Morgunblaðið - 06.06.2003, Blaðsíða 20
ERLENT
20 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
GEORGE W. Bush Bandaríkja-
forseti nuddar höfuð bandarísks
herforingja eftir að hafa ávarpað
um þúsund bandaríska hermenn í
Doha í Katar í gær. Bush varði
innrásina í Írak í ávarpinu og
sagði að Bandaríkjamenn myndu
„komast að sannleikanum“ um
meint gereyðingarvopn Íraka.
Hann lofaði þó ekki beinlínis að
slík vopn myndu finnast.
„Við höfum tryggt að Írak
verður ekki vopnabúr fyrir
hryðjuverkahreyfingar,“ sagði
Bush og þakkaði hermönnunum
fyrir að binda enda á harðstjórn
Saddams Hussein. Sjö daga ferð
Bush til Evrópu og Mið-Austur-
landa lauk í gær. Flugvél hans
var flogið yfir Bagdad áður en
hún hélt til Washington og forset-
inn fékk þá tækifæri til þess að
virða írösku höfuðborgina fyrir
sér.
Reuters
„Munum komast að sannleikanum“
ENN var sótt að Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, í gær vegna
ásakana um að breska stjórnin hefði
gert of mikið úr gereyðingarvopna-
eign Íraka eða misnotað upplýsingar
bresku leyniþjónustunnar þar að lút-
andi í aðdraganda Íraksstríðsins. Þá
greindi dagblaðið The Washington
Post frá því að sumir starfsmanna
bandarísku leyniþjónustunnar teldu
sig hafa orðið fyrir þrýstingi af hálfu
háttsettra ráðamanna um að skila
mati varðandi gereyðingarvopn Íraka
sem rímaði við það markmið stjórn-
valda að ráðast á landið.
Blair vísaði í fyrradag á bug ásök-
unum um að stjórn hans hefði á ein-
hvern hátt átt við skýrslu breskra
leyniþjónustumanna um gereyðing-
arvopnaeign Íraka. Sagði fréttaskýr-
andi BBC, Andrew Marr, í gær að svo
virtist nú sem forsætisráðherrann
myndi standa af sér þann storm, sem
orðið hefur um þetta mál.
Denis Healey lávarður, sem á sín-
um tíma var fjármálaráðherra í rík-
isstjórn Verkamannaflokksins, segir
hins vegar í grein í dagblaðinu The
Independent í gær að þrátt fyrir stað-
hæfingar forsætisráðherrans sé hann
enn ekki sannfærður um að nokkurn
tíma hafi legið fyrir sannanir fyrir því
að Írakar ættu gereyðingarvopn.
„Ef í ljós kemur að hann hafði
rangt fyrir sér varðandi þessi vopn –
eða, sem er enn verra, ef hann greindi
viljandi rangt frá – tel ég að skipta
eigi um leiðtoga [Verkamannaflokks-
ins],“ sagði Healey um Blair.
Cheney oft í heimsókn
Greint var frá því í The Wash-
ington Post í gær að Dick Cheney,
varaforseti Bandaríkjanna, og helsti
ráðgjafi hans, I. Lewis Libby, hefðu
ítrekað heimsótt höfuðstöðvar banda-
rísku leyniþjónustunnar (CIA) mán-
uðina fyrir stríðið í Írak til að krefja
sérfræðinga CIA svara um skýrslur
þeirra varðandi vopnaáætlanir Íraka.
Fannst sumum leyniþjónstumann-
anna að með þessum ítrekuðu heim-
sóknum – sem þykja nokkuð óvenju-
legar – væri verið að þrýsta á þá um
að leggja fram skýrslur um málið þar
sem komist væri að niðurstöðum er
væru í samræmi við stefnumið banda-
rískra stjórnvalda.
Enn sótt að
Blair vegna ger-
eyðingarvopna
Bandarískir leyniþjónustumenn
segja að Cheney varaforseti hafi
þrýst á þá um að fá niðurstöður
sem hentuðu stjórnvöldum
vera birt á sama tíma og þess væri
minnst að 36 ár eru liðin frá sex daga
stríðinu 1967 þegar Ísraelar hertóku
Vesturbakkann, Gaza-svæðið og
Austur-Jerúsalem. „Palestínuríki
var stofnað í Aqaba,“ sagði blaðið í
fyrirsögn um fund Bush og Sharons
með Mahmud Abbas, forsætisráð-
herra palestínsku heimastjórnarinn-
ar.
