Morgunblaðið - 26.04.2003, Side 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 13
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninganna
10. maí er hafin. Kosið er hjá sýslumönnum og hreppstjórum
um land allt, sendiráðum og mörgum ræðismönnum erlendis.
Í Reykjavík er kosið í Skógarhlíð 6, alla daga frá kl. 10-22.
Utankjörstaðaskrifstofan veitir allar upplýsingar og aðstoð við
kosningu utan kjörfundar. Einnig er hægt að nálgast upplýs-
ingar á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins www.xd.is og á upplýs-
ingavef dómsmálaráðuneytisins www.kosningar2003.is.
Sjálfstæðisfólk! Látið okkur vita um
stuðningsmenn sem ekki verða heima á kjördag,
t.d. námsfólk erlendis.
Utankjörstaðaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins
Valhöll, Háaleitisbraut 1, 3. hæð,
105 Reykjavík – Símar 515 1735 og 515 1736
Bréfasími 515 1739 – Farsími 898 1720
Netfang: oskar@xd.is
HAGNAÐUR Bakkavarar Group
nam 1,9 milljónum punda, sem svar-
ar til 243 milljóna íslenskra króna á
fyrsta ársfjórðungi. Þetta er um 10%
lækkun frá árinu áður er hagnaður
var 2,1 milljón punda.
Að sögn Ágústs Guðmundssonar,
starfandi stjórnarformanns Bakka-
varar Group hf. er ekki ástæða til að
ætla að félagið nái ekki markmiðum
sínum á árinu þrátt fyrir þennan
samdrátt á fyrsta ársfjórðungi. „Það
sem gerist núna er annars vegar að
páskarnir eru í öðrum ársfjórðungi í
ár en voru í þeim fyrsta í fyrra. Pásk-
arnir hafa alltaf verið okkar helsta
sölutímabil. Hins vegar kemur
kostnaður við nýja verksmiðju okkar
í London inn í uppgjör fyrsta árs-
fjórðungs en tekjurnar hafa ekki
skilað sér að fullu. Verksmiðjan
kemur til með að skila tekjum á öðr-
um ársfjórðungi. Hagnaður á öðrum
ársfjórðungi mun þannig vega upp á
móti fyrsta ársfjórðungi.“
Ágúst segir það ekkert keppikefli
að hver ársfjórðungur skili árangri
heldur séu markmið félagsins byggð
á árinu í heild sinni. „Það er engin
ástæða til að ætla að félagið nái ekki
sínum markmiðum á árinu. Það má
benda á að sjóðstreymi í ársfjórð-
ungnum var mjög gott, um 700 millj-
ónir í frjálsu sjóðstreymi. Í reikning-
unum hjá okkur eru heldur engar
óreglulegar tekjur og engar tekjur
af gjaldmiðlum. Allt er gert upp í
breskum pundum þannig að áhrif af
gengisbreytingum eru óveruleg.“
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði (EBITDA) var 4,9 millj-
ónir punda, 618 milljónir króna, á
tímabilinu en var 4,6 milljónir punda
árið áður. Hagnaður félagsins fyrir
fjármagnsliði (EBIT) var 3,8 millj-
ónir punda, 476 milljónir króna, eða
um 11,3% af rekstrartekjum, en var
3,6 milljónir punda árið áður, eða um
12,4% af rekstrartekjum. Fjár-
magnsgjöld námu 1,1 milljón punda,
138,5 milljónum króna, á tímabilinu
en voru 0,9 milljónir punda árið áður.
Í tilkynningu til Kauphallar Íslands
kemur fram að efnahagsreikningur
Bakkavarar hafi styrkst á fyrsta árs-
fjórðungi en langtímaskuldir fé-
lagins lækkuðu úr 61,5 milljónum
punda um áramót í 58,8 milljónir
punda, 7.408 milljónir króna og
skammtímaskuldir lækkuðu úr 35,6
milljónum punda í 33,4 milljónir
punda, 4.205 miljónir króna. Þannig
lækkuðu heildarskuldir félagsins úr
98,9 milljónum punda í 93,9 milljónir
punda á tímabilinu.
Rekstur í samræmi við áætlanir
Rekstur Bakkavör Group á fyrsta
fjórðungi ársins 2003 var í meginat-
riðum í samræmi við áætlanir. Sala
félagsins jókst um 14,3% á milli ára
og nam 33,2 milljónum punda, 4.189
milljónum króna, en nam 29,1 millj-
ónum punda árið áður. Eigið fé
Bakkavör Group jókst úr 58,6 millj-
ónum punda um áramót í 60,8 millj-
ónir punda á fyrsta ársfjórðungi en
eiginfjárhlutfall félagsins er nú 36%
án víkjandi skuldabréfs en að því
meðtöldu 45%. Um síðustu áramót
var eiginfjárhlutfallið 34% án víkj-
andi skuldabréfs, en að því meðtöldu
43%. Arðsemi eiginfjár var 13,1% á
tímabilinu og veltufjárhlutfallið 1,00
en var 1,02 í lok árs 2002. Í lok mars
störfuðu um 2.400 starfsmenn hjá
Bakkavör Group.
