Morgunblaðið - 06.06.2003, Page 11

Morgunblaðið - 06.06.2003, Page 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2003 11 ÍTALSKI flugmálaráðherrannBalbo og flugleiðangur hans,sem kom til Reykjavíkur 5.júlí 1933 er það efni sem lagt er út af á ráðstefnu sem haldin verð- ur á morgun kl. 14 í Lögbergi, her- bergi 101, á veg- um heimspeki- deildar Háskóla Íslands. Meðal fyrirles- ara þar verður Hildur Jónsdóttir sem skrifað hefur BA-ritgerð í ítölskunámi sínu við H.Í.: „Koma Balbo til Íslands 1933“, eins og hún nefnir ritgerðina. „Ég var að leita að einhverju efni sem tengdi Ísland og Ítalíu og fékk sömu ábendinguna frá tveimur að- ilum saman daginn, þ.e. að skrifa um komu Balbo til Íslands. Ég hafði sjálf varla heyrt á manninn minnst svo ég ákvað að spyrjast fyrir um hann,“ sagði Hildur um ritgerð sína. „Hvatinn að ritgerðinni var svar ömmu minnar Ellenar Bjarnadóttur við spurningunni en hún endurtók spurningu mína í forundran: „Veit ég hver Balbo var?“ Amma var að vinna í skóbúð á Laugaveginum ásamt annarri stelpu sumarið 1933. Um leið og þær heyrðu í flugvél- unum læstu þær búðinni, hlupu út og upp á þak á Vatnsstígnum og horfðu á vélarnar koma. Þetta var greinilega henni ógleymanleg sjón.“ –Hvernig fannst þér svo að vinna þetta verkefni? „Þetta var mjög áhugavert. Ég studdist mikið við Morgunblaðs- greinar og aðrar blaðagreinar og eins viðtöl við eldra fólk sem upplifði þennan atburð. Þetta voru 24 sjó- flugvélar og flugöld var varla hafin á Íslandi þannig að þetta var öllum mjög minnisstætt.“ –Hvað kom þér mest á á óvart í sambandi við flug Balbos? „Það sem kom mér á óvart voru mismunandi viðbrögð við komu Balbos. Stærstu dagblöðin, Morg- unblaðið og Vísir, lýsa komu Balbos sem mjög merkum atburði sem beri að fagna og lýsa honum á mjög já- kvæðan hátt. Og þetta var án efa skoðun þorra landsmanna. Ekki voru þó allir á eitt sáttir um ágæti komu Balbos. Það voru mótmæli við komu Balbos á Íslandi. T.d. hafði verið skrifuð grein í Rauða fánann, sem var blað ungra kommúnista, en einungis fyrirsögnin stóð í útgáf- unni. Fyrirsögnin var „Flugferð Ítalanna“ (greinin bönnuð af lög- reglustjóra). Í staðinn dreifði Rauði fáninn fregnmiða sem hafði að geyma inntak áður bannaðrar grein- ar, sem og kjörorð á ítölsku sem þeir hvöttu Íslendinga til að hrópa ef Balbo eða aðrir Ítalir yrðu á vegi þeirra: „Abasso il fascismo“ (Niður með fasismann). Alþýðublaðið skrif- aði einnig um fasistastjórn Ítalíu og ítölsku þjóðina sem engu réð um eig- in aðstæður. Loks ber að geta þeirra sem sáu spaugilegar hliðar á málinu, t.d. birti Spegillinn nokkrar skop- greinar þessu tengt og árið 1937 var svo birt í tímaritinu Rauðir pennar smásaga eftir Halldór Laxness: „Ósigur ítalska loftflotans í Reykja- vík 1933“. – Hafði þetta áhrif á samskipti Ís- lands og Ítalíu? „Ég skoðaði þetta ekki þannig heldur skoðaði atburðinn einkum frá sjónarhorni Íslendinga þeirra tíma. En á ráðstefnunni í Lögbergi fjallar Ragnar Borg um samskipti land- anna í framhaldi af flugi Balbos. Aðrir fyrirlesarar verða Maurizio Tani ítölskukennari við H.Í., Greg- ory Alegi kennari í flugsögu á Ítalíu, Orri Eiríksson varaformaður flug- sögufélags Íslands ræðir um þetta flug og þróun íslenskrar flugsögu og Sigurður H. Þorsteinsson ræðir um Balbo-flugið frá sjónarhorni frí- merkjasöfnunar. Ráðstefnustjóri er Maria Rosaria Coda lektor við H.Í. Viðbrögð ömmunnar hvati BA-ritgerðar Koma ítalska flugmálaráðherrans Italos Balbos til Íslands var mikill viðburður og vakti hér ýmis viðbrögð. Hildur Jónsdóttir segir hér Guðrúnu Guðlaugsdóttur frá þeim viðbrögðum, en Hildur hefur skrifað BA-ritgerð um komu Balbos til Íslands. Balbo og menn hans fyrir framan Hótel Borg. Hildur Jónsdóttir F.v. Ásgeir Ásgeirsson forsætisráð- herra, kona hans Dóra Þórhalls- dóttir, Ingibjörg Claessen og eigin- maður hennar Jón Þorláksson borgarstjóri. Fremst á myndinni er litla stúlkan Anna Guðrún Tryggvadóttir sem færði Balbo blómin. Hún er bróðurdóttir