Morgunblaðið - 31.05.2003, Síða 53
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2003 53
Hið árlega golfmót Samiðnar
verður haldið á golfvellinum við
Hellu sunnudaginn 15. júní nk.
Mótið er opið öllum félagsmönnum
Samiðnar og fjölskyldum þeirra.
Nánari upplýsingar og
skráning er í síma 535 6000
eða á heimasíðu Samiðnar
www.samidn.is
HEIMIR Ríkharðsson hefur valið
16 manna landsliðshóp pilta fæddra
1984 og síðar sem tekur þátt í und-
ankeppni Evrópumótsins í hand-
knattleik í Litháen um næstu helgi.
Andstæðingar íslenska landsliðsins
verða Danir, Litháar og Bosnía/
Hersegóvína. Tvær þjóðir komast
áfram í lokakeppnina sem fram er í
Slóveníu á ágúst. „Við rennum
nokkuð blint í sjóinn en stefnum að
sjálfsögðu að því að komast áfram,“
sagði Heimir í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Danir eru afar sterk-
ir og svo er sagt að Litháar séu með
sterkt lið auk þess að vera á heima-
velli. Um lið Bosníu vitum við ekk-
ert, það er óskrifað blað,“ sagði
Heimir sem verður með lið sitt í æf-
ingabúðum á Akureyri um helgina
en það heldur síðan utan um miðja
næstu viku. Fyrsti leikur þess er á
föstudaginn við Dani.
Hópurinn er skipaður eftir-
töldum leikmönnum: Markverðir:
Björgvin Gustavsson, HK og Pálm-
ar Pétursson Val. Aðrir leikmenn:
Andri Stefan, Haukum, Arnór Atla-
son, KA, Árni Björn Þórarinsson,
KA, Árni Þór Sigtryggsson, Þór,
Ásgeir Hallgrímsson, Haukum,
Davíð Guðnason, Víkingi, Einar
Ingi Hrafnsson, Aftureldingu, Guð-
berg Björnsson, Fram, Hrafn Ingv-
arsson, Aftureldingu, Ívar Grét-
arsson, Selfossi, Jóhann Gunnar
Einarsson, Fram, Kári Kristján
Kristjánsson, ÍBV, Pálmar Sigur-
jónsson, Víkingi, Ragnar Hjalte-
sted, Víkingi.
Heimir velur sextán
leikmenn í Evrópuslag
ÍSLENDINGAR lögðu Dani nokk-
uð örugglega að velli þegar þjóð-
irnar mættust í vináttulandsleik í
gærkvöld, lokatölur
urðu 36:31, Íslend-
ingum í vil. Það
sem vakti mesta at-
hygli í leiknum í
gær var að með danska liðinu lék
leikmaður sem er kominn af ís-
lendingum í báðar ættir. Hann
heitir Hans Óttar Lindberg og
leikur með Team Helsinge í
dönsku úrvalsdeildinni en liðið
endaði í sjöunda sæti á sl. leiktíð.
Hans Óttar er fæddur árið 1981
í Danmörku og hefur alla tíð búið
þar. Foreldrar Hans heita Sig-
urlaug Sigurðardóttir og Erlingur
Lindberg og léku þau bæði hand-
bolta með FH á árum áður. Hann
talar ágæta íslensku en lítur á sig
fyrst og fremst sem Dana. Hann
lék sinn fyrsta landsleik fyrir Dan-
mörku á dögunum gegn Pólverj-
um og skoraði þá 5 mörk. Lands-
leikurinn gegn Íslandi í gærkvöld
var númer tvö í röðinni og urðu
mörkin tvö í þetta skipti. „Ég er
búinn að æfa handbolta frá því ég
var 15 ára, hef spilað með ung-
lingalandsliðinu og undir 21 árs
liðinu og er núna að byrja að leika
með aðalliðinu. Það er gaman að
leika gegn íslenska landsliðinu, en
ég er fyrst og fremst Dani og því
er ég ekkert að spá í hverjir and-
stæðingarnir eru eftir að leikurinn
er hafinn,“ segir Hans Óttar.
