Morgunblaðið - 05.06.2003, Side 37

Morgunblaðið - 05.06.2003, Side 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2003 37 Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, VALDIMAR ÓSKARSSON frá Dalvík, Lækjasmára 2, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstu- daginn 6. júní kl. 13.30. Gerður Þorsteinsdóttir, Fjóla Valdimarsdóttir, Ómar Karlsson, Bjarnveig Pálsdóttir, Óskar Valdimarsson, Jónína Ólafsdóttir, Snjólaug Valdimarsdóttir, Jón Hreinsson, Einar Valdimarsson, Elín Theódórsdóttir, Aðalsteinn Valdimarsson, Sigurbjörn Valdimarsson, Jónína Ólafsdóttir, Lilja Valdimarsdóttir og fjölskyldur. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁSLAUGAR SVÖVU INGIMUNDARDÓTTUR, Heiðargerði 29. Fyrir hönd barnabarna og barnabarnabarna, Ásgeir Guðmundsson, Guðlaug Þórdís Guðmundsdóttir, Magnús Matthíasson, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, Guðný Guðmundsdóttir, Hermann Guðmundsson, Flosi Guðmundsson, Svavar Guðmundsson. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR SIGURÐSSONAR frá Hólmaseli. Jóhanna Gústafsdóttir, Vilhjálmur Arnar Ólafsson, Birgitta Elínrós Antonsdóttir, Sigurður Guðmundsson, Unnur V. Guðlaugsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Eiríkur Ingi Sigurjónsson, Anna Pálína Guðmundsdóttir, Gunnar Sigurðsson, Svandís Guðmundsdóttir, Jón Ásbjörn Grétarsson, Jóna Heiðdís Guðmundsdóttir, Þorbjörn Sigurðsson, Kristrún Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför BÖÐVARS KRISTJÁNSSONAR, Kirkjuhvoli, Hvolsvelli. Aðstandendur. ✝ Kristrún Krist-jánsdóttir fædd- ist í Hafnarfirði 8. apríl 1947. Hún lést á líknardeild Landspít- alans í Kópavogi 28. maí síðastliðinn. Fað- ir hennar var Krist- ján Úlfarsson bifvéla- virki, f. 17.10. 1921, d. 3.11. 1989. Móðir hennar er Margrét Sigurðardóttir hús- móðir, f. 31.12. 1923. Kristrún bjó í Hafn- arfirði til 8 ára ald- urs en þá flutti hún í Kópavoginn. Hún var elst fjög- urra systkina. Þau eru: 1) Sigurð- ur, f. 5.2. 1951, kvæntur Áslaugu Sverrisdóttur, f. 13.5. 1959, og eiga þau þrjú börn: Margréti Hlín, f. 1981, Einar Sverri, f. 1982, og Svanhvíti, f. 1988. 2) Svanhvít, f. 9.5. 1952, gift Guttormi Rafnkels- syni, f. 11.1. 1949. Sonur þeirra, Rafnkell, f. 1970, á einnig son, Helga Rafn, f. 2000. 3) Leifur, f. 29.5. 1959, kvæntur Aðalheiði Bjarnadóttur, f. 29.2. 1960, og eiga þau þrjú börn, Bjarna Krist- ján, f. 1978, Erlu Margréti, f. 1983, og Leif Andra, f. 1989. Kristrún giftist 28. maí 1966 eftirlifandi eiginmanni sínum, Viggó Emil Magnússyni, slökkvi- liðsmanni og húsasmíðameistara, f. 8.4. 1946. Foreldrar hans voru Magnús Jensson loftskeytamaður, f. 17.2. 1903, d. 18.4. 1984, og Sæunn Þor- leifsdóttir húsfrú, f. 24.10. 1909, d. 17.1. 1981. Kristrún og Viggó hófu sinn bú- skap í Hafnarfirði en tveimur árum síðar fluttu þau til Reykja- víkur og hafa búið þar síðan. Þau eign- uðust þrjár dætur, þær eru. I) Margrét Hrönn kerfisfræð- ingur, f. 2.11. 1965, gift Kristni Á. Krist- inssyni vélatækni- fræðingi, f. 9.4. 1966, og eiga þau þrjár dætur: Sunnu Ósk, f. 25.9. 1984, Nönnu Margréti, f. 4.12. 1993, og Tinnu Kristínu Indiönu, f. 16.2. 2000. II) Berglind Fríða hárgreiðslumeistari, f. 18.1. 1968, hún á þrjá syni: Viggó Emil, f. 23.7. 1988, Ingva Hrafn, f. 29.7. 1992, og Kristófer Daða, f. 21.11. 