Morgunblaðið - 06.06.2003, Síða 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LEXUS N†B†LAVEGI 6 SÍMI 570 5400 WWW.LEXUS.IS
Nota›ir bílar
Porsche 996 carrera 2
Fyrst skrá›ur: 07/2000
Ekinn: 14.700 km
6 gíra beinskiptur, „Aero spoilerkit“, le›ur,
18" felgur, loftkæling, sóllúga ofl.
Ver› 7.900.000 kr.
Uppl. hjá Lexus í síma 570 5400.
Til sölu
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
2
13
84
06
/2
00
2
ÍSTAK og Íslenskir aðalverktakar
(ÍAV) áttu lægsta tilboðið í bygg-
ingu stöðvarhúss Kárahnjúkavirkj-
unar í Fljótsdal en tilboð í verkið
voru opnuð í gær. Þetta var í fyrsta
sinn sem fyrirtækin tvö taka saman
þátt í útboði en að tilboðinu stóðu
jafnframt tvö erlend fyrirtæki,
Hochtief frá Þýskalandi og Pihl &
Sön frá Danmörku, og nefndist
hópurinn Fosskraft JV. Tilboð
hópsins hljóðaði upp á 8,6 milljarða
króna og var um milljarði lægra en
tilboð þýska fyrirtækisins Bilfinger
Berger AG. Ítalska fyrirtækið
Impregilo, sem sér um gerð stíflu
og aðrennslisganga virkjunarinnar,
átti hins vegar hæsta tilboðið, 15,3
milljarða.
Öll tilboðin í gerð stöðvarhússins
voru yfir kostnaðaráætlun Lands-
virkjunar sem gerði ráð fyrir kostn-
aði upp á 6,5 milljarða króna.
Tilboð einnig opnuð í
fallgöng og vél- og rafbúnað
Tilboð voru að auki opnuð í tvo
aðra verkþætti virkjunarinnar, vél-
og rafbúnað annars vegar og stál-
fóðrun fallganga hins vegar. Lands-
virkjun óskaði eftir að bjóðendur
skiluðu inn tveimur útfærslum á til-
boðum í byggingu stöðvarhússins
og einnig í stálfóðrun fallganganna
en útfærslur voru ólíkar eftir því
hvort fallgöngin eru lóðrétt eða
hallandi. Við útboð í vél- og rafbún-
að virkjunarinnar skiluðu hins veg-
ar öll fyrirtæki frávikstilboðum.
Tilboð í stálfóðrun fallganga voru
flest á sama bili en austurríska fyr-
irtækið VA Tech Hydro og Mont-
avar frá Slóveníu áttu lægstu til-
boðin, um 2,9 milljarða króna.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, tók
fram í samtali við Morgunblaðið að
í ýmsum tilboðum hefðu verið frá-
vik og tilboð um afslátt. Fara þyrfti
ofan í þær hugmyndir og þau atriði
sem fyrirtækin byggðu á áður en
ákvörðun yrði tekin um hvaða til-
boðum yrði tekið. Sama ætti við um
tilboð í vél- og rafbúnað en þar
gæti hönnun vélanna, ending þeirra
og afköst skipt máli og haft þau
áhrif að lægsta tilboðið yrði ekki
fyrir valinu.
Sameiginlegt tilboð frá General
Electric í Noregi og Kanada og til-
boð frá Alstom Power í Svíþjóð
reyndust lægst í vél- og rafbúnað
en bæði tilboðin voru um 6,8 millj-
arðar króna. Eiginlegt tilboð Gen-
eral Electric var upp á 7,3 millj-
arða en fyrirtækið bauð afslátt
þannig að endanlegt tilboð varð
jafnhátt tilboði sænska fyrirtæk-
isins.
Þorsteinn sagði að fjárhagsáætl-
un Landsvirkjunar vegna útboð-
anna stæðist í heildina. Lægsta til-
boð í byggingu stöðvarhússins væri
að vísu tveimur milljörðum hærra
en gert hafði verið ráð fyrir en á
móti kæmi að lægsta tilboð í vél- og
rafbúnað væri tveimur milljörðum
lægra en kostnaðaráætlun kveður á
um. Landsvirkjun myndi nú yfir-
fara tilboðin og að því loknu yrði
endanleg ákvörðun tekin.