Hann segist ekki mikið fylgjast
með íslenskum handbolta, en móð-
ursystir hans sendi þó reglulega
myndbandsspólur úr íslensku
deildinni sem hann horfi á. Spurð-
ur að því hvort hann hafi fundið
fyrir áhuga hjá liðum utan Dan-
merkur svarar hann því játandi,
en hann ætli ekki að hugsa sér til
hreyfings, að minnsta kosti næstu
tvö árin, en sjá svo til.
„Er fyrst
og fremst
Dani“
Morgunblaðið/Kristinn
Hans Lindberg háði margar rimmur við Guðjón Val Sigurðsson í Austurbergi í gær.
Dallas vann fimmta leikinn í SanAntonio á þriðjudag með frá-
bærum endaspretti eftir að hafa ver-
ið 19 stigum undir.
Lengi vel í sjötta
leiknum í Dallas á
fimmtudag virtist
sem að Mavericks
væri að ná yfirhöndinni í leikserí-
unni, en það breyttist allt í lokaleik-
hlutanum þegar Steve Kerr kom til
leiks eftir að hafa tekið við stöðu
leikstjórnanda af Frakkanum Toni
Parker. Lítið hafði gengið upp hjá
Paker, sem þjáðist af magapest, og
skuldinni skellt á franskan eftirrétt
sem Parker hafði neytt á hóteli
Spurs í Dallas fyrr um daginn.
Dallas virtist hafa leikinn í hönd-
unum um miðjan seinni hálfleik, en í
upphafi fjórða leikhluta hrundi sókn-
arleikur Mavericks saman og allt
virtist ganga á afturfótunum. Spurs
gekk smám saman á lagið og þriggja
stiga körfum fór að rigna niður hjá
Spurs, fyrst hjá Steve Jackson og
síðan Kerr.
Spurs jafnaði leikinn, 71:71, eftir
tíu stig í röð þegar sjö mínútur voru
til leiksloka og eftirleikurinn reynd-
ist auðveldur. Spurs skoraði 34 af
fyrstu 39 stigum leikhlutans, á ein-
um besta kafla sem lið hefur náð svo
seint í úrslitakeppni um langan tíma.
„Allt gekk upp hjá mér“
Spurs var vel að sigrinum komið í
leikseríunni og hefur verið besta lið-
ið í deildinni síðan Dallas vann fyrstu
fjórtán leiki sína í upphafi keppnis-
tímabilsins. Kerr, sem nú er 37 ára,
hefur lítið leikið hjá San Antonio í
vetur. Hann vann þrjá meistaratitla
hjá Chicago Bulls og þann fjórða
með Spurs fyrir fjórum árum. „Ég
hafði fylgst vel með leiknum frá
bekknum, enda hafði þjálfarinn sagt
mér að ég gæti þurft að taka við leik-
stjórninni af Toni. Allt gekk upp hjá
mér um leið og ég kom inn á. Strák-
arnir léku mjög góða liðsvörn og
fundu mig fljótt í sókninni um leið og
ég var á auðum sjó. Ég ákvað að
leika þetta keppnistímabil í þeirri
von að ég fengi tækifæri til að eiga
svona leik. Það er ekkert sem jafnast
á við að geta gert út um leikseríu
með svona leik,“ sagði hinn knái
Kerr í leikslok.
Lokaúrslit New Jersey og San
Antonio gætu orðið skemmtileg. Lið-
in úr Austurdeildinni hafa ekki átt
minnsta möguleika gegn Los Angel-
es Lakers undanfarin þrjú ár í loka-
úrslitunum, en framganga Nets und-
anfarið í úrslitakeppni Austur-
deildarinnar bendir til að Spurs
verði að eiga sinn besta leik til að
vinna titilinn.
