Morgunblaðið - 06.06.2003, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.06.2003, Blaðsíða 26
TILNEFNINGAR ársins 2003 til Grímunnar, Íslensku leiklistarverðlaunanna, voru gerðar heyrinkunnar við athöfn í Þjóðleikhúsinu í gær, að viðstöddum forseta Íslands, verndara verðlaunanna. Það er Leiklistarsamband Ís- lands, regnhlífasamtök allrar leiklistar á Ís- landi, sem stendur fyrir verðlaununum. Efnt var til samkeppni um verðlaunagripinn. Tutt- ugu og fimm tillögur bárust, en þeirra hlut- skörpust var tillaga Sigurðar Gunnars Stein- þórssonar gullsmíðameistara. Hann hefur starfað við iðn sína frá 1968 og rekið verk- stæði og verslunina Gull og silfur. „Gripurinn er úr sérstakri blöndu af kopar og fleiri málmum, þannig að hann sé sem líkastur gulli á lit. Þetta er sérútbúin blanda af þessu tilefni. Hugmyndina að verkinu vildi ég sækja í eitthvað íslenskt, af því að þetta eru íslensk verðlaun. Ég vildi líka sameina það þeim krafti sem er í íslensku leiklistarlífi. Ég valdi að búa til goshver, og eins og maður sér oft í gufubólstrum þá myndast þar andlit. Ég vildi sameina þetta tvennt og niðurstaðan er þessi,“ sagði Sigurður Gunnar Steinþórsson. Í stróknum birtast andlitsgrímurnar tvær, tákn leiklistarinnar, hlæjandi og grátandi. Forseti Íslands afhjúpaði gripinn við athöfn- ina í gær. En hverjir hreppa hann kemur ekki í ljós fyrr en 16. júní þegar endanlegt val verður kunngjört. Þá verður Gullgríman einnig veitt, Heiðursverðlaun Leiklistar- sambands Íslands. Tilnefningarnar eru fimm til sex í fjórtán flokkum, alls sjötíu og tvær. Flestar tilnefn- ingar fær sýning Þjóðleikhússins á Veislunni eftir Rukov og Vinterberg, ellefu tilnefningar í ýmsum flokkum, en næst, með sjö tilnefn- ingar, kemur sýning Leikhópsins Á senunni á Kvetch eftir Steven Berkoff. Sjötíu og tvær tilnefningar til Íslensku leiklistarverðlaunanna – Grímunnar Veislan og Kvetch standa upp úr Morgunblaðið/Kristinn Þórunn Lárusdóttir leikkona kynnti tilnefningarnar í Þjóðleikhúsinu. LISTIR 26 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Norska húsið Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla, Norska húsið, hefur sumarstarfsemina í dag, föstudag og opnar nýja sýningarsali á jarð- hæð með samsýningunni: Mynd- rænar stemmingar – Norska húsið og nágrenni. Á sýningunni eru hátt í 40 verk, ný og eldri; olíu- myndir, vatnslitamyndir, teikning- ar, glerverk og vefnaður eftir á annan tug listamanna sem búa eða hafa búið í Stykkishólmi. Undir- búningur og uppsetning sýningar- innar var í höndum Jóns Svans Péturssonar, Steinþórs Sigurðs- sonar og Aldísar Sigurðardóttur. Á jarðhæð er Krambúð hússins, þar sem hægt er að fá handverk, listmuni, minjagripi o.fl. Á annarri hæðinni er sýningin: „Heldra heimili í þéttbýli á 19. öld“. Við uppsetninguna var stuðst við þær heimildir sem til eru um innbú og heimilishætti Árna og Önnu Thorlacius er létu reisa Norska húsið árið 1832. Í risi er opin safngeymsla þar sem safngestir glöggva sig á við sem húsið er byggt úr og upplifa stemmingu liðins tíma á annan hátt en á neðri hæðunum. Norska húsið er opið daglega frá júní fram í september frá