Morgunblaðið - 31.05.2003, Page 60
60 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Frábær
rómantísk
gamanmynd
sem hefur
allstaðar
slegið
í gegn.
Sýnd kl. 8. B.i.14.
Sýnd kl. 4, 5, 7, 8 og 10. B. i. 12 ára.Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is
SV MBL
HK DV
SG Rás 2
Radio X
ÞÞ Frétta-
blaðið
ÓHT Rás 2
„Grípandi og gefandi með
óborganlega bardaga“
AF HVERJU HAGA
MENN SÉR EINS OG
STRÁKAR?
AF ÞVÍ ÞEIR GETA ÞAÐ
Sýnd kl. 4. Sýnd kl. 4 og 6.Sýnd kl. 10.05. B.i.12 ára.
Sýnd
í stóra
salnum
kl. 4, 7 og 10.
Kvikmyndir.is
Frábær
rómantísk
gamanmynd
sem hefur
allstaðar
slegið
í gegn.
KVIKMYNDIR.COM ÓHT Rás 2
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2. Tilboð 500 kr.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6 og 8.
KRINGLAN
Sýnd kl. 7.
KEFLAVÍK
kl. 3.45 og 8.
AKUREYRI
kl. 4 og 8.
Það borgar sig að
kynnast fólki vel áður
en þú ferð á blint
stefnumót á netinu.
Queen Latifahfer á
kostum og Steve Martin
slær í gegn í sinni
stærstu gamanmynd frá
upphafi!
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10.10. B.i. 14 ára
Kvikmyndir.is
KRINGLAN
kl. 5.30. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI
kl. 2 og 4. ísl. tal.
VILHJÁLMUR Bretaprins velti því
um tíma fyrir sér að hætta háskóla-
námi en segist nú njóta námsins í
Saint Andrew’s háskóla í Skotlandi
og segir fólk þar koma fram við
hann eins og hvern annan náms-
mann. Segist hann hafa gaman af
íþróttum og sé að reyna að læra að
tala swahili. Þetta kemur fram í
viðtali sem birt er í öllum helstu
fjölmiðlum í Bretlandi í gær en Vil-
hjálmur veitti viðtalið í tilefni af 21
árs afmæli sínu í næsta mánuði.
Hugsaði um að hætta
Vilhjálmur segir í viðtalinu að
hann hafi átt erfitt með að laga sig
að nýjum aðstæðum í Saint
Andrew’s sem er á Norðursjávar-
strönd Skotlands. Í fyrsta fríinu
hafi hann farið heim og rætt við
Karl Bretaprins, föður sinn, og velt
því fyrir sér hvort hann ætti að
snúa aftur. „Það hvarflaði að mér
að gefast upp og hætta,“ sagði
prinsinn. Hann sagði að faðir hans
hefði verið mjög skilningsríkur og
hann hefði þá gert sér grein fyrir
því að sennilega hefði Karl átt við
sömu vandamál að glíma í æsku.
„Við ræddum málin lengi og á end-
anum gerði ég mér grein fyrir því
að ég varð að snúa aftur.“
Vilhjálmur veitti viðtalið í þakk-
lætisskyni fyrir að breskir fjöl-
miðlar hafa að mestu látið hann í
friði fyrstu tvö árin sem hann hef-
ur stundað listasögunám við Saint
Andrew’s. Með viðtölunum fylgja
myndir af prinsinum í gallabuxum
á ströndinni eða nálægt kastala.
Gaman af krám
og kvikmyndum
Vilhjálmur er elsti sonur elsta
sonar Elísabetar Englandsdrottn-
ingar og er því næstur á eftir föður
sínum í erfðaröðinni eftir krún-
unni.
Vilhjálmur vildi ekki staðfesta
að hann ætti í ástarsambandi en
fjölmiðlar hafa bendlað hann við
dóttur ensks kaupsýslumanns. En
hann veitti ákveðna innsýn í einka-
líf sitt í skólanum þar sem hann
deilir íbúð með þremur öðrum
námsmönnum og hefur gaman af
kvikmyndum, krám, veitinga-
húsum og íþróttum, þar á meðal
sundbolta og golfi.
Hann segist vera að íhuga að
nema landafræði næstu tvö árin en
sé nú að reyna að læra swahili á
eigin spýtur. Það tungumál er m.a.
talað í Kenýu og Tansaníu.
„Það er sérkennilegt tungumál
en ég vildi læra eitthvað sérhæft.
Mér þykir mjög vænt um fólkið í
Afríku og vil læra meira um það og
geta talað við það,“ segir hann.
Þá segist hann hafa gaman af því
að kaupa inn og ísskápurinn hans
sé fullur af alls kyns matvörum
sem hann sé nýbúinn að kaupa.
Hann segir marga vini sína vera
góða kokka en sjálfur sé hann
gagnslaus matreiðslumaður.
Þegar hann er spurður um fram-
tíðina verða svörin hins vegar loð-
in. „Ég vil aðeins einbeita mér að
því að ljúka náminu hér. Ég hef í
sannleika sagt ekki hugsað um
hvað ég muni þá taka mér fyrir
hendur.“
Vilhjálmur Bretaprins tjáir sig við breska fjölmiðla um einkalífið, skólaárin og framtíðaráform
Einhleypur og lærir swahili
Reuters
Vilhjálmur prins segist hafa gaman af því að stunda íþróttir og útivist al-
mennt. Golf, póló og ruðningur eru þar ofarlega á lista hjá honum.
Reuters
Vilhjálmur var afslappaður og klæddist hversdagsklæðum er hann stillti
sér sérstaklega upp fyrir ljósmyndara vegna viðtalsins sem hann veitti
bresku blaðamönnunum í þakkarskyni fyrir friðinn sem hann hefur fengið.