Morgunblaðið - 26.04.2003, Qupperneq 26
SÍÐASTLIÐIN
mánaðamót urðu eig-
endaskipti á mat-
vöruversluninni á
Tálknafirði. Jaðar-
kaup ehf. tók við
rekstrinum af Olíufé-
laginu, sem hafði
rekið verslunina í
nokkrar vikur, en
Metta ehf. rak versl-
unina þar áður. Jað-
arkaup ehf. er í eigu
hjónanna Ólafs H.
Gunnbjörnssonar og
Gestrúnar Sveins-
dóttur, en þau hafa í
nokkur ár rekið
verslunina Poka-
hornið, sem er stað-
sett í sama húsnæði
og matvöruverslun-
in. Þórður Jónsson
ehf. á húsnæðið sem
verslanirnar eru í og
leigir þeim aðstöð-
una og innréttingar.
Að sögn Gestrúnar áætla þau hjón
að halda óbreyttum opnunartíma
fyrst í stað, en þegar nær dregur
sumri verður opnunartíminn lengd-
ur. Í haust stefna þau síðan að því að
breyta fyrirkomulagi í versluninni til
þess að auðvelda afgreiðslu o.fl.
Samhliða yfirtöku verslunarinnar
tóku þau hjón við umboðinu fyrir Ol-
íufélagið og Esso-vörur, þ.m.t. rekst-
ur Esso-sjoppunnar.
Nú er búið að setja upp sjálfsala
fyrir eldsneyti á bifreiðar og verða
þeir komnir í gagnið á næstu dögum.
Til að byrja með verða sex starfs-
menn í verslununum en Pokahornið
verður áfram rekið í sömu mynd og
verið hefur.
Matvöruverslunina nefna þau Jað-
arkaup en þar sem verslunin stendur
var áður íbúðarhúsið Jaðar, sem
Eggert Magnússon byggði 1937.
Húsið var að mestu byggt úr kassa-
fjölum, samskonar þeim sem notaðar
voru í kassa utan um hvalkjöt frá
hvalstöðinni á Suðureyri. Til gamans
má geta þess að árið 1938 komu 137
hvalir á land á Suðureyri. Húsið að
Jaðri var rifið skömmu fyrir 1970.
Keyptu bát í vetur
Það hefur verið í mörg horn að líta
hjá þeim hjónum Ólafi og Gestrúnu,
því fyrr í vetur keypti fyrirtæki í
þeirra eigu, Sjópoki ehf., handfæra-
bátinn Grím AK 1.
Ólafur, sem hefur frá unga aldri
stundað sjóinn, hyggst róa til fiskjar
þegar nær dregur sumri. Bjóst hann
við því að byrja fljótlega upp úr
páskum. Báturinn er dagabátur og
hefur 21 dag til sjóróðra.
Matvöruverslunin
skiptir um eigendur
Tálknafjörður
Jaðarkaup ehf. eru í eigu hjónanna Ólafs H. Gunn-
björnssonar og Gestrúnar Sveinsdóttur.
Morgunblaðið/Finnur
LANDIÐ
26 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Ljósmynd/Hallormsstaðarskóli
Úr sýningu leikritsins Maðurinn bak við Moggann, eða barnakennari vak-
inn upp frá dauðum. F.v. Þórhallur Jóhannsson, Júlíana Garðarsdóttir og
Guðmundur Þorsteinn Bergsson, nemendur í Hallormsstaðarskóla.
Barnakennarinn sem
gleymdi sér yfir Mogganum
Egilsstaðir
Á DÖGUNUM var í Hallormsstað-
arskóla frumsýnt nýtt leikrit eftir
Jón Guðmundsson, fjöllistamann og
fyrrverandi barnakennara. Nefnist
það Maðurinn á bak við Moggann,
eða barnakennari vakinn upp frá
dauðum. Jón hefur skrifað leikrit
fyrir skólann í rúman áratug, með
það í huga að sem flestir nemendur
stígi á stokk í uppfærslum.
Að þessu sinni fjallaði leikritið
um látinn barnakennara sem van-
rækti uppfræðsluskyldu sína alger-
lega svo áratugum skipti, með því
að hanga öllum stundum yfir lestri
Morgunblaðsins. Í útför kennarans
mæta nokkrir fyrrverandi nemend-
ur hans, sem teljast til jeppakalla.
Þeir hyggjast vekja sinn gamla
kennara upp frá dauðum með start-
köplum, en þá vill svo illa til að það
kemur í hann vitlaus sál. Þeir drepa
hann því aftur með messuvínsflösku
og gera aðra tilraun. Barnakenn-
arinn kemur til baka og á nú að
skikka hann til að vinna upp í gaml-
ar syndir. Þá skerst Guð í leikinn,
fremur óhress með að verið sé að
hirða af honum sálir og heimtar
barnakennarann til baka. Hann út-
vegar þó jeppaköllunum aðra sál í
sárabætur og reynist það vera Sif
Vígþórsdóttir, skólastjóri Hallorms-
staðarskóla.
Leikstjórar sýningarinnar voru
Jón Gunnar Axelsson og Sigurlaug
Gunnarsdóttir og leikarar nemend-
ur 7. til 10. bekkjar skólans.