Dóru Þórhallsdóttur. Anna Guðrún kveðst í viðtali við Hildi Jónsdóttur muna það helst frá þessum atburði að hafa fengið nýja bláa kápu og hvíta alpahúfu. Koma ítalska flugmálaráðherrans og flugleiðangur hans til Íslands árið 1933 vakti mikla athygli ITALO Balbo fæddist 6. júní 1896 í Ferrara á Ítalíu. Hann var sjálf- boðaliði í Alpaskyttuherdeildinni í fyrri heimsstyrjöldinni og var sæmdur þremur medalíum fyrir þau störf. Hann lauk háskólagráðu í fé- lagsvísindum 1921 frá háskólanum í Flórens. Hann og Emanuela Florio, eiginkona hans. eignuðust þrjú börn. Balbo tók þátt í stjórnmálum og eftir að hann var kosinn flokksfor- ingi í Fascio Ferrarese (fasista- hreyfing í Ferrara) tókust samskipti milli hans og Mussolini og var hann flugmálaráðherra í stjórn hans árin 1929 til 1933. Balbo er ekki minnst sem stjórnmálamanns heldur fyrir afrek hans sem flugmaður. Hans mestu afrek voru hópflugin tvö sem farin voru yfir Atlantshafið, hið fyrra 1931 til Rio de Janeiro, yfir Atlantshafið sunnanvert. Hið síðara 1933 til Chicago, yfir Norður- Atlantshaf, m.a. með viðkomu í Reykjavík. Mussolini virðist smám saman hafa farið að líta á Balbo sem hættulegan andstæðing. Hann gerði Balbo að ríkisstjóra í Líbíu 1934. Ævi Balbos lauk á sorglegan hátt 28. júní 1940. Flugvél hans var skotin niður, að því er sagt var opinberlega, vegna mistaka ítalska flughersins. Hann dó í Tobruk í austurhluta Líb- íu og margir hafa velt fyrir sér hvort dauða hans hafi borið að vegna mis- taka eða skipana frá Mussolini. Italo Balbo ÞAÐ var aldeilis upplit á Reyk- víkingum þegar 24 flugvélar ítalska flugflotans renndu sér inn á Kleppsvíkina eftir að hafa sveimað yfir Viðey og Vatnagörð- um í nokkrar mínútur rétt fyrir klukkan 17 þann 5. júlí 1933. Fólkið var búið að standa og skima eftir vélunum í nokkra stund en þær lögðu af stað frá Londonderry sex tímum áður en þær lentu. Ferð flugflotans var heitið til Chicago í Bandaríkj- unum og millilentu þær hér. Því miður var veður ekki gott þennan dag í Reykjavík, sunnan dimmviðri og stormur. Eigi að síður voru þetta mikil tíðindi í litlum bæ norður í höfum. „Meðan flugvjelarnar voru að setjast höfðu bensínbátarnir farið af víkinni. En jafnskjótt og allar flugvjelarnar voru sestar fóru þeir út á víkina hver að sinni flugvjel. En þetta varð þó til þess að landganga flugmannanna tafð- ist,“ segir í grein Morgunblaðsins um þennan viðburð. Öll skip á Reykjavíkurhöfn voru fánum skreytt og fánar dregnir að húni víða um bæ. Bensínbátarnir voru íslenskir vél- bátar sem leigðir voru til þess arna. Það hefur verið óvenjuleg sjón fyrir fólk þeirra tíma að sjá flug- vélarnar, þrjár og þrjár saman, fljúga oddaflug yfir bæinn. Balbo flugmálaráðherra fór fremstur. Eftir að flugvélarnar höfðu tekið eldsneyti, „Stanavo“-bensín sem þá þótti eitthvert allra besta bens- ínið handa flugvélum, fóru flug- mennirnir í land og vafalaust hef- ur hjartað slegið örar í margri ungmeynni þegar hinir ungu og glæsilegu ítölsku flugmenn tóku að arka um götur Reykjavíkur. Fyrst var þó formleg móttaka. „Balbo gekk hvatlega á land og skundaði til móts við þá, er komn- ir voru til að heilsa honum. Heils- aði honum fyrstur Ásgeir Ás- geirsson forsætisráðherra, ásamt frú sinni, en lítil stúlka rétti Balbo blómvönd og kyssti Balbo á kinn hennar í þakklætisskyni,“ segir í Öldinni okkar. Flugleiðangurinn hélt kyrru fyrir í Reykjavík í nokkra daga við mikinn fögnuð bæjarbúa en hélt svo áleiðis til Chicago að morgni 12. júní, eftir að viðgerðir höfðu farið fram á vél Balbo. Brottförin tafðist nokkuð vegna bilunarinnar. Flugleiðangurinn lenti svo heilu og höldnu á Labra- dor 12 tímum síðar. Ásamt hópn- um fóru 298 sendibréf með kveðj- um frá Íslandi og voru þau frímerkt á sérstakan máta. Flugu oddaflug yfir Reykjavík Ítalski flugmálaráðherrann Italo Balbo heilsar Ásgeiri Ásgeirssyni, forsætisráðherra Íslands. Ítölsku flugvélarnar flugu oddaflug yfir Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.