Morgunblaðið - 26.04.2003, Side 63
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 63
METFJÖLDI útlendinga leikur í
norsku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu. Í liðunum 14, sem skipa
úrvalsdeildina í ár, verða erlendir
knattspyrnumenn 63 talsins, ein-
um fleiri en á leiktíðinni í fyrra.
Flestir útlendinganna eru frá
Svíþjóð en 17 sænskir knatt-
spyrnumenn skiptast á liðin fjór-
tán í deildinni. Íslendingar eru
næstfjölmennastir eða 12 talsins
og Finnar eru í þriðja sæti með 8
leikmenn.
Ekki eru allir Norðmenn sáttir
við þessi tíðindi og segja að ung-
um og efnilegum heimamönnum
blæði fyrir það að félögin semji
við leikmenn frá öðrum löndum,
ungu og efnilegu leikmönnunum
sé ýtt í burtu. Forráðamenn lið-
anna hafa hins vegar sagt á móti
að aðalástæða þess að þeir fái til
sín erlenda leikmenn sé sú að þeir
fái meiri gæði fyrir minni peninga.
Nú sjá menn hins vegar að
breyting geti orðið á því slæmur
fjárhagur margra liða í deildinni,
þar á meðal Stabæk, Vålerenga og
Bodö/Glimt, geri það að verkum
að félögin hafi ekki lengur efni á
að kaupa erlenda leikmenn og séu
þar af leiðandi farin að rækta sinn
eigin garð í miklu meira mæli en
áður.
JÖKULL Elísabetarson, bakvörð-
urinn ungi sem spilaði alla leiki KR á
Íslandsmótinu í knattspyrnu í fyrra,
verður ekki með gegn HB á morgun.
Jökull meiddist á ökkla í leik með
KR í Canela-bikarnum á Spáni fyrr í
þessum mánuði en verður væntan-
lega tilbúinn í slaginn þegar Íslands-
mótið hefst 18. maí.
ARNAR Jón Sigurgeirsson, sem
einnig var fastamaður í liði KR í
fyrra, hefur verið frá æfingum og
keppni frá því í janúar þegar hann
meiddist á hné. Arnar Jón er byrj-
aður að æfa á ný.
GUÐMUNDUR Benediktsson er
einnig kominn í gang á ný eftir að
hafa verið frá vegna meiðsla í allan
vetur. Hann verður þó ekki í leik-
mannahópi KR á morgun.
SIGURÐUR Örn Jónsson, fyrrum
landsliðsmaður, sem hefur verið frá
keppni vegna meiðsla síðan í júní
2001, æfir af krafti um þessar mund-
ir og ekki er útilokað að hann nái að
spila með KR í sumar.
ÞORMÓÐUR Egilsson, fyrirliði
KR-inga um árabil, hefur ekkert æft
með þeim í vetur og enn er óljóst
hvort hann spili með liðinu í sumar.
KR-ingar þrýstu á Þormóð um að
leika með gegn HB á morgun en af
því varð ekki.
ÞÓRHALLUR Hinriksson og Sig-
þór Júlíusson eru ókomnir í raðir
KR-inga fyrir sumarið. Þeir stunda
nám í Bandaríkjunum og eru vænt-
anlegir til landsins 10. maí.
ÁRNI Gautur Arason, landsliðs-
markvörður í knattspyrnu, verður
áfram á varamannabekk Rosenborg.
Þjálfari Rosenborg, Åge Hareide,
tilkynnti í gær að hann yrði með
óbreytt lið þegar þeir heimsækja
Teit Þórðarson og lærisveina hans í
Lyn í úrvalsdeildinni á morgun.
ÁRNI Gautur þótti sýna mark-
vörslu á heimsmælikvarða þegar
varalið Rosenborgar vann Skarp,
6:2, í norsku 2. deildinni á dögunum
en hlutskipti hans á næstunni verður
greinilega að spila í þeirri deild.
SVO kann að fara að Patrick
Vieira leiki ekkert meira með Arsen-
al það sem eftir er leiktíðar. Arsene
Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal,
hefur staðfest að hnémeiðsli Viera
séu erfiðari viðvangs en talið var í í
fyrstu. Menn halda enn í vonina að
Viera verði klár í síðasta leik deild-
arinnar, gegn Sunderland 11. maí.
