Morgunblaðið - 26.04.2003, Page 59

Morgunblaðið - 26.04.2003, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 59 STJÖRNUSPÁ Frances Drake NAUT Afmælisbörn dagsins: Persóna þín hefur mikinn áhuga á félagsmálum og vinnur oft bak við tjöldin án þess að fá alltaf viðurkenn- ingu fyrir verk sín. Engu að síður hafa slík verk mikla þýðingu fyrir þig. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Persóna þín er uppfull af hug- myndum um hvernig hægt er að hagnast. Þú veltir upp gömlum hugmyndum og met- ur kosti þeirra og galla. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú hefur mikla þörf fyrir að ræða við annað fólk og tjá til- finningar þínar. Þú hefur mik- inn áhuga á lífinu í kringum þig um þessar mundir. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú hefur undirbúið áætlun sem þú veigrar þér við að ræða við aðra. Þú skalt halda þig við upphaflegu áætlunina og engin ástæða til þess að ræða þessar hugmyndir við aðra. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Persóna þín er rólegri eftir samræður við fjölskylduna. Stundum skiptir ekki máli um hvað er rætt heldur það að fjölskyldan sé samhent. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú ættir að gefa því meiri gaum hvernig þú verð tíma þínum og með hverjum. Það getur reynst nauðsynlegt að verja sig gegn ágangi ann- arra. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú hugsar mikið um tilgang lífsins þessa dagana. Gefðu þér tíma til að rækta sálarlíf þitt en gættu þess að forðast öfgar. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú ert uppfull/ur af spennandi hugmyndum en málið er að velja þær sem mögulegt er að framkvæma og síðan að finna samstarfsmenn til þess. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Samræður við vini og vinnu- félaga eru nauðsynlegar þessa stundina. Vertu viss um að þú sért nægilega markviss í samskiptum við aðra. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Brettu upp ermarnar og taktu til hendinni. Þú hefur orku til þess að láta til þín taka og fylgja verkefni til enda. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Samræður við vini, systkini eða fjölskyldu eru þér ákaf- lega mikilvægar. Ekki hræð- ast að ræða málin, einkum þau sem hafa valdið þér vand- ræðum. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Dagurinn hentar einstaklega vel til þess að hefja nýtt verk- efni í vinnu. Kynntu þér listir í lok dagsins og njóttu þín. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Nú skiptir máli að njóta tíma með vinum og ættingjum. Slíkum tíma er vel varið og kemur þér í gott skap. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. MANSÖNGUR TÍMARÍMU Oft eru kvæða efni rýr, ekki stundum parið. Eg á skrýtið ævintýr, í þó lítið varið. Margt er sér til gamans gert, geði þungu kasta, það er ekki einskis vert að eyða tíð án lasta. En vér getum ekki það, Adams tetur ræður, lasta fletur landi að, lostann meta bræður. Á að varast hlekkja hel, þó högunum við sé undið, má og maður vera vel, verði ei að honum fundið. Fyrst er ástin orðin köld, elsku minnka glóðir, en lifði enginn lífs á öld, sem lofuðu allar þjóðir. - - - Jón Sigurðsson Dalaskáld LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 60 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 26. apríl, er sextugur Henning Þorvaldsson, Hamrabyggð 14, Hafnarfirði. Eiginkona hans er Steinunn Alfreðs- dóttir. Af því tilefni bjóða þau ættingjum og vinum að gleðjast með sér á heimili sínu í dag milli kl. 16–19. JÖRUNDUR Þórðarson hafði tilfinningu fyrir því að hann mætti helst ekki spila út – allt myndi kosta slag. Hann var með spil vesturs í fyrsta leik Ís- landsmótsins: Austur gefur; allir á hættu. Norður ♠ DG107 ♥ DG85 ♦ K4 ♣K108 Vestur Austur ♠ K6 ♠ 832 ♥ K102 ♥ 76 ♦ ÁD93 ♦ 108762 ♣DG74 ♣965 Suður ♠ Á954 ♥ Á943 ♦ G5 ♣Á32 Jörundur spilar í sveit Félagsþjónustunnar og fé- lagi hans í þessum leik var sveitarforinginn Guð- laugur Sveinsson. Í and- stöðunni voru Ásmundur Pálsson og Guðm. P. Arn- arson í sveit Guðmundar Hermannssonar. Sagnir gengu: Vestur Norður Austur Suður Jörundur Ásmundur Guðl. Guðm. -- -- Pass 1 lauf Dobl Redobl Pass Pass 1 tígull Pass Pass 1 hjarta Pass 3 hjörtu Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Jörundur þóttist hepp- inn að sleppa út úr dobl- árásinni, en fljótlega blasti við honum annað verkefni þar sem síst minna var undir – að spila út gegn fjórum hjörtum. Jörundur fór yfir sviðið: Spaði kom ekki til greina. Tromp var frestun á vand- anum og tígull frá ÁD var ekki freistandi. Lauf virt- ist skásti kosturinn, þó svo að það væri upp í sagðan „lit“ suðurs. En það er oft dýrt að spila út drottningu frá DG og tómum hundum þegar vitað er að makker á lítil spil. „Illu er best aflokið,“ hugsaði Jörundur og lagði af stað með laufsjöuna – þriðja hæsta! Dálkahöfundur var í sæti suðurs og lét áttuna úr borði. Nían kom frá Guðlaugi og ásinn tók slaginn. Nú kom tígull á blindan, sem Jörundur tók strax og spilaði laufdrottn- ingu. Eftir þessa þróun hlaut vörnin að fá slag á hvern lit. Einn niður. Fjögur hjörtu eru auð- vitað léttunnin með lauf- drottningu út. Og það er hugsanlegt að vinna spilið ef vestur byrjar á tígulás og tígli. Þá svínar sagnhafi í hjarta (og fær hjarta til baka), tekur síðasta trompið og spilar spaðaás og spaða. Vestur lendir inni og þarf að hreyfa laufið. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. a3 Bb7 5. Rc3 d5 6. cxd5 Rxd5 7. Bd2 Rd7 8. Rxd5 Bxd5 9. Dc2 f5 10. e3 Bd6 11. Bc4 O-O 12. Bxd5 exd5 13. O-O a5 14. b4 a4 15. b5 De7 16. Hfb1 Rf6 17. Bb4 Re4 18. Dc6 De6 19. Ha2 Hae8 20. Hc2 f4 21. exf4 Hxf4 22. He1 Hef8 23. Bxd6 cxd6 24. He3 Df5 25. h3 g5 26. Db7 g4 27. Rh4 Dg5 28. hxg4 Hxf2 29. Hc7 Hf1+ 30. Kh2 Dxh4+ 31. Hh3 Staðan kom upp á danska meist- aramótinu sem er nýlokið í Horsens. Hinn ungi Davor Palo (2483) hafði svart gegn Steffen Ped- ersen (2443). 31...Dxh3+! og hvítur gafst upp enda mát bæði eftir 32. gxh3 H8f2# og 32. Kxh3 Hh1#. Aðalfundur Skáksambands Íslands hefst kl. 10.00 í dag, 26. apríl í húsakynnum Tafl- félags Reykjavíkur, Faxa- feni 12. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. MEÐ MORGUNKAFFINU Áttu til kort með óskum um góðan bata þar sem stendur „Ég hef fengið þetta bara miklu, miklu verra“?               Bridsfélag Dalvíkur og Ólafsfjarðar Mánudaginn 14. apríl lauk 2ja kvölda páskatvímenningi hjá félag- inu. Veitt voru vegleg páskaegg fyrir 3 efstu sætin og smá auka- verðlaun fyrir 7. sætið en skapast hefur hefð fyrir því hjá félaginu. Dalnettölvuþjónustu styrkti mótið en fyrirtækið hefur verið okkur inn- anhandar í tölvumálum uppá síð- kastið. Lokastaðan varð eftirfar- andi: Hákon Sigmundsson – Kristján Þorst. 224 Eva Magnúsd. – Sigríður Rögnvaldsd. 218 Ingvar P. Jóh. – Guðmundur Jónsson 200 28. apríl n.k. verður svo firma- keppni félagsins haldin í formi ein- mennings. Bridsdeild Barðstrendinga og Bridsfélag kvenna Nú er lokið Butlertvímenningi okkar. 20 pör spiluðu 95 spil. Röð efstu para: Hjálmar S. Pálsson – Árni M. Björnss. 102 Jóhann Stefánsson – Páll Jónsson 85 Jón V. Jónmundss. – Torfi Ásgeirsson 56 Jón St. Ingólfsson – Jens Jensson 41 Gísli Tryggvason – Heimir Tryggvason 26 Bestu skor hinn 14. apríl sl. Jóhann Stefánsson – Páll Jónsson 39 Hjálmar S. Pálsson – Árni M. Björnsson 38 Jón St. Ingólfsson – Jens Jensson 31 Kristófer Magnúss. – Guðlaugur Sveinss.26 Unnur Sveinsd. – Inga Lára Guðmundsd. 