Morgunblaðið - 06.06.2003, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 06.06.2003, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. HJÁ bandaríska varnarliðinu og verk-tökum sem vinna verk á vegumþess starfa um 1.700 Íslendingar,auk þess sem fjöldi tengdra starfa er háður áframhaldandi starfsemi þess. Þyrlu- sveitin sem starfrækt er í tengslum við veru bandarísku herflugvélanna er auk þess mikil- vægur hlekkur í öryggismálum fyrir íslensk og erlend skip. Sólveig Pétursdóttir, formaður ut- anríkismálanefndar Alþingis, segir að þessi mál verði að taka til sérstakrar athugunar í tengslum við hugsanlegar viðræður um varn- arsamning Íslands og Bandaríkjanna. „Það er ljóst að þetta er alvarlegt mál og á viðkvæmu stigi,“ segir Sólveig. Hún telur mikilvægt að benda á að formlegar samningaviðræður séu ekki hafnar, fyrsta skrefið í þeim ferli verði svar forsætisráðherra við bréfi Bandaríkjaforseta. Sólveig segir að viðræður um framhald á starfsemi varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli muni fyrst og fremst snúast um að tryggja varnir landsins og öryggishagsmuni. „Þetta er auðvitað gagnkvæmur samningur og eðlilegt að tekið sé tillit til öryggishagsmuna Íslands. Því má heldur ekki gleyma að björgunarþátturinn er afar mikilvægur. Þann þátt þarf að skoða mjög vandlega, sérstaklega þar sem líklegt er að siglingar stórra skipa, eins og olíuskipa, muni færast í vöxt á Norður-Atlantshafi á næstu ár- um.“ Miklir hagsmunir á Suðurnesjum „Hér er um mikið alvörumál að ræða því auk þeirra sautján hundruð starfa sem tengjast vellinum beint eru fjölmörg störf á svæðinu ná- tengd þeirri starfsemi,“ segir Drífa Hjartar- dóttir, þingmaður Suðurkjördæmis og vara- maður í utanríkismálanefnd. Hún segist ganga út frá því að staðan verði nánast óbreytt þótt þróunin hafi verið sú að Bandaríkjamenn hafi á undanförnum árum virst vilja draga úr viðbúnaði á Íslandi. „Ég held að það sem mestu skiptir sé að flugvél- arnar verði áfram. Hins vegar geta Íslending- ar leyst ýmis önnur þjónustustörf af hendi fyr- ir herinn. Þetta hefur verið gert í æ ríkari mæli. En grundvallaratriðið er vitaskuld að hér verði áfram tryggar varnir og það er vert að benda á að öflugar loftvarnir á Keflavík- urflugvelli gagnast ekki aðeins okkur Íslend- ingum heldur einnig þeim sem fljúga yfir Norður-Atlantshafið,“ segir Drífa. Verðum að takast á við breytingar „Mér finnst þetta vera í samræmi við það sem við var að búast, að Bandaríkjamenn vilji draga saman umsvif sín hér og jafnvel í aðal- atriðum fara með fastan viðbúnað,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri- hreyfin varnars finning óþarfa viðbúna að Ísla má að mönnu svifum stöðvar ingar h viðræð það hve reyna a eru í sjá Varð tengslu ekki æ eingöng hverjum skilja b það er um viðr atvinnu þarf að og fleir ræðurn gætu n byggt u saman „Alvarlegt mál og á ELIZABETH Jones, aðstoðarráð-herra í bandaríska utanríkismála-ráðuneytinu, lagði fram bréf til ís-lenskra stjórnvalda frá George W. Bush, Bandaríkjaforseta, á fundi með Davíð Oddssyni, forsætisráðherra, og Halldóri Ás- grímssyni, utanríkisráðherra, í Ráðherrabú- staðnum í gærmorgun, en auk þess sátu Ian Brzezinski, varaaðstoðarráðherra í banda- ríska varnarmálaráðuneytinu, og James Irvin Gadsden, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, fundinn. Ekkert fékkst uppgefið um efni bréfsins en Davíð sagði málið á mjög við- kvæmu