GLENN Roeder, knattspyrnu-
stjóri West Ham, er ennþá á sjúkra-
húsi eftir að hann fékk aðkenningu
að hjartaáfalli um sl. helgi.
KEVIN Garnett skoraði 33 stig
þegar Minnesota vann óvæntan úti-
sigur á LA Lakers, 114:110, í fram-
lengdum leik í úrslitakeppni NBA-
deildarinnar í körfuknattleik í fyrri-
nótt. Minnesota er því komið yfir á
ný, 2:1, en fjóra sigra þarf til að fara
áfram. Kobe Bryant skoraði 30 stig
fyrir Lakers og Shaquille O’Neal 28.
FÓLKÚRSLITALEIKIR í bikar-keppni Blaksambandsins 2003
verða leiknir í dag í Austur-
bergi. Hið sigursæla kvennalið
Þróttar frá Neskaupstað leik-
ur við HK kl. 14 og kl. 16 eig-
ast við Stjarnan og HK í karla-
flokki. Þróttur Nes. og
Stjarnan geta unnið þrefalt í
ár, ef þau sigra í leikjum sín-
um. Liðin urðu deildar- og Ís-
landsmeistarar á dögunum.
Stjarnan fagnaði þá Íslands-
meistaratitili í fyrsta sinn en
Þróttur vann Íslandsmótið
fjórða árið í röð.
TONY Pulis, knattspyrnustjóri Ís-
lendingafélagsins Stoke City, hef-
ur varað leikmenn og stuðnings-
menn félagsins við því að fagna
áframhaldandi sæti í ensku 1.
deildinni of snemma. Stoke vann
báða leiki sína um páskana og
hefur aðeins beðið einn ósigur í
síðustu 10 leikjum sínum, og lið-
inu nægir eitt stig í síðustu tveim-
ur leikjunum til að gulltryggja
sæti sitt í deildinni. Einnig dugir
að Brighton nái ekki að vinna
báða sína leiki.
Stoke sækir Crystal Palace
heim í dag en Brighton fær Wat-
ford í heimsókn. Í lokaumferðinni
leikur Stoke við Reading á heima-
velli en Brighton spilar þá við
botnlið Grimsby á útivelli. Ívar
Ingimarsson og félagar í Brighton
eiga mjög góða möguleika á að
vinna báða leikina og það er því
geysilega mikilvægt fyrir Stoke
að ná stigi á Selhurst Park í
London í dag.
„Við erum nálægt takmarkinu
en höfum ekki náð því ennþá. Það
verður að vera algjörlega skothelt
að við séum öruggir áfram í deild-
inni áður en farið verður að huga
að einhverjum hátíðahöldum. En
ég er sannfærður um að við get-
um lokið verkinu gegn Crystal
Palace ef leikmennirnir verða ein-
beittir og staðráðnir í að ná hag-
stæðum úrslitum,“ sagði Pulis.
Brynjar Björn Gunnarsson
verður að óbreyttu í byrjunarliði
Stoke í dag en Bjarni Guðjónsson
og Pétur Marteinsson koma vænt-
anlega ekki við sögu, nema þá
sem varamenn. Ade Akinbiyi, sem
er í láni frá Crystal Palace, verð-
ur líklega ekki með vegna meiðsla
og þá eru fyrirliðinn Peter
Handyside og Paul Warhurst tæp-
ir af sömu sökum.
Pulis vill ekki fagna of snemma
Beckham er sagður hafa lagt hartað umboðsmanni sínum að
hjálpa sér við að komast frá Man-
chester United eins fljótt og mögu-
legt sé en hann hefur leikið þar allan
sinn feril. Hann verður 28 ára næsta
föstudag og hefur spilað með aðalliði
United frá 19 ára aldri. Stjórnar-
menn United segja aftur á móti að
fundur Beckhams og umboðsmanns-
ins hafi snúist um auglýsingasamn-
ing hans við Pepsi og segja ekkert
hæft í sögum um brottför hans.
