Morgunblaðið - 26.04.2003, Qupperneq 14
ERLENT
14 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
VALERY Giscard
d’Estaing, forseti
svokallaðrar Fram-
tíðarráðstefnu Evr-
ópu, sem er e.k.
stjórnlagaþing Evr-
ópusambandsins
(ESB), hefur lagt
fram endurskoðaðar
tillögur að framtíð-
arstjórnskipulagi
ESB, eftir að fyrri
tillögudrög voru
harkalega gagn-
rýnd, einkum fyrir
að hygla meira hags-
munum stærri ríkja
sambandsins en
hinna smærri.
Í nýju drögunum, sem lögð
voru fram á mánaðarlegum fundi
ráðstefnunnar í Brussel á fimmtu-
dag, er þó enn að finna tillögu um
að setja á stofn valdamikið emb-
ætti forseta ESB, sem kjörinn
yrði til nokkurra ára setu í senn,
en það var einmitt þetta atriði
sem margir hinna 105 fulltrúa á
ráðstefnunni (sem koma frá öllum
núverandi og tilvonandi aðildar-
ríkjum ESB) gátu ekki sætt sig
við.
Ráðstefnunni, sem tók til starfa
fyrir u.þ.b. ári, er ætlað að leggja
fram í sumar drög að því sem
kalla má stjórnarskrárígildi fyrir
Evrópusambandið, þar sem kveð-
ið verður á um framtíðarfyrir-
komulag stjórnskipunar ESB.
Stjórnarskrárígildið kæmi í stað
marguppfærðs stofnsáttmála
ESB, Rómarsáttmálans.
Viðurkennir að nú
gefi á bátinn
Giscard d’Estaing, sem sjálfur
er fyrrverandi forseti Frakk-
lands, viðurkenndi á fundinum í
fyrradag að starf ráðstefnunnar
væri komið í nokkurn óglusjó og
að lítill tími væri orðinn til stefnu
til að ljúka verkefninu. „Það er
enginn vafi að ráð-
stefnan er nú tekin
að kljást við erf-
iðasta hlutann í
starfi sínu,“ sagði
hann. „Tíminn er
naumur.“
Fulltrúar fram-
kvæmdastjórnar
ESB og Evrópu-
þingsins fögnuðu því
að fallið hefði verið
frá sumu sem lagt
hafði verið til í fyrri
drögum. En eftir
stendur djúpstæður
ágreiningur um til-
löguna um nýtt for-
setaembætti. Eink-
um eru það fulltrúar smærri
aðildarríkjanna sem eru tor-
tryggnir á hana og álíta hana fela í
sér hættu á valdatilfærslu til
stærri aðildarríkjanna.
Sumir fulltrúanna sögðust
móðgaðir yfir vinnubrögðum
Giscards, bæði vegna þess að
hann hefði kosið að ganga frá nýju
drögunum á bak við luktar dyr og
að í þeim hefði hann leyft sér að
taka ekki tillit til kjarnaatriða
gagnrýninnar á fyrri tillögurnar.
„Við höfum lagt okkur hart
fram í heilt ár núna. Í tillögum yð-
ar eru þær málamiðlanir sem við
höfðum náð virtar að vettugi. Þér
hafið opinberlega gert lítið úr
starfi okkar,“ sagði þýzki ráð-
stefnufulltrúinn Johannes Vogg-
enhuber um Giscard.
John Bruton, fyrrverandi for-
sætisráðherra Írlands sem einnig
á sæti á ráðstefnunni, lagði til að
nýju drögin yrðu afturkölluð.
Giscard varði gerðir sínar með
því að vísa til þess að nú, þegar
styttist í að ráðstefnunni væri ætl-
að að ljúka starfi sínu, væri nauð-
synlegt að taka stórhuga skref.
„Þess vegna töldum við rétt að
leggja textann fram eins og hann
er nú,“ sagði hann.
