Morgunblaðið - 06.06.2003, Blaðsíða 27
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2003 27
NÚNA í vor hafa stórirhópar útskrifast úr fram-haldsskólum og framúr-skarandi nemendur dúx-
að. Verzlunarskóli Íslands
brautskráði nýlega 232 nýstúdenta,
en það er stærsti útskriftarárgangur
skólans í sögu hans. Í
fréttum kom m.a. fram
að Pétur Gordon Her-
mannsson var með eina
af hæstu einkunnum
sem gefin hefur verið í
skólanum.
Bráðlega verða
tímamót í sögu Verzl-
unarskólans því haust-
ið 2005 verður öld liðin
frá því að hann hóf
starfsemi sína, og má
sjá nokkur merki um
það. Nú standa t.d. yfir
framkvæmdir við
byggingu 20 kennslu-
stofa og tveggja fyrir-
lestrasala.
Blaðamaður heimsótti skólann í
vikunni og gekk m.a. um skólann
með Þorvarði Elíassyni skólastjóra.
„Þakinu yfir bókasafninu verður lyft
og með efri hæð þess stækkar safnið
um 350 fermetra,“ segir hann og að
vinnuaðstaða kennara verði einnig
bætt með framkvæmdunum sem nú
standa yfir.
Stækkun skólans mun einnig hafa
faglegar afleiðingar, því kennarar
eru byrjaðir að vinna að samþætt-
ingu námsgreina og ræða aukið vægi
raunhæfra verkefna. Forsendan fyr-
ir slíkri þróunarvinnu er einmitt góð
vinnuaðstaða kennara.
Öflugar ólíkar deildir
Ég hitti einnig Inga Ólafsson að-
stoðarskólastjóra, Steinunni Stef-
ánsdóttur bókasafnsfræðing og
Klöru Hjálmtýsdóttur námsráð-
gjafa. Steinunn segir að bókasafnið
verði þannig skipulagt að á neðri
hæðinni verði les- og vinnuaðstaða
fyrir nemendur en á efri hæð bóka-
kosturinn. „Nemendur kjósa gjarnan
að vinna á bókasafninu sem opið er til
tíu á kvöldin alla kennsludaga og til
fimm á laugardögum,“ segir hún.
Allir þekkja Verzlunarskólann af
verslunarprófinu sem nemendur
ljúka eftir fyrstu tvö árin. En það
gera sér ekki allir grein fyrir hvað
tekur við eftir það. Nemendur byrja í
skólanum í þriðja bekk
sem er sameiginleg
námsbraut, þá velja
þeir í fjórða bekk að
taka verslunarpróf í við-
skipta-, stærðfræði-,
eða tölvu- og upplýs-
ingadeild. Ingi segir að
skólinn hafi notið mik-
illa vinsælda og að á
næsta skólaári verði á
tólfta hundrað nemend-
ur í skólanum.
Í fimmta og sjötta
bekk standa sex öflugar
námsbrautir til boða:
Alþjóðadeild þar sem
m.a. er lögð áhersla á al-
þjóðahyggju og alþjóða-
stofnanir, einnig er stefnt að því að
nemendur fari utan í heimsókn í
skóla og taki á móti gestum a.m.k.
einu sinni yfir námstímann. Tölvu-
deild með áherslu á hugbúnaðarsvið,
máladeild með áherslu á helstu þjóð-
tungur Evrópulanda og latínu, hag-
fræðideild þar sem hagfræði og
stærðfræði eru í öndvegi, viðskipta-
deild með áherslu á hagnýtar grein-
ar, og stærðfræðideild þar sem nem-
endur eru búnir undir fræðilegt nám
á háskólastigi í verkfræði, raunvís-
indum og örðum greinum.
Klara segir að margir átti sig ekki
á hversu öflug stærðfræðideild er í
Verzlunarskólanum. „Hlutfallslega
flestir nemendur í verkfræði og
stærðfræði koma úr Verzló.“ Eðlis-
fræði er mjög öflug í skólanum og á
hann t.d. fulltrúa í Ólympíuliðinu í
eðlisfræði, en það er Eysteinn Helga-
son. „Í efnafræðikeppninni áttum við
2 af 10 efstu nemendum á landinu,“
segir Klara.
Þorvarður segir að einkenni skól-
ans séu að fyrstu tvö árin leggi nem-
endur stund á viðskiptagreinar, en
síðustu tvö árin sé áherslan á stærð-
fræði og eðlisfræði. Hann nefnir að
t.d. verkfræðingar með stúdentspróf
úr Verzló séu eftirsóttir starfskraft-
ar vegna þess að þeir kunni bók-
færslu og aðra hagnýta þætti sem
nýtist vel í starfinu.