stigi. Elizabeth Jones var stutt í spuna eftir fund- inn. „Við áttum góðar viðræður og ég er viss um að ríkisstjórnin getur greint ykkur frá þeim um leið og ráðherrarnir hafa fengið tíma til umhugsunar,“ sagði hún. Hún sagðist hingað komin til að ræða þjóð- aröryggismál landanna tveggja. Ísland væri „ákaflega náinn“ bandamaður Bandaríkjanna innan NATO og staðfastur stuðningur Íslands í gegnum árin væri afar mikils metinn. „Og við viljum finna leiðir til að halda því áfram á upp- byggilegan hátt,“ sagði hún. Vilja nýjar leiðir Davíð og Halldór sátu saman á fundi í rúm- lega klukkustund eftir að Jones hvarf á braut. „Við vorum að fara yfir málin og þau skýrð- ust nokkuð,“ sagði Davíð. Hann sagði að málið yrði rætt utanríkismálanefnd og í kjölfarið yrði svörum íslenskra stjórnvalda komið á framfæri. Hann vildi ekki svara spurningum um efni bréfsins frá Bandaríkjaforseta eða hvort fyrirhugaður væri niðurskurður á Kefla- víkurflugvelli. „Málið er mjög viðkvæmt núna þannig að ég ætla ekki að fara út í einstök at- riði á þessu stigi,“ sagði hann. Að fundinum loknum kynnti Halldór Ás- grímsson efni bréfsins frá forseta Bandaríkj- anna fyrir utanríkismálanefnd. Halldór vildi í samtali við fjölmiðla ekki ræða efni bréfsins en sagði ljóst að Bandaríkjamenn hefðu áhuga á að finna nýjar leiðir varðandi varnir Íslands. Forsætisráðherra mun svara bréfinu í næstu viku og í kjölfarið munu hefjast viðræður um framtíð varnarsamstarfsins. Utanríkismála- nefnd hefur óskað eftir því að fá að fylgjast ná- ið með þeim viðræðum. „Við höfum talið það algjörlega nauðsynlegt að hafa hér loftvarnir,“ sagði Halldór eftir fundinn í gær. „Það kemur ekkert fram í bréfi forsetans sem bendir til þess að þeir [Bandaríkjamenn] séu á öðru máli. Við munum svara þessu bréfi og segja frá því hvernig við viljum fara í þær viðræður sem eru framundan um þessi mál. Það er alveg ljóst að málið er viðkvæmt og það er alvarlegt og við verðum að bíða og sjá hvernig þessum viðræðum lyktar.“ Halldór vildi ekkert segja um það hvort í bréfinu kæmi fram vilji Bandaríkjamanna um að draga úr herstyrknum. „En það liggur fyrir að þeir vilja fara nýjar leiðir í þessu sambandi, hvað þeir eiga nákvæmlega við vil ég ekki segja um á þessu stigi. Það hefur verið talað um það að hér yrðu t.d. ekki loftvarnir og hefur verið vísað til þess að slíkar loftvarnir væru í Bandaríkjunum og Bretlandi eða annars staðar. Það er auðvitað alveg ljóst að það gefur ekki sömu tryggingu og ef þessar varnir væru hér á landi. Þær gefa ekki sömu tryggingu að því er varðar almennt öryggi á Norður-Atlantshafi.“ Halldór nefndi í þessu sambandi þyrlur varnarliðsins sem skiptu miklu máli, ekki aðeins fyrir Íslendinga heldur gegndu þýðingarmiklu hlutverki varð- andi alla þá umferð sem fer um Norður- Atlantshaf. Samleið í fimmtíu ár Halldór sagði enga ástæðu til að blanda af- stöðu Íslendinga til Íraksstríðsins saman við framtíð varnarsamstarfsins. „Íslendingar og Bandaríkjamenn hafa átt mikla samleið í ör- yggis- og varnarmálum alveg síðan í heims- styrjöldinni síðari. Við vonumst til þess að við eigum samleið áfram og það fylgir því þegar menn eiga samvinnu að það sé gagnkvæmur skilningur. Við höfum oft og tíðum sýnt Bandaríkjamönnum skilning og það er eitt- hvað sem við sjáum ekkert eftir. Það er að sjálfsögðu mikilvægt að Bandaríkjamenn sýni okkur líka skilning en ég vil á engan hátt blanda þessu saman.