21 Mánudaginn 28. apríl verður spil- aður 1 kvölds tvímenningur með verðlaun fyrir bestu skor bæði í N/S og A/V. Skráning á spilastað Síðumúla 37 ef mætt er stundvís- lega kl. 19.30. Óvænt úrslit hjá Bridsfélagi Akureyrar Síðastliðinn þriðjudag var fyrsta kvöldið af þremur í Alfreðsmótinu, sem er Butlertvímenningur. Pörin eru síðan dregin saman í sveitir og meðaltalsskor paranna fundið til þess að ákvarða skor sveitarinnar. Efstu pör í Butlertvímenningn- um voru: Sveinbjörn Sigurðsson – Sunna Borg 31 Frímann Stefánsson – Björn Þorláksson 31 Kolbrún Guðveigsdóttir – Páll Þórsson 27 Reynir Helgason – Örlygur Örlygsson 26 Soffía Guðmundsd. – Ragnheiður Har. 25 Þegar búið var að reikna með- altal paranna, þá urðu sveitarúrslit þannig: Frímann Stefánsson/Björn Þorláksson – Soffía Guðmundsd./Ragnheiður Har. 28 Pétur Guðjónsson/Sveinn Pálsson – Sveinbjörn Sigurðsson/Sunna Borg 14 Reynir Helgason/Örlygur Örlygsson – Hermann Huijbens/Símon Gunanrsson 1 Alfreðsmótinu verður áfram haldið næstkomandi þriðjudag og hefst spilamennska stundvíslega kl. 19:30. Næst verður þó spilað í Hamri sunnudaginn 27. apríl og hefst spilamennskan þá að venju kl. 19:30. Þá verður spilaður eins kvölds tvímenningur og er ekki nauðsynlegt að menn mæti með makker, því að alltaf koma einhverj- ir stakir og þá eru búin til pör á staðnum. Bridsfélag Hafnarfjarðar Það virðist komið vor ef ekki sum- ar í spilara, því aðeins mættu 13 pör í páskatvímenning sem byrjaði á mánudaginn. Svona mæting er varla viðunandi en bestu skor fyrsta kvöldið náðu: Sigurður Sigurjónsson – Páll Hjaltason 202 Hulda Hjálmarsd. – Halldór Þórólfsson 192 Erla Sigurjónsdóttir – Sigfús Þórðarson 187 Njáll Sigurðsson – Trausti Harðarson 184 Meðalskor 168, skor Sigga og Páls er rúm 60%. Næst verður spilað mánudags- kvöldið 28. apríl. Íslandsmót í tvímenningi 2003 Undanúrslitin verða spiluð 1. - 2. maí nk. 1. maí hefst spilamennska kl. 11.00 en 2. maí er byrjað að spila kl. 17.00. Úrslitin verða síðan spiluð 3. og 4. maí. Í undanúrslitum eru spilaðar 3 lotur og kemst 31 par í úr- slitin. Sú breyting verður í ár að spilaður verður barómeter með Mitchell hreyfingum. Til að auðvelda skipulag mótsins eru spilarar beðnir að skrá sig í síð- asta lagi þriðjudaginn 29. apríl kl. 17.00. Núverandi Íslandsmeistarar eru Aðalsteinn Jörgensen og Sverrir Ármannsson. Skráning í s. 587 9360 eða www.bridge.is Opna Borgarfjarðarmótið Annað kvöldið af þremur í Opna Borgarfjarðarmótinu í tvímenningi var spilað á Mótel Venusi þriðjudag- inn 22. apríl. Borgnesingar eru þaul- sætnir á toppnum og má mikið ger- ast síðasta kvöldið til að þeim verði velt úr sessi. Hæstu skor á öðru kvöldi fengu eftirtalin pör: Jón Ágúst Guðm. – Kristján B. Snorras. 99 Sveinbjörn Eyjólfsson – Lárus Péturss. 83 Rúnar Ragnarsson – Unnsteinn Arason 49 Elín Þórisdóttir – Guðmundur Jónsson 38 Staða efstu para eftir tvö kvöld: Jón Ágúst Guðm. – Kristján B. Snorras. 162 Rúnar Ragnarsson – Unnsteinn Aras. 137 Sveinbjörn Eyjólfss. – Lárus Péturss. 115 Örn Einarsson – Kristján Axelsson 95 Bridsfélag Kópavogs Þá er lokið 4ra kvölda Butler tví- menningi og engin breyting varð á röð efstu para síðasta kvöldið. Lokastaðan: Erlendur Jónsson – Guðlaugur Sveinss. 169 Björn Halldórss. – Þórir Sigursteinss. 145 Gísli Tryggvason – Leifur Kristjánsson 97 Björn Jónsson – Þórður Jónsson 94 Hæstu skor: Árni Már Björnsson – Hjálmar Pálsson 39 Páll Valdimarss. – Steingrímur Péturss. 37 Gísli Tryggvason – Leifur Kristjánsson 32 Óskar Sigurðss. – Sigurður Steingrímss. 23 Næsta fimmtudag 1. maí verður ekki spilað, enda heilagur dagur amk. fyrir suma, en næstu tvo fimmtudaga þar á eftir verður tveggja kvölda sumartvímenningur. Um leið og við tilkynnum þetta, sendum við öllum bridsspilurum fjær og nær gleðilegar sumar- kveðju. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson DAGBÓK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.