Hagnaður Bakkavarar
Group dregst saman
Páskahátíðin lendir í öðrum ársfjórðungi í ár
SVIPAÐAR reglur gilda hér um
ábyrgð verðbréfamiðlara og í Bret-
landi, en eins og fram kom í Morg-
unblaðinu í gær sektaði þarlenda
fjármálaeftirlitið hollenska bank-
ann ABN Amro um 900 þúsund
pund, fyrir að hafa með óeðlilegum
viðskiptum haft áhrif á lokaverð
hlutabréfa í nokkrum fyrirtækjum.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallar Íslands, segir að
ábyrgð verðbréfamiðlara sé ótví-
ræð, og þeir geti ekki skýlt sér á
bak við óskir viðskiptavinarins.
„Hér gilda svipaðar reglur og í
hinum þremur Norex-kauphöllun-
um, í Ósló, Stokkhólmi og Kaup-
mannahöfn. Þær eru alveg skýrar
að því er þetta varðar. Svona við-
skipti eru með öllu óheimil,“ segir
hann.
Þórður segir að viðskiptavinur-
inn, þ.e. fyrirtækið sem biðji miðl-
arann um að hagræða lokaverði,
geti einnig sætt ábyrgð. „Það væri
þá líklega Fjármálaeftirlitsins að
sjá til þess. Við byggjum okkar
eftirlit á samningssambandi við að-
ila Kauphallarinnar og beitum við-
urlögum og reglum sem byggjast á
því. Síðan yrði Fjármálaeftirlitið
að taka afstöðu til annarra þátta,“
segir hann.
Að sögn Þórðar myndu viðurlög
fara eftir eðli máls. „Að sjálfsögðu
kæmi til álita að beita févíti, eins
og við höfum gert í öðrum málum,“
segir hann.
Eftirlit auðvelt
Þórður segir að Kauphöllin fylg-
ist vel með því hvort viðskipti af
þessu tagi séu stunduð. „Og
kannski rúmlega það, því síðan
SMARTS-eftirlitskerfið var sett
upp í byrjun mars hefur hvers
kyns eftirlit verið mjög auðvelt, til
að mynda hvort tilboð eða viðskipti
eru í ósamræmi við það verðbil
sem ríkjandi er á markaðnum,“
segir hann. SMARTS-kerfið er
einnig notað á hinum Norðurlönd-
unum og Þórður segist vita til þess
að mál af þessu tagi hafi komið
upp þar, með svipuðum málalykt-
um og hjá ABN Amro í Bretlandi.
Ekkert slíkt mál hafi komið upp
hér síðan kerfið var sett upp.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins, segir að það
sé Kauphallarinnar að hafa eftirlit
með skráðum fyrirtækjum hvað
varðar óeðlileg viðskipti til að
breyta lokaverði, en FME hafi eft-
irlit með Kauphöllinni og fjármála-
fyrirtækjum.
Morgunblaðið/Sverrir
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, segir ábyrgð verðbréfa-
miðlara ótvíræða, þeir geti ekki skýlt sér á bak við óskir viðskiptavinar.
Ábyrgð miðlara
sögð ótvíræð
Óeðlileg viðskipti sem ætlað er að
hafa áhrif á lokaverð hlutabréfa
HAGNAÐUR Nýherja á fyrsta
ársfjórðungi nam 32,9 milljónum
króna eftir skatta samanborið við
23,6 milljóna króna hagnað á sama
tímabili árið áður. Hagnaður fé-
lagsins á sama tímabili fyrir fjár-
magnsgjöld og afskriftir, EBITDA,
var 62,6 milljónir en var 50,6 millj-
ónir á sama tímabili í fyrra.
Rekstrartekjur námu 1.173,3
milljónum króna, en voru 1.036,6
milljónir króna árið áður og hækk-
uðu því um 13%. Vörusala jókst um
11% og þjónustutekjur jukust um
23% á milli fjórðunga.
Hlutfall EBITDA af veltu í
fjórðungnum var 5,3% samanborið
við 4,9% á sama tímabili árið áður.
Starfsmönnum fjölgaði um 25 eða
10% á milli ára. Launakostnaður,
annar rekstrarkostnaður og af-
skriftir hækkuðu um 20% frá sama
tímabili árið áður. Þessi hækkun er
einkum vegna nýrrar starfsemi og
starfsmanna sem hófu störf hjá fé-
laginu þegar rekstur HT&T og
umboð fyrir Heidelberg voru sam-
einuð rekstri Nýherja, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu.
Gengishagnaður nam 5,1 milljón
samanborið við 11,7 milljóna geng-
ishagnað árið áður. Hagnaður af
rekstri dótturfélaga nam 1,1 millj-
ón en 1,6 milljóna tap var hjá þeim
á fyrsta fjórðungi ársins 2002.