“ Halldór vildi ekki segja til um hvort til nið- urskurðar myndi koma. „Það er alveg ljóst að einhverjar breytingar eru yfirvofandi en það þarf ekki að þýða niðurskurð. Stundum kosta breytin en það eru bre Halld næstun lagðar v Hann bréfinu einhver hvernig ur mun ríkjama inn er skuldbi vera ga ingu fy sagði a samski anríkis skipti s forseta það er h Stjór Halld ræða b Varnarsamstarfið við Bandaríkin rætt Viðræður verði á for Loftvarnir nauðsynlegar, segir utanríkisráðherra Elizabet Gadsden bandarí Fulltrúar Bandaríkjastjórnar áttu fund um varn- armálin með forsætisráðherra og utanríkisráð- herra í Ráðherrabústaðnum í gærmorgun, en í kjölfarið var varnarsamstarfið við Bandaríkin rætt í utanríkismálanefnd Alþingis. VIÐRÆÐUR UM VARNARMÁL Tveir sendimenn Bandaríkja-stjórnar voru hér á ferð í gær tilþess að ræða við íslenzk stjórn- völd um fyrirkomulag varna á Kefla- víkurflugvelli. Þau Elízabeth Jones, háttsettur aðstoðarráðherra í utan- ríkisráðuneytinu í Washington, og Ian Brzezinski sem starfar í varnarmála- ráðuneytinu. Þau afhentu Davíð Oddssyni for- sætisráðherra bréf frá Bush Banda- ríkjaforseta varðandi málefni varnar- stöðvarinnar. Það er í sjálfu sér mikilvægt að Bandaríkjaforseti hefur skrifað forsætisráðherra Íslands bréf um þetta málefni. Það sýnir að fram- tíðarmál varnarstöðvarinnar eru kom- in til meðferðar á æðsta stigi stjórn- valda í Washington. Þar með hafa orðið ákveðin þáttaskil í viðræðum ís- lenzkra og bandarískra stjórnvalda þar sem þetta mál hefur of lengi þvælzt á milli embættismanna í ráðu- neytum þar vestra. Bréf Bush hlýtur að vera sá grundvöllur sem viðræður byggjast á af hálfu Bandaríkjanna, hvað sem líður mismunandi sjónarmið- um innan bandaríska stjórnkerfisins. Í ljósi 60 ára samstarfs Íslands og Bandaríkjanna um öryggi Íslands, sem hefur ekki einungis verið okkur Íslendinga til hagsbóta heldur hafði það gríðarlega hernaðarlega þýðingu fyrir Bandaríkin sjálf á tímum kalda stríðsins, er varla til of mikils mælzt af hálfu okkar Íslendinga að framtíð varnarstöðvarinnar í Keflavík sé til umræðu á milli æðstu manna ríkjanna tveggja. Mikið samband hefur verið á milli Colins Powells, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Halldórs Ásgríms- sonar, utanríkisráðherra Íslands, um þetta mál. Nú eru komin á tengsl milli Bush Bandaríkjaforseta og Davíðs Oddssonar forsætisráðherra og þar með er málið komið í réttan farveg í bandaríska stjórnkerfinu. Ríkisstjórnin hefur ekki upplýst um efni bréfs Bush en ætla verður að Bandaríkin íhugi af sinni hálfu ein- hverjar þær breytingar í varnarstöð- inni sem kalli á slík bréfaskrif. Varnarsamningurinn er gagnkvæm- ur samningur á milli tveggja sjálf- stæðra ríkja þar sem annað ríkið tekur að sér að tryggja öryggi hins ríkisins. Við Íslendingar höfum alltaf metið það við Bandaríkjamenn að þeir hafa um- gengizt okkur sem jafningja þrátt fyr- ir þann stærðarmun sem á þjóðunum er. Þess vegna og vegna þess að viður- kenning Bandaríkjanna á sjálfstæði Íslands ruddi brautina fyrir lýðveldis- stofnunina 1944 hafa Bandaríkin alltaf skipað sérstakan sess í hug og hjarta okkar Íslendinga. Í ljósi sögulegra samskipta þessara tveggja þjóða hljótum við að ganga út frá því sem vísu að hugsanlegar breyt- ingar á fyrirkomulagi varnanna á Keflavíkurflugvelli verði gerðar með samkomulagi þjóðanna tveggja en ekki með einhliða yfirlýsingum af hálfu Bandaríkjamanna. Það er auðvitað ljóst að miklar