Morgunblaðið - 26.04.2003, Qupperneq 25
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 25
milljóna
starfslokasamning
vi› sjálfa(n) flig
Ger›u
www.isb.is Vertu me› allt á hreinu!
Vi›bótarlífeyrissparna›ur Íslandsbanka
Fá›u borga› fyrir a› spara!
Byrja›u
strax!
fia› mu
nar
milljón
um.
Vi›bótarlífeyrissparna›inum má líkja vi› risastóran starfslokasamning sem flú
gerir vi› sjálfa(n) flig. fiín getur be›i› vegleg upphæ› vi› starfslok. Ekki hika,
flví fyrr sem flú byrjar a› spara flví hærri ver›ur „samningurinn“.
Vegna mótframlags launagrei›anda og ríkis er vi›bótarlífeyrissparna›ur
besti sparna›ur sem völ er á. Fyrir hverjar 10.000 kr. sem flú leggur
fyrir í vi›bótarlífeyrissparna› leggjast 6.000 kr. til vi›bótar inn
á reikninginn flinn. fia› jafngildir 60% ávöxtun strax!
Klára›u máli› á isb.is e›a komdu
vi› í næsta útibúi Íslandsbanka.
Útibú Eignast‡ring Eignafjármögnun Fyrirtækjasvi› Alfljó›asvi› Marka›svi›skipti
„ÞETTA er búið að vera lengi í
kollinum á mér að setja upp svona
aðstöðu og ég lét verða af því þeg-
ar húsnæðið varð til,“ sagði Sverr-
ir Andrésson, fyrrverandi bílasali
og áhugamaður um fornbíla, sem
opnað hefur Fornbílasetrið í hús-
næði við Hrísmýri á Selfossi. Þar
hefur hann einnig komið upp litlu
húsi með búnaði sem gerir mönn-
um kleift að upplifa jarðskjálfta.
Fornbílarnir í sýningarsalnum
eru af ýmsum gerðum. Elsti upp-
runalegi bíllinn er Dodge Brothers
árgerð 1923.
Allir bílarnir eru ökufærir og
mjög vel útlítandi og greinilegt að
eigendur þeirra hafa lagt mikinn
metnað í útlit þeirra og að þeir
héldu útliti sínu þegar þeir voru
gerðir upp. Auk bílanna er að finna
í Fornbílasetrinu skráningabók
bíla í Árnessýslu frá því fyrsti bíll-
inn með einkennisstöfunum ÁR 1
var skráður 9. október 1928 til árs-
ins 1946. Þessi fyrsti bíll var í eigu
Einars Einarssonar frá Eyrar-
bakka. Sverrir segir gaman að
glugga í bókina einkum ef rekja
þarf sögu bíla sem sjást á gömlum
myndum og menn þekkja ef til vill
ekki. „Ég nota bókina heilmikið,“
sagði Sverrir. Fornbílasetrið verð-
ur opið í sumar á laugardögum og
sunnudögum klukkan 14–17 og á
öðrum tímum eftir samkomulagi
við Sverri Andrésson.
Jarðskjálftinn góður
fyrir hjónabandið
„Hjá fólki sem kemur snýst
heimsóknin ekki síður um að kom-
ast í jarðskjálftahúsið hérna og
upplifa síðasta Suðurlands-
skjálfta,“ sagði Sverrir en hann
býður fólki að ganga inn í eftirlík-
ingu af húsi og upplifa þar jarð-
skjálftann. Fólk ýtir á takka og
heyrir drunurnar þegar skjálftinn
nálgast og síðan gengur gólfið upp
og niður undir fótunum með við-
eigandi hávaða frá fallandi hlutum
og tilheyrandi brothljóðum.
Skjálftinn er svo eðlilegur inni í
myrkvuðu húsinu að fólk verður
vart við sömu tilfinningu og kom
fram hjá þeim sem upplifðu skjálft-
ann á Suðurlandi í húsum sínum.
Sverrir sagði að einn gestanna
hefði sagt að heimsókn í jarð-
skjálftahúsið væri góð fyrir hjóna-
bandið því hjónum brygði þegar
kippurinn kæmi og þau gripu
ósjálfrátt hvort í annað til að leita
öryggis.
Fornbílasetrið með jarðskjálfta-
húsinu er við Hrísmýri og er ekið
að því af fyrsta hringtorginu við
komuna að Selfossi úr vestri.
Fornbílasetrið býður
upp á jarðskjálfta
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Sverrir Andrésson í Fornbílasetrinu á Selfossi. Á myndinni sjást nokkrir
bílanna og húsið sem geymir jarðskjálftaupplifunina.
Selfoss
GAMALT pakkhús,
sem upphaflega var
kennt við Kaup-
félagið Heklu á Eyr-
arbakka, en síðar við
útgerðarfélagið Óð-
in, hefur nú á ný öðl-
ast nýtt hlutverk. Nú
er húsið notað til list-
sýninga og einmitt
þessa dagana sýna
þar listamenn sem
kalla sig Breiðumýr-
armenn.
Listamennirnir
eru: Elfar Guðni,
Halldór Forni, Liston og Sverrir Geirmundsson. Þarna getur að líta högg-
myndir og málverk þeirra.
Sýningin var opnuð um páskana, en framvegis verður hún opin frá kl. 13
til 19 næstu helgi, fyrsta maí og helgina 3. og 4. maí.