„Hann kom, sá og sigraði. Bush
Bandaríkjaforseti kreisti tvær sítr-
ónur sem voru súrar hvor út í aðra
og úr Mahmud Abbas og Ariel Shar-
on kreisti hann stór loforð, fordæm-
islausar skuldbindingar, orð ristuð í
stein sem verður ef til vill ekki hægt
að taka aftur,“ sagði Maariv.
Abbas lofaði á leiðtogafundinum
að gera sitt ýtrasta til að binda enda
á vopnaða uppreisn Palestínumanna
og Sharon hét því að fjarlægja
nokkrar „ólöglegar útvarðarstöðv-
ar“ gyðinga á svæðum Palestínu-
manna.
Yediot Aharonot hafði eftir Shim-
on Peres, fyrrverandi utanríkisráð-
herra sem var sæmdur friðarverð-
launum Nóbels fyrir Óslóarsamn-
ingana, að „einlægur sáttatónn“
væri í yfirlýsingu Abbas. Hann hrós-
aði einnig Sharon fyrir að taka „óaft-
FJÖLMIÐLAR í Ísrael og nokkrum
arabaríkjum fögnuðu í gær niður-
stöðu fundar leiðtoga Bandaríkj-
anna, Ísraels og heimastjórnar Pal-
estínumanna sem hugsanlegum
tímamótum í áratugalöngum deilum
Ísraela og Palestínumanna.
Blöðin minntu þó á að margar
friðaráætlanir hafa farið út um þúfur
og Tishrin, málgagn sýrlensku
stjórnarinnar, sagði að Ariel Sharon,
forsætisráðherra Ísraels, væri enn
„andvígur friði“ en þættist nú vera
„maður friðarins til að vinna tíma“.
Dagblaðið Al-Hayat, sem er í eigu
Sádi-Araba, var hins vegar bjart-
sýnt á að leiðtogafundurinn í Aqaba í
Jórdaníu í fyrradag greiddi fyrir
langþráðum friði í Mið-Austurlönd-
um. „Gagngerar breytingar virðast
vera framundan í Mið-Austurlönd-
um eftir að leiðtogafundurinn í
Aqaba skilaði árangri sem er mik-
ilvægari en Óslóarsamningarnir árið
1993,“ sagði Al-Hayat.
Nokkur arabísk dagblöð fögnuðu
einnig niðurstöðu fundarins en vör-
uðu við því að mörg ljón væru enn á
veginum. Al-Akhbar, málgagn
stjórnarinnar í Egyptalandi, sagði
að leiðtogafundurinn vekti vonir en
bætti við að árangurinn væri háður
því hversu miklum þrýstingi Banda-
ríkjastjórn væri tilbúin að beita
Sharon.
„Kom, sá og sigraði“
Ísraelsku dagblöðin Yediot Ah-
aronot, Maariv og Haaretz gerðu
mest úr yfirlýsingu George W. Bush
Bandaríkjaforseta um nauðsyn þess
að „skipta Landinu helga milli ríkis
Palestínumanna og Ísraelsríkis“.
Yediot sagði að það gæfi þessum
orðum sérstakt gildi að þau skyldu
urkallanlega ákvörðun um að ná
þýðingarmiklu pólitísku samkomu-
lagi með staðfestu sem mun koma
aröbum á óvart“. „Er hann ekki eini
ísraelski leiðtoginn sem hefur
reynslu af því frá fyrstu hendi að
fjarlægja byggðir til að koma á
friði,“ sagði Peres og skírskotaði til
þess að gyðingar voru fluttir úr
Yamit-byggðinni þegar Egyptar
fengu aftur yfirráð yfir Sínaískaga
samkvæmt friðarsamkomulagi frá
1979.
