Morgunblaðið - 24.05.2003, Síða 23
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2003 23
STARFSFÓLK í ferðaþjónustu á
Suðurnesjum er um þessar mundir
að kynna sér það sem Suðurnesin
hafa upp á að bjóða fyrir ferða-
menn. Námskeiðið er á vegum
Miðstöðvar símenntunar á Suð-
urnesjum (MSS) og fékk hún styrk
frá Starfsmenntasjóði til að
standa straum af kostnaði við að
halda námskeiðið.
Námskeiðið stendur yfir í fjóra
daga, þar af þrjá í maí og júní og
svo verður einn dagur í haust og
koma margir leiðsögumenn að
því. Á námskeiðinu er meðal ann-
ars starfsfólks Bókasafns Reykja-
nesbæjar en það mun sjá um
rekstur Upplýsingamiðstöðvar
Reykjaness í sumar.
Að sögn Guðjónínu Sæmunds-
dóttur, ferðamálafræðings og
starfsmanns MSS, er markmiðið
með námskeiðinu að efla vitund
starfsfólks í ferðaþjónustu á Suð-
urnesjum um þá sérstöku mögu-
leika sem Reykjanesskaginn hefur
upp á að bjóða fyrir ferðamenn og
náttúruunnendur. „Því meðvit-
aðra sem starfsfólk í ferðaþjón-
ustu er um þessa möguleika því
meiri hagur fyrir svæðið. Gisti-
nóttum fjölgar og dvalartími
gesta á svæðinu eykst sem leiðir
af sér aukin atvinnutækifæri í
ferðaþjónustu á svæðinu,“ sagði
Guðjónína Sæmundsdóttir í sam-
tali við blaðamann Morgunblaðs-
ins.
Námskeiðið hófst sl. þriðjudag,
þar sem Reykjanesskaginn var
skannaður, Grindavíkurbær heim-
sóttur og næsta nágrenni, svo sem
Bláa lónið og á leið til Reykjanes-
bæjar aftur, þar sem ferðin hófst,
var komið við á körtubrautinni í
Njarðvík og torfbænum Stekkjar-
koti í Innri-Njarðvík en eins og
fram hefur komið áður er áform-
að að byggja naust víkingaskips-
ins Íslendings í nágrenni hans og
hugsanlega einnig víkingaþorp af
einhverju tagi.
Þátttakendur eru vel á þriðja
tug og hún leyndi sér ekki aðdáun
þeirra á þeim fjölmörgu nátt-
úruperlum sem svæðið býr yfir.
Það kom líka fram í máli Helgu
Ingimundardóttur, leiðsögumanns
og framkvæmdastjóra Ferðaþjón-
ustu Suðurnesja sem gerir út
hvalaskoðunarskipið Moby Dick,
að Suðurnesjamenn þyrftu að vera
stoltari af svæðinu. „Við virðumst
alltaf vera með einhverja minni-
máttarkennd og leggjum frekar á
okkur að keyra út um landið til að
skoða fegurð þess. Sannleikurinn
er hins vegar sá að hér höfum við
þetta allt,“ sagði Helga Ingimund-
ardóttir og vill meina að ástæðan
sé m.a. sú að á svæðinu búi mikið
af aðkomufólki.
Starfsfólk í ferðaþjónustu á námskeiði hjá Miðstöð símenntunar
Þurfum
að vera
stoltari af
svæðinu
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Ein af perlum Reykjanesskagans er Brimketill. Mikilfenglegastur þykir hann í hvassviðri þegar brimið splundrast
upp úr honum en hann var fallegur í logninu á þriðjudag. Umhverfið er þó hrikalegt og ber að varast.
Reykjanes
AÐALFUNDUR Félags myndlist-
armanna í Reykjanesbæ verður
haldinn þriðjudaginn 27. maí nk. kl.
20 í Svarta pakkhúsinu, Hafnargötu
2 í Keflavík.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa
verður rætt um sumarstarfið fram-
undan, segir í fréttatilkynningu frá
félaginu.
Myndlistar-
menn funda
Reykjanesbær
UNNIÐ er að miklu hreinsunarátaki
í Grindavík þessa dagana. Bærinn að-
stoðar fólk og fyrirtæki við að losa sig
við ruslið.
Hreinsunarátakið stendur fram á
sunnudag. Þá daga geta íbúarnir sett
rusl út að götum og á mánudag kemur
vörubíll á vegum bæjarins og fjarlæg-
ir það. Garðaúrgang og jarðefni getur
fólk farið með í grjótnám vestan við
bæinn.
Átakið er unnið í samstarfi við
Hringrás hf. Fyrirtækin geta losað
sig við járnarusl á ákveðinn stað og
þar eru tæki frá Hringsrás sem
klippa járnið niður. Ólafur Örn Ólafs-
son bæjarstjóri segir að töluverð
vakning hafi orðið meðal fólks og fyr-
irtækja og ótrúlega mikið rusl falli til.
Hann nefnir sem dæmi að menn
sem eru með búskap hafi gengið í það
að hreinsa land sitt og alla fjöruna.
Tekið gamlan rekavið og plast og það
hafi fyllt um 30 gáma sem bærinn hafi
síðan séð um að fjarlægja.
Drasl úr einni
fjöru í 30 ker
Grindavík
♦ ♦ ♦
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
20
99
9
0
5/
20
03
ÚRSLITIN RÁÐAST Í DAG – Í BEINNI ÚTSENDINGU Á RÁS2
Þá munu annars vegar sigurvegari keppninnar og hins vegar heppinn kaupandi Júróbíls hljóta í vinning betri
notaða bifreið til ókeypis afnota í heilt ár! Þú átt enn möguleika á að vinna. Ef þú kaupir Júróbíl fyrir kl. 14 í dag
kemst þú í Júróbílapottinn sem dregið verður úr í beinni útsendingu á Rás2 undir stjórn Júróvisjonsnillingsins Páls
Óskars Hjálmtýssonar. Eyddu ekki tímanum í vitleysu, komdu strax á Nýbýlaveginn - þar færðu betri notaðan
Júróbíl á lægra verði og átt auk þess möguleika á frábærum vinningi. www.toyota.is
Kauptu Júróbíl
fyrir kl. 14 í dag
þú gætir unnið bíl til ókeypis afnota í heilt ár!