Morgunblaðið - 26.04.2003, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 26.04.2003, Qupperneq 29
HEILSA MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 29 Ý N I N G AKUREYRI • SELFOSS • REYKJANESBÆR ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 20 94 7 0 5/ 20 03 SJÁLFVIRKUR REGNSKYNJARI EINSTÖK HLJÓMTÆKNI TÖLVUSTÝRÐ LOFTRÆSTING FJÖLÞREPA SJÁLFSKIPTING 9 LOFTPÚÐAR Toyota Akureyri Baldursnesi 1, Akureyri Toyota Selfossi Fossnesi 14, Selfoss Toyotasalurinn Njarðarbraut 19, Reykjanesbæ Í BYRJUN febrúar á þessu ári bárust fregnir um að lungnabólgu af ókunnum orsökum hefði orðið vart í Guangdonghéraði í Kína og að nokkrir hefðu látist af hennar völdum. Þessi veiki kallast nú heilkenni alvar- legrar bráðrar lungnabólgu (HABL), á ensku Severe Acute Respiratory Syndrome (SARS), og er talin or- sakast af nýjum stofni svokallaðrar Coronaveiru. Coronaveira er áður þekkt sem ein af fjölmörgum or- sökum kvefs. Veikin barst síðan í lok febrúar til Hong Kong og hefur nú greinst í a.m.k. 26 löndum. Nokkuð náin samskipti þarf til að smit geti orðið og eru það einna helst aðstandendur sjúklinganna og heilbrigðisstarfsmenn sem hafa veikst. Helstu ein- kenni veikinnar eru hiti, beinverkir, þurr hósti og önd- unarörðugleikar, fyrstu batamerki koma eftir 5–6 daga en um 10–20% tilfella versnar sóttin og meðferð í öndunarvél getur reynst nauðsynleg, í 4–5% tilfella leiðir lungnabólgan til dauða. Varúðarráðstafanir Á Vesturlöndum hefur verið komið í veg fyrir útbreiðslu veikinnar með ein- angrun tilfella, einnig er reynt er að rjúfa smitleiðir með því að hafa uppi á öll- um sem mögulega hafa smitast, séð til þess að þeir dvelji heima við í einangrun og fylgst náið með heilsu þeirra. Hérlendis er ráðleggingum Alþjóðaheilbrigðsmálastofnunarinnar (WHO), um að ferðimenn fresti ferðum sínum til sýktra svæða nema þeir hafi brýna ástæðu, fylgt eftir. Sýkt svæði í dag eru héruð í Kína, Hong Kong og Toronto í Kanada, en stöðugt er verið að endurmeta stöðuna. Aðrar aðgerðir hérlendis eru m.a. endurbætur á einangrunaraðstöðu á Landspítala – háskólasjúkrahúsi, verið er að festa kaup á fleiri öndunarvélum, gefnar eru út leiðbeiningar fyrir heilbrigðisþjónustuna um hvernig skuli bregðast við og annast sjúklinga. Flug- farþegar eru upplýstir og gefnar eru út leiðbeiningar fyrir áhafnir flugvéla. Með þéttriðnu neti leiðbeininga og upplýsinga ásamt góðri einangrunar- aðstöðu eru allar líkur á því að komið verði í veg fyrir útbreiðslu smits ef ein- staklingur með HABL kæmi til Íslands eins og á öðrum Vesturlöndum. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu landlæknisembættisins (www.landlaekn- ir.is) og Alþjóðaheilbrigðsmálastofnunarinnar(www.who.int). Guðrún Sigmundsdóttir læknir Frá landlæknisembættinu Heilsan í brennidepli Heilkenni alvarlegr- ar bráðrar lungna- bólgu, HABL Aðgerðir hér- lendis eru m.a. endurbætur á ein- angrunaraðstöðu á Landspítala – háskólasjúkrahúsi REGLULEG brjóstaskoðun lækkar verulega dánartíðni af völdum brjóstakrabbameins, og hefur hún reynzt nýtast konum á fimmtugs- aldri bezt. Þetta