Morgunblaðið - 06.06.2003, Blaðsíða 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2003 43
ALLS voru 149 stúdentar braut-
skráðir frá Menntaskólanum við
Sund í síðustu viku. Hópurinn
samanstóð af 63 piltum og 86
stúlkum. Voru brautskráðir 60
nemendur af félagsfræðabraut, 30
nemendur af málabraut og 58
nemendur af náttúrufræðibraut.
Einn nemandi brautskráðist af
tónlistarbraut. Hæstu einkunn á
stúdentsprófi fékk Þórey Stein-
arsdóttir, 9,4, og er hún dúx skól-
ans að þessu sinni en athygli vakti
að bróðir hennar, Sigurður Rík-
harð Steinarsson, var annar dúxa
skólans á síðasta ári. Að þessu
sinni fengu 7 nemendur ágæt-
iseinkunn (9 eða hærra) í aðal-
einkunn sem er mjög góður árang-
ur.
Við útskriftina fengu fjölmargir
nemendur verðlaun fyrir góðan
námsárangur bæði frá skólanum,
sendiráðum erlendra ríkja og öðr-
um stuðningsaðilum skólans. Þá
færði rektor Steinunni Ingólfs-
dóttur nýstúdent blóm af því til-
efni að hún var 5.000. stúdentinn
frá skólanum.
Fulltrúar þeirra sem áttu 20
ára, 25 ára og 30 ára stúdents-
afmæli ávörpuðu samkomuna og
færðu skólanum gjafir. Fulltrúar
30 ára stúdenta, þau Eiríkur Guð-
mundsson, fyrrum rektor skólans
og Arnfríður Ólafsdóttir, færðu
skólanum til varðveislu skipulags-
skrá að minningarsjóði um Björn
Bjarnason, fyrsta rektor skólans.
Sjóðurinn hefur tvíþætt hlutverk;
að verðlauna góðan árangur við
brautskráningu frá Menntaskól-
anum við Sund og hins vegar að
styrkja til framhaldsnáms nem-
anda frá skólanum.
Brautskráning og skólaslit frá MS
Körfuboltadripl hring-
inn í kringum Ísland
sem Þór Akureyri og
Körfuknattleikssam-
band Íslands standa
fyrir í tilefni landssöfn-
unar Regnbogabarna
hófst í gær á Egilsstöð-
um og fóru tvær fylk-
ingar þaðan hvor sína
leiðina áleiðis til
Reykjavíkur
Helstu viðkomustaðir
hópanna verða sem hér
segir:
Norðurleið: hópurinn
sem fernorðurleiðina
verður í Reykjahlíð í
dag, föstudaginn kl. 8 og kemur inn
til Eyjafjarðar og Akureyrar kl.
19.30. Á morgun, laugardag 7. júní,
kl. 11 koma þau til Varmahlíðar og til
Blönduóss kl. 17. Sunnudaginn 8.
júní kl.14 koma þau til Borgarness
og mánudaginn 9. júní kl. 9 í Mos-
fellsbær og um kl. 11 verður hóp-
urinn við borgarmörkin og í Smára-
lind kl. 13.
Suðurleið: Hópurinn sem fer suð-
urleiðina verður í dag föstudag, kl.
20 við afleggjarinn að Höfn. Sunnu-
daginn 8. júní kl. 4 koma þau til Vík-
ur í Mýrdal, til Hvolsvallar kl. 14, á
Selfossi verða þau kl. 20 og í Hvera-
gerði kl. 21.30. Mánudag 9. júní um
kl.11 verður hópurinn við borgar-
mörkin og í Smáralind kl. 13, þar
sem körfuboltahátíð KKÍ verður.
F.v. Ólafur Ólafsson, formaður Aspar, Páll
Bragason, forstjóri Fálkans, og Arndís Frederik-
sen, formaður starfsmannafélags Fálkans.
Með bolta gegn einelti
Morgunblaðið/Sverrir
HARPA Sjöfn veitir nú málning-
arstyrki sjötta árið í röð. Í frétta-
tilkynningu frá fyrirtækinu kemur
fram að heildarverðmæti styrkj-
anna er um tvær milljónir króna en
25 verkefni hljóta styrk að þessu
sinni. Á þeim sex árum sem Harpa
hefur veitt styrkina hafa alls 107
aðilar hlotið styrk og nemur heild-
arverðmæti þeirra alls um átta
milljónum króna eða 16.000 máln-
ingarlítrum. Fyrirtækið hefur leit-
ast við að styrkja sögufræg hús og
mannvirki og þannig gert þeim
kleift að halda fallegu útliti eða öðl-
ast nýtt en góðgerðarfélög, þjón-
ustuklúbbar og íþróttaklúbbar hafa
einnig fengið slíka styrki. Mikill
fjöldi umsókna barst í ár og ekki
var unnt að verða við þeim öllum en
þeir sem ekki hlutu styrk að þessu
sinni njóta sérstakra vildarkjara
hjá fyrirtækinu. Meðal þeirra sem
hljóta styrki í ár eru Listasafn Ein-
ars Jónssonar, Miklabæjarkirkja í
Skagafirði, Wathnehús á Akureyri
og Tækniminjasafn Austurlands á
Seyðisfirði.
Styrkþegar samankomnir í einni af verslunum Hörpu Sjafnar.
