Morgunblaðið - 31.05.2003, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2003 51
DAGBÓK
HUGARFARSÞJÁLFUN TIL BETRA LÍFS
EINKATÍMAR - NÁMSKEIÐ
Þú lærir að koma skilaboðum og jákvæðum huglægum hugmyndum og
viðhorfum inn í undirmeðvitundina. Þú lærir að upplifa tilfinningar þínar á
jákvæðan og uppbyggilegan hátt og að hafa betri stjórn á streitu og kvíða, auka
einbeitinguna og taka betri ákvarðanir. Þú byggir upp sjálfsöryggi og sterka
sjálfsmynd.
Leiðbeinandi Viðar Aðalsteinsson dáleiðslufræðingur.
Upplýsingar í síma 694 54 94
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þið eruð hugmyndarík, ötul
og áhugasöm. Þið eigið auð-
velt með að afla hugmyndum
ykkar fylgis en erfiðara með
að hrinda þeim í fram-
kvæmd.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Veltu þér ekki upp úr því sem
á vantar en einbeittu þér
heldur að því sem þú hefur.
Það má koma ýmsu til leiðar
með réttu hugarfari.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Láttu ekki minniháttar per-
sónuleg vandamál íþyngja
þér. Heimurinn stöðvast ekki
þótt eitthvað bjáti á þannig
að þú ættir að reyna að halda
áfram eins og ekkert hafi í
skorist.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það eru allskonar gylliboð í
gangi. Athugaðu vel þinn
gang áður en þú tekur ein-
hverju þeirra því oft leynist
úlfur í sauðargæru.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þér finnst þú hafa allt þitt á
hreinu. Gefðu þér því tíma til
að hjálpa vini í vanda.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú þarft á öllum þínum hæfi-
leikum að halda til þess að
leiða viðkvæmt fjölskyldumál
til lykta. Mundu að þol-
inmæðin þrautir vinnur allar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er eins og aðgerðir þínar
hafi öfug áhrif og það veldur
þér miklu hugarangri. Taktu
verklag þitt til endurskoð-
unar og gerðu þær breyt-
ingar sem þarf.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Leyfðu sköpunargáfu þinni
að njóta sín jafnvel þótt ann-
að verði að sitja á hakanum á
meðan. Láttu hlutina þróast
af sjálfu sér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Allskyns hlutir eru að koma
upp á yfirborðið og valda
vandræðagangi í samskiptum
þínum við aðra. Láttu ekki
deilur fara úr böndunum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Nú er komið að því að þú
uppskerir eins og þú sáðir til.
Taktu því fagnandi sem já-
kvætt er en reyndu líka að
læra af mistökunum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Tilboðin berast til þín úr öll-
um áttum svo þú átt í mestu
vandræðum með að velja á
milli þeirra. Mundu að ekki
er allt gull sem glóir.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Nú er heppilegur tími til að
binda ný vinabönd. Ef þú hef-
ur ekki áhuga á nýjum sam-
böndum einbeittu þér þá að
ræktun þeirra sem fyrir eru.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þrátt fyrir góðan ásetning
geta afskipti þín haft þver-
öfug áhrif. Hugsaðu þig því
vel um áður en þú lætur skoð-
anir þínar í ljós.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LANDSLAG
Í einum fossi
hendist áin niður
morgunhlíð dalsins
undir mjúku sólskýi;
ungur smali
ofan úr heiði
með ljóð á vör,
lamb á herðum.
Snorri Hjartarson
LJÓÐABROT
80 ÁRA afmæli. Ámorgun, sunnudag-
inn 1. júní, verður Helga
Kristinsdóttir áttræð. Eig-
inmaður hennar er Svein-
björn Sigurðsson. Af því til-
efni verða þau með opið hús
að Miðleiti 7, Reykjavík, frá
kl.16:00 sunnudag. Gjafir
vinsamlega afþakkaðar.
80 ÁRA afmæli. Í dag,31. maí, er áttræður
Sigurgeir Þorvaldsson,
fyrrum lögreglumaður á
Keflavíkurvelli, Mávabraut
8c, Keflavík. Hann og eig-
inkona hans, Jóhanna Guð-
rún Finnsdóttir frá Eski-
holti í Borgarbyggð, verða
að heiman á afmælisdag-
inn.
SVÍARNIR Bengt-Erik
Efraimsson og Kenneth
Borin lentu í „Lebensohl-
þoku“ og villtust upp á hið
hættulega fimmta þrep. Þar
gátu þeir enga björg sér
veitt.