1998. III) Sæunn Svanhvít fim- leikaþjálfari, f. 30.7. 1980, hún á eina dóttur, Sóleyju Margréti, f. 6.6. 2002. Eftir hefðbundna skólagöngu í Kópavogsskóla starfaði Kristrún á ýmsum stöðum þar til hún hóf störf hjá Vélstjórafélagi Íslands árið 1975 og starfaði hún þar til dauðadags. Útför Kristrúnar verður gerð í dag frá Hafnarfjarðarkirkju og hefst athöfnin klukkan 15. Ástkær dóttir mín, Kristrún, hefur kvatt þetta líf, langt um aldur fram. Eftir áralanga baráttu við banvænan sjúkdóm varð hún að lúta í lægra haldi. Barátta hennar var einstök, hún reyndist þar sönn hetja. Af mörgu góðu er að taka, ef ég ætti að telja allt sem við höfum átt saman. Ég vil því aðeins færa henni mína ást- kæru móðurkveðju og óska henni guðsblessunar á ókunnum brautum og þakka henni allt og allt. Svo bið ég góðan guð að styrkja okkur aðstand- endur hennar í sorg okkar. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. Sveinbjörn Egilsson.) Mamma. Krissa mín, þessu stríði er lokið. Mikið hefur verið á þig lagt undan- farna mánuði en þú tókst þessu öllu af hetjuskap. Baráttan var ekki tekin neinum vettlingatökum frekar en fyrri daginn. Þú varst búinn að vera veik í mörg ár en yfirleitt það hress og kát að fáir vissu hvað var að gerast hjá þér. Þú hefðir átt skilið lengri tíma til að gera allt sem þig langaði að gera og mér verður hugsað til sum- arbústaðarins sem þið Viggó fenguð ykkur í fyrra. Eflaust hefðir þú verið óstöðvandi í framkvæmdum þar sem annars staðar. Þú náðir samt að skreppa þangað fyrir stuttu og njóta kyrrðarinnar í sveitinni. Ég kynntist þér fyrir þrjátíu árum þegar ég fór að vera með Sigga bróð- ur þínum. Þú varst nú ekki mjög hrif- in að þessu 15 ára stelputrippi. En við kynntumst smám saman og áttum margar góðar stundir í gegnum árin. Ekki vorum við alltaf sammála um alla hluti enda báðar jafn þverar og þrjóskar en það var ekkert verra, því það hleypir bara fjöri í tilveruna. Það er svo skrítið að vera að skrifa hinstu kveðju til þín og ég er að reyna að vera nú ekki of væmin því þú hefðir ekki viljað neitt vol og væl. Það er bara svo erfitt þegar maður hugsar um fjölskyldu þína alla sem hefur misst svo mikið. Þau hafa staðið við hlið þér í þessum hremmingum öllum og ég veit að þau eru hetjurnar þínar. Við Siggi og börnin þökkum þér sam- veruna í þessu lífi. Fullviss um að við hittumst aftur og tökum upp þráðinn þar sem frá var horfið. Elsku Viggó, Magga, Linda, Sæ- unn og fjölskyldur, þið eigið alla mína samúð og virðingu. Svana, Siggi og Leifur, þið hafið líka misst mikið. Krissa var alltaf stóra systir sem hafði ráð undir rifi hverju. Svana hef- ur líka sýnt það að hún mat systur sína mikils, hefur varla vikið frá henni síðustu vikur og mánuði. Elsku tengdamamma, höggið er þungt og ég bið þess að góður Guð hjálpi ykkur öllum að horfa fram á veginn. Minningin lifir. Áslaug. Elsku systir, nú ertu horfin frá okkur með miklum söknuði. Frá því ég man eftir mér varst þú hetja í mín- um augum. Mér fannst ekkert hægt að gera nema þú værir nálægt. Ég man þá daga þegur þú kynntist manninum þínum, Viggó, þá kom sú stund að þú fluttir að heiman. Þá fannst mér öllu lokið því mér fannst heimilið ekki geta án þín verið, þannig leit ég alltaf upp til þín, elsku stóra systir. Þú varst hrókur alls fagnaðar hvar sem þú varst og alltaf dreifstu hlutina