Morgunblaðið - 05.06.2003, Qupperneq 51
Í HEFÐBUNDNUM glæpamyndum
endar sagan á þann veg að góði mað-
urinn hreppir fögru snótina og vondi
kallinn er sendur í fangelsi. En hvað
gerist eftir það?
Einmitt það er viðfangsefni þáttar-
ins Öryggisfangelsið („Oz“) sem
sýndur er á Stöð 2.
Þættirnir eru enn ein fjöðrin í hatt
HBO-sjónvarpsstöðvarinnar sem
framleiðir þættina sem hófu göngu
sína 1997. Í þáttunum er sagt frá lífi
vistmanna í hrottalegu fangelsi þar
sem margir eiga ekki afturkvæmt eft-
ir að þeir eitt sinn ganga inn fyrir
fangelsismúrana.
Að sögn Tom Fontana, höfundar
þáttanna, var markmið hans með
þáttunum að sýna fangana sem per-
sónur, en ekki aðeins sem nafnlaus
andlit í fjöldanum. Þættirnir eru upp-
fullir af grófu ofbeldi, en Fontana
leggur áherslu á að sýna ofbeldið ekki
sem afþreyingu, heldur sem hrylling.
Það gengur líka ekki á litlu þegar
saman eru komnir sálsjúkir morð-
ingjar í samfélagi þar sem vargur ét-
ur varg. Í fangelsinu myndast klíkur
sem berjast um yfirráðin í fangelsinu:
írska klíkan, rómanska klíkan, músl-
ímska klíkan og fleiri, tönn er goldin
með tönn og auga fyrir auga. Til að
auka einn á flækjuna eiga tukthúslim-
irnir í kynferðislegum samböndum
sín á milli.
Margt góðra leikara prýðir þáttinn,
en sviðsljósið er oftast nær á Christ-
opher Meloni í hlutverki Chris Keller
sem sjónvarpsáhorfendur kannast
einnig við úr þáttunum Lög og regla
(„Law and order“).
Ömurlegt fangelsislífið
Það er ekki tekið út með sældinni að sitja í steininum.
Öryggisfangelsið er á dagskrá
Stöðvar 2 kl. 22.10 á fimmtudögum.
VEÐUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2003 51
!
! "#$ %
#" & #'
!"#$ ! %
)
)
)
&
( % ! ( (
% &
( % &'())*+
& $ *'
,-.++ & +- (
/(#. $
+( ( ( ( ( ! %
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
*+" " ## " ,,-#" !" #'" ."
#/ . 0
(& 0##,,-#" !" #')
-#"!" (
! )* 0 1233 $ ,.
"#$%&'#
" (
)
"#&*'
+(
) ,
-
# +(
-
-
. / %0 #! +(
0 1233 $ .4 $+ $%
12"",,-#" + !& #'(
56 -( 56 -( 56 -(
-70!8$0
9(#.8$0
0(-7
.++ 0!(:4! # ;7-#
<((0
<++++( >&+?#
9-.-#
@+ ()%##
3-
/ 3! ." ##'
3-
3-
/'
03-
03-
4!3
3-
3-
00&%(
A-+#0
(: +. #, $+
%+ #0( A%: 9-$#
$#
.8-
3-
3-
"#(.(3(
3-
3-
03-
3-
03-
3-
;.
+ 9C-#
;C
&%
-#-7! D##)-.
;# A <-B
6C.
#,
03-
03-
3-
4!3
3.
3.
3.
03-
"##"
3-
3-
(##(,.(
5! #6%#! #)
# ## " "(1
3!".'"3/ #(
7## '. "##" 3/ (
*$ 2.(
;*#(,.( . F!(,.(
8 "$ 2"!"3/
#'(*$ 2.(
! ?+ (,.( . (.,.(
5! #6%#! #
!" #'# )# ##
" (903- # #')#
## 3- !"3/ "##"
3(*") -
#(
11/
%23/
"#$
""$
%$
&$ "'$
%$
&$
"($
"'$
"($
&$
UM ÞESSAR mundir dveljast 129
íslenskir íþróttamenn á Möltu og
keppa við liðsmenn sjö annarra smá-
þjóða í ýmsum íþróttagreinum.
Leikarnir hófust á mánudag og
munu standa fram á laugardag.
Íþróttadeild Ríkissjónvarpsins gerir
helstu viðburðum dagsins skil á
hverju kvöldi, í stundarfjórðungs-
löngum samantektum sem sjónvarp-
að er á hverju kvöldi út vikuna. Sam-
antektirnar eru síðan endursýndar
næsta dag.
Á leikunum keppa Kýpverjar,
Mónakóbúar, Lichtensteinbúar,
Lúxemborgarar, Andorrabúar og
Maltverjar auk Íslendinga en keppt
er í fjölda hefðbundinna ólympískra
greina, s.s. skotfimi, tennis, sund-
íþróttinni og ýmsum boltaíþróttum,
svo nokkuð sé nefnt.
Lið Íslendinga hefur hingað til
staðið sig með ágætum á smáþjóða-
leikunum og verður gaman að fylgj-
ast með hvort árangurinn verður
ekki að sama skapi góður í ár, en
þegar hefur íslenska liðið landað
nokkrum verðlaunapeningum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Íslenska liðinu hefur gengið ágætlega til þessa. Hér fagnar Erla Haralds-
dóttir (í bláu) fyrsta gulli sínu á leikunum.
Okkar menn á Möltu
Samantekt á Smáþjóðaleikunum á
Möltu er á dagskrá Sjónvarpsins kl.
22.20 í kvöld og endursýnd 16.30 á
morgun. Þættirnir eru á svipuðum
tímum út vikuna.
ÚTVARP/SJÓNVARP
ÞEIM sem misstu af þættinum Af
fingrum fram þar sem Jón Ólafsson
ræddi við KK fá í kvöld annað tæki-
færi, og fastlega það síðasta í bili
a.m.k., til þess að sjá hann.
KK er tvímælalaust einn dáðasti
tónlistarmaður þjóðarinnar um þess-
ar mundir og gaf út eina af sinni
betri plötum fyrir síðustu jól, Para-
dís. Þótt manni virðist hann alltaf
hafa verið til staðar, þá er rétt ríflega
áratugur síðan hann flutti heim og
hóf að gefa út plötur. Það tók hann
hins vegar undraskjótan tíma að
vinna hug og hjörtu landans, fyrst
með sjóðheitu blúsrokki en nú á
seinni árum með lágstemmdari tón-
list í anda vísna- og sveitatónlistar,
einn eða með félaga sínum, Magnúsi
Eiríkssyni.
EKKI missa af…
…KK af fingrum fram
Af fingrum fram er endursýndur í
Sjónvarpinu kl. 23.35.