Morgunblaðið - 06.06.2003, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 06.06.2003, Blaðsíða 36
✝ Hilmar ÓlafurSigurðsson fædd- ist í Reykjavík 26. nóvember 1924. Hann andaðist á Landspít- alanum við Hring- braut hinn 30. maí síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Gústaf Sigurbjarnarson, f. 28. júlí 1901, d. 25. okt. 1971, og Klara Ólafía Benediktsdótt- ir, f. 31. júlí 1905, d. 23. júní 1934. Kjörfor- eldrar Hilmars voru Sigurður Guðmunds- son bóndi á Kambi í Holtum f. 11. mars 1902, d. 27. mars 1967, og El- ísabet Guðnadóttir húsfreyja, f. 7. ágúst 1902, d. 21. jan. 1995. Systk- ini Hilmars eru Hulda Gústafsdótt- ir Sæland, f. 24. des. 1926, og Hans Stefán Gústafsson, f. 16. des. 1930. Kjörsystir Hilmars er Erla Sigurð- ardóttir húsmóðir, f. 1. nóv. 1930. Hinn 12. júní 1948 kvæntist Hilmar eftirlifandi konu sinni Val- gerði Bjarnadóttur, f. 4. jan. 1926. Foreldrar hennar voru Bjarni Guð- mundsson bóndi frá Efra-Seli í Hrunamannahreppi, f. 17. nóv. 1875, d. 4. febr. 1955, og Bryn- dís Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 18. sept. 1892, d. 15. apríl 1965. Dætur Hilmars og Valgerðar eru: 1) Klara, f. 5. nóv. 1948, maki Róbert Trausti Árnason. Klara á synina Hilmar og Kristján Þórðarsyni frá fyrra hjónabandi. 2) Bryndís, f. 9. mars 1951, maki Árni Óm- ar Bentsson, synir þeirra eru Bjarni og Hilmar Frið- rik. 3) Elísabet, f. 26. jan. 1954, maki Vilhjálmur Kjartansson, syn- ir þeirra eru Kjartan og Vilhjálm- ur. 4) Rósa, f. 15. jan. 1959, maki Bo Nico Ingvarsen, sonur þeirra er Al- exander. Rósa á soninn Trausta Hannesson frá fyrra hjónabandi. 5) Valgerður, f. 9. febr. 1963, maki Jeppe Gram, börn þeirra eru Hjalti og Freyja. Útför Hilmars fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. Í dag kveðjum við svilarnir tengdaföður okkar, Hilmar Ólaf Sig- urðsson. Við eigum því láni að fagna að eiga um hann góðar minningar og munum því ávallt minnast hans með mikilli hlýju. Hilmar Ólafur reyndist okkur hjálparhella hvenær sem við leituðum til hans en það bar æði oft við því við höfðum allir í mörgu að sýsla, sérstaklega meðan við sem ungir heimilisfeður vorum að fóta okkur í lífinu. Öll þau störf sem hann tók sér fyrir hendur stundaði hann af skyldurækni sem aldrei skeikaði og hann gerði hvert það verk sem hann vann virðulegt. Lagði hann þá stundum harðar að sér en heilsa hans virtist mundu þola. Hilmar Ólafur leiðbeindi, hjálpaði og leysti vanda hvers okkar um sig af stillingu og festu og lét þá oftar en ekki fylgja með föðurlegar ábendingar um hvað fylgdi því að við værum orðnir eig- inmenn og feður, hefðum fyrir öðr- um að sjá og bærum einir ábyrgð á verkum okkar og gerðum. Hann sagði aldrei styggðaryrði við neinn okkar enda var þess aldrei þörf. Hilmar Ólafur kom því til skila sem hann vildi sagt hafa við hvern okkar á þann máta að okkur var léttir í því að hann vildi yfirhöfuð sinna okkur. Það gerði hann af eðlislægri um- hyggju fyrir okkur tengdasonum sínum og fjölskyldum okkar. Það er einróma vitnisburður allra þeirra manna sem kunnastir voru tengdaföður okkar, lífsstarfi hans og háttum að hann var óvenju vel gef- inn maður og gerður. Hann var prúðmenni í framgöngu og í öllu við- móti hans var ljúfmennska og þokki svo að einstakt mátti heita. Hann var manna skemmtilegastur í viðræðum, hann var gleðimaður, orðheppinn