Leikstjórnandi Nets, Jason Kidd,
mun verða Spurs erfiður, en New
Jersey á hins vegar ekkert svar við
Tim Duncan hjá Spurs, en leikur
hans mun verða lykillinn í leikserí-
unni. Nú mun koma í ljós hvort New
Jersey hafi náð að minnka styrk-
leikamuninn við bestu liðin íVestur-
deild. Liðin tvö unnu öruggan heima-
sigur hvort á öðru í
deildarkeppninni, en það er skoðun
undirritaðs að New Jersey muni
ekki ná að vinna fjóra leiki gegn
Spurs. Það verður minni munur á
getu liðanna en undanfarin þrjú ár í
lokaúrslitunum, en þegar upp verður
staðið er næsta víst að San Antonio
mun vinna sinn annan meistaratitil.
David Robinson ætti að vinna titilinn
í síðasta leik sínum á leikferlinum,
annaðhvort í sjötta eða sjöunda
leiknum.
Spurs mætir „heitu“ liði New Jersey Nets í úrslitum NBA
Kerr bjargvættur
San Antonio
STEVE Kerr bjargaði San Antonio Spurs í fjórða leikhluta sjötta
leiks liðsins við Dallas Mavericks í úrslitum Vesturdeildar. Kappinn
skoraði fjórar þriggja stiga körfur í röð á stuttum tíma í lokaleikhlut-
anum og hann spilaði lykilhlutverk í sigri San Antonio. Sigur Spurs,
90:78, kom liðinu í lokaúrslitin eftir 4:2 sigur í leikseríunni. Spurs
mætir nú „heitu“ liði New Jersey Nets úr Austurdeild.
Gunnar
Valgeirsson
skrifar frá
Bandaríkjunum
LEIKMENN AC Milan ættu að
eiga fyrir salti í grautinn. Sigurinn á
Juventus í úrslitaleik Meistaradeild-
ar Evrópu í knattspyrnu á Old Traf-
ford á miðvikudagskvöldið gerði ríka
liðsmenn Mílanóliðsins enn ríkari því
hver og einn leikmaður liðsins fékk í
sinn hlut upphæð að andvirði 17,5
milljónir króna í bónusgreiðslu frá
félaginu.
AC MILAN hagnaðist vel á sigr-
inum en fyrir hann fær félagið um
3,3 milljarða króna í greiðslu frá
knattspyrnusambandi Evrópu.
Hluta af þessum peningum á að
verja í að kaupa nýja leikmenn svo
reikna má með að þeir svartröndóttu
verði öflugir áfram á næstu leiktíð.
ÚKRAÍNSKA íþróttamálaráðu-
neytið hefur ákveðið að veita Andriy
Shevchenko, sóknarmanni AC Mil-
an, æðstu íþróttaviðurkenningu
landsins. Shevcehnko skoraði sigur-
mark AC Milan í vítaspyrnukeppn-
inni gegn Juventus í úrslitaleik
Meistaradeildar Evrópu.
RIO Ferdinand, varnarmaðurinn
sterki í liði Manchester United, get-
ur ekki leikið með enska landsliðinu í
vináttuleiknum við Serbíu og Svart-
fjallaland á þriðjudaginn og í leikn-
um gegn Slóvenum í undankeppni
EM hinn 11. júní. Ferdinand er
meiddur á hné og við skoðun í gær
kom í ljós að hann er ekki leikfær.
FORSVARSMENN norska knatt-
spyrnusambandsins hafa ákveðið að
refsa ekki landsliðsmönnunum Eirik
Bakke og Steffen Iversen vegna
fréttar sem birtist í Dagbladet á
dögunum. Þar tóku þeir félagar þátt
í bjórsmökkun og fengu sér danskan
snafs í tilefni þess að Norðmenn
mæta Dönum í undankeppni EM
hinn 7. júní á Parken í Kaupmanna-
höfn.
NILS Johan Semb, landsliðsþjálf-
ari Norðmanna, varð æfur er hann
sá myndir af þeim félögum bragða á
dönsku og norsku öli en vildi samt
sem áður ekki setja þá út úr lands-
liðshópnum.
FÓLK
Benedikt Rafn
Rafnsson
skrifar