Morgunblaðið - 01.05.2003, Side 24
SUÐURNES
24 FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT innritunarkerfi hefur verið
tekið í notkun í flugstöðinni á Kefla-
víkurflugvelli. Mun það auðvelda
innritun og í mörgum tilvikum flýta
henni. Þá skapast möguleikar til að
taka upp sjálfsafsgreiðslu, rafræna
farseðla og farseðlalausa innritun.
Icelandair, dótturfyrirtæki Flug-
leiða, keypti aðgang að Palco-innrit-
unarkerfinu sem þróað hefur verið af
dótturfélagi SAS-flugfélagsins og er
notað af því og fjölda annarra flug-
félaga um allan heim. Kerfið var tek-
ið í notkun í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar á Keflavíkurflugvelli um
helgina um leið og nýr tölvubúnaður
í innritunarborðunum sem flugstöð-
in á og rekur. Hrafn Þorgeirsson,
forstöðumaður stöðvarrekstrar hjá
Icelandair ehf., segir að í lok maí
muni kerfið verða tekið í notkun við
innritun í Boston og Baltimore í
Bandaríkjunum og næsta haust á
fleiri viðkomustöðum félagsins.
Aðgangur að fleiri borðum
Flugþjónustan Keflavíkurflugvelli
(IGS), sem einnig er dótturfélag
Flugleiða, annast alla þjónustu fyrir
Icelandair á Keflavíkurflugvelli og
einnig innritun fyrir Icelandexpress
og fleiri félög. Gunnar Olsen, fram-
kvæmdastjóri IGS, segir að Astral
innritunarkerfið sem Flugleiðir hafi
notað undanfarin 10–11 ár hafi geng-
ið ágætlega en svaraði ekki lengur
kröfum tímans. Eftir skoðun á
nokkrum slíkum kerfum hafi Palco
kerfið frá SAS orðið fyrir valinu.
„Það er líklega besta innritunarkerf-
ið sem völ er á í heiminum í dag, það
er mikið þróað og notendavænt,“
segir Gunnar.
Kerfið er með tæknilausn sem
gerir tölvubúnaðinum kleift að lesa
sjálfvirkt af segulrönd farseðla við
innritun en Gunnar segir að mikill
meirihluti farseðlanna sé þannig
útbúinn. Allar upplýsingarnar koma
upp á skjá hjá starfsmanninum. Far-
þeginn fær farseðilinn til baka og
hann er þar með orðinn að brottfar-
arspjaldi. Seðlinum er aftur rennt í
gegn um kortalesara þegar gengið
er út í flugvélina og upplýsingar um
fjölda farþega og farangur safnast
upp með sama hætti þar. Kjartan
Már Kjartansson, starfsmanna- og
markaðsstjóri IGS, segir að þetta
spari mikinn innslátt og auki öryggi í
afgreiðslu farþega.
Nýtt tölvukerfi fyrir innritunar-
borðin gerir það að verkum að IGS
hefur nú aðgang að öllum 25 borð-
unum í innritunarsalnum á álagstím-
um, en hefur aðeins haft aðgang að
19 fram til þessa.
Gunnar og Kjartan Már segja að
farþegar verði lítið varir við þessa
breytingu. Innritun eigi að taka
styttri tíma á hverju borði auk þess
sem hægt sé að afgreiða farþega á
fleiri borðum. Á móti komi að færi-
böndin fyrir töskurnar anni ekki svo
hraðri afgreiðslu á mestu annatím-
um svo ekki sé hægt að fullyrða að
biðraðirnar styttist á morgnana.
Gunnar bætir því við að aðstaðan í
innritunarsalnum sé óviðunandi og
hann þoli alls ekki það álag sem sé á
vissum tímum dagsins. Nauðsynlegt
sé að stækka salinn og jafnvel skipta
um færibandabúnað.
Farmiðalaus innritun
Hrafn Þorgeirsson segir að nýja
innritunarkerfið skapi margvíslega
möguleika á frekari tæknivæðingu í
framtíðinni. Þannig segir hann fyr-
irhugað að koma upp sjálfsaf-
greiðslustöðvum til innritunar á
nokkrum stöðum í Reykjavík og í
flugstöðinni. Býst hann við að þær
verði settar upp í haust. Farþegarnir
munu þá renna farseðlum sínum í
gegnum vélina og fá til baka sem
brottfararspjald, auk töskumiða.
Töskunum þarf viðkomandi síðan að
skila á ákveðinn stað í flugstöðinni.
Síðar geta skapast möguleikar á
að bjóða farþegum að innrita sig á
Netinu og jafnvel í gegn um GSM-
síma. Hrafn segir að í framtíðinni
verði unnt að bjóða upp á farmiða-
lausa innritun og rafræna farseðla.
Auðveldar og flýtir
innritun farþega
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Kristín Bauer afgreiðir farþega með nýja innritunarkerfinu í flugstöðinni.
Keflavíkurflugvöllur
STARFSMENN Héðins hf. eru að setja saman stálbitana í hús mót-
töku-, flokkunar- og sorpbrennslustöðvarinnar Kölku í Helguvík.