eru helztu niður- stöður tveggja umfangsmikilla rann- sókna á því hverju regluleg brjóstaskoðun skilar, sem birtar verða í nýjasta hefti hins virta lækna- vísindarits The Lancet í dag, laug- ardag. Læknar eru sammála um að með brjóstaskoðun sé hægt að greina krabbameinsæxli á frumstigi. En deilt hefur verið um hvort regluleg slík skoðun sé skilvirkari ef henni er beint fyrst og fremst að konum yfir fimmtugu og um það hversu tíð skoð- unin þurfi að vera. Báðar rannsóknirnar sem um ræð- ir – önnur unnin af læknum á aðal- sjúkrahúsinu í Falun í Svíþjóð og hin við Erasmus-læknastöðina í Rotter- dam í Hollandi – eru byggðar á gögn- um frá mörgum áratugum og ná til hundruða þúsunda kvenna. Í báðum tilvikum komast höfundarnir að þeirri niðurstöðu að regluleg brjósta- skoðun hafi dregið mjög úr dánar- tíðni af völdum brjóstakrabbameins. 44% lækkun dánartíðni Í sænsku rannsókninni var borið saman mat á dánartíðni kvenna í 20 ár fyrir og eftir að regluleg brjósta- skoðun var tekin upp í Svíþjóð, árið 1978. Greiningin náði m.a. yfir 210.000 konur á aldrinum 20 til 69 ára, sem greindar voru með brjósta- krabbamein á þessu tímabili. Konur á aldrinum 40–54 ára voru kallaðar í skoðun á 18 mánaða fresti, en eldri konur á tveggja ára fresti. Sænsku læknarnir komust að þeirri niður- stöðu að konur á aldrinum 44–69 ára minnkuðu hættuna á að deyja af völdum brjóstakrabbameins um 44% með reglulegri brjóstaskoðun, í sam- anburði við konur sem greindar voru með sjúkdóminn áður en reglulegt eftirlit var hafið. Mestu munaði ef aðeins var litið til kvenna á aldrinum 40–49 ára; í þess- um aldursflokki lækkaði dánartíðnin um 48 af hundraði. Í Hollandi var regluleg brjósta- skoðun tekin upp snemma á tíunda áratugnum. Í hollenzku rannsókn- inni reyndist dánartíðni kvenna á aldrinum 55–74 ára, sem greindust með brjóstakrabbamein, vera um fimmtungi lægri árið 2001 en á ár- unum 1986–88. Ágæti brjóstaskoðunar staðfest París. AFP. BLÓÐKORN tedrykkjumanna bregðast um fimm sinnum hraðar við sýklum en blóðkorn þeirra sem drekka kaffi að staðaldri. Te styrkir þannig varnir líkamans gegn sýkingum, það hvetur ónæm- iskerfið til þess að ráðast á bakt- eríur, sýkla og sveppi, segir á net- útgáfu New York Times, en niðurstöður rannsóknarinnar birt- ust nýlega nýlega í tímaritinu Pro- ceedings of the National Academy of Sciences. Niðurstöðurnar eru skýr vís- bending um að fimm bollar af tei á dag efla varnir líkamans, segir, Dr. Jack F. Bukowski,sem stóð fyrir rannsókninni en hann starfar við læknaskólann í Harvard í Bost- on. Gagnrýndur telja að fleiri rann- sóknir þurfi til þess að staðfesta þessi tengsl en áður hafi komið fram rannóknir sem sýna að te geti hindrað myndun sjúkdóma. Dr. Bukowski og rannsókn- arhópur hans einangraði efnið L-theanine sem finnst í venjulegu svörtu tei. Í lifrinni breytist efnið í ethylamine, sem síðar veldur því að prótínefnið interferon myndast en það gegnir mikilvægu hlutverki í líkamanum til varnar sýkingum. Te styrkir varnir líkamans Morgunblaðið/Jim Smart
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.