Hagnaður af sölu hlutabréfa í Ís-
landssíma nam 6,8 milljónum fyrir
skatta.
Tekjur Nýherja í ársfjórðungn-
um eru í meginatriðum í samræmi
við rekstraráætlun félagsins. Eigið
fé Nýherja í lok fyrsta ársfjórð-
ungs er 1.250 milljónir kr. Félagið
á eigin bréf að nafnverði 14,8 millj-
ónir sem er 5,6% hlutafjár.
Horfur á öðrum ársfjórðungi
gefa væntingar um að tekjur verði
samkvæmt áætlun og að hagnaður
verði af starfsemi félagsins í fjórð-
ungnum.
Aukinn hagnaður
hjá Nýherja
ATORKA hf. keypti í gær 17,15%
hlut í Lífi hf. eða um 73,7 milljónir
króna að nafnvirði. Seljandi er Að-
alsteinn Karlsson og tengdir aðilar.
Gengið í viðskiptunum var 5,13
krónur á hlut. Kaupverð hlutarins í
Lífi var því um 378 milljónir króna.
Fyrir viðskiptin voru Aðalsteinn
Karlsson og tengdir aðilar stærsti
hluthafi í Lífi hf. auk þess sem Að-
alsteinn er ráðgjafi hjá félaginu.
Fjárfestingarfélagið Atorka á nú
20,2% hlut í Lífi en Aðalsteinn
Karlsson hefur selt allan hlut sinn í
félaginu. Stjórnarformaður Fjár-
festingarfélagsins Atorku hf. og
Lífs hf. er Margeir Pétursson.
„Stjórn Atorku taldi þetta góðan
kost. Kaupin á hlut í Lífi hf. eru í
samræmi við þá stefnu Atorku um
að eignast áhrifahluti í minni og
meðalstórum fyrirtækjum sem talin
eru sóknarfæri,“ sagði Margeir um
viðskiptin í gær.
Nafnvirði 20,2% hlutar Atorku í
Lífi er 86,8 milljónir króna.
Fyrir viðskiptin átti Atorka 3,05%
í Lífi eða 13,1 milljón að nafnvirði.
Atorka hf. eignast
fimmtung í Lífi hf.
MÓTMÆLI nýsjálenskra
stjórnvalda við fyrirvara Íslands
um bann við hvalveiðum í at-
vinnuskyni hafa ekki áhrif á
stöðu Íslendinga innan Alþjóða-
hvalveiðiráðsins.
Ísland gekk í ráðið á síðasta
ári en í aðildarumsókninni var
gerður fyrirvari við bann ráðs-
ins við hvalveiðum í atvinnu-
skyni. Telja Nýsjálendingar að
fyrirvarinn gangi gegn mark-
miðum og tilgangi hvalveiði-
samningsins. Fleiri ríki hafa
mótmælt fyrirvara Íslands, þar
á meðal Svíþjóð og Þýskaland.
Stefán Ásmundsson, þjóðrétt-
arfræðingur í sjávarútvegsráðu-
neytinu, segir að nýsjálensk
stjórnvöld hafi þannig ekki mót-
mælt aðild Íslands að Alþjóða-
hvalveiðiráðinu, heldur aðeins
fyrirvara Íslands um bann við
hvalveiðum í atvinnuskyni.
Stefán segir að mótmæli
Nýsjálendinga hafi ekki áhrif á
réttarstöðu Íslands innan ráðs-
ins, heldur aðeins á tvíhliða sam-
skipti Íslands og Nýja Sjálands.
Hann segir mótmælin ekki
koma á óvart í ljósi almennrar
afstöðu Nýja Sjálands til hval-
veiða, enda tilheyri það hópi
þeirra ríkja sem hvað harðast
hafi barist gegn hvalveiðum í at-
vinnuskyni og gefið í skyn á síð-
asta aðalfundi ráðsins að stjórn-
völd myndu leggja fram formleg
mótmæli við fyrirvara Íslands.
Næsti aðalfundur Alþjóða-
hvalveiðiráðsins verður haldinn
í Berlín í júní nk. og segir Stefán
að send verði formleg yfirlýsing
til Bandaríkjanna, sem eru
vörsluaðili hvalveiðisamningins,
þar sem það sé harmað að ein-
stök ríki hafi mótmælt fyrirvar-
anum enda telji íslensk stjórn-
völd hann ekki ganga gegn
samningnum. Jafnframt verði
þar viðurkenndur réttur ríkja til
að setja fram mótmæli. „Það
hefur frá upphafi verið afstaða
íslenskra stjórnvalda að hvert
aðildarríki innan Alþjóðahval-
veiðiráðsins ætti að taka afstöðu
til fyrirvarans, annaðhvort með
því samþykkja hann eða mót-
mæla honum einhliða.“
Mótmæli
Nýsjálend-
inga ekki
óvænt