og gamansamur en jafnframt því lá að baki djúp alvara í hugsun, fastlyndi og samviskusemi. Hilmar Ólafur var fríður sýnum og glæsilegur á velli, háttvís og jafnlyndur og höfðingi heim að sækja. Tengdafaðir okkar naut þeirrar blessunar að halda öll- um sínum hæfileikum óskertum til dauðadags þótt hann kæmist nær áttræðu. Endurminningar um Hilm- ar Ólaf verða hugstæðar öllum þeim sem áttu því láni að fagna að kynnast honum og þeim dýrmætastar sem þekktu hann best og réttast. Blessuð sé minning hans. Árni Ómar Bentsson, Vilhjálmur Kjartansson og Róbert Trausti Árnason. Fréttin um andlát tengdaföður míns olli mér djúpri sorg. Við höfum öll misst lífsglaðan og atorkusaman vin sem bjó yfir þeim góða eiginleika að hafa ávallt áhuga á að hlusta á meðbræður sína og systur. Hann var alltaf sérstaklega um- hyggjusamur um fjölskyldu sína og hef ég borið djúpa virðingu fyrir hæfni hans til þess að láta sér þykja vænt um okkur tengdasynina og barnabörnin. Þegar ég kom til Íslands í fyrsta sinn sýndi hann mér stoltur landið sitt og hef ég á mörgum ferðum mín- um með Hilmari um landið öðlast ást á landinu sem hann unni svo mjög. Við höfum öll notið og lært af gest- risni hans og mannkærleika og vil ég með þessum fáu orðum þakka fyrir þann tíma sem ég átti með honum. Hann stóð ávallt bjargfastur með Völlu sér við hlið. Í félagsskap þeirra var sem að vera í öruggri höfn. Ég hugsa til allra góðu stundanna með þeim og allri fjölskyldunni sem hefur reynst mér svo vel. Hilmar var hvatamaður. Sem ung- ur maður hóf hann störf hjá Flug- félagi Íslands sem hann starfaði hjá í tuttugu ár og fylgdist alla daga síðan af stolti með framgangi íslenskra flugmála. Síðar gerðist hann sjálf- stæður atvinnurekandi og var virkur fram á hinsta dag. Framlag hans í atvinnulífinu var sem á öðrum svið- um reitt fram af heilum hug, heið- arleika og tryggð. Hans annað líf var Oddfellowregl- an, en innan hennar gegndi hann æðstu trúnaðarstörfum og var hann elskaður og virtur. Hann var sérlega virkur innan reglunnar og ferðaðist víða innanlands sem utan og kom fram sem fulltrúi íslenskra Odd- fellowa. Hann trúði einlæglega á boðskap reglunnar og gerði mikið fyrir bræður sína og systur innan hennar. Sú vinsemd og kærleikur sem hann sýndi mér frá okkar fyrstu fundum er mér mikils virði. Þú ert elskaður og þín verður sárt saknað. Blessuð sé minning þín. Bo Nico. Hjartkær afi minn hefur kvatt þetta líf, en minning hans mun lifa HILMAR ÓLAFUR SIGURÐSSON með mér um ókomna tíð. Þegar ég frétti af þessu komst ég ekki til þín, afi minn, ekki að ég hefði getað breytt einhverju, heldur til að segja allt það sem ég átti ósagt við þig. Annars voru síðustu samskipti okkar alveg frábær eins og þau voru reynd- ar alltaf. Þú stappaðir í mig stálinu og sagðir að það sem ég væri að fara aðgera væri mér í blóð borið. Þetta var mjög líkt þér, það var aldrei spurning um hvort verkefnið væri of stórt. Þær eru margar stundirnar sem ég fékk að vera með þér, feng- um okkur sunnudagsbíltúr á þriðju- degi, og við nafnarnir gátum talað um allt milli himins og jarðar. Þú komst alltaf fram við okkur frænd- urna eins og menn, alveg frá því að við vorum smá pjakkar og kenndir okkur það góða og sýndir það í verki. Þú tókst á móti mér með opnum örmum bæði þegar ég þurfti styrk og einnig þegar ég þurfti ráðningar við. Þú dæmdir ekki, heldur