Morgunblaðið - 28.05.2003, Blaðsíða 48
Eftir að hafa upplifað
versta dag lífs síns
fær sjónvarps-
fréttamaðurinn
Bruce Nolan (Jim
Carrey) sérstaka
krafta í Almátt-
ugum Bruce.
GRÍNMYNDIN Almáttugur Bruce
(Bruce Almighty) náði að velta
Matrix endurhlöðnu úr toppsæti
bandaríska bíólistans um helgina.
Myndin er ný á lista og er þetta
næststærsta opnunarhelgi kvik-
myndar um þessa löngu helgi en al-
mennur frídagur var í Bandaríkjun-
um á mánudag vegna minningardags
(Memorial Day). Aðeins Týndi heim-
urinn: Júragarðurinn (The Lost
Word: Jurassic Park) hefur fengið
fleiri áhorfendur þessa helgi en hún
var frumsýnd árið 1997, að því er
fram kemur í Screen Daily.
Í myndinni leikur Jim Carrey
gamalreyndan fréttamann, sem
verður almáttugur í einn dag.
Jennifer Aniston og Morgan
Freeman fara með önnur
helstu hlutverk í þessari mynd Tom
Shadyac.
Stórmyndin Matrix endurhlaðið
þurfti því að sætta sig við annað sæt-
ið sína aðra viku á lista. Myndin hal-
aði inn meira en 200 milljónir dala,
eða 14.400 milljónir króna, á ellefu
dögum, en aðeins ein mynd hefur
náð þessari fjárhæð inn á styttri
tíma. Er það Kóngullóarmaðurinn
(Spider-Man), sem náði 200 milljón-
unum á níu dögum í fyrra. Aðsóknin
á Matrix endurhlaðið var þó 60%
minni en frumsýningarhelgina.
Aðeins ein önnur ný mynd komst
inná topp tíu og er það Tengdafólkið
(The In-Laws), sem fór beint í ní-
unda sætið. Michael Douglas og Al-
bert Brooks leika þar tilvonandi
tengdapabba, sem eru mjög ólíkir en
börn þeirra hyggjast ganga í hjóna-
band. Myndin er í leikstjórn Andrew
Fleming og er byggð á samnefndri
mynd eftir Arthur Hiller frá árinu
1979 og hefur ekki fengið góða
dóma.
Fyrsti smellur Eddies
Murphys í langan tíma, Dag-
pabbinn (Daddy Day Care),
nýtur enn vinsælda og er í
þriðja sæti.
X2, framhaldsmyndin um stökk-
breyttu X-mennina, lækkaði sig um
eitt sæti og er í því fjórða. Myndin
hefur hlotið góða dóma og þykir jafn-
vel betri heldur en fyrsta myndin.
Hún nálgast 200 milljóna dala mark-
ið en hefur sem stendur náð að þéna
192 milljónir, eða tæpa 14 milljarða
króna, fyrir Twentieth Century Fox.
!
!! "
## $
" %
&'()
)*('
+&(,
+-(+
.(+
*(+
)(,
-(,
('
()
&'()
,.(*
/-(+
+.(,
.(+
+)(/
-/(-
',(,
).(
+-+(&
Almáttugur Bruce
ræður við Matrix
FÓLK Í FRÉTTUM
48 MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Vegna fjölda áskorana verður aukasýning á hinni
geysivinsælu afmælissýningu Halla og Ladda
Lau. 31. maí kl. 20
Lengi lifir í gömlum bræðrum!
Miðasala opin frá kl. 15-18. Símsvari allan sólarhringinn
loftkastalinn@simnet.is
TVÖ HÚS eftir Lorca
fim. 29. maí kl. 20
fös. 30. maí kl. 20
sun. 1. júní kl. 20
fim. 5. júní kl. 20
fös. 6. júní kl. 20 Síðasta sýning
AÐEINS ÞESSAR SÝNINGAR
552 1971 - nemendaleikhus@lhi.is
www.sellofon.is
mið 28. maí, LOKASÝNING Í NASA Í VOR, örfá sæti
lau 31. maí, ZÜRICH í SVISS; frumsýning
fim 5. júní kl. 21, SJALLINN AKUREYRI
lau 7. júní kl. 21, Félagsheimilið Blöndósi
sun 15, júní kl. 21, Hótel Borgarnes
Miðasala á Akureyri fer fram í Pennanum
Eymundsson Glerártorg.
Stóra svið
Nýja svið
Þriðja hæðin
Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga.
Fax 568 0383 - midasala@borgarleikhus.is
Miðasala 568 8000
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Lau 31/5 kl. 20.
ALLRA SÍÐASTA SÝNING
Litla svið
RÓMEÓ OG JÚLÍA
e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT
Mi 4/6 kl 20,
Fi 5/6 kl 20,
Fö 6/6 kl 20
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR
GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt
Sunnudaginn 1/6 kl 20 - AUKASÝNING
15:15 TÓNLEIKAR - POULENC HÓPURINN
Lau 31/5 kl 15:15 Ferðalög: Bergmál Finnlands
BÍBÍ OG BLAKAN - ÓPERUÞYKKNI
eftir Ármann Guðmundsson, Sævar
Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason
í samvinnu við HUGLEIK
Lau 31/5 kl 20:00 - Lokasýning
SUMARÆVINTÝRI e. Shakespeare og
leikhópinn
Fi 29/5 kl 20
ATH: SÍÐASTA SÝNING
NÚLLSJÖ NÚLLSEX 2003
Dansleikhúskeppni LR og ÍD
Lau 7/6 kl 20
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
Su 1/6 kl 20, Fö 6/6 kl 20, Fö 13/6 kl 20
PÚNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht
Fi 29/5 kl 20
ATH: SÍÐASTA SÝNING
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
Fö 30/5 kl 20, Lau 31/5 kl 20
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR
ALLIR Í LEIKHÚSIÐ - ENGINN HEIMA!