Deilt um fram-
tíðarstjórn-
skipan ESB
Vinnubrögð forseta „Framtíðar-
ráðstefnunnar“ gagnrýnd
Brussel. AFP, AP.
Valery Giscard
d’Estaing
ÞÝSKIR lögreglumenn og sjúkra-
liðar umkringja strætisvagn
skammt frá þorpinu Klein Förste
sem er nærri Hannover í gær.
Sautján ára vopnaður Líbani sem
tók vagninn á sitt vald í Bremen
með sextán manns um borð, þ.á m.
nokkrum börnum, hafði þá gefist
upp eftir sjö klukkustunda eltinga-
leik og umsátur. Engan sakaði.
Að sögn lögreglunnar hafði ræn-
inginn krafist þess að Ramzi bin al-
Shaiba, meintur skipuleggjandi
hryðjuverkanna í Bandaríkjunum
11. september, yrði látinn laus úr
fangelsi. Shaiba var framseldur frá
Pakistans til Bandaríkjanna ásamt
fjórum öðrum grunuðum í fyrra.
Reuters
Umsátur í Þýskalandi
RÚSSAR vilja að viðskiptaþvingun-
um gegn Írak verði aflétt að hluta og
til bráðabirgða og eingöngu varðandi
búnað sem notaður yrði til að sinna
þörfum almennings í landinu, að
sögn Ígors Ívanovs utanríkisráð-
herra á fimmtudag. Frakkar sneru
skyndilega við blaðinu á þriðjudag
og lýstu vilja til að aflétta strax við-
skiptabanninu. Frakkar höfðu sem
kunnugt er forgöngu um andstöðu í
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna
gegn stríðinu í Írak á sínum tíma og
gengu Rússar og Þjóðverjar í lið með
þeim.
Andstöðuþjóðirnar andmæltu í
fyrstu tillögum Bandaríkjamanna og
Breta um að aflétta viðskiptabann-
inu að stríðinu loknu. Bentu þær á að
samkvæmt samþykktum SÞ væri
það ekki hægt fyrr en búið væri að
staðfesta að engin gereyðingarvopn
væru í Írak. Frakkar virðast ekki
hafa haft neitt samráð við Rússa um
stefnubreytinguna óvæntu á þriðju-
dag.
Rússneskir fjölmiðlar, sem margir
eru tengdir ráðamönnum í Kreml
eða háðir þeim, gagnrýndu Frakka
hart á fimmtudag. Sögðu þeir að
rússneskir diplómatar hefðu lært
sína lexíu og skildu nú betur hætt-
urnar við að gera bandalög við aðrar
þjóðir.
Áminning fyrir Pútín
„Frakkar höfðu Rússa að fíflum“
sagði í fyrirsögn dagblaðsins Nez-
avísímaja Gazeta sem oft er þjóðern-
issinnað. „Frakkar bjóða [Banda-
ríkjamönnum] málamiðlun í
Íraksdeilunni til þess að reyna að
tryggja peningahagsmuni sína,“
sagði blaðið. „París gefst upp“ var
fyrirsögn dagblaðsins Ízvestía sem
sagði að Frakkar reyndu nú að bjóða
Bandaríkjamönnum sættir en
gleymdu samstarfinu við Rússa og
Þjóðverja um andstöðu við stríðið.
Hafði tilkynning Frakka í vikunni
um að þeir vildu aflétta viðskipta-
banninu verið í hróplegu ósamræmi
við yfirlýsingar Rússa aðeins örfáum
klukkustundum fyrr um að slíkt ætti
aðeins að gera þegar Bandaríkja-
menn hefðu heimilað vopnaeftirlits-
mönnum SÞ að snúa aftur til Íraks í
því skyni að sannreyna hvort þar
væri að finna gereyðingarvopn.