breytingar hafa orðið í alþjóðamálum frá því að varnarsamningurinn var gerður 1951. Kalda stríðinu er lokið. Sovétríkin eru liðin undir lok. Komm- únisminn er fallinn. Við Íslendingar gerum okkur glögga grein fyrir þessu ekkert síður en aðrar þjóðir. Við höf- um aldrei talið eftirsóknarvert að hafa erlent herlið í okkar landi. Við höfum þvert á móti talið æskilegt að það ástand skapaðist í heimsmálum að bandaríska varnarliðið gæti horfið af landi brott. Fyrstu árin eftir fall Sovétríkjanna veltu margir því fyrir sér hvort komið væri að þeim tímamót- um þótt óvissa ríkti þá enn um fram- vindu mála í Rússlandi. Engir hafa gengið lengra í því að sannfæra þjóðir heims um að nýjar ógnir væru komnar til sögunnar en einmitt Bandaríkjamenn sjálfir og þá alveg sérstaklega núverandi stjórn- völd í Washington. Bush Bandaríkja- forseti og samstarfsmenn hans hafa flutt umheiminum þann boðskap að þessi nýja ógn væri tvíþætt. Annars vegar væri um að ræða ógn af hálfu vel skipulagðra hryðjuverkamanna sem gætu látið höggið ríða hvar sem væri í heiminum og hvenær sem væri. Hins vegar væri um að ræða ógn frá nokkr- um einræðisríkjum sem markvisst ynnu að því að koma sér upp kjarn- orkuvopnum eða öðrum gereyðingar- vopnum í því skyni að hóta umheim- inum með slíkri vopnaeign og væru svo viti firrt að þeim væri trúandi til að nota þau. Bandaríkjastjórn hefur ekki látið í ljósi þá skoðun að einni þjóð stafaði meiri eða minni hætta af hryðjuverka- mönnum og nýjum kjarnorkuveldum en öðrum. Enda hefur reynsla sýnt að hryðjuverkamenn láta til sín taka þar sem þeim sýnist. Þess vegna þarf engan að undra þótt við Íslendingar, sem tökum mark á því sem frá Bandaríkjamönnum kemur, teljum að okkur stafi ekki síður hætta af þessum nýju, illu öflum, sem Banda- ríkjaforseti hefur kallað svo, en bæði Bandaríkjamönnum og öðrum þjóðum. Í þessu samhengi fer því ekki á milli mála að á íslenzkum stjórnvöldum hvílir sú skylda að tryggja öryggi þjóð- arinnar hverju sinni með tiltækum ráðum. Samstarf okkar við Bandaríkja- menn á sviði öryggis- og varnarmála hefur verið óvenju farsælt. Við metum þá mikils. Við höfum sýnt það í verki hvað eftir annað, nú síðast í vetur. Öruggt má telja að mikill meirihluti Íslendinga vilji að það samstarf haldi áfram. Hitt er ljóst að það verður að vera á forsendum gagnkvæmra hagsmuna og trausts á milli þessara þjóða. Ef við Ís- lendingar lítum svo á að þær varnir sem Bandaríkjamenn eru tilbúnir að sjá um fyrir okkar hönd séu ekki nægi- legar til að tryggja öryggi lýðveldis okkar hljótum við að horfast í augu við þann veruleika og endurmeta stöðu okkar. Þetta mál snýst ekki um tæknilega þætti í varnarkerfum nútímans. Það snýst um pólitískt samstarf Íslands og Bandaríkjanna sem hefur skilað báð- um þjóðunum miklu frá því að banda- rískt herlið kom hingað í fyrsta sinn í heimsstyrjöldinni síðari og síðan aftur 1951 eftir að kalda stríðið var skollið á. Bandaríkjamenn eru nú að endur- meta stöðu sína um allan heim og hlut- verk varnarstöðva sem þeir hafa haft í ýmsum löndum. Sú endurskoðun nær einnig til Íslands eins og eðlilegt er. Í þeirri endurskoðun verður að gera ráð fyrir að Bandaríkjamenn horfi til langtímahagsmuna en ekki skamm- tímasjónarmiða. Það hljótum við Ís- lendingar líka að gera. Vonandi tekst ríkisstjórnum þessara gömlu vina- þjóða að ná niðurstöðu sem þjónar hagsmunum beggja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.