En Beckham hefur verið sterk-
lega orðaður við Real Madrid und-
anfarnar vikur og í gær bárust óstað-
festar fréttir úr þeim herbúðum að
félagið væri þegar búið að ná sam-
komulagi við hann. Talið er að
spænska félagið vilji bæta honum í
stjörnuhóp sinn en þar hefur mark-
miðið verið að kaupa einn heims-
frægan leikmann á ári.
Ósættið við Ferguson
Þeim Beckham og Alex Ferguson,
knattspyrnustjóra Manchester
United, hefur ekki komið of vel sam-
an undanfarin misseri. Ósætti þeirra
komst í hámæli á ný fyrr á þessu ári
þegar sparkið fræga hjá Ferguson
var forsíðuefni allra fjölmiðla en í
reiðikasti í búningsklefa liðsins
sparkaði hann í fótboltaskó sem
flaug beint í andlit Beckhams og
þurfti að sauma nokkur spor í augna-
brún stjörnunnar. Beckham kom
ekkert við sögu í leik Manchester
United gegn Arsenal á dögunum, sat
á varamannabekknum allan tímann,
og var þar áfram í stórleiknum gegn
Real Madrid. Eftir þann leik hljóp
Beckham um og veifaði til áhorfenda
á Old Trafford og vilja nú margir
túlka það sem merki um að hann ætli
að kveðja þá fyrir fullt og allt í vor.
Beckham er hæst launaði knatt-
spyrnumaður Englands fyrr og síðar
en mánaðarlaun hans hjá Manchest-
er United nema nú um 50 milljónum
króna. Að auki þénar hann afar vel á
ýmiss konar auglýsingum og ímynd
sinni. En þrátt fyrir þessar launa-
greiðslur til eins leikmanns er talið
að Manchester United muni tapa
stórfé ef Beckham yfirgefur félagið.
Beckham er stærsta trompið í mikilli
markaðsvæðingu Manchester Unit-
ed á undanförnum árum og áætlað er
að hann myndi færa félaginu 2,4
milljarða króna í tekjur á á ári,
næstu fimm árin, ef hann yrði um
kyrrt á Old Trafford. Þar munar
mikið um sívaxandi sölu á alls kyns
varningi tengdum Beckham og fé-
laginu í Asíu. Það er einmitt Asíu-
markaðurinn sem er talinn heilla for-
ráðamenn Real Madrid og þeir sjá
stóraukin sóknarfæri þar með því að
fá David Beckham í sínar raðir.
Mótmælir ekki fréttunum
Það hefur vakið athygli að Beck-
ham hefur sjálfur lítið gert til þess að
slá á fréttaflutning af meintri brott-
för sinni frá Manchester United.
Þvert á móti er talið að með langri
dvöl sinni á vellinum eftir að leiknum
við Real Madrid lauk hafi hann vís-
vitandi verið að vekja athygli fjöl-
miðla á sér og stöðu sinni, rétt eins
og þegar hann hann fékk skóinn í
andlitið í vetur og gerði ekkert til að
leyna því. Alex Ferguson hefur þeg-
ar lýst því yfir að hann muni aldrei
hafa frumkvæði að því að selja Beck-
ham frá félaginu. Nú er boltinn hjá
Beckham sjálfum.
Tólf Íslendingar með
norskum liðum
Þrefalt hjá
Þrótti N. og
Stjörnunni?
Reuters
David Beckham, fyrirliði Englands, er vinsælasti leikmaðurinn í herbúðum Manchester United.
Vill Beckham komast
burt frá Manchester?
ENSKIR fjölmiðlar fullyrða að David Beckham, fyrirliði enska lands-
liðsins í knattspyrnu, vilji komast í burtu frá Manchester United.
Hann er sagður hafa átt langan neyðarfund með umboðsmanni sín-
um, ásamt Victoriu eiginkonu sinni, strax eftir leik United og Real
Madrid í meistaradeild Evrópu á miðvikudagskvöldið. Þar sat Beck-
ham á varamannabekk liðsins en kom síðan inn á og tryggði United
sigur með tveimur mörkum, 4:3.