Morgunblaðið - 05.06.2003, Page 3
Vátryggingafélag Íslands hf.
er aðalstyrktaraðili verkefnisins.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
7
2
2
8
Þjóð gegn þunglyndi er samstarfsverkefni á vegum
Landlæknisembættisins með stuðningi
heilbrigðisráðuneytisins.
Á Íslandi þjást 12–15.000 manns
af þunglyndi á hverjum tíma. Þótt
þunglyndi sé mjög algengt gerir fólk
almennt sér litla grein fyrir eðli
sjúkdómsins og þar gætir oft mis-
skilnings. Þunglyndi er ekki merki um
dugleysi, ekki fremur en sykursýki eða of hár blóðþrýstingur, heldur
sjúkdómur sem getur lagst á alla, án tillits til atvinnu, aldurs eða
þjóðfélagsstöðu.
Vátryggingafélag Íslands hf. er aðalstyrktaraðili verkefnisins
Þjóð gegn þunglyndi – fækkum sjálfsvígum sem Landlæknisembættið
hefur nú ýtt úr vör. VÍS vill með þessu framtaki sínu leggja sitt á vogar-
skálarnar til að auka skilning almennings á málefninu, draga úr fordómum
í samfélaginu, styðja við fagfólk sem tengist málefninu og um leið að
bæta stöðu þeirra sem kljást við þennan erfiða sjúkdóm.
Hinn 16. júní n.k. verður haldinn borgarafundur í Smáralind þar
sem forvarnarverkefnið verður kynnt og bifreiðin V 553, sem er
Mercedes-Benz, árgerð 1958, boðin upp og mun andvirði bílsins
renna til verkefnisins Þjóð gegn
þunglyndi. Bifreiðin er lítillega
skemmd eftir umferðaróhapp og
er í eigu VÍS. Hún verður fyrst til
sýnis og síðan boðin upp í
Smáralind. Einnig verður hægt
að bjóða í bifreiðina á heima-
síðu VÍS, www.vis.is.