Harpa Sjöfn
veitir máln-
ingarstyrki
Stofnhátíð Sjónarhóls verður í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum á
morgun, laugardaginn 7. júní, kl. 14.
Boðið verður upp á skemmtiatriði og
veitingar fyrir alla fjölskylduna. Sjón-
arhóli er ætlað að vera þjónustu-
miðstöð fyrir fjölskyldur barna með
sérþarfir. Markmið Sjónarhóls er að
veita foreldrum stuðning til að fóta
sig í hinu nýja og erfiða hlutverki sínu
þegar eðlilegar væntingar foreldra
um framtíð barnsins breytast í
áhyggjur. Skyndilega fá þeir ný og
ófyrirséð verkefni. Við tekur grein-
ing, rannsóknir, meðferð, upplýs-
ingaleit, útvegun hjálpartækja, fund-
ir, viðtöl og vinnutap vegna
umönnunar með tilheyrandi fjárhags-
vanda.
Þau félög og samtök sem standa að
sjálfseignarstofnuninni vinna öll að
réttindamálum fjölskyldna barna
með sérþarfir hvert á sínu sviði. Þau
eru: Foreldrafélag barna með AD/
HD (áður Foreldrafélag misþroska
barna), Landssamtökin Þroskahjálp,
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra og
Umhyggja, félag til stuðnings lang-
veikum börnum.
Gamla Borg í Grímsnesi opnuð á
morgun, laugardaginn 7. júní, en
Gamla Borg er nýuppgert þinghús
Grímsnesinga. Þar er starfrækt kaffi-
hús og krá. Opið er virka daga kl. 14–
22, laugardaga k1. 14–2 og sunnu-
daga kl. 14–22. Á laugardagskvöldið
opnar Hilmir Guðmundsson frá
Hömrum í Grímsnesi yfirlitssýningu
á ljósmyndum og stendur hún til 28.
júní. Einnig mun Guðni Einarsson
syngja og spila á gítar til kl. 2.
Hestagerði og tjaldstæði eru í göngu-
færi. Á föstudagskvöldum í sumar
verða spilakvöld og á laugardags-
kvöldum lifandi tónlist.
Ráðstefna í tilefni af flugi Balbos
frá Ítalíu til Íslands árið 1933 verð-
ur haldin á vegum heimspekideildar
Háskóla Íslands og Ítölsku menning-
armálastofnunarinnar í Osló laug-
ardaginn 7. júní kl. 14, í herbergi 101 í
Lögbergi, húsi lagadeildar Háskóla
Íslands.
Flug flughetjunnar Balbo frá Ítalíu
Á MORGUN
til Íslands sumarið 1933 hefur í gegn-
um tíðina vakið upp margar spurn-
ingar á ýmsum sviðum. Hver var
þessi Balbo og hvers vegna hefur ver-
ið talað um að atburðinn megi stað-
setja mitt á milli goðsagnar og veru-
leika? Hvernig má tengja framtak
Balbos þróun samskipta á milli Ítalíu
og Íslands. Þessar og fleiri hugleið-
ingar eru efni ráðstefnunnar. Í lok
ráðstefnunnar verður sýndur heim-
ildarþáttur á ítölsku um flug Balbos.
Flugklúbbur Mosfellsbæjar mun
standa fyrir lendingarkeppni fyrir
einkaflugvélar á Tungubakkaflugvelli
í Mosfellsbæ á morgun, laugardag 7.
júní. Um er að ræða fyrri hluta „Silf-
ur-Jodel“ lendingakeppninnar sem
haldin er ár hvert á Tungubakka-
flugvelli. Keppnin hefst kl. 13 og er
öllum flugmönnum frjálst að taka
þátt í henni. Skráning er á staðnum
og er skráningargjald 1.000 krónur.
Tilgangurinn með keppni af þessu
tagi er tvíþættur. Annars vegar að
efla öryggi í einkaflugi og hins vegar
að auka fjölbreytni í þessari grein
flugsins. Ef ekki verður nægjanlega
gott flugveður laugardaginn 7. júní
frestast keppnin fram á sunnudaginn
8. júní eða þá á mánudaginn 9. júní,
segir í frétt frá Flugklúbbi Mosfells-
bæjar.
UMSÓKNARFRESTUR um emb-
ætti sóknarprests í Ingjaldshóls-
prestakalli á Snæfellsnesi rann út
hinn 30. maí sl. Átta umsækjendur
sóttu um embættið.
Þeir eru: Aðalsteinn Þorvaldsson
guðfræðingur, Arndís Ósk Hauks-
dóttir guðfræðingur, Elínborg
Sturludóttir guðfræðingur, Ragn-
heiður Karítas Pétursdóttir guð-
fræðingur, Sólveig Jónsdóttir guð-
fræðingur, séra Torfi K. Stefánsson
Hjaltalín, Þóra R. Björnsdóttir guð-
fræðingur og Þórður Guðmundsson
guðfræðingur.
Embætti sóknarprests í Ingjalds-
hólsprestakalli er veitt frá 1. sept-
ember 2003. Það er vígslubiskup
Skálholtsumdæmis sem boðar val-
nefnd prestakallsins saman en í
henni sitja fimm fulltrúar úr
prestakallinu, auk vígslubiskups.
Kirkjumálaráðherra skipar í emb-
ættið til fimm ára samkvæmt nið-
urstöðu valnefndar, sé hún ein-
róma.
Átta sækja um Ingj-
aldshólsprestakall