Morgunblaðið - 06.06.2003, Qupperneq 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2003 17
AÐ minnsta kosti 18 manns létu
lífið þegar kona sprengdi sig í loft
upp við strætisvagn í bænum
Mozdok í Norður-Ossetíu í gær-
morgun. Norður-Ossetía er í suð-
urhluta Rússlands og er nágranna-
hérað Tétsníu þar sem Rússar og
aðskilnaðarsinnar hafa háð blóðugt
stríð á undanliðnum árum.
Farþegar rútunnar voru 40 tals-
ins, rússneskir starfsmenn flug-
hersins sem voru á leið til vinnu í
herstöð rétt hjá.
Lögregluyfirvöld í Tétsníu segja
að konan, sem leit út fyrir að vera
um fertugt og var klædd hvítum
læknabúningi, hafi veifað til rút-
unnar rétt áður en hún lagði af
stað. Talið er að markmið hennar
hafi verið að komast inn í
herstöðina en er ökumaður neitaði
að hleypa henni inn í rútuna mun
hún að hafa hrópað „Guð er æðri“
áður en hún sprengdi sprengju-
belti sem hún hafði fest um sig
miðja. Fimm hinna látnu voru kon-
ur en 13 karlar. Í gær voru enn 13
særðir á sjúkrahúsi þar af 7 alvar-
lega.
Samtök hófsamra tétsneskra að-
skilnaðarsinna undir forystu Asl-
ans Maskhadovs hafa neitað aðild
að tilræðinu og fordæmt það. Téts-
neskir aðskilnaðarsinnar hafa á
síðustu vikum staðið fyrir árásum
á rússnesk skotmörk, m.a. voru
tvær sjálfsmorðsárásir gerðar á
þremur dögum í maí sem kostuðu
78 manns lífið.
Sjálfsmorðsárás í N-Osset-
íu varð 18 manns að bana
Sleptsovsk. AFP.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
ÞÝSKI stjórn-
málamaðurinn
Jürgen Mölle-
mann, fyrrver-
andi vara-
formaður
Frjálslynda
demókrata-
flokksins, lést í
fallhlífarstökki í
gærmorgun. Möllemann sætti
umfangsmikilli rannsókn vegna
meintra fjársvika og fyrr í gær
hafði þýska þingið samþykkt að
létta af honum þinghelgi. Til
stóð að gera húsleit á 25 stöðum í
Þýskalandi, Liechtenstein, Lúx-
emborg og Spáni vegna rann-
sóknarinnar.
Lögregla segir að Möllemann
hafi látist þegar hann stökk í
fallhlíf yfir bænum Marl í
Þýskalandi. Hann var í hópi níu
kunningja sinna og stökk út úr
flugvél í fjögur þúsund metra
hæð yfir bænum Marl í Þýska-
landi. Fallhlíf hans opnaðist
ekki.
Möllemann neyddist til að
segja af sér sem varaformaður
Frjálslynda demókrataflokksins
eftir að flokkurinn beið afhroð í
þingkosningum í Þýskalandi sl.
haust.
Ritstjórar
hætta
BANDARÍSKA dagblaðið The
New York Times greindi frá því
í gær í netútgáfu sinni að aðalrit-
stjórar dagblaðsins, Howell
Raines og Gerald Boyd, hefðu
sagt upp störfum í kjölfar rann-
sóknar innan blaðsins. Rann-
sókn hefur farið fram á um-
fangsmikilli sviksemi og ritstuldi
Jayson Blairs, blaðamanns þess,
í tengslum við tugi stórra
fréttafrásagna. Blaðið segir að
Joseph Lelyveld, sem er fyrr-
verandi ritstjóri þess, verði ráð-
inn ritstjóri til bráðabirgða.
„Howell og Gerald hafa lagt
fram uppsagnarbréf sín og ég
hef samþykkt uppsögn þeirra,“
sagði Arthur Sulzberger, stjórn-
arformaður útgáfufyrirtækis
blaðsins. Hann sagði dapurlegt
að taka við uppsagnarbréfi frá
Boyd og Raines en taldi það
blaðinu fyrir bestu.
Ritstjórarnir voru einkum
gagnrýndir fyrir að leyfa Blair
að annast skrif um leyniskyttu,
sem lét til skarar skríða á Wash-
ington-svæðinu í fyrra. Frétta-
stjórar höfðu þá þegar gagnrýnt
aðferðir Blairs og mælt með því
að hann yrði stöðvaður.
Dætur fá
ekki hæli
TALSMAÐUR Tonys Blairs,
forsætisráðherra Bretlands,
sagði í gær að ekki kæmi til álita
að veita eiginkonu Saddams
Husseins, fyrrverandi forseta
Íraks, og dætrum þeirra tveim-
ur hæli í Bretlandi.
Dagblaðið Sun skýrði frá því í
gær að dætur Saddams, þær
Raghad og Rana, vonuðust til að
geta sest að í Leeds-borg ásamt
börnum sínum tíu. Frændi
Saddams býr þar í borg.
Daily Mail greindi frá því að
Sajida, eiginkona Saddams,
hygðist einnig sækja um hæli í
Bretlandi.
Talsmaður Blairs lýsti yfir því
að ættmenni forsetans fyrrver-
andi gætu ekki gert sér nokkrar
vonir um hælisvist í Bretlandi.
Þetta fólk kynni að hafa tengst
mannréttindabrotum í Írak.
STUTT
Möllemann
látinn
Jürgen
Möllemann