„Mikil hugmyndafræðileg
umskipti“
Flest ísraelsku dagblaðanna lögðu
áherslu á að á fundinum í Aqaba
hefði Yasser Arafat formlega verið
ýtt til hliðar sem leiðtoga Pal-
estínumanna á alþjóðavettvangi og
Mahmud Abbas hefði tekið við af
honum. Þau bentu einnig á að Ariel
Sharon hefði gefið gamlan draum
sinn upp á bátinn.
„Ekkert hefði getað verið erfiðara
fyrir Sharon að kyngja en yfirlýsing
Bush um að skipta ætti Landinu
helga,“ sagði Herb Keinon í frétta-
skýringu í The Jerusalem Post. „Það
sem forsetinn sagði við Sharon, með
heimsbyggðina sem vitni, var að
ballið væri búið og að hugsjónin sem
Sharon hafði helgað sig síðustu 36
árin – um að halda herteknu svæð-
unum sem hluta af Ísrael – væri nú
gengin sér til húðar.“
Keinon benti einnig á að Sharon
notaði í fyrsta sinn opinberlega í
manna minnum orðið Vesturbakk-
inn en ekki orðin Júdea og Samaría
og það væri til marks um „mikil hug-
myndafræðileg umskipti“ af hálfu
forsætisráðherrans. „Vesturbakkinn
og Júdea og Samaría eru gildishlað-
in heiti með mikilvægar aukamerk-
ingar. Fyrra heitið gefur til kynna
landsvæði sem Ísrael hefur engin
hlutlæg tengsl við, hið seinna dregur
fram djúpstæð söguleg tengsl.“
Áður hafði Sharon notað orðið
„hernám“ í fyrsta skipti í tengslum
við svæði Palestínumanna. Keinon
telur að orðaval Sharons bendi til
þess honum sé full alvara með yf-
irlýsingum sínum um að hann hygg-
ist koma ákvæðum Vegvísisins til
friðar í Mið-Austurlöndum í fram-
kvæmd, meðal annars að fallast á
stofnun sjálfstæðs Palestínuríkis.
„Það er miklu auðveldara að fara frá
Vesturbakkanum en Júdeu og Sam-
aríu og jafnvel enn auðveldara ef um
hernám er að ræða … Með því að
bæta orðunum „hernám“ og „Vest-
urbakkinn“ í orðaforða sinn er Shar-
on að búa almenning undir það sem
hann telur nú vera óhjákvæmilegt,
að deila Landinu helga með Palest-
ínumönnum.“
Yasser Arafat kvaðst vera efins
um að Sharon stæði við orð sín og
sagði að hann hefði ekkert gert enn
til að stuðla að friði. „Hvaða þýðingu
hefur þetta ef Sharon fjarlægir eitt
hjólhýsi og segir okkur að hann hafi
fjarlægt byggð?“
Marwan Moashar, utanríkisráð-
herra Jórdaníu, sagði að Mahmud
Abbas væri eini palestínski leiðtog-
inn sem gæti þokað friðarviðræðun-
um áfram. „Ef honum mistekst þetta
tel ég að enginn annar Palestínu-
maður geti stigið fram og reynt að
gera þetta aftur.“
Aqaba-fundur talinn
geta markað tímamót
Arabísk dagblöð vara þó við því að mörg ljón
séu enn á veginum til friðar í Mið-Austurlöndum
Jerúsalem, Kaíró, Aqaba. AFP.
’ Bush kreisti útstór loforð, fordæm-
islausar skuldbind-
ingar og orð rist í
stein sem verður ef
til vill ekki hægt að
taka aftur. ‘
.
($
$
(,/$'$ $/ /
0$'$/
/(1$&$
,2
#( 3
($45$56
&
$/$
&$&$ $
$7$
/
G 5 H
E
)@>
>7
8
G 5H :GH ,+,5. G
I$5 0JG :: ,J.
"=E
)@>
>7
8
$
&@>
7
-
#
K 8-
9$+:$/
5/
:
'
:
; /
<=2
> /
F
G 5H
(E
)@>
>
#
K
#L
G
+
,
" (2(?
2>)@>
M
N
!O L-2!!
=/
"
7$
/?
2>)@>
&N!
;
" @A;39
B
$
-