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ Á76
♥ G964
♦ K3
♣ÁD92
Vestur Austur
♠ D53 ♠ K9842
♥ Á3 ♥ K
♦ G10765 ♦ D98
♣G74 ♣K1053
Suður
♠ G10
♥ D108752
♦ Á42
♣86
Spilið kom upp í fyrri leik Ís-
lendinga og Svía á NL í
Færeyjum. Þeir Efraimsson
og Borin voru í NS gegn
Guðm. P. Arnarsyni og
Þresti Ingimarssyni:
Vestur Norður Austur Suður
Guðm. Borin Þröstur Efraimsson
-- 1 grand 2 spaðar 2 grönd *
3 spaðar Pass Pass 4 hjörtu
Pass 4 spaðar Pass 5 hjörtu
Pass Pass Pass
Tveggja granda sögn Efra-
imssons er hin margræða
Lebensohl-sagnvenja, sem
margir nota. Oftast á svar-
hönd veik baráttuspil og
langan lit, en inni í sagnvenj-
unni eru þó líka ýmsar gerð-
ir af sterkum spilum. Í fram-
haldinu á grandarinn að
segja þrjú lauf og þá fyrst
lýsir svarhönd spilum sínum.
Þessi sagnvenja er mjög góð
ef menn fá að melda í friði,
en þolir illa truflun, því spil
svarhandar eru í raun
óþekkt. Hér er greinilegt að
Efraimsson hugðist aðeins
berjast í þrjú hjörtu, en
skipti svo um skoðun þegar
AV voru komnir í þrjá spaða
og ákvað að freista gæf-
unnar í fjórum. En Borin
túlkaði það sem slemmu-
áhuga og hélt áfram og nið-
urstaðan varð fimm hjörtu.
Út kom lauf og spilið fór
snarlega tvo niður. Sem var
lán í óláni fyrir Svíana, því
þá var líklegt að tap þeirra
yrði aðeins 2 IMPar ef NS
færu einn niður á fjórum
hjörtum á hinu borðinu.
Hugum nú að því. Þar
voru Jón Baldursson og Þor-
lákur Jónsson NS og Jón
varð sagnhafi í fjórum hjört-
um. Hann fékk út spaða og
leyfði austri að eiga fyrsta
slaginn á kónginn. Austur
gerði þau fínlegu mistök að
spila spaða um hæl, sem
gerði Jóni kleift að hreinsa
upp tígul og spaða áður en
hann fór í trompið. Þegar
austur lenti svo inni á hjarta-
kóng varð hann að spila út í
tvöfalda eyðu eða laufi upp í
gaffalinn. Tíu slagir og 11
IMPar til Íslands. (Austur
verður að spila hjartakóng í
öðrum slag til að komast hjá
innkastinu.)
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
50 ÁRA afmæli. Í dag, laugardaginn 31. maí, verðafimmtugar tvíburasysturnar Guðbjörg Sigmunds-
dóttir, Hlynsölum 6, Kópavogi, og Jóhanna Sigmunds-
dóttir, Holtsbúð 56, Garðabæ . Þær verða að heiman í dag.
50 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 31.
maí, er fimmtugur Eggert
Kristinsson, gullsmiður
(Dentalstál). Í tilefni af
þessum tímamótum ætla
Eggert og fjölskylda að
bjóða ættingjum, vinum og
samferðafólki til samfagn-
aðar að Steinási 9, Garðabæ,
á milli kl. 12-16.
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rf3 Rf6 4.
g3 Be7 5. Bg2 O-O 6. O-O
dxc4 7. Rc3 Rc6 8. e3 Hb8 9.
Da4 Bd7 10. Dxc4 Ra5 11.
De2 b5 12. Re5 Be8 13. Hd1
c5 14. dxc5 Dc7 15. Rd3 Bxc5
16. b3 Be7 17. Bb2 Bc6 18. e4
b4 19. Ra4 Db7 20. Rac5 Db5
21. Hac1 Hfd8 22. Hc2 Ba8
23. Hdc1 Rc6 24. De3 Bxc5
25. Rxc5 e5 26. Bf1 Da5 27.
Ra4 Hd6 28. f3 Dd8 29.
Dc5 Hd1 30. Df2 Hd6 31.
Rc5 h6 32. Ra6 Hb6
Staðan kom upp í al-
þjóðlegu móti í Búdapest
sem lauk fyrir skömmu.
Mihjalo Prusikin (2525)
hafði hvítt gegn Peter
Horvath (2456). 33. Bxe5!
Rxe5 34. Hc8 Kh7 35.
Hxd8 Hxd8 36. Rc7
Bb7 37. Hc5 Hd2 38.
Hxe5 Hxf2 39. Kxf2 Hc6 40.
Rd5 Hc2+ 41. Ke3 Bxd5 42.
exd5 Hxa2 43. d6 a5 44.
Bd3+ g6 45. He7 Kg8 46. d7
og svartur gafst upp. Móts-
haldarinn Laslo Nagy stend-
ur fyrir þessum mótum í
Búdapest sem hefjast fyrsta
laugardag í hverjum mán-
uði. Íslenskir skákmenn
hyggjast taka þátt í mótum
hans í sumar enda að sumu
leyti tilvalin til áfangaleitar.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
50 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 31.
maí, er fimmtugur Geir
Þórðarson, sparisjóðsstjóri
nb.is-sparisjóðs, Fagra-
hjalla 40, Kópavogi.