af og munaði ekkert um það og taldir ekkert eftir þér, það var bara drifið í hlutunum. Ég man þá stundir sem við prjónuðum og saum- uðum saman á börnin okkar, þær voru ekki fáar. Það er ekki lengra síð- an en um jólin sem við vorum að sauma jólaföndur þó veik þú værir. Þetta eru ógleymanlegar stundir. Og allar veislurnar sem þú varst búin að hrista fram úr ermunum voru glæsi- legar og allt heimatilbúið, bæði matur og skreytingar. Og þið Viggó voruð búin að gera ykkur og dætrunum fal- legt heimili. Öll þessi ár sem þú varst búin að vera veik stóðst þú þig eins og hetja, bæði í vinnunni og heima. Aldr- ei kvartaðirðu eða vildir láta hafa fyr- ir þér, þó mikið veik værir, þú ert hetja. Ég kveð þig, elsku systir, með miklum söknuði. Guð geymi þig. Elsku Viggó, Magga, Linda, Sæ- unn og fjölskyldur. Ykkur votta ég dýpstu samúð mína. Svana. Nú hefur Krissa yfirgefið þennan heim, hún var móðir bestu vinkonu okkar og amma hennar Sóleyjar litlu. Þegar við vinkonurnar fórum að venja komur okkar inn á heimili Sæ- unnar í Heiðarásnum fundum við strax fyrir væntumþykju og hlýju í okkar garð. Krissa var ein af þessum mann- eskjum sem hélt verndarhendi yfir dætrum sínum og fjölskyldum þeirra. Barnabörnin voru henni mikilvæg enda eyddu þau ófáum stundum í Heiðarásnum. Hún var oftar en ekki tilbúin til að skutla okkur stelpunum hvert sem var og hvenær sem var og þær voru ófáar stundirnar sem hún gaf sér tíma til að spjalla við okkur um allt milli himins og jarðar. Krissa bar veikindi sín með reisn og þrátt fyrir hrakandi heilsu hélt fjölskyldan útskriftarveislu fyrir Sæunni um síð- ustu jól. Falleg, geislandi og stolt stóð Krissa við hlið dóttur sinnar sem komin var með stúdentspróf uppá vasann og samgladdist henni inni- lega. En áfram hélt alvara lífsins og við tóku erfiðir og sársaukafullir mán- uðir. Elsku Sæunn, Sóley litla og fjöl- skylda, missir ykkar er mikill. Megi Guð umvefja ykkur af kærleika sínum og styrk. Okkar dýpstu samúðar- kveðjur sendum við þér og fjölskyldu þinni. Þínar vinkonur, Björk, Unnur Eir og Unnur Ylfa. Krissa, eins og hún var alltaf köll- uð, hóf störf hjá Vélstjórafélagi Ís- lands á árinu 1975. Í upphafi var um skammtímaráðningu að ræða en sá skammi tími hefur enst í um 28 ár. Á vinnustað þar sem lengst af voru 4 starfsmenn segir það sig sjálft að það eru engin glögg skil á milli starfa hvers og eins. Allir verða að kunna skil á þeim verkefnum sem þarf að leysa úr á hverjum tíma. Með árunum þróaðist starf Krissu í að hafa yfirum- sjón með innheimtu félagsgjalda, sem var hennar aðalstarf hin síðari ár. Þótt það væri aðalstarfið þá gekk hún í öll þau störf sem þarf að sinna hjá einu stéttarfélagi. Við sögðum það gjarnan á skrifstofunni að ef komu upp einhver mál sem þurfti að leysa úr helst í gær þá var það verkefni Krissu því enginn var fljótari til og til- búnari til þess að leysa málin hvort sem það var í vinnutímanum eða utan hans. Alltaf var hægt að leita til Krissu sem hafði ráð undir rifi hverju og fyrst og síðast löngunina til þess að leysa hvers manns vanda á besta mögulega hátt og þá voru sporin ekki spöruð. Þegar ég hóf störf hjá Vélstjóra- félagi Íslands hafði ég þann sið að hlaupa í hádeginu á gamla Melavell- inum. Einhverju sinni voru staddir fé- lagsmenn hjá mér í hádeginu, við vor- um að ræða saman og klukkan langt gengin í eitt. Krissa vissi sem var að ég gæti ekki rekið mennina út þó að ég vildi nýta matartímann í annað. Þá opnuðust dyrnar hjá mér nokk- uð skyndilega og í dyrunum stóð Krissa og sagði með nokkrum þjósti við mig: „Helgi ertu búinn að gleyma fundinum sem þú áttir að vera á í há- deginu?