Morgunblaðið - 18.05.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 133. TBL. 91. ÁRG. SUNNUDAGUR 18. MAÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Framsækinn
og forn í senn
Jón Már Héðinsson verður
æðstráðandi í MA 18
Punkturinn yfir i-ið í
matargerðinni B6
Sinnepið
frá Dijon
Híbýli helgra
manna
Rýnt í minjar munkanna á
Skriðuklaustri 20
AÐ MINNSTA kosti fjörutíu
manns létu lífið í röð sjálfsmorðs-
sprengjuárása hryðjuverkamanna í
miðborg Casablanca á föstudags-
kvöld, að sögn marokkósks stjórn-
arerindreka. Tugir til viðbótar slös-
uðust.
Erindrekinn, sem ekki vildi láta
nafns síns getið, sagði að mjög lík-
legt væri að útlendingar væru á
meðal fórnarlambanna. Hann sagði
ennfremur rannsóknina fram að
þessu hafa leitt í ljós að allar
sprengingarnar fimm hefðu verið
sjálfsmorðssprengjuárásir; ekki
hefði verið um bílsprengjur að
ræða.
Marokkósk stjórnvöld bendluðu
al-Qaeda-samtök Osama bin Lad-
ens ekki beint við hryðjuverkin, en
árásirnar staðfestu alþjóðlegar við-
varanir um yfirvofandi árásir af
þessu tagi, þar sem hryðjuverka-
menn láta til skarar skríða gegn lítt
vörðum skotmörkum.
Að minnsta kosti 60 manns voru
sagðir hafa særzt í árásunum, sem
voru gerðar nær samtímis upp úr
kl. 21 að staðartíma á föstudags-
kvöld. Sprengjurnar sprungu við
samkomuhús og gamlan grafreit
gyðinga, spænskt veitingahús, hót-
el og nærri belgísku ræðismanns-
skrifstofunni.
Árásirnar ollu algjöru uppnámi í
Casablanca, miðstöð efnahagslífs-
ins í Marokkó. Lögregla og sjúkra-
liðar þustu að til að liðsinna særð-
um og slösuðum. Illa leikin lík
hinna látnu lágu eins og hráviði um
vettvang tilræðanna.
„Þetta voru hryðjuverkamenn
sem sprengdu sig í loft upp,“ sagði
Mustapha Sahel, innanríkisráð-
herra Marokkós; „þetta eru vel
þekkt vinnubrögð alþjóðlegra
hryðjuverkamanna.“ Sahel nefndi
al-Qaeda ekki á nafn, en í borgum
víða um heim, einkum Kenýa og
víðar í Austur-Afríku og Malasíu og
víðar í Suður-Asíu, hafði verið gefin
út viðvörun um yfirvofandi árásir af
hálfu hryðjuverkasamtakanna.
Enginn hefur lýst
ábyrgð á hendur sér
Marokkóska fréttastofan MAP
sagði frá því að 10 hinna látnu hefðu
verið árásarmenn, sem borið hefðu
sprengiefni utan á sér. Að sögn
MAP voru þrír menn handteknir,
allir Marokkóbúar, grunaðir um að
tengjast tilræðunum.
Enginn hafði lýst hryðjuverkun-
um á hendur sér í gær. Að sögn
talsmanns bandarísku leyniþjón-
ustunnar í Washington lágu heldur
engar skýrar vísbendingar fyrir um
það, hverjir hefðu staðið að baki
ódæðisverkunum.
Eftir því sem greint var frá í
sádi-arabískum fjölmiðlum í gær
hefur enginn enn verið handtekinn
vegna bílsprengjutilræðanna í
Riyadh, höfuðborg Sádi-Arabíu,
sem urðu 34 manns að bana aðfara-
nótt þriðjudags. Aðferðunum við
árásirnar í Riyadh og Casablanca
svipar um margt saman.
Sjálfsmorðssprengju-
árásir bana yfir 40 manns
Skotmörkin sam-
komustaðir gyð-
inga og vestræns
fólks í Casablanca
Reuters
Fulltrúar marokkóskra yfirvalda á vettvangi einnar sprengjuárásarinnar í Casablanca, Hótel Safír, í gær.
Casablanca. AP, AFP.
