð til 20 ára. Kolbrún sagði að hún teldi rammaáætlun hafa verið löngu til- búna og að ríkisstjórnin hefði legið á upplýsingum varðandi þau mál. Hún sagðist telja að það hefði ver- ið arðbærara að ávaxta fjármunina heldur en halda út í framkvæmdir við Kárahnjúka. Össur Skarphéðinsson, Samfylk- ingunni, sagði umræðurnar um umhverfisvernd fara fram í skugga Kárahnjúkavirkjunar. Hann sagði ákvörðunina um virkjunina hafa verið erfiða en nú stæðu menn frammi fyrir henni og því yrði að leysa úr þeim vandamálum sem upp kæmu. Hann sagði mikilvægt að læra af þeim mistökum sem gerð hefðu verið við Kárahnjúka- virkjun. Össur sagði að hvergi í Evrópu væri jafnmikið af ósnort- inni náttúru og á Íslandi og enn væru tugir svæða eftir til að vernda. Hann sagði flokkinn styðja þjóð- garð norðan Vatnajökuls ásamt því að byggja ætti á rammaáætlunum. Hann sagði einnig að mikilvægt væri að skilja á milli pólitískra og faglegra þátta er rætt væri um virkjanir. Einar Sveinbjörnsson, aðstoðar- maður umhverfisráðherra, talaði fyrir hönd Framsóknarflokksins. „Ég svara því bæði játandi og neitandi að Framsóknarflokkurinn sé stóriðjuflokkur,“ sagði Einar og bætti við að alla stóriðju þyrfi að skoða af skynsemi og fyrirhyggju. Hann sagði hálendið mikla auð- lind. Einar sagði einnig að nýta ætti raforku sem næst þeim stað sem hún ætti rætur og því væri háspennulína mikið lýti á hugs- anlegum þjóðgarði norðan Vatna- jökuls. Hann sagði mikinn áhuga innan flokksins um stofnun Þjóð- garðs en kom jafnframt inn á að fjárlög ríkis nægðu engan veginn til reksturs núverandi þjóðgarða. Hann sagði náttúruverndaráætlun langt komna og að næstu verkefni væru að kynna hana. Fulltrúar flokkanna ræddu einn- ig um það hvort þjóðaratkvæða- greiðsla ætti að fara fram um mál- efni eins og Kárahnjúkavirkjun. Katrín sagði Sjálfstæðisflokkinn hlynntan þjóðaratkvæðagreiðslu en hún teldi að atkvæðagreiðsla hefði ekki breytt miklu. Margrét sagði frjálslynda hlynnta þjóðaratkvæðagreiðslu um stærri málefni. Hún sagði Alþingi ábyrgt fyrir Kárahnjúkavirkjun og sagði það slæmt að fólkið í landinu þyrfti að greiða kostnaðinn. Össur sagði að ef til þjóðarat- kvæðagreiðslu kæmi um stærri mál yrði það að gerast tímanlega. Hann sagði Samfylkinguna hafa ítrekað stutt tillögu um aukið fjár- magn til náttúruverndar. Hann sagði að ákvörðunin um Kára- hnjúkavirkjun hefði verið tekin að mjög vel athuguðu máli. Einar sagði Framsóknarflokkinn ekki leggjast gegn þjóðaratkvæða- greiðslu en bætti við að ef til hennar kæmi þyrfti að skoða slíkt mál með góðum fyrirvara. Umræðufundur með stjórnmálamönnum á Degi umhverfisins Harðar deilur um Kárahnjúkavirkjun Morgunblaðið/Jim Smart Össur Skarphéðinsson, Margrét Sverrisdóttir, Einar Sveinbjörnsson, Kolbrún Halldórsdóttir og Jón Ásgeir Sigurðsson á fundi um framtíðarsýn stjórnmálaflokkanna til verndunar og nýtingar hálendisins. „G-VÍTAMÍN. Bráðnauðsynlegt bætiefni. Takist inn fyrir kosn- ingar. Innihald: Baráttugleði, bjartsýni og kjarkur. Losnið við óbragð íhaldsáranna,“ stendur m.a. á litlum plastpoka sem inni- heldur vítamíntöflu. Þetta er kosn- ingaáróður Alþýðubandalagsins árið 1987, en Borgarskjalasafn Reykjavíkur hefur sett upp sýn- ingu á kosningaáróðri frá árunum 1880 til 1999. Á sýningunni má m.a. sjá hvernig baráttumál flokkanna fyrir alþingiskosningar í Reykjavík hafa breyst í gegnum tíðina og hvernig þeir hafa kynnt stefnu sína. Til að mynda gefur að líta á sýningunni kosningabæklinga, veggspjöld, flugmiða og viðvaranir til kjósenda, svo eitthvað sé nefnt. Sýningin var opnuð í gær og er á Reykjavíkurtorgi, Tryggvagötu 15. Njörður Sigurðsson skjalavörður segir að Borgarskjalasafn Reykja- víkur eigi nú dágott safn af kosn- ingaáróðri. „Og síðustu árin höfum við safnað þessu skipulega,“ segir hann. Spurður út í þann áróður sem sýndur er á sýningunn segir hann m.a. athyglisvert hve mikil harka hafi verið í kosningabarátt- unni fyrr á tímum. T.d. séu auglýs- ingar frá árinu 1911 afar harð- orðar. Á þeim tíma hafi og verið sendir út t.d. ónafngreindir flug- miðar, með svívirðingum um náungann. Gögnin sýna stjórnmálaþróunina Borgarskjalasafn Reykjavíkur bauð frambjóðendum í Reykjavík að vera við opnun sýningarinnar í gær. Birgir Ármannsson, fram- bjóðandi Sjálfstæðisflokksins, sagði sýninguna afar forvitnilega. Á henni mætti m.a. sjá gögn sem sýndu stjórnmálaþróunina fyrstu árin eftir að Íslendingar fengu full- veldi. Hann bendir á að áður fyrr hafi t.d. verið meira um ein- staklingsframboð og kosninga- bandalög en nú er. „Það sem er ekki síst athyglisvert fyrir mig sem sjálfstæðismann er að sjá hvernig aðrir flokkar koma og fara; skipta um nafn og kennitölu en Sjálfstæð- isflokkkurinn stendur af sér storm- ana. Það er út af fyrir sig for- vitnilegt að skoða það.