Morgunblaðið - 05.06.2003, Síða 1

Morgunblaðið - 05.06.2003, Síða 1
STOFNAÐ 1913 151. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Ellefu verðlaun Annar keppnisdagur viðburðaríkur hjá okkar fólki á Möltu Íþróttir 3 Þið eruð hérna Tuttugu ára endurvakningu fagnað með frumsýningu Fólk 49 Árin í Hvíta húsinu Minningar Hillary Clinton um árin í Hvíta húsinu Erlent 16 HUGMYNDIR eru uppi um að reisa allt að 20 þúsund fermetra IKEA-verslun á Urriðaholti í Garðabæ næst Reykjanesbraut. Ef af verður yrði verslunin rúmlega tvöfalt stærri en núver- andi verslun IKEA í Holtagörðum. Jóhannes Rúnar Jóhannesson, framkvæmda- stjóri IKEA, segir fyrirtækið sífellt horfa fram í tímann með alla rekstrarþætti þess, þar með talið húsnæðisþörf fyrir komandi ár. „Við erum að skoða nokkra valkosti hvað það varðar sem okkur kann að standa til boða í framtíðinni, þar með talið í Garðabæ.“ Hann undirstrikar að engin ákvörðun hafi verið tekin að svo komnu máli um framhaldið. Þekkingarhúsið ehf., sem leigir um 80 ha. lands í Urriðaholti og hyggur á uppbyggingu hátæknigarðs, hefur í samráði við landeiganda, Oddfellow-regluna, sent inn erindi til bæjarráðs vegna málsins og óskað eftir að kannað verði hvort unnt sé að stækka skipulagssvæðið í Urr- iðaholti. Auk allt að 20 þúsund fermetra IKEA- verslunar á svæðinu næst Reykjanesbrautinni yrði gert ráð fyrir að þar rúmaðist svipað bygg- ingarmagn undir aðra verslun og þjónustu. Ein milljón gesta á ári „Af hálfu Þekkingarhússins yrði þetta mikill styrkur fyrir tæknigarðinn, bæði fjárhagslega og markaðslega,“ segir m.a. í bréfi forsvarsaðila Þekkingarhússins til bæjarráðs. Bæjarráð hef- ur vísað erindinu til umfjöllunar í skipulags- nefnd bæjarins. Í verslun IKEA í Holtagörðum kemur um ein milljón manns á ári og hefur aukningin verið stöðug frá því IKEA hóf starfsemi á Íslandi fyr- ir 22 árum. Jóhannes Rúnar segir að þættir eins og staðsetning, fjöldi bílastæða og þægileg að- koma þurfi sífellt að vera í endurskoðun.               Tvöfalt stærri IKEA-verslun rísi í Garðabæ  Verður tvöfalt stærri/17 GEORGE W. Bush Bandaríkja- forseti segist vera „varfærnislega bjartsýnn“ á að friðarsamningar takist í deilum Ísraela og Palest- ínumanna en hann átti fund með leiðtogum þeirra og Abdullah Jórdaníukonungi í Akaba-borg í Jórdaníu í gær. „Allir sem hér eru samankomnir deila nú sama markmiðinu: Skipta verður Land- inu helga milli ríkis Palestínu- manna og Ísraelsríkis, þau munu lifa saman í friði hvort við annað og í friði við allar þjóðir Mið-Aust- urlanda,“ sagði forsetinn á fund- inum í Akaba. Bush sagði í gær að hann hefði tjáð öryggisráðgjafa sínum, Condoleezzu Rice, og Colin Powell utanríkisráðherra að friður í Mið- Austurlöndum yrði „efst á dag- skrá“ í stefnu Bandaríkjastjórnar. Sjálfur myndi hann vera reiðubú- inn að grípa inn í ef allt væri komið í hnút og reyna að miðla málum. Bandaríkjamenn ætluðu að senda á vettvang eftirlitsfulltrúa undir stjórn háttsetts embættismanns í utanríkisráðuneytinu, Johns Wolfs, og myndu þeir fylgjast með því að ákvæði friðaráætlunar stór- veldanna, Vegvísisins, kæmu til framkvæmda. Tugþúsundir manna úr röðum landtökumanna gyðinga og stuðn- ingsmanna þeirra efndu til mót- mælafunda í Jerúsalem í gær- kvöldi og hrópuðu vígorð gegn Vegvísinum. „Ekkert Palestínu- ríki“ og „Engin hryðjuverk“ stóð á spjöldum göngumanna. Einn af talsmönnum landtökumanna sagði að Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sem lengi hefur verið tal- inn dyggur stuðningsmaður land- tökumanna, hlyti að vera genginn af vitinu vegna þess að Vegvísir- inn ógnaði sjálfri tilvist Ísraelsrík- is. Einn af