TVEGGJA hæða langferðabíll með
þýzka ferðamenn innanborðs valt út
af hraðbraut í mikilli rigningu í
SA-Frakklandi í gærmorgun. Af
þeim 74 sem um borð voru létu að
minnsta kosti 28 lífið, eftir því sem
lögregla greindi frá. 46 manns slös-
uðust, sumir alvarlega. Ökumaður
rútunnar var meðal hinna látnu.
Slysið varð við bæinn Dardilly,
norður af Lyon, um kl. 5 að morgni,
en þá virðist bílstjórinn hafa misst
stjórn á rútunni. Vitni sagði að sér
hefði sýnzt rútan aka of hratt. För
ferðalanganna, sem voru á öllum
aldri frá unglingum til eftirlauna-
þega, var heitið í frí til Spánar. Sum-
ir höfðu unnið ferðina í happdrætti.
Reuters
Frá vettvangi slyssins við Dardilly, norður af Lyon í SA-Frakklandi.
Mannskætt rútu-
slys í Frakklandi
Lyon. AP.ÞRJÁTÍU starfsmenn þjónustuvers Sím-
ans í Ármúla eru við tölvurnar allan sólar-
hringinn og aðstoða fólk sem spilar tölvu-
leikinn EVE Online.
Engu skiptir hvort
beiðni berst á nýársdag
eða jólanótt, hjálpin er
alltaf nærri.
Ýmsar spurningar
vakna hjá leikmönnum
þegar þeir fara að
reyna sig í þessum nýja
hlutverkaleik sem ger-
ist í geimnum í fjar-
lægri framtíð. Geta þeir reitt sig á svör um
hæl frá leikjameisturum Símans í deild sem
nefnist Þjónusta við CCP (Crowd Control
Products) sem er íslenskt fyrirtæki er
hannaði leikinn. Auk þess að þjónusta leik-
menn fylgjast þeir með gangi mála.
Leikjameistararnir þjónusta leikmenn
jafnt austan hafs sem vestan. Er tekið við
hjálparbeiðnum rafrænt. Að sögn deildar-
stjóra Þjónustu við CCP hafa leikmenn m.a.
lent í því að villast inn í hættuleg loftsteina-
belti og senda hjálparbeiðnir er gamanið fer
að kárna.
Þrjátíu
manns vakta
tölvuleik
Fá hjálparbeiðnir/6
„ÉG var að koma niður og er enn ekki bú-
in að átta mig á þessu, ég er svo þreytt og
svöng,“ sagði Anna Svavarsdóttir fjall-
göngukona hlæjandi,
aðspurð í gær hvernig
væri að verða fyrst ís-
lenskra kvenna til að
klífa tind yfir 8.000
metra hæð. Tindurinn
sem hún kleif er í Hima-
layafjöllunum í Tíbet og
nefnist Cho Oyu. „Þetta
gekk vel þegar allt fór
saman, heilsa og veður.
Heilsan er mjög góð, ég er auðvitað í skít-
ugum fötum en líður ágætlega.“
Anna segir að það hafi verið vindasamt
síðasta áfangann. „Við vorum svolítið
hrædd við að fara upp vegna vinds. En lét-
um okkur hafa það. Ég er svo mikil frekja!
Ég sagði við félaga mína að ef okkur litist
ekki á þetta myndum við bara snúa við,
sem ég hefði áreiðanlega samt ekki gert!“
Anna var stödd í aðalbækistöðvunum
fyrir neðan fjallið í gær þegar Morgun-
blaðið ræddi við hana. Hún sagðist svo
þreytt að hún væri að hugsa um að fá far í
bíl á næsta áfangastað. „Það er nóg komið
af göngu í bili,“ sagði hún og hló. En hlé á
fjallgöngu Önnu verður ekki langt því á
næstu dögum tekst hún á við enn einn
tindinn. Sá heitir Sisha Pangma. „Hann er
örlítið lægri en hann hefur enginn Íslend-
ingur klifið. Fyrst ég er búin að leggja á
mig mánuð af aðlögun ætla ég að kíkja á
hann.“
Anna Svavarsdóttir heldur
á næsta tind í Tíbet
Þreytt og
svöng en
heilsugóð
♦ ♦ ♦