“ Þar með risu gestirnir úr sætum sínum og kvöddu enda er- indinu lokið fyrir löngu. Þannig var hún Krissa. Hún vildi öllum liðsinna hvort sem hún var um það beðin eða ekki. Fyrir um 10 árum síðan veiktist Krissa af þeim sjúkdómi sem hafði að lokum betur í því stríði. Á þessu tíma- bili fór hún í marga og erfiða með- alakúra sem reyndu mjög á hana og tóku mikið þrek. En alltaf mætti Krissa í vinnuna sína um leið og hún hafði þrek til þess. Ég minnist þess að fyrir rúmu ári síðan var mjög af henni dregið og ég hafði samband við lækn- inn hennar til þess að fá nánari upp- lýsingar um hana og hvenær við gæt- um átt von á henni til vinnu aftur. Hann sagði að hún þyrfti að hvíla sig í að minnsta kosti þrjár vikur, vera bara heima og taka því rólega. Það átti nú ekki við hana Krissu, hún var mætt til vinnu sinnar eftir nokkra daga. Ég spurði hana hvort hún þyrfti nú ekki að vera lengur heima og hvíla sig en vildi ekki að hún vissi að haft hefði verið beint samband við lækninn hennar. Hún hélt nú síður hún væri orðin hress og fullfær um að hefja störf að nýju sem hún og gerði. Það væri einfaldlega ekkert betra fyrir sig að hanga ein heima yfir ekki neinu, það væri örugglega mun betra fyrir sig og heilsuna að vera í vinnunni og blanda þar geði við aðra og taka þátt í því sem var að gerast á hverjum tíma. Með Krissu er genginn afburða starfsmaður langt um aldur fram. Einstaklingur sem gekk til allra verka hvort sem það var að taka til, hella upp á kaffi, fara í verslunarleið- angur eða sitja yfir tölvunni. Einstak- lingur sem þoldi ekki tvöfeldni, kom ætíð til dyranna eins og hann var klæddur. Sagði mönnum til syndanna ef hann taldi þess þörf og hrósaði ef tilefni var til þess. Einstaklingur sem hafði ótvíræða forystuhæfileika; átti létt með að laða aðra að sér og starfa með öðrum. Við leiðarlok þökkum við Krissu fyrir allar samverustundirnar, bæði í vinnunni og utan hennar og biðjum henni blessunar á nýjum vettvangi. Við biðjum algóðan Guð að veita eig- inmanni, börnum og barnabörnum líkn í sorginni. F.h. stjórnar og starfsfólks Vél- stjórafélags Íslands Helgi Laxdal. Krissa er dáin. Ég heyri þessi orð í höfðinu á mér en þau eru eitthvað svo óraunveruleg. En baráttu þinni við þennan hræði- lega sjúkdóm er loks lokið og ég veit þér líður betur þar sem þú ert núna. Mér finnst svo stutt síðan við Sæunn vorum litlar, suðandi í þér og mömmu um að fá að gista saman. Vorum við þá oft á pallinum hjá þér með tónlist- ina í botni, semjandi fimleikadansa. En þú kvartaðir ekkert yfir látunum í okkur og tókst mér alltaf mjög vel. En nú hefurðu kvatt þennan heim og heilsað nýjum. Það verður skrýtið að fara í fjölskylduboð og sjá þig ekki þar. Elsku Viggó, Magga, Linda, Sæ- unn og fjölskyldur, amma, Svana, Leifur og pabbi, mínar innilegustu samúðarkveðjur. Megi Guð veita ykk- ur styrk á þessum erfiða tíma. Margrét Hlín. KRISTRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Kristrúnu Kristjánsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.