lagðir þig allan fram við að skilja og er það einn af mörgum mannkostum sem mig langar að erfa frá þér. Það var svo margt í þínu fari sem veitti mér innblástur. Þú varst bjargið trausta í tilveru minni. En minning þín mun lifa í hjörtum okkar allra. Elsku amma mín, guð styrki þig á þessari sorgarstund okkar allra. Hilmar Friðrik Árnason. Leiðir okkar Hilmars Ólafs Sig- urðssonar lágu saman um nokkurt skeið upp úr miðbiki síðustu aldar og með þessum fáu línum vil ég þakka honum ljúfa leiðsögn og góða sam- vinnu, sem aldrei bar skugga á. Í byrjun apríl 1951 sótti ég um starf í farþegaafgreiðslu Flugfélags Ís- lands hf. á Reykjavíkurflugvelli, en það hafði verið auglýst í dagblöðun- um. Skömmu síðar var ég kallaður í viðtal og tók þá á móti mér Örn O. Johnson, forstjóri félagsins. Hann ræddi við mig nokkra stund og að lokum tjáði hann mér að margar um- sóknir hefðu borist og að ákvörðunar væri ekki að vænta fyrr en eftir nokkra daga. Síðan var það 21. apríl að sendiboði frá Flugfélagi Íslands bankaði upp á hjá mér og tjáði mér að ég gæti fengið starfið og best væri ef ég gæti byrjað þegar í stað. Ekk- ert var því til fyrirstöðu og fór ég út í bíl sendiboðans, eftir að ég hafði tjáð konu minni hvað um væri að vera. Ekið var út á Reykjavíkurflugvöll, en þar tók á móti mér Hilmar Sig- urðsson. Hilmar tók í hönd mína þétt og hlýlega og bauð mig velkominn til starfa. Mér leist strax vel á þennan stóra myndarlega mann og fannst hann drengilegur og traustur, og fljótlega komst ég að raun um að þær væntingar, sem ég fékk við fyrstu sýn, voru með öllu réttar. Hilmar var á þessum tíma yfir- maður afgreiðslunnar á Reykjavík- urflugvelli og innanlandsflugs Flug- félags Íslands. Eftir að við höfðum heilsast fór Hilmar með mig í kynn- isferð um starfssvæðið og kynnti mig fyrir mönnum og aðstæðum. Næstu dögum var varið til frekari kynningar á starfseminni og sam- starfsmönnum, og var það undir leið- sögn Hilmars. Hann reyndist góður leiðbeinandi, kom aðalatriðum á framfæri með hógværð og hæversku en þó þannig að eftir var tekið. Hilmar hafði verið á námskeiði í Svíþjóð, þar sem hann fékk kennslu og þjálfun í afgreiðslu flugvéla og uppsetningu flugáætlana og mun hafa verið fyrstur Íslendinga til að sækja sér þekkingu á þessu sviði út fyrir landsteinana. Leiðbeiningar hans í þessum málum voru því fag- mannlegar og vel virtar af öllu starfsfólki. Það var fjölbreytt flóra fólks, sem starfaði hjá Flugfélagi Íslands á þessum tíma. Flugmenn og tækni- menn á ýmsum sviðum voru mjög áberandi, síðan var afgreiðslufólk í farþegaafgreiðslu og á flugvélahlaði. Þetta fólk kom víða að af landinu, ólíkt að uppruna með mismunandi siði og venjur, en það aðlagaðist furðu fljótt hinum ýmsu störfum í þessari nýju atvinnugrein. Allir unnu störf sín af alúð og samvisku- semi, enda var andrúmsloftið þannig að allir báru virðingu fyrir því, sem þeim var falið að gera. Það var for- stjóri félagsins, Örn O. Johnson, sem kom á þessu jákvæða andrúmslofti, hann var frábær stjórnandi, ákveð- inn og sanngjarn, hann var einn mesti mannkostamaður, sem ég hef kynnst á lífsleiðinni. Næstu undir- menn hans eins og Hilmar störfuðu mjög í hans anda. Ég vann hjá Hilmari til ársins 1957, og fljótt varð samstarf okkar mjög náið og fóru ekki framhjá mér hans góðu eiginleikar, velvild og drengskapur. Hilmar gerði sér góða grein fyrir þeim gífurlegu möguleik- um, sem góðar flugsamgöngur gætu gefið Íslendingum, þær gætu rofið aldalanga einangrun og fært landið nær umheiminum. Sama var hægt að segja um afskekktar byggðir á Ís- landi, hann lagði því mikla áherslu á að við ræktum vel það hlutverk okk- ar að halda uppi góðum samgöngum. MINNINGAR 36 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Jónína Hallsdótt-ir fæddist í Nýja- bæ á Fáskrúðsfirði 15. des. 1913. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Nes- kaupstað 28. maí síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Hallur Pálsson, f. á Viðborði á Mýrum 19. apríl 1877, og kona hans Jónína Björg Jóns- dóttir, f. á Stuðlum í Reyðarfirði 28. apríl 1877. Þau eignuðust fjórar dætur: Ástu Guðríði, f. 10. janúar 1902, d. 3. mars 1963, Guðlaugu Valgerði, f. 4. sept. 1904, d. 6. febr. 1982, Þórunni Helgu, f. 16. júlí 1908, d. 30. maí 2003, og Jónínu. Jónína giftist 29. maí 1937 Guð- laugi Sigurðssyni, f. 10. nóv. 1913, d. 4. maí 1980. Þau eignuðust átta börn, þau eru: 1) Baldur, f. 25. nóv. 1965, Andrea, f. 7. okt. 1966, og Bragi Fannar, f. 5. nóv. 1976. 4) Sigrún, f. 21. júlí 1945, gift Gísla Jónatanssyni, f. 5. sept. 1948. Börn a) Jónína, f. 15. apríl 1967, gift Guð- mundi Steinari Birgissyni, f. 19. des. 1965, börn Hrannar og Sigrún, b) Árni, f. 15. júní 1970, kvæntur Nönnu Þóru Jónsdóttur, f. 6. okt. 1967, börn Karen Mist og Gísli Jón, og c) Þorgerður, f. 23. mars 1975, sambýlismaður Sævar Freyr Ragn- arsson, f. 15. sept. 1970. 5) Björg, f. 13. okt. 1947, gift Gunnari Björns- syni, f. 3. apríl 1947. Börn a) Sig- urlaug, f. 31. mars 1971, gift Jóni Gunnari Axelssyni, f. 11. sept. 1964, dóttir Ása, b) Guðlaugur, f. 25. júní 1972, sambýliskona Mar- grét Helga Einarsdóttir, f. 27. febr. 1972, dóttir Hafdís, c) Jón, f. 26. júlí 1979, og d) Björn, f. 27. júní 1985. 6) Hallur, f. 31. jan. 1951, kvæntur Adrianne Olgu Guðlaugsson, f. 22. febr. 1956. Börn Heiða Aníta, f. 30. sept. 1986, Herbert Clifton, f. 23. apríl 1989, og Hannes Edvard, f. 4. apríl 1995. 7) Páll, f. 28. júní 1955. 8) Gunnar, f. 29. júní 1955. Útför Jónínu verður gerð frá Fá- skrúðsfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. 1937, kvæntur Ingi- gerði Jónsdóttur, f. 5. jan. 1945. Börn a) Þóra Karen, f. 15. mars 1965, sambýlis- maður Gísli Ásgeirs- son, f. 6. júlí 1964, son- ur Viktor, b) Jóhann Óskar, f. 20. mars 1966, kvæntur Pálínu Margeirsdóttur, f. 18. janúar 1970, börn Tanja Rún og Daði Þór, og c) Guðjón, f. 2. mars 1979, sambýlis- kona Weerawan War- in, f. 27. sept. 1976, 2) Kristín, f. 11. júlí 1941, gift Níels Sigurjónssyni, f. 24. sept. 1931. Dætur Níelsar eru Kristrún, f. 19. ágúst 1956, og Guðný Ósk, f. 14. janúar 1962. 3) Helgi, f. 7. ágúst 1942, kvæntur Margréti Andrés- dóttur, f. 2. des. 1945. Börn Mar- grétar eru Ólöf Linda, f. 1. júlí 1962, Sólveig Þórlaug, f. 27. maí Jónína fæddist á Fáskrúðsfirði og bjó þar alla tíð ef undan er skil- inn sá tími er hún ung starfaði í Vestmannaeyjum, Kristnesi í Eyja- firði og á Siglufirði. Þá bjó hún ásamt manni sínum Guðlaugi Sig- urðssyni í Reykjavík árin 1937– 1941. Guðlaugur hafði numið húsa- smíði við Iðnskólann í Reykjavík árin 1933–1937 og eftir það starfaði hann hjá Trésmiðjunni Völundi til 1941. Þá fluttu þau aftur austur á æskustöðvarnar við Fáskrúðsfjörð og höfðu búskap sinn