Ízvestía sagði að málið ætti að
vera áminning fyrir Vladímír Pútín
Rússlandsforseta. „Rússar geta enn
og aftur sannfærst um að í heimi nú-
tímans er ekki til neitt eilífðarbanda-
lag, aðeins eilífir hagsmunir,“ sagði
blaðið.
„Frakkar höfðu
Rússa að fíflum“
Rússneskir fjölmiðlar segja að stjórnvöld í París hunsi
nú bandalagið við Þjóðverja og Rússa í Íraksdeilunni
Moskvu. AFP.
WINNIE Madikizela-Mandela,
fyrrverandi eiginkona Nelsons
Mandela, fyrrv. forseta Suður-Afr-
íku, var dæmd í gær í fimm ára fang-
elsi, þar af eitt skilorðsbundið, fyrir
skjalafals og þjófnað. Winnie þarf
ekki að sitja í fangelsi nema í átta
mánuði en afplánar dóminn að öðru
leyti með samfélagsþjónustu.
Addy Moolman, sem einnig var
ákærður í málinu, fékk sjö ára fang-
elsi, þar af tvö skilorðsbundin. Af-
brot Winniear og Moolmans fólst í
því að taka mörg bankalán í nafni
tilbúinna starfsmanna kvennadeild-
ar Afríska þjóðarráðsins en Winnie
er formaður hennar. Heldur hún enn
fram sakleysi sínu og ætlar að áfrýja
dómnum en tilkynnti, að hún hygðist
segja af sér öllum opinberum emb-
ættum, þar á meðal þingmennsku, „í
fyllingu tímans“.
Reuters
Stuðningsmenn Winnie Madikizela-Mandela mótmæla dómnum í gær.
Winnie Mandela
fékk fimm ára dóm
Pretoria. AFP.
VÍST þykir nú að nýrri stjórnstöð
NATO verði komið upp í Noregi. Í
stjórnstöðinni mun fara fram yfir-
umsjón með þeirri umbreytingu sem
ákveðin hefur verið á skipulagi
bandalagsins hvað Evrópu varðar.
Norska dagblaðið Stavanger Aft-
enblad greindi frá þessu í gær. Segir
í frétt blaðsins að svo virðist sem
Norðmenn komi til með að hafa vinn-
inginn í þeirri keppni sem fram hef-
ur farið um stjórnstöðina nýju en
Spánverjar og Pólverjar höfðu einn-
ig lýst yfir áhuga á að hýsa hana.
Endanleg ákvörðun verður tekin 13.
júní.
Stjórnstöðin verður í Jåttå við
Stavanger en þar er fyrir norsk her-
stöð sem einnig hefur að hluta til
heyrt undir Atlantshafsbandalagið
(NATO).
Í nýju stjórnstöðinni mun fara
fram þjálfun, skipulagning og um-
breyting í tengslum við þau umskipti
sem ákveðin hafa verið á starfsemi
Atlantshafsbandalagsins, hlutverki
þess og skipulagi. Þær breytingar
lúta einkum að viðbúnaði og við-
brögðum vegna hryðjuverkaógnar-
innar í samræmi við nýtt hættumat
innan bandalagsins. Stjórnstöðin
heyrir undir Evrópuherstjórn
NATO og er ábyrg fyrir þessum
þætti starfseminnar hvað þá her-
stjórn varðar. Hún fellur síðan undir
höfuðstöðvarnar í Bandaríkjunum er
nefnast á ensku „Joint Warfare
Centre“.
Norðmenn telja þessa ákvörðun
fagnaðarefni. Kristin Krohn Devold,
varnarmálaráðherra Noregs, segir
mikilvægt að stjórnstöðin verði hýst
þar. „Þetta þýðir að áhrif okkar inn-
an NATO haldast óbreytt,“ sagði
hún í gær í viðtali við norsku frétta-
stofuna NTB.
Gert er ráð fyrir að um 300 manns
starfi í Jåttå í stað um 230 nú.
NATO-stjórnstöð til Noregs