Morgunblaðið - 31.05.2003, Blaðsíða 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
16 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Tónlistar
veisla
me› flátttöku
gesta í sal
Matse›ill
Dansandi
sjávarréttakoddi
í Waterloo
humarsósu.
Svífandi léttur
lambahryggvö›vi
í syngjandi sveiflu.
Fly on the Wing's
ís fantasía
Ver› 5.900 kr.
Sjómannadagsráð
Stórdansleikur me›
milljónamæringunum
Sjómannadagurinn
65 ára afmælishóf í kvöld
Forsala mi›a og bor›apantanir alla virka daga
kl. 13:00-19.00.
Sími 533 1100 - fax 533 1110
www.broadway.is - broadway@broadway.is
SÆTTIR hafa tekist í deilumáli
bandarísku stórfyrirtækjanna
AOL Time Warner og Microsoft
Corp. en AOL höfðaði mál á hend-
ur Microsoft á síðasta ári á grund-
velli laga um auðhringamyndun og
sakaði Microsoft um að nota mark-
aðsráðandi stöðu sína til að koma í
veg fyrir samkeppni.
Fyrirtækin hafa nú samþykkt að
vinna saman á breiðum grundvelli
á sviði Internetsins, stafrænnar
tækni og skyndiskilaboðatækni.
Samkvæmt samningi fyrirtækj-
anna mun Microsoft borga AOL
750 milljónir Bandaríkjadala, and-
virði hátt í 54 milljarða íslenskra
króna, og veita AOL þókn-
unarlaust sjö ára leyfi fyrir notkun
á Internet Explorer vafranum,
sem mun tryggja að vafrinn verði
hér eftir sem hingað til notaður af
milljónum viðskiptavina America
Online. Fyrirtækin samþykktu
einnig að vinna saman að því að
samræma hin ört vaxandi skyndi-
skilaboðakerfi sín.
Í frétt The Wall Street Journal
segir að samningurinn geti veitt
Microsoft jafnvel enn meiri áhrifa-
mátt varðandi það hvernig Int-
ernetið kemur til með að þróast í
framtíðinni, ásamt því að Micro-
soft muni einnig setja aukið mark
sitt á þróun dreifingar á tónlistar-
og vídeóefni á netinu. Sem kunn-
ugt er er Mircosoft nú þegar með
markaðsráðandi stöðu í hugbúnaði
fyrir heimilistölvur og á sviði
vafra. AOL, sem á réttinn á sam-
keppnisvafranum Netscsape, var
síðasta mótvægið við Microsoft á
því sviði.
„Skapandi samband“
Fyrirtækin sögðu í yfirlýsingu
að þau myndu halda áfram að vera
samkeppnisaðilar en myndu vinna
saman að því að færa stafrænt efni
og þjónustu til viðskiptavina, auk
þess að vinna að því að vernda
höfundarrétt á netinu.
Stjórnarformaður Microsoft, Bill
Gates, sagði að samningurinn gæti
hraðað almennri upptöku staf-
rænna miðla. „Á sama tíma og fyr-
irtæki okkar munu halda áfram að
keppa á markaði, er ég ánægður
með að við höfum náð að leysa úr
ágreiningi okkar og ég er spennt-
ur yfir því tækifæri sem okkur
gefst nú á því að vinna saman.“
Forstjóri AOL, Richard Parsons,
bætti því við að hann fagnaði
meira „skapandi sambandi“ við
Microsoft en hingað til hefur verið
raunin og að samkomulagið um að
vinna saman á sviði stafrænnar
miðlunar markaði mikilvægan
áfanga fram á við í þjónustu við
viðskiptavini og í því baráttumáli
listamanna og rétthafa að vernda
höfundarrétt.
Sættir nást um netvafra
Microsoft greiðir
AOL Time Warn-
er 750 milljónir
dala fyrir að nota
Internet Explorer
Reuters
Bill Gates hefur ástæðu til að gleðj-
ast enda staða hans í netheimum
enn sterkari eftir samninginn við
AOL Time Warner um endalok
Netscape.
DÓTTURFÉLAG SH í Banda-
ríkjunum, Icelandic USA Inc.,
hefur nú gengið frá kaupum á
öllum eignum Ocean to Ocean
(OTO), en viljayfirlýsing um
kaupin var undirrituð 9. apríl sl.
Tekur Icelandic USA nú þegar
við rekstrinum en OTO verður
rekið sem sjálfstætt fyrirtæki.
OTO er yfir 20 ára gamalt fyr-
irtæki með höfuðstöðvar á Virg-
inia Beach í Virginíufylki og
söluskrifstofur víða um Banda-
ríkin og Kanada. OTO er eitt af
leiðandi fyrirtækjum í innflutn-
ingi og sölu á rækju og öðrum
skelfiski.