Húsið verður reist á steypta grunninum sem sést í baksýn.
Byggingin er um 1.700 fermetra stálgrindarhús á iðnaðarsvæðinu
við Helguvík. Í öðrum enda hússins verður komið fyrir sorp-
brennsluofninum.
Framkvæmdum miðar samkvæmt áætlun en áætlað er að nýja stöð-
in, sem leysir af hólmi gömlu sorpbrennslustöðina við Hafnveg, verði
tekin í notkun fyrir lok ársins.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Bitar úr stáli
skrúfaðir saman
Helguvík
MIKIÐ var um dýrðir hjá körfu-
knattleiksfólki í Grindavík síðasta
vetrardag. Uppskeruhátíð hjá
körfuknattleiksdeildinni var haldin
í Festi með pomp og prakt. Sólveig
Helga Gunnlaugsdóttir, Páll Axel
Vilbergsson og Helgi Jónas Guð-
finnsson voru kjörin bestu leik-
menn tímabilsins.
Grindvíkingar voru nokkuð sátt-
ir eftir veturinn enda árangurinn
góður en ljóst var á máli þjálfara
meistaraflokkanna að markið verð-
ur sett hærra á næsta ári og það
þýðir einfaldlega að fjöldinn allur
af bikurum verður í húsi á næsta
ári. Bæjarstjórinn í Grindavík af-
henti deildinni viðurkenningu fyrir
deildarmeistaratitilinn hjá körl-
unum, ávísun að upphæð 300.000
kr.
Besti leikmaður hjá konunum var
kjörin Sólveig Helga Gunnlaugs-
dóttir. Mestu framfarir þótti Erna
Rún Magnúsdóttir sýna og draum-
ur þjálfarans var titill sem Söndru
Dögg Guðlaugsdóttur og Sigríði
Önnu Ólafsdóttur hlotnuðust. Hjá
körlunum var það Ármann Vil-
bergsson sem var verðlaunaður
fyrir mestu framfarir. Guðmundur
Bragason var kjörinn besti leik-
maður úrslitakeppninnar. Ekki
tókst að gera upp á milli þeirra Páls
Axels Vilbergssonar og Helga Jón-
asar Guðfinnssonar í kjörinu um
besta leikmanninn og því deildu
þeir nafnbótinni.
Sólveig,
Páll Axel og
Helgi Jónas
valin best
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Þau fengu helstu viðurkenningar á lokahófi körfuknattleiksmanna í Grindavík og voru ánægð með árangurinn.
Grindavík
Fjölmenni á uppskeruhátíð hjá körfuboltafólki í Ungmennafélagi Grindavíkur
EKKI tókst að gera upp á milli
keppenda í trúbadorakeppni sem
fram fór á írska skemmtistaðnum
Paddýs í Keflavík í tengslum við Frí-
stundahelgi Reykjanesbæjar. Skiptu
keppendurnir því verðlaununum á
milli sín.
Þrír voru skráðir þegar keppni
hófst, Hlynur sterki, Rúnar, Siggi og
Halli Valli. Fleiri bættust í hópinn
þegar leið á kvöldið. Aðsókn var góð.
Dómnefnd átti erfitt með að skera
úr um sigurvegara þar sem hver
þátttakandi var talinn sterkur á sínu
sviði og var það samhljóða niður-
staða með samþyki þátttakenda að
þeir myndu skipta með sér verðlaun-
um. Sigurlaunin voru fjórir stúdíó-
tímar í hljóðveri Geimsteins. Hyggj-
ast þeir hljóðrita saman, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu.
Skiptu með sér
verðlaununum
Reykjanesbær
„ÞAÐ er eins og maður sé að
stíga út úr moldarkofanum og
inn í framtíðina,“ segir Kristín
Bauer, afgreiðslustjóri hjá
IGS í Flugstöðinni á Keflavík-
urflugvelli.
Hún segir að afar vel hafi
gengið að innleiða nýja kerfið.
Starfsfólkið hafi verið með
hnút í maganum á laugardags-
morgun en allt hafi gengið
mjög vel enda hafi verið búið
að þjálfa starfsfólkið vel.
Hún segir að starfsfólkið sé
mun fljótara að vinna í nýja
kerfinu en því gamla. Stund-
um gangi þetta svo vel að fólk-
ið fái á tilfinninguna að það
hafi gleymt einhverju atriði í
afgreiðslunni, en það sýni að-
eins að kerfið virki eins og til
er ætlast.
Eins og
eitthvað
hafi gleymst
Flugþjónustan IGS hefur tekið í notkun nýtt afgreiðslukerfi
Félagar í Ættfræðifélaginu hittast
á Bókasafni Reykjanesbæjar mánu-
dagskvöldið 5. maí n.k. kl. 20. Þetta
verður síðasti fundur vetrarins. Allt
áhugafólk um ættfræði er velkomið,
segir í fréttatilkynningu frá Bóka-
safninu.
Á NÆSTUNNI