Tilboð í stöðvarhús Kárahnjúkavirkjunar opnuð í gær
Ístak og ÍAV saman
með lægsta tilboð
Morgunblaðið/Golli
Fulltrúar Landsvirkjunar sjást hér opna eitt þeirra tilboða sem bárust. F.v.
Örn Marinósson, Þorbergur Halldórsson, Björn Stefánsson og Agnar Olsen.
!"#$
%!"&'&((
!)*+
(&
!
"
#$ !
! %&'
( )
*
+ +*, &''
- !
.)
! /)
$ 0%&12!
-134
$
&
424
!
$ 0%&5%&
62-1 !
755
28,
'29 ,
5%
%4!
% :!
;'
'! )<=/>
0&
-4
#
.
=
>
?@
?@
A B
C B
%,
,
D D
D
B C
B C
D
-,-
A
C
%,
A
A
,
*
>EF B C
B B
D
*
„ÞETTA hefði getað farið mjög illa
en ég slapp vel og verð vonandi
ekki frá vinnu í meira en þrjá mán-
uði,“ segir Þorleifur Gíslason fjall-
göngumaður sem féll í klettum í
Kýrdal í Hengli fyrir viku með þeim
afleiðingum að hann hryggbrotnaði
og fótbrotnaði.
Þorleifur var á ferð með tveimur
félögum sínum í góðu veðri að
kvöldi uppstigningardags, þegar
slysið varð. „Við vorum í göngutúr
og vorum á leið yfir bjarg þegar ég
missti handfestuna og hrapaði eina
sex til sjö metra. Ég lenti á klettum
í hlíðinni, valt síðan aðeins áfram en
stöðvaðist á milli syllu og kletts.
Hefði ég ekki stöðvað þarna hefði
ég oltið um fjóra metra í viðbót en
síðan var um 20 metra brekka nið-
ur í dalbotninn. Strákarnir hjálpuðu
mér upp á sylluna og þar þurfti ég
að bíða í um klukkutíma eftir að-
stoð, en þyrlan kom um tveimur
tímum eftir slysið.“
Gerði allt rétt
Að sögn Þorleifs var þetta slys
sem hefði getað komið fyrir alla.
„Við gerðum allt rétt, en slysin
gera ekki boð á undan sér. Við vor-
um þrír á ferð, svo einn gæti verið
hjá slösuðum manni og annar farið
eftir hjálp ef á þyrfti að halda, vel
útbúnir og vanir. En svo gerist
þetta allt í einu og biðin eftir þyrl-
unni var vægast sagt erfið, þó
sjúkraflutningamenn hafi búið vel
um mig á bretti. Mér var kalt og
mér leið illa.“
Þorleifur er 24 ára og hyggur á
nám í rafmagnstæknifræði við
Tækniháskólann í haust, en segir að
slysið hafi sett strik í reikninginn.
„Ég ætlaði að vinna svo ég þyrfti
ekki að taka lán vegna námsins en
það verður ekkert um vinnu í sum-
ar.“
Fjallgöngumaður verður frá vinnu í þrjá mánuði vegna slyss
Hefði getað
farið mjög
illa en ég
slapp vel
Morgunblaðið/Kristinn
Þorleifur Gíslason fjallgöngumaður hefur verið á bæklunardeild Landspít-
ala – háskólasjúkrahúss í rúma viku en fer heim í dag.
LÖGREGLAN í Reykjavík rann-
sakar nú eitthvert umfangsmesta
barnaklámsmál sem komið hefur
til kasta lögreglu hér á landi. Við
húsleit hjá tæplega fertugum karl-
manni fann lögreglan á fjórða
hundrað myndbandsspólur, yfir
200 DVD-mynddiska og tvær tölv-
ur sem innihéldu klámmyndir í
tugþúsundatali. Rannsóknarlög-
reglumenn hafa ekki komist yfir
að kanna allt efnið en meginhluti
þess virðist vera barnaklám. Á
nokkrum myndbandsspólum sést
maðurinn í kynferðislegum athöfn-
um með ungmennum en ekki hefur
verið skorið úr um hvort þau séu
undir lögræðisaldri.