Verslunarprófið
á Netinu
Tækjakostur er góður í skólanum,
þar eru 4 tölvustofur og 230 tölvur. Í
hverri skólastofu er skjávarpi sem
kennarar nota. Næsta skólaár fæst
meira rými en áður undir verklega
kennslu í eðlisfræði og verður þar, að
mati Þorvarðs, trúlega best búna
raungreinastofa íslenskra fram-
haldsskóla.
Fjarkennsla er þáttur sem verður
einnig efldur, því fyrirhugað er að
bjóða á Netinu nám til verslunar-
prófs, sem einnig verður selt sem
námskeið á almennum markaði, bæði
sem námskeið á Netinu og sem stað-
bundið nám í kennslustofum og fyr-
irlestrasölum.
Þorvarður segir að margir af
kennurum skólans hafi náð góðum
tökum á fjarkennslutækninni sem
beitt hafi verið í nokkur ár sem við-
bót við hefðbundna kennslu.
Í útskriftarræðu Þorvarðs kom
fram að markmið skólans með auk-
inni áherslu á Netið, upplýsingakerfi
og fjarkennslu er tvíþætt. „Í fyrsta
lagi er það ætlun skólastjórnar að
bæta menntun og hæfni fólks sem
starfar í atvinnulífinu ... skólinn [er]
að búa sig undir að taka aukinn þátt í
menntun verslunar- og skrifstofu-
fólks í landinu. Í öðru lagi er mark-
miðið það að leggja nemendum skól-
ans til ný tæki sem þeir geta notað til
þess að búa sig undir hið hefðbundna
stúdentspróf,“ sagði hann.
Axel V. Gunnlaugsson hefur und-
irbúið fjarkennsluna og segir að til-
raunakennsla hefjist í haust og boðið
verði upp á alla almenna möguleika í
fjarnáminu eins og hljóð, textaæfing-
ar, myndir, grafík og spjallrás. Allar
venjulegar nútímatölvur eiga að ráða
við þetta efni. Axel býst við að hægt
verði að setja námskeiðin á almennan
markað til sölu á Netinu á vorönn
2004.
Opið hús
Þorvarður segir að lokum þegar
hann fylgir mér út að eitt af einkenn-
um skólans sé gott félagslíf nem-
enda. Nefna má að svokallaður
Marmari er samkomutorg skólans.
Marmarinn er í miðju skólans og
mætast þar allar leiðir. Líf og fjör og
skemmtileg stemning myndast þar
reglulega enda stendur nemenda-
félagið iðulega að ýmsum atburðum
og uppákomum.
Öllum almenningi er boðið á
marmarann 10. júní nk. þegar skól-
inn verður með opið hús.
Verzlunarskóli Íslands/ Skólinn hefur notið mikilla vinsælda í næstum heila öld. Á næsta skólaári verður á tólfta
hundrað nemenda í skólanum í sex deildum. Gunnar Hersveinn heimsótti skólann í Ofanleiti í Reykjavík en þar
standa nú yfir framkvæmdir sem auka olnbogarými nemenda og kennara. Í Verzló er hefðbundið bekkjarkerfi.
Svigrúm gef-
ur ný færi
Samþætting námsgreina og raun-
hæf verkefni í brennidepli
Allir áfangar til verslunarprófs
verða seldir og kenndir á Netinu
Morgunblaðið/Arnaldur
Tuttugu stofur og tveir fyrirlestrasalir bætast við Verzlunarskólann í haust og rými losnar einnig í eldra húsnæði.
Þorvarður Elíasson
TENGLAR
..............................................
www.verslo.is
guhe@mbl.is
Félagslíf nemenda í Verzl-
unarskólanum er líflegt. Í fjórða
bekk er t.d. hinn landsþekkti
peysufatadagur. Hátindur fé-
lagslífsins er nemendamótið í febr-
úar ár hvert. Þar hafa viðamiklir
söngleikir og leikrit verið sett upp
og vakið mikla athygli. Haldin er
sérstök söngvakeppni í skólanum
og stuttmyndahátíð. Keppt er
einnig í ýmsum íþróttum. Mælsku-
listin er stunduð og vann lið Verzló
síðustu Morfís-ræðukeppni fram-
haldsskólanna. Skólahljómsveitin
Hanz vann Skólavision-lagakeppni
framhaldsskólanna. Útgáfu-
starfsemi er einnig blómleg því
þrjú tímarit koma út á vegum nem-
enda: Viljinn, sem er elsta skóla-
blað landsins, Verzlunarskólablað-
ið og Kvasi.
Morgunblaðið/Golli
Ræðulið Verzló sigraði í Morfískeppninni 2003: Björn Bragi, Jónas Oddur, Breki og Baldur.
Félagslífið í Verzló