í Odda, sem var æskuheimili Guðlaugs. Þau reistu íbúðarhúsið Björk og fluttu í það árið 1943 og voru jafnan við það kennd. Þau eignuðust átta mannvænleg börn á árunum 1937– 1955. Það hefur því verið nóg að starfa fyrir húsmóðurina, sem síðar sá einnig um aldraða foreldra sína. Guðlaugur vann hörðum höndum á Oddaverkstæðinu og sinnti mjög miklum félagsmálum alla tíð. Það kom því mikið í hlut Jónínu að hugsa um börn og bú, en hjónin í Björk höfðu einnig kýr og kindur í mörg ár til að drýgja tekjurnar. Jónína og Guðlaugur voru ein- staklega samrýmd og samhent hjón og reglusemi í orðsins fyllstu merkingu var þeirra aðalsmerki. Þau voru mjög vönduð í öllu því sem þau tóku sér fyrir hendur og ég man ekki eftir því að þau töluðu illa um nokkurn mann, en reyndu heldur að leita eftir því góða sem í hverjum manni býr. Það var því mikið áfall fyrir Jón- ínu að missa Guðlaug vorið 1980, en hann lést aðeins 66 ára gamall. Þá voru þau einmitt nýbúin að kaupa sinn fyrsta fólksbíl og nú átti að fara að ferðast um landið og heldur að minnka við sig vinnuna. Jónína bar harm sinni í hljóði og hélt reisn sinni. Hún bjó áfram í Björk með góðum stuðningi barna sinna, en mörg síðustu árin bjó hún með Gunnari syni sínum. Í mörg ár starfaði hún í Félagi eldra borgara og ferðaðist með þeim um landið. Þá fór hún í tvær utanlandsferðir til Evrópu sem veittu henni mikla gleði og juku á víðsýni hennar. Jónína var glæsileg kona fram á gamals aldur og vel látin af öllum sem henni kynntust. Hún var alla tíð mjög létt á fæti og ekki finnst mér mörg ár síðan að hún var dansandi í háhæluðum skóm. Hún var mjög myndarleg í höndum og stundaði útsaum allt fram á síðustu daga þessa lífs, seinustu árin blind á öðru auganu. Hún hafði mikið yndi af því að spila á spil og mörg var hildin háð á þeim vettvangi í Björk hér á árunum, auk þess sem hún og nokkrar vinkonur hennar voru með spilaklúbb á vetrum í mörg ár. Hún var afskaplega góð amma og langamma, en ömmubörnin sóttu alla tíð mikið til hennar. Á efri árum reyndi hún að fylgjast með afkomendum sínum eins og frekast var kostur og margur fór pakkinn frá henni til smáfólksins. Jónína bjó á Dvalarheimilinu Uppsölum á Fáskrúðsfirði síðustu þrjú árin og var mjög þakklát fyrir góða umönnun starfsfólksins og fyrir ánægjuleg samskipti við aðra sem þar dvöldu. Hún var flutt á Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaup- stað 28. maí sl. þar sem hún and- aðist sama dag. Með þakklátum huga kveð ég kæra tengdamóður minnugur alls þess góða sem hún hefur gert fyrir mig og fjölskyldu mína. Ég veit að það hefur verið tekið vel á móti henni og þar hefur einlægur fögn- uður ríkt eftir langan aðskilnað. Blessuð sé minning Jónínu. Hafi hún þökk fyrir allt og allt. Gísli Jónatansson. Mikið finnst mér nú skrýtið að ég skuli ekki eiga eftir að hitta ömmu aftur. Nú síðast þegar ég hitti hana var hún að spyrja mig ráða í hvaða kjól hún ætti að vera við fermingu Herberts um páskana. Og mikið var hún fín eins og hún var alltaf. Hún hafði ósköp gaman af því að punta sig og ekki má nú gleyma háhæluðum skóm sem hún var alltaf í þegar hún klæddi sig upp, kona að nálgast 90 árin. Mér finnst reyndar skrýtið hversu gömul hún var orðin í árum því ekki var það að heyra á henni að hún væri nokkuð farin að tapa JÓNÍNA HALLSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.