ráðherrunum í sam- steypustjórn Sharons, Effie Eitam, tók þátt í mótmælunum. Bush forseti sagði í gær að Sharon hefði heitið því að leggja niður um- ræddar jaðarbyggðir og hann treysti því að ráðherrann stæði við þau orð. Palestínumenn eiga samkvæmt áætluninni að stöðva þegar hryðjuverk og aðrar árásir á Ísra- ela og hét Bush því í gær að Bandaríkjamenn myndu veita stjórn Mahmud Abbas, forsætis- ráðherra stjórnar Palestínu- manna, fjárstuðning til að efla op- inberar öryggissveitir. Hamas og fleiri herská samtök meðal Palest- ínumanna sökuðu í gær Abbas um svik og undanlátssemi gagnvart Ísraelum. Bush lofar nýju átaki til að koma á friði Landtökumenn segja Sharon genginn af göflunum ELIZABETH Jones, aðstoðarráðherra í mál- efnum Evrópu og Asíu í bandaríska utanrík- isráðuneytinu, kom til Íslands frá Madrid um miðnætti í nótt og mun hún eiga viðræður við íslenska ráðamenn í dag. Með henni í för er Ian Brzezinski, sem er varaaðstoðarráðherra í bandaríska varnarmálaráðuneytinu. Viðræðurnar fara fram í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu og fyrir Íslands hönd munu Davíð Oddsson forsætisráðherra og Halldór Ás- grímsson utanríkisráðherra auk helstu embætt- ismanna sem fara með varnarmál landsins taka þátt í þeim. Að sögn starfsmanns utanríkisráðu- neytisins markar þessi stutti fundur upphaf komandi viðræðna um framtíð varnarsamnings- ins við Bandaríkin. Þotum fækkað 1994 Viðræður um varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna vegna breyttra aðstæðna í heimsmálum hófust árið 1993. Í janúar 1994 var undirrituð bókun til tveggja ára um fram- kvæmd varnarsamstarfsins. Með henni var ákveðið að orrustuþotum varnarliðsins skyldi fækkað úr tólf í fjórar. Þá var ákveðið að leggja niður starfsemi hlustunarstöðvar og fjarskipta- stöðvar. Árið 1996 var samþykkt ný bókun um fram- kvæmd varnarsamningsins til næstu fimm ára. Þrátt fyrir að bókunin hafi einungis átt að gilda til ársins 2001 hafa formlegar viðræður um endurnýjun bókunarinnar enn ekki hafist. Óformlegar þreifingar um framhald málsins hafa hins vegar átt sér stað milli embættis- manna og stjórnmálamanna ríkjanna undanfar- in misseri. Dvöl Jones hér á landi verður stutt og fer hún af landinu síðdegis í dag. Bandaríska sendi- ráðið heldur utan um heimsókn Jones og kemur hún ekki sem gestur íslenskra stjórnvalda. Bandarískur ráðherra fundar með forsætis- og utanríkisráðherra í dag Upphaf komandi viðræðna um framtíð varnarsamstarfs  Áratugur viðræðna/Miðopna VÍSINDAMENN við Oxford-há- skóla segja að eldislax sem slepp- ur úr kvíum sé mun meiri ógnun við villta laxastofna en áður hafi verið talið. Hængarnir séu að vísu ekki jafnfrjósamir og villtir hæng- ar en eldishængarnir nái fyrr kyn- þroska og nái oft að frjóvga hrogn á undan villtum keppinautum. Skýrt er frá niðurstöðum rann- sókna Dany Garant og félaga hans í Oxford í næsta hefti tímaritsins New Scientist. Í ljós kom að eld- islaxinn var fjórum sinnum lík- legri til að frjóvga hrogn en villti laxinn. Fiskur af blönduðum stofni var auk þess tvöfalt líklegri til þess en villtur lax. Eldislaxinn ógnar villt- um stofnum París. AFP. LEIÐTOGARNIR á fundinum í Akaba-borg við Rauðahaf ganga í einni röð til fundar við blaða- menn í gær. Um 50 fréttamenn á staðnum urðu að sætta sig við að fá engin svör við spurningum sín- um, aðeins yfirlýsingu um að mikill árangur hefði orðið af viðræðunum. Frá vinstri eru Mahmud Abbas, þá George W. Bush, Ariel Sharon og Abdullah II Jórdaníukonungur. Reuters Eindrægni á leiðtogafundinum í Akaba Jerúsalem, Akaba. AFP, AP.  Sharon/12

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.