„Við erum að skerpa áherslur
okkar á þessu sviði vegna auk-
innar eftirspurnar eftir rækju,“
sagði Magnús Gústafsson, for-
stjóri Icelandic USA. „Neysla á
rækju hefur farið hratt vaxandi í
Bandaríkjunum. Neyslan tvöfald-
aðist á 15 árum og er rækja nú í
fyrsta sæti hvað sjávarafurðir
snertir. Það er trú okkar að sú
viðbót sem rækjan er styrki
mjög sókn okkar undir Icelandic
vörumerkinu á næstu árum.“
„Um 85% allrar rækju eru
flutt inn,“ segir Dave Brockwell,
en hann ásamt Sandler-fjölskyld-
unni stofnuðu OTO 1982. „OTO
hefur byggt upp sterk langtíma-
sambönd við framleiðendur í
mörgum Asíulöndum og öðrum
löndum þar sem rækja er fram-
leidd. Við erum með eigin um-
boðsmenn í hverju landi og mik-
ilvægur hluti af starfi þeirra er
að tryggja stöðug og mikil gæði
vörunnar.“
„ Stór hluti sölu OTO er til
smásölukeðja í Bandaríkjunum
og Kanada, en talsvert er einnig
selt til fyrirtækja í veitingaþjón-
ustu. Samsetningin býður upp á
ný tækifæri og samlegð í sölu.
Icelandic USA getur boðið við-
skiptavinum sínum í veitinga-
þjónustu mikið og gott vöruval í
skelfiski og sterk staða OTO í
smásölunni skapar ný tækifæri
fyrir afurðir Icelandic USA á
þeim hluta markaðarins,“ segir í
frétt um kaupin.
Árleg velta Icelandic USA var
um USD 170 milljónir á síðasta
ári og fjöldi starfsmanna yfir
500. Velta OTO nam á sama tíma
USD 110 milljónum.
Gengið frá kaup-
um SH á OTO
Ocean to Ocean er leiðandi fyrirtæki
í sölu á rækju og skelfiski
KATLA Travel GmbH, sem selur
ferðir til Íslands í Austurríki og
Þýskalandi, flutti höfuðstöðvar sín-
ar til Íslands vegna stóraukinna
umsvifa og hagstæðs skattaum-
hverfis, að sögn Péturs Óskarsson-
ar framkvæmdastjóra fyrirtækis-
ins.
Í Morgunblaðinu var nýverið
missagt, að ástæðan hefði að hluta
til verið lægri laun á Íslandi. Pétur
segir svo ekki vera. „Hins vegar
eru launatengd gjöld lægri hér en í
Þýskalandi, og það hafði sín áhrif,“
segir hann.
Katla Travel GmbH var stofnað í
Þýskalandi árið 1997 og þá voru
gerðir samningar við ferðaskrif-
stofurnar Troll Tours og Necker-
mann um sölu á Íslandsferðum.
Fyrirtækið sérhæfir sig í ferðum
til Íslands frá þýskumælandi svæð-
um í Evrópu. Það rekur skrifstofu í
München og nú einnig í Reykjavík.
Katla til Íslands
vegna aukinna
umsvifa
Kreppa í Japan ef
bankakerfið breytist ekki
EFNAHAGSKREPPA gæti skollið
á í Japan komi ekki til breyting á
bankakerfi landsins sem seðla-
bankastjóri Jap-
ans, Toshihiko
Fukui, segir
óstöðugt.
Þessi aðvörun
bankastjórans
kemur í kjölfar
þess að bankinn
hefur aftur eftir
sex mánaða hlé
lækkað mat sitt
á efnahag lands-
ins vegna ótta við áhrif bráða-
lungnabólgunnar, HABL, veikrar
stöðu dollars og hættumerkja
heima fyrir eftir að ríkisstjórnin
ákvað að koma fimmta stærsta
banka Japans, Resona Holding Inc.
til hjálpar. Bankinn neyddist til
þess um síðustu helgi að leita rík-
isaðstoðar eftir að CAD-hlutfall
bankans hafði farið niður fyrir til-
skilin 4% mörk. Japönsk stjórnvöld
skref í átt að breytingum í banka-
kerfinu með greiðslu að jafnvirði
um 1.240 milljarða íslenskra króna
til að koma Resona aftur á réttan
kjöl. Í Morgunkorni Greiningar Ís-
landsbanka segir að fjárhæðin
nemi um 20% af öllu því fjármagni
sem áður hefur verið notað í svip-
uðum tilgangi og um 0,4% af lands-
framleiðslu í Japan.
Eitt af stærstu vandamálum
japansks hagkerfis
„Ef ekki verður gripið til viðeig-
andi ráðstafana varðandi vanda-
mál fjármálastofnana verður að
segjast að Japan horfir fram á að
þurfa að standa frammi fyrir fjár-
málakreppu á hverri stundu,“
sagði Toshihiko Fukui á fundi með
nefnd á vegum ríkisstjórnarinnar.