Í ÁR eru liðin 40 ár frá því sjúkra-
þjálfunardeildin á Reykjalundi tók
formlega til starfa. Henni var í
upphafi fundinn staður í kjallara
aðalbyggingar þar sem áður var
starfrækt járnsmiðja. Þar var
komið fyrir ýmsum þjálfunarbún-
aði, m.a. bakstrapotti, sem er enn
í fullri notkun. Einnig frumstæðri
sundlaug úr járngrind sem á var
hengdur plastdúkur.
Deildinni var þröngur stakkur
sniðinn í kjallaranum. Árið 1970
var aðalbygging lengd til vesturs
og steypt sundlaug byggð í kjall-
aranum, sem bætti mjög aðstöðu
og möguleika til þjálfunar.
Árið 1987 var ný glæsileg
sjúkraþjálfunarálma tekin í notk-
un, segir í fréttatilkynningu. Um-
svif deildarinnar hafa aukist jafnt
og þétt með tilkomu nýrra sviða
og starfsmönnum fjölgað. Skjól-
stæðingar Reykjalundar fá mjög
fjölbreytta þjónustu á sjúkraþjálf-
unardeildinni, s.s. einstaklings-
meðferð, hópþjálfun innan- og ut-
andyra, fræðslu og ráðgjöf og fá
að reyna fyrir sér í ýmsum
íþróttagreinum, mismunandi eftir
árstíðum. Á deildinni starfa nú
tuttugu sjúkraþjálfarar ásamt
fjórum heilsuþjálfurum, tveimur
sundlaugarvörðum og fimm að-
stoðarmönnum. Starfið fer fram á
átta sviðum þar sem sinnt er
margs konar endurhæfingu á
hjarta- og lungnasviði, verkja- og
gigtarsviði, tauga- og geðsviði og
þjálfun á sviði atvinnulegrar end-
urhæfingar. Nýjasta sviðið er
næringarsviðið og vegna offitu-
vandans er þörfin á þjónustu brýn.
Ný sjúkraþjálfunaraðstaða
Svo er SÍBS og landsmönnum
fyrir að þakka, í kjölfar söfnunar-
innar Sigur lífsins, 1998, að nú er
risið glæsilegt þjálfunarhús á
Reykjalundi með stórum íþrótta-
sal, tækjasal og æfingasal og síð-
ast en ekki síst 25 m sundlaug, æf-
ingalaug og heitum potti.
Þjálfunarhúsið, sem tekið var í
notkun í janúar 2002, hefur gjör-
bylt starfseminni, starfsaðstöðu
og möguleikum til endurhæfingar.
Húsið er mjög vel nýtt og almenn
ánægja meðal starfsfólks og skjól-
stæðinga Reykjalundar með þessa
nýju skrautfjöður okkar á Reykja-
lundi, segir í fréttinni.
Sjúkraþjálfunar-
deildin á Reykja-
lundi 40 ára
BÍLASÝNING, blöðrur og óvæntar
uppákomur munu setja svip á bæj-
arlífið á Ísafirði um helgina í tilefni
þess að Guðni Geir Jóhannesson er
tekinn við sem umboðsaðili fyrir
Ingvar Helgason/Bílheima á Vest-
fjörðum, segir í fréttatilkynningu.
Nýja umboðið er til húsa á Sindra-
götu 3, Ísafirði. Samhliða bílasölunni
rekur Guðni Geir viðhalds- og við-
gerðarverkstæði þar sem m.a. er
boðið upp á smurþjónustu og hjól-
barðaviðgerðir. Þá er Guðni Geir
umsvifamikill í ferðaþjónustu á Vest-
fjörðum. Hann er með Ferðaþjón-
ustu Margrétar og Guðna (FMG)
sem rekur Gamla Gistihúsið, Mána-
götu 5 á Ísafirði, og rekur einnig al-
mennings- og hópferðabílaþjónustu.
Á bílasýningunni, sem verður opin
bæði á laugardag og sunnudag, verð-
ur m.a. hægt að skoða nýjustu teg-
undir af Opel- og Subaru-bílum
ásamt Nissan-bílum, bæði Nissan
Patrol, Nissan Almeira, Nissan
Micrasem og nýja Nissan X-Trail
jeppann. Eru allir velkomnir á sýn-
inguna.
Ingvar Helgason/Bílheimar á Vestfjörðum
Nýr umboðs-
aðili og sýning
Guðmundur Ingvarsson, forstjóri Ingvars Helgasonar, og Júlíus Vífill
Ingvarsson, stjórnarformaður IH, ásamt Guðna Geir
Jóhannessyni, nýjum umboðsmanni IH/Bílheima á Ísafirði.
FRÉTTIR
ÁRNAÐ HEILLA