Reyna að hafa uppi
á ungmennunum
Hörður Jóhannesson yfirlög-
regluþjónn segir að ábending hafi
borist til embættisins um að
ákveðinn aðili hafi á spjallrásum á
Netinu reynt að tæla til sín börn
og unglinga. Málið var kannað og í
síðustu viku var maðurinn hand-
tekinn og jafnframt gerð húsleit á
heimili hans. „Í fórum hans fannst
óhemju magn sem við teljum að sé
að mestum hluta barnaklám en
það á eftir að rannsaka nánar,“
segir Hörður.
Á nokkrum myndbandsspólum
eru upptökur af manninum þar
sem hann sést eiga í kynferðisleg-
um athöfnum, ekki þó samförum,
með ungmennum en Hörður segir
að ekki hafi verið leitt í ljós hversu
gömul þau voru þegar upptökurn-
ar voru gerðar. Sumar upptökurn-
ar séu nokkurra ára gamlar og því
ljóst að hugsanlegt brot hafi staðið
í nokkur ár. Reynt verður að ná
sambandi við ungmennin sem mað-
urinn hefur hugsanlega brotið
gegn.
Aðspurður segir Hörður að
þetta sé umfangsmesta barna-
klámsmál sem komið hefur til
kasta lögreglu hér á landi, sé litið
til þess mikla magns sem lagt var
hald á. Við yfirheyrslur játaði
maðurinn að eiga myndefnið og
hafa safnað því. Brot mannsins eru
því upplýst að þessu leyti. Mynd-
unum á tölvunum hlóð hann niður
af Netinu en Hörður segir að tölv-
urnar hafi verið „yfirfullar“ af
klámefni. Spólurnar og mynd-
diskana hafi hann orðið sér úti um
með ýmsu móti. Ekki leikur grun-
ur á að maðurinn hafi stundað
dreifingu á barnaklámi. Varsla
barnakláms varðar allt að 2 ára
fangelsi samkvæmt almennum
hegningarlögum.
Umfangsmesta
barnaklámsmál sem
komið hefur upp
PERSÓNUVERND hefur úrskurð-
að að dómsmálaráðuneytinu hafi
verið óheimilt að miðla upplýsingum
um meðlim í Falun Gong til Flug-
leiða og sendiráða Íslands í því skyni
að hindra komu hans til landsins.
Viðkvæmar
upplýsingar
Að mati Persónuverndar höfðu
skrár um félagsmenn í Falun Gong
að geyma viðkvæmar persónuupp-
lýsingar í skilningi laga þótt gerð
slíkra skráa og frekari notkun þeirra
geti verið lögmæt. Þá vitnar Per-
sónuvernd í reglugerð um meðferð
persónuupplýsinga hjá lögreglu um
að dreifing lögreglu á upplýsingum
til annarra stofnana og einkaaðila sé
henni heimil sé hún nauðsynleg til
þess að koma í veg fyrir alvarlega og
aðsteðjandi hættu á röskun á
allsherjarreglu og öryggi.
Varðandi tengsl dómsmálaráð-
herra og lögreglu segir í úrskurði
Persónuverndar að í 4. gr. lögreglu-
laga segi að dómsmálaráðherra sé
æðsti yfirmaður lögreglunnar í land-
inu og að ríkislögreglustjóri fari með
málefni lögreglu í umboði hans. Í 9.
gr. laganna sé hins vegar talið upp
hverjir séu handhafar lögregluvalds
og er dómsmálaráðherra ekki þeirra
á meðal. Að mati Persónuverndar
verður ákvæðið ekki túlkað þannig
að dómsmálaráðherra hafi sömu
heimild og lögregla hefur til vinnslu
og miðlunar persónuupplýsinga. Því
fellst Persónuvernd ekki á að dóms-
málaráðherra, og þar með dóms-
málaráðuneytið, hafi haft heimild til
þess að miðla til Flugleiða upp-
lýsingum um lífs- eða stjórnmála-
skoðanir félaga í Falun Gong í þeim
tilgangi að hindra komu hans til
landsins.
Úrskurður Persónuverndar
Óheimilt að miðla
upplýsingum