Ríkisstjórnin hefur fyrirskipað
bönkum að minnka um helming
hlutfall svokallaðra „slæmra lána“,
eða lána sem þarf að afskrifa, fyrir
mars 2005, en lánin eru sögð meg-
inástæða efnahagslægðar í Japan.
Í Morgunkorni segir að sú stað-
reynd að japanskir bankar hafi
ekki afskrifað töpuð útlán hafi
gert það að verkum að bankakerf-
ið sé því sem næst gjaldþrota.
„Umbreytingar verða ekki auð-
veldar og munu leiða til fækkunar
starfsfólks í bankakerfinu. Jap-
anska kerfið um æviráðningar
starfsmanna gerir fyrirtækjunum
erfitt um vik í hagræðingu og
styrkir rökin fyrir aðkomu stjórn-
valda.“
Toshihiko
Fukui
AÐALFUNDUR Landverndar hef-
ur samþykkt ályktun þar sem íslensk
stjórnvöld eru hvött til að bregðast
skjótt við og setja reglur um losun
sjókjölfestu skipa í höfnum landsins
og tryggja að öll skip sem koma hing-
að til lands með sjó sem kjölfestu fari
eftir þeim. Þá telur fundurinn nauð-
synlegt að hefja þegar úttekt á losun
fljótandi kjölfestu skipa hér við land
og flutningi lífvera með henni. Einnig
verði að ljúka gerð alþjóðlegs samn-
ings um meðferð fljótandi kjölfestu.
„Innflutningur ágengra framandi
lífvera í ný heimkynni með fljótandi
kjölfestu skipa hefur verið skilgreind-
ur sem ein af fjórum mestu ógnum
heimshafanna. Hinar ógnirnar eru
mengun frá landi, ofnýting fiskimið-
anna og eyðilegging búsvæða í haf-
inu.
Vitað er að framandi lífverur í fljót-
andi kjölfestu geta lifað margar vikur
og mánuði undir siglingu og ná að
þrífast í nýjum heimkynnum. Slíkar
lífverur eiga oft enga náttúrulega
óvini í nýja staðnum og hafa á stund-
um langvarandi áhrif á lífríkið, heilsu-
far, fiskveiðar og afþreyingu ferða-
manna.
Við vaxandi skipaferðir til landsins
vegna flutninga til og frá nýjum og
stækkandi stóriðjufyrirtækjum hér á
landi eykst þessi hætta til muna. Vit-
að er að sjúkdómar hafa borist með
sjókjölfestu í laxeldiskvíar í Færeyj-
um. Nýju og vaxandi sjókvíaeldi lax
og þorsks, m.a. á Austfjörðum, ásamt
villtum laxastofnum er hætta búin ef
slíkir sjúkdómar berast hingað til
lands. Ástand þessara mála er með
öllu óþekkt hér við land. Engar út-
tektir hafa farið fram á umfangi los-
unar fljótandi kjölfestu eða hvort og
þá hvaða lífverur berast með kjölfest-
uvatni og hvaðan þær eru upprunnar.
Á vegum Alþjóðasiglingamála-
stofnunarinnar (IMO) hefur undan-
farin ár verið unnið að gerð alþjóðlegs
samnings um stýringu á notkun fljót-
andi kjölfestu til þess að lágmarka
flutning skaðlegra lífvera milli haf-
svæða. Stefnt er að frágangi samn-
ingsins snemma á næsta ári en mikið
mun þó vera ófrágengið í þeim mál-
um,“ segir í ályktun Landverndar.
Takmarka þarf skað-
leg áhrif kjölfestu
OLÍUVERSLUN Íslands hefur ný-
verið undirritað samning við Anza
um að gerast aðili að Rafrænu
markaðstorgi (RM). Í fréttatilkynn-
ingu kemur fram að íslenska ríkið
er stærsti kaupandinn á Íslandi
með um 65 milljarða árlega inn-
kaupaveltu og er í auknum mæli að
færa innkaup sín í rafrænt form.
Samið hefur verið um aðgengi allra
ríkisstofnana að Rafræna markaðs-
torginu. Mikið hagræði er talið nást
með innleiðingu rafrænna viðskipta
og samkvæmt áætlunum fjármála-
ráðuneytisins mun íslenska ríkið
spara um 1.100 milljónir á 4 árum
með innleiðingu þeirra.
Tilgangur Rafræns markaðs-
torgs er að leiða saman viðskipta-
aðila í íslensku atvinnulífi, kaup-
endur og seljendur og gera þeim
kleift að koma á rafrænum við-
skiptum sín á milli um einn miðlæg-
an vettvang.
OLÍS sem-
ur við Anza