Í vesturenda hússins var eitt sinn til húsa Rafstöðin á Eyrarbakka, síðar
slökkvistöð og loks áhaldahús Árborgar á Bakkanum.
Nú er þar einnig brotið í blað, því listakonan Sjöfn Har hefur þar vinnu-
stofu sína, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Sýning í Óðinshúsi
Eyrarbakki
NÝ BENSÍN- og þjónustustöð Olís
við Arnberg á Selfossi var tekin í
notkun á sumardaginn fyrsta. Það
var Sjöfn Halldórsdóttir verslunar-
maður sem var fyrsti viðskiptavinur
stöðvarinnar og var hún leyst út með
blómakörfu og áfyllingu á bílinn.
„Þessi nýja stöð er ein sú glæsileg-
asta sem Olís hefur í sínum flota,“
sagði Helga Friðriksdóttir, fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs smásölu
hjá Olís, þegar hún ávarpaði starfs-
menn nýju stöðvarinnar. Í tilefni opn-
unarinnar verða ýmis tilboð í stöðinni
yfir helgina en meðal þess er grill-
veisla klukkan 14 í dag, laugardag.
Hin nýja stöð býður upp á mikla
þjónustumöguleika en auk þess að
vera bensínstöð og þjónustustöð er í
stöðinni glæsileg verslun með nauð-
synjavöru og þjónustuvörur fyrir
ferðalanga. Að baki stöðvarinnar er
OB sjálfsafgreiðsludælan með ódýr-
ara eldsneyti og inni er aðstaða fyrir
sölu til stórnotenda. Í versluninni er
bakarí og síðan björt og vistleg kaffi-
stofa með útsýni yfir Ölfusá.
Nýja stöðin tekur við af eldri stöð
Olís á Arnbergi en þar hóf Olís rekst-
ur bensínstöðvar 1969 og hefur verið
með rekstur þar síðan. Nafnið Arn-
berg er dregið af nöfnum hjónanna
sem áttu jörðina sem Olís keypti und-
ir stöðina árið 1967 en þau hétu Arn-
fríður og Sigurbergur.
Núverandi rekstrarstjóri er Ingv-
ar Guðmundsson. „Það er vel við hæfi
að svo veglega þjónustustöð sé að
finna við innkomuna hér á Selfossi.
Þessi glæsilega nýbygging gerir okk-
ur kleift að þjóna viðskiptavinum
okkar enn betur en áður og takmark
okkar er að allir fari frá okkur vel
mettir og sælir með þjónustuna,“
sagði Ingvar.
Ný þjónustustöð Olís opnuð við Arnberg á Selfossi
Allir verði mettir og
sælir með þjónustuna
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Ingvar Guðmundsson, stöðvarstjóri
á Arnbergi, og Hildur Friðriks-
dóttir, framkvæmdastjóri markaðs-
sviðs smásölu hjá Olís, tóku vel á
móti Sjöfn Halldórsdóttur, fyrsta
viðskiptavini nýju stöðvarinnar.
Selfoss
LIONSKLÚBBUR Hveragerðis
hyggst halda vorfagnað fyrsta föstu-
dag í maí að Hótel Örk. Fyrsta til-
raun var gerð í fyrra og þótti hún
takast mjög vel og því var ákveðið að
blása til nýs fagnaðar í vor. Fyrir-
tæki og vinnustaðir bæjarins senda
fulltrúa sína til að troða upp og verða
atriðin ekki af verri endanum.
Líkt og í fyrra er verið að safna
peningum til styrktar góðu málefni.
Í ár hafa Lionsmenn ákveðið að
styrkja Hjálparsveit skáta hér í
Hveragerði til bifreiðakaupa. Hjálp-
arsveitin keypti á dögunum nýja bif-
reið, sem búin er öllum þeim tækjum
og tólum sem á þarf að halda þegar
þeir fara um landið þvert og endi-
langt til að bjarga okkur hinum, sem
lendum í vandræðum.
Þar sem fyrir nokkru voru spila-
kassar og staðurinn nefndur Happa-
gerði er verið að undirbúa vorfagnað
Lionsklúbbsins. Þegar fréttaritari
kemur inn kemur það mest á óvart
hversu vel er hægt að raða hljóðfær-
um og hljóðfæraleikurum í jafn litlu
rými og raun ber vitni. Þessa stund-
ina eru söngkonur frá Kjörís að æfa
sitt lag, Berglind Sigurðardóttir seg-
ist vera svo stressuð að fæturnir á
henni titri, en það heyrist ekki þegar
hún hefur upp raustina og byrjar að
syngja. Fyrirtækin eru boðuð á
ákveðnum tímum til æfinga og kem-
ur það ekki á óvart því plássið er lít-
ið. Þegar söngkonurnar frá Kjörís
hafa lokið sínu lagi, kemur Maríanna
starfsstúlka á Hótel Örk og syngur
sitt lag. Það kemur upp úr dúrnum
að hún er ekki óvön, hefur áður tekið
þátt í söngvakeppni, og það heyrist
greinilega að hér er ekki neinn við-
vaningur á ferðinni. Hljómsveitin
sem kallar sig Lionsbandið er skipuð
félögum úr hljómsveitinni Pass
ásamt þeim Sölva Ragnarsyni og
Eyjólfi Harðarsyni.
Fagnaður undirbúinn
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Hluti af Lionsbandinu æfir sig af mikilli innlifun fyrir kvöldið.
Hveragerði