kl. 11–17. Byggðasafn Hafnarfjarðar, Siggubær Efst á Kirkjuveginum í Hafn- arfirði er Siggubær, eitt af sýn- ingahúsum Byggðasafns Hafnar- fjarðar og er hann er opinn laugardaga og sunnudaga kl. 13– 17 í sumar. Sumar- sýningar í söfnunum KIRKJULISTAHÁTÍÐ stendur til 9. júní. Yfirskriftin er „Ég ætla að gefa regn á jörð“. Hallgríms- kirkja kl. 12: Tónlistarandakt. Prestur: Jón Dalbú Hró- bjartsson. Magn- ea Tómasdóttir sópran og Guð- mundur Sigurðs- son orgel flytja Passíusálmalög. Passíusálmar kl. 21: 15 íslensk ljóðskáld flytja ljóð í anda Pass- íusálma Hall- gríms Péturs- sonar. Skáldin eru Andri Snær Magnason, Bald- ur Óskarsson, Hjörtur Pálsson, Ingibjörg Har- aldsdóttir, Ísak Harðarson, Jón Bjarman, Kristján Þórður Hrafnsson, Kristján Valur Ingólfsson, Margrét Lóa Jónsdótt- ir, Matthías Johannessen, Sigurð- ur Pálsson, Sigurbjörg Þrastar- dóttir, Vilborg Dagbjartsdóttir, Þóra Jónsdóttir og Þórarinn Eld- járn. Tónlist: Matthías M. D. Hem- stock. Umsjón: Sigurður Árni Þórðarson. Matthías Johannessen Sigurður Pálsson Óðinshús á Eyrarbakka Nú um helgina eru síðustu for- vöð að sjá sýninguna „Þrjár í lit- um“. Gallerí Skuggi Sunnudaginn 8. júní lýkur sam- sýningu þriggja breskra myndlist- armanna sem ber yfirskriftina „Friday Night, Saturday Told“. Sýningum lýkur ♦ ♦ ♦ Sýning ársins And Björk, of course … eftir Þorvald Þor- steinsson í sviðsetningu Leikfélags Reykja- víkur. Kvetch eftir Steven Berkoff í sviðsetningu Leik- hópsins Á senunni. Rómeó og Júlía eftir William Shakespeare í sviðsetningu Íslenska dansflokksins, Leik- félags Reykjavíkur og Vesturports. Sölumaður deyr eftir Arthur Miller í sviðsetn- ingu Leikfélags Reykjavíkur. Veislan eftir Mogens Rukov og Thomas Vinter- berg í sviðsetningu Þjóðleikhússins. Leikstjórn ársins Benedikt Erlingsson fyrir And Björk, of course … Peter Engkvist fyrir Manninn sem hélt að kon- an hans væri hattur. Stefán Baldursson fyrir Veisluna. Stefán Jónsson fyrir Kvetch. Þórhildur Þorleifsdóttir fyrir Sölumaður deyr. Leikari ársins í aðalhlutverki Arnar Jónsson fyrir Veisluna. Hilmir Snær Guðnason fyrir Veisluna. Ívar Örn Sverrisson fyrir Hamlet. Pétur Einarsson fyrir Sölumaður deyr. Theodór Júlíusson fyrir Púntila bónda og Matta vinnumann. Leikkona ársins í aðalhlutverki Charlotte Bøving fyrir Hina smyrjandi jómfrú. Edda Heiðrún Backman fyrir Hægan, Elektra og Kvetch. Halldóra Geirharðsdóttir fyrir Sumarævintýri. Harpa Arnardóttir fyrir And Björk, of course … Kristbjörg Kjeld fyrir Halta Billa. Leikari ársins í aukahlutverki Björn Hlynur Haraldsson fyrir Púntila bónda og Matta vinnumann og Rómeó og Júlíu. Ólafur Darri Ólafsson fyrir Kvetch og Rómeó og Júlíu. Rúnar Freyr Gíslason fyrir Veisluna. Stefán Jónsson fyrir Veisluna. Þröstur Leó Gunnarsson fyrir Allir á svið! Leikkona ársins í aukahlutverki Edda Björg Eyjólfsdóttir fyrir Boðorðin 9. Edda Heiðrún Backman fyrir Kryddlegin hjörtu. Elva Ósk Ólafsdóttir fyrir Veisluna. Nanna Kristín Magnúsdóttir fyrir Rauða spjaldið. Tinna Gunnlaugsdóttir fyrir Veisluna. Þórunn Erna Clausen fyrir Dýrlingagengið. Leikmynd ársins Finnur Arnar Arnarson fyrir Kryddlegin hjörtu. Gretar Reynisson fyrir Halta Billa. Sigurjón Jóhannsson fyrir Sölumaður deyr. Snorri Freyr Hilmarsson fyrir Kvetch. Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir fyrir Veisluna. Búningar ársins Filippía I. Elísdóttir fyrir Boðorðin 9. Filippía I. Elísdóttir og Þórunn Sigríður Þor- grímsdóttir fyrir Veisluna. Helga I. Stefánsdóttir fyrir Púntila bónda og Matta vinnumann. Þórunn María Jónsdóttir fyrir Grettissögu. Þórunn Elísabet Sveinsdóttir fyrir Rómeó og Júlíu. Lýsing ársins Benedikt Axelsson og Lárus Björnsson fyrir Stingray. Björn Bergsteinn Guðmundsson fyrir Hægan, Elektra, Grettissögu og Veisluna. Kári Gíslason fyrir Rómeó og Júlíu. Lárus Björnsson fyrir Kryddlegin hjörtu og Sölumaður deyr. Sigurður Kaiser fyrir Kvetch. Tónlist ársins Guðmundur Jónsson, Gunnar Árnason, Jón Ólafs- son og Sálin hans Jóns míns fyrir Sól og Mána. Hilmar Örn Hilmarsson fyrir Grettissögu. Hjálmar H. Ragnarsson og Rússíbanar fyrir Cyrano. Jón Hallur Stefánsson fyrir Kvetch. Trabant fyrir Evu. Matti Kallio og Ólafur Örn Thoroddsen fyrir Púntila bónda og Matta vinnumann. Leikskáld ársins Agnar Jón Egilsson fyrir Lykil um hálsinn. Björk Jakobsdóttir fyrir Sellófon. Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir fyrir Hægan, Elektra. Ólafur Haukur Símonarson fyrir Viktoríu og Georg. Þorvaldur Þorsteinsson fyrir And Björk, of course … Dansverðlaun ársins Erna Ómarsdóttir fyrir Evu. Guðmundur Helgason fyrir Frosta/Svanavatnið. Jóhann Freyr Björgvinsson fyrir Jóa. Katrín Hall fyrir Stingray. Lára Stefánsdóttir fyrir Elsu. Danssýning ársins Black Wrap eftir Ed Wubbe í sviðsetningu Ís- lenska dansflokksins. Bylting hinna miðaldra eftir Ismo-Pekka Heik- enheimo og Ólöfu Ingólfsdóttur í sviðsetningu Ólafar danskompanís. Elsa eftir Láru Stefánsdóttur í sviðsetningu Ís- lenska dansflokksins og Pars Pro Toto. Eva eftir Ernu Ómarsdóttur, Karen Maríu Jóns- dóttur og Margréti Söru Guðjónsdóttur í svið- setningu Dansleikhúss með ekka. Stingray eftir Katrínu Hall í sviðsetningu Ís- lenska dansflokksins. Barnasýning ársins Honk! eftir Anthony Drewe og Georges Stiles í sviðsetningu Leikfélags Reykjavíkur. Jón Oddur og Jón Bjarni eftir Guðrúnu Helga- dóttur í sviðsetningu Þjóðleikhússins. Karíus og Baktus eftir Thorbjörn Egner í svið- setningu Þjóðleikhússins. Rauðhetta eftir Charlotte Bøving í sviðsetningu Hafnarfjarðarleikhússins. Völuspá eftir Þórarin Eldjárn í sviðsetningu Möguleikhússins. Útvarpsverk ársins Dauðir án grafar eftir Jean Paul Sartre í þýð- ingu Arnar Ólafssonar og í leikstjórn Sig- urðar Skúlasonar. Góði guðinn á Manhattan eftir Ingeborg Bach- mann í þýðingu Þorsteins Þorsteinssonar og í leikstjórn Hjálmars Hjálmarssonar. Gróið hverfi eftir Braga Ólafsson og í leikstjórn Óskars Jónassonar. Stoðir samfélagsins eftir Henrik Ibsen í þýðingu Einars Braga og í leikstjórn Maríu Kristjáns- dóttur. Vegamót eftir Conor McPherson í þýðingu Hall- mars Sigurðssonar og í leikstjórn Egils Heið- ars Antons Pálssonar. Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Sigurður Gunnar Steinþórsson. Morgunblaðið/Kristinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.