KVENNAKÓRINN Norðurljós hélt sín árlegu sum-
artónleika í Hólmavíkurkirkju á sumardaginn fyrsta.
Á efnisskránni voru 19 lög og vakti athygli að textar
við fjögur þeirra voru eftir heimamenn. Lagavalið
minnti á sumar og sól, enda hefur veðrið að und-
anförnu gefið tilefni til að um það sé sungið.
Stjórnandi kórsins er Sr. Sigríður Óladóttir sókn-
arprestur á Hólmavík. Í vetur syngja 18 konur með
kórnum. Undirleikarar eru Stefanía Sigurgeirsdóttir
organisti og Gunnlaugur Bjarnason sem leikur á gítar
og harmónikku. Starfsárinu er hvergi nærri lokið eftir
þessa sumartónleika, því framundan eru tónleikar í
Reykjavík þann 17. maí, auk þess hefur kórinn gjarnan
tekið þátt í ýmsum uppákomum á Hólmavík á sumrin.
Morgunblaðið/Kristín Sigurrós
Sumartónleikar kvennakórsins
Norðurljósa heppnuðust vel
Hólmavík
KH hf. og Verslunin Vísir ehf. á
Blönduósi hafa staðfest samkomulag
um kaup KH á eignum og rekstri
verslunarinnar Vísis ehf. Rekstri
Vísis verður hætt 1. júní nk.
Í sameiginlegri fréttatilkynningu
frá fyrirtækjunum segir að breyting-
ar í verslunarháttum fólks, m.a.
vegna bættra samgangna, fjölgun
lágvöruverðsverslana og aukinnar
verðsamkeppni hafi kallað á hagræð-
ingu í verslun og sameiningu versl-
ana. Þessi þróun eigi sér stað um allt
land og sé nauðsynleg til að tryggja
verslun á landsbyggðinni, verslun
sem geti boðið vörur á samkeppn-
ishæfara verði og viðunandi vöruúr-
val.
Gengið frá samein-
ingu tveggja verslana
Blönduós
SKÁKFÉLAGIÐ Hrókurinn hélt
skákmót í félagsheimilinu Tré-
kyllisvík laugardaginn fyrir
páska. Forseti skákfélags Hróks-
ins, Hrafn Jökulsson, sá um mót-
ið. Teflt var á fimmtán borðum
þannig að þrjátíu manns tóku þátt
í því, ungir sem aldnir.
Mikill skákáhugi hefur verið í
hreppnum að undanförnu, ekki
síst hjá grunnskólabörnum og
reyndar hjá öllum aldursflokkum.
Að sögn Hrafns eru hér margir
efnilegir skákmenn.
Úrslit urðu þau að Trausti
Steinsson varð í fyrsta sæti og
hlaut hann bikar frá Hróknum
með áletruninni Páskameistari
Árneshrepps. Í öðru sæti varð
Gunnar Dalkvist og í þriðja Ing-
ólfur Benediktsson og hlutu þeir
skákklukkur og fleira í verðlaun
frá Hróknum. Í kvennaflokki varð
efst Margrét Guðfinnsdóttir, burt-
fluttur Árneshreppsbúi, en það
voru allmargir gestir sem tóku
þátt í mótinu. Hrókurinn gaf einn-
ig öllum grunnskólabörnum boli
með áletrun Hróksins. Hrafn Jök-
ulsson tefldi síðan fjöltefli um
kvöldið og tóku tuttugu og sex
þátt í því.
Nú má segja að ákveðið sé að
stofna skákfélag Árneshrepps en
fjöldi manns skrifaði sig á lista
sem lá frammi á mótinu.
Morgunblaðið/Jón G. Guðjónsson
Árneshreppur
Páskaskákmót Árneshrepps
BIFHJÓLAFÉLAG Borgarfjarðar;
Raftar, stóð fyrir mótorhjólasýningu
á sumardaginn fyrsta í Íþróttamið-
stöðinni í Borgarnesi. Sýnd voru um
20 mótorhjól í eigu Raftanna auk um
30 mótorhjóla, fjórhjóla, vélsleða,
fatnaðs og fylgibúnaðar frá ýmsum
umboðum og seldust strax tvö hjól.
Stöðugur straumur fólks var inn og
út úr Íþróttamiðstöðinni allan dag-
inn. Margir vélhjólamenn úr öðrum
klúbbum komu á sýninguna, m.a. frá
Selfossi og Keflavík og mátti um
tíma líta um 80 hjól fyrir utan
Íþróttamiðstöðina. Sýning með svip-
uðu sniði og í ár var haldin í fyrra og
stefna Raftar að því að gera hana að
árvissum atburði.
Bifhjólafélagið Raftar var stofnað
2001 og eru félagar 40 talsins bæði
karlar og konur. Klúbburinn er op-
inn öllum frá 17 ára aldri sem áhuga
hafa á hjólum og hjólaferðum, en
ekki er skilyrði að eiga hjól.
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
Fjöldi fólks kom og skoðaði mótorhjól á sumardaginn fyrsta.
Mótorfákar sýndir
Borgarnes