“ Guðjón Ólafur Jónsson, fram- bjóðandi Framsóknarflokksins, segir athyglisvert að sjá hvernig sagan endurtaki sig aftur og aftur. „Slagorðin eru kannski ekki þau sömu en áhersluatriðin er söm aft- ur og aftur.“ Hann sagði það einnig eftirtektarvert hve menn hafi verið „lagnir við alla tíða að gagnrýna andstæðingana“. Bláa höndin vekur athygli Það sem vakti einna helst athygli á sýningunni meðal frambjóðenda stjórnarandstöðuflokkanna var áróðursmynd sjálfstæðismanna í Reykjavík frá árinu 1956. Á henni er teikning af blárri hönd og síðan segir: „Reykvíkingar sendum 5 sjálfstæðismenn á þing.“ Bryndís Hlöðversdóttir, þingmaður og frambjóðandi Samfylkingarinnar, sagði það áhugavert að sjá bláu höndina „í allri sinni mynd,“ eins og Bryndís orðaði það. „Það vekur óneitanlega athygli að bláa höndin skuli vera til. Það trúðu því reynd- ar margir að hún væri til en það er áhugavert að sjá hana hér í allri sinni mynd og að hún skyldi hafa verið framleidd af sjálfstæð- ismönnum sjálfum,“ segir Bryndís og bætir því við að bláa höndin hafi á síðustu misserum orðið fræg sem einhvers konar ímynd valds Sjálf- stæðisflokksins. Eyjólfur Ármannsson, frambjóð- andi Frjálslynda flokksins, og Kol- brún Halldórsdóttir, þingmaður og frambjóðandi Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs, taka í sama streng. Það vekur einnig at- hygli Eyjólfs að á sama tíma og auglýsingin með bláu höndinni var framleidd notuðu sjálfstæðismenn grænan lit í auglýsingu frá sér. „Það vekur athygli mína að sjá grænt X-D,“ segir Eyjólfur, „því grænt er litur Framsóknarflokks- ins. En þetta er kannski vísbending um það hvert sjálfstæðismenn halla sér.“ Kolbrún segir eftirtektarvert að sjá hvernig kosningaáróður hefur þróast í gegnum tíðina. „Það er t.d. gaman að sjá hvernig menn hafa smám saman farið að nota ýmislegt sem grípur augað. Og svo er gam- an að sjá þessa litlu hluti sem not- aðir hafa verið eins og til dæmis G-vítamínið. Hugvitið og hug- myndauðgin hefur því verið mjög mikið í gegnum tíðina.“ Sýningin stendur til 11. maí næstkomandi og er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10 til 20, föstudaga frá kl. 11 til 19 og um helgar frá 13 til 17. Aðgangur er ókeypis. Sýning á kosningaáróðri frá árunum 1880 til 1999 opnuð Sagan endurtekur sig aftur og aftur Kosningaáróður Sjálfstæðisflokks- ins frá árinu 1956. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Frambjóðendur skoða sýninguna. Kolbrún Halldórsdóttir, Vinstri grænum, Eyjólfur Ármannsson, Frjálslynda flokknum, Guðjón Ólafur Jónsson, Framsóknarflokknum, og Birgir Ármannsson, Sjálfstæðisflokknum. SEX stjórnmálahreyfingar bjóða fram lista í öllum kjör- dæmum landsins í alþingis- kosningunum 10. maí nk. en framboðsfrestur rann út kl. 12 á hádegi í gær. Nýju afli tókst að safna nægum fjölda meðmælenda í Suðurkjördæmi áður en frest- urinn rann út en eins og fram kom í blaðinu í gær vantaði í fyrrakvöld aðeins örfáar und- irskriftir til að það markmið næðist. Leggur Nýtt afl, sem fengið hefur listabókstafinn N, því fram lista í öllum kjör- dæmum en aðrir flokkar sem bjóða fram á landsvísu eru D- listi Sjálfstæðisflokks, B-listi Framsóknarflokks, S-listi Samfylkingarinnar, U-listi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og F-listi Frjálslyndaflokksins. Í Suður- kjördæmi verða sjö listar í framboði en þar er einnig boð- inn fram T-listi framboðs und- ir forystu Kristjáns Pálssonar alþingismanns. Framboðin yfirfarin Í dag munu yfirkjörstjórnir í hverju kjördæmi halda fund þar sem farið er yfir framkom- in framboð og athugað hvort einhverjir gallar eru á fram- boðum. Finnist gallar er um- boðsmönnum lista gefinn kost- ur á að leiðrétta þá. Ef gallar sem yfirkjörstjórn hefur bent á eru ekki leiðréttir innan til- setts frests kveður hún upp úrskurð um hvort listi skuli fyrir það teljast ógildur. Sex listar í kjöri í öll- um kjör- dæmum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.