Borgarleikhúsið er fjölskylduvænt leikhús: Börn, 12 ára og yngri, fá frítt
í leikhúsið í fylgd með forráðamönnum.
Gildir á ÖFUGU MEGIN, PÚNTILA, SUMARÆVINTÝRI, MAÐURINN SEM.
MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS
VÆRI HATTUR
eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne
Fö 30/5 kl 20, SÍÐASTA SÝNING
FYRRVERANDI kryddpí-
an Emma Bunton hefur
tjáð fjölmiðlum að hún hafi
fallið fyrir sitjanda súkku-
laðistráksins Justin Timb-
erlake. Sögur hafa verið á
kreiki um að hlýtt væri orð-
ið milli þeirra. Emma segist
þó einnig hafa fallið fyrir
augum Justins, sem hún
segir sérlega fögur. …
Dívan Liza Minelli varð
fyrir því óhappi að brotna á
hné á dögunum. Liza, sem
vantar tvö ár í sextugt,
hnaut á þrepi á hóteli á
Ítalíu á sunnudag. Minelli
er þegar með gervimjaðm-
arliði og þarf væntanlega
að festa hnébein saman
með skrúfu. …Söngfugl-
inn Whitney Houston mun
víst hafa verið nokkuð
ólátasöm í Las Vegasborg á
dögunum. Hún var þar
ásamt karli sínum Bobby
Brown og þótti Whitney
ansi sjúskuð ásýndum og
þau hjúin hneykslanleg í
framkomu. Whitney var í
skyndi drifin á sjúkrahús eftir miklar blóðnasir,
en óttast er að hér sé um að ræða algengan
fylgikvilla kókaínneyslu, en söngkonan hæfi-
leikaríka hefur þurft að glíma við eiturlyfja-
djöfulinn. …Sjónvarpsstöðin Bravo sem heyr-
ir undir NBC-keðjuna hyggst láta frá sér
„samkynhneigða útgáfu“ af þáttunum um Pip-
arsveininn („The Bachelor“) sem íslenskir sjón-
varpsáhorfendur hafa fengið að kynnast. Til að
bæta fjöri í spilið verða ekki allir vongóðu þátt-
takendurnir 15 samkynhneigðir, heldur leynast
inn á milli gagnkynhneigðir leikarar sem eiga
að reyna eftir megni að þykjast vera samkyn-
hneigðir. Segja framleiðendur þáttanna tilgang-
inn meðal annars að velta upp spurningum um
karllegar staðalmyndir, en þetta er í fyrsta
skipti sem sérstakur stefnumótaþáttur er gerð-
ur eingöngu um samkynhneigð, en áður hafa
stakir þættir í stefnumótaþáttaröðum tekið fyr-
ir samkynhneigðarþemu. Þættirnir, sem
skiptast í sex hluta, munu kallast Piltur hittir
pilt („Boy Meets Boy“), og er piparsveinninn
eftirsótti 32 ára Kaliforníubúi.
FÓLK Ífréttum
JAMES Mangold þekkjum
við helst af myndinni Girl,
Interrupted, sem hann
bæði skrifaði og leikstýrði,
og færði Angelinu Jolie
Óskarsverðlaun. Margir
muna þó einnig eftir mynd
hans Cop Land, með
Sylvester Stallone og Ro-
bert De Niro. Nýjasta
mynd hans er síðan vel
uppbyggður og tauga-
trekkjandi tryllir.
Þannig er að tíu manns
sem búa yfir leyndarmáli er
safnað saman á vegahótel í
brjáluðu veðri. Það er eðal-
vagnsbílstjóri, fyrrverandi
sjónvarpsstjarna, lögga og
morðingi í fylgd með hon-
um, símavændiskona, brúð-
hjón og fjölskylda í kreppu.
Skelfing er fljót að grípa
um sig þegar fólkið byrjar
að deyja eitt af öðru. Þau
skilja að þau verða að kom-
ast að leyndamálinu sem
þau eiga sameiginlega, til
að halda lífi.
Leikstjórinn sjálfur vill
meina að í myndinni séu
margar djarfar hugmyndir
um leið og þar sé verið að
leika sér með hefðbundnar
aðferðir til að skapa spennu
og hræðslu.
Ó, nei! Hvað eigum við að gera?
Taugatrekkj-
andi leyndarmál
Smárabíó, Regnboginn og Borgarbíó á Akureyri frumsýna kvik-
myndina Einkenni (Identity). Leikstjórn: James Mansgold. Aðal-
hlutverk: John Cusack, Rebecca DeMornay, Ray Liotta, Jake Busey
og Amanda Peet.
Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
Föt fyrir
allar konur
Nýr listi
www.freemans.is