Morgunblaðið - 06.06.2003, Síða 46
DAGBÓK
46 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Arcelor Dunkerque,
skúta, Union
Commercaiale, skúta,
Magnolia IV, skúta,
Ville de Gravelines,
skúta, 3000 Sabords,
skúta, Elvedi, skúta,
Galea, skúta, Mio
Palmo, skúta, Ville de
Pléneuf, skúta, Dest-
ination Calais, skúta,
Puente Pereiras
Cuatro og Sæbjörg
koma í dag. Girafa
skúta Kiel Hanseduo
og Mánafoss fara í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Eridan og Obsha
koma í dag. Sapphire
kom í gær, Þór og
Arnar fóru í gær.
Mannamót
Aflagrandi 40. Bingó í
dag kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 13–
16.30 opin smíða- og
handavinnustofan.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–12.30 bað, kl. 9–
16 handavinna, kl. 9–
17 fótaaðgerð, kl. 13–
16 spilað í sal.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað,
og opin handa-
vinnustofa.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–12 applikering, kl.
10–13 opin verslunin.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9.30
gönguhópur, allir vel-
komnir, kl. 9–12 bað,
kl. 9–16 opin vinnu-
stofa.
Korpúlfar Grafarvogi
samtök eldri borgara.
Vatnsleikfimi er í
Grafarvogslaug á
föstudögum kl. 14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8. bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13 „opið
hús“, spilað á spil.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Billjard 13.30 og brids
kl. 13. Púttæfingar á
Hrafnistuvelli kl. 14.
til 16.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Fundur í
dag kl. 11 í Ásgarði
fyrir þá sem fara á
Vestfirði þriðjudaginn
10. júní. Dansleikur
fellur niður hvíta-
sunnuhelgina. S.
588 2111.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf, kl. 9–16.30
vinnustofur opnar frá
hádegi, spilasalur op-
inn, veitingar í Kaffi
Berg. Lokað verður
mánudaginn 9. júní,
annan í hvítasunnu. S.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg
8. Kl. 9.30 málm- og
silfursmíði, kl. 13 bók-
band.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið frá kl. 9–17,
heitt á könnunni.
Hraunbær 105. Kl. 9
bað, handavinna, út-
skurður, fótaaðgerð
og hárgreiðsla, kl. 11
spurt og spjallað. Í
dag 6. júní kl. 14 spilað
bingó. Allir velkomnir.
Kaffiveitingar.
Hvassaleiti 58–60.
Hársnyrting fótaað-
gerðir.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
13 tréskurður, kl. 9–
17, hárgreiðsla, kl. 10–
11 boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
handavinna, kl. 10–11
kántrýdans, kl. 11–12
stepp, kl. 13.30–14.30
sungið við flygilinn, kl.
14.30–16 dansað í að-
alsal.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla
og opin vinnustofa, kl.
9.30 bókband og
morgunstund, kl. 10
fótaðgerð, kl. 12. 30
opin vinnustofa, kl.
13.30 bingó.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laug-
ardögum.
Brúðubíllinn
Brúðubíllinn, verður í
dag föstudaginn 6.
júní kl. 10 við Arn-
arbakka og kl. 14 við
Austurbæjarskóla.
Minningarkort
Minningarkort MS-
félags Íslands eru seld
á skrifstofu félagsins,
Sléttuvegi 5, 103 Rvík.
Skrifstofan er opin
mán.–fim. kl.10–15.
Sími 568-8620. Bréfs.
568-8621. Tölvupóstur
ms@msfelag.is.
Heilavernd. Minning
arkort fást á eft-
irtöldum stöðum: í
síma 588- 9220 (gíró)
Holtsapóteki, Vest-
urbæj arapóteki, Hafn
arfjarðarapóteki,
Keflavíkurapóteki og
hjá Gunnhildi Elías-
dóttur, Ísafirði.
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á
Íslandi eru afgreidd á
skrifstofutími í síma
552-4440 frá kl 11-15.
Kortin má einnig
panta á vef slóðinni:
http://www.park in-
son.is/ sam_minning
arkort.asp
Í dag er föstudagur 6. júní, 157.
dagur ársins 2003. Orð dagsins:
Hjarta hins réttláta íhugar,
hverju svara skuli, en munnur
óguðlegra eys úr sér illsku.
(Orðskv. 15, 28.)
ÍMorgunpósti VG erfjallað um framtíð
Reykjavíkurlistans.
„Hvernig fer fyrir R-list-
anum? er spurning sem
íhaldsmenn jafnt sem fé-
lagshyggjufólk hafa spurt
sig síðan stóri bresturinn
varð í desember síðast-
liðnum,“ segir í Morg-
unpóstinum. „Upphlaup
Ingibjargar skilur eftir
sig stórt sár í samstarfi
þeirra sem standa að
R-listanum – því verður
ekki neitað og er raunar
fásinna að halda öðru
fram. Það er hins vegar
ekki þar með sagt að ekki
verði hægt að bæta þann
skaða og ef rétt verður
haldið á spilunum að gera
samstarfið öflugra en það
var með Ingibjörgu sem
borgarstjóra.
Fyrst þarf að líta ástrúktúr R-listans.
Fyrir kosningarnar árið
2002 var ákveðið að
listann myndu skipa tveir
fulltrúar frá hverjum
flokki fyrir sig, þ.e.
Framsóknarflokki, VG og
Samfylkingunni. Auk
þeirra tækju sæti á listan-
um tveir „óháðir“ þar
sem Ingibjörg fengi 8.
sætið sem borgarstjóra-
efni listans. Nú er annar
óháðu einstaklinganna
genginn til liðs við Sam-
fylkinguna og sumir vilja
væna Dag B. Eggertsson
um að tilheyra S-flokkn-
um líka. Þórólfur Árna-
son fór reyndar ansi
nærri því að lýsa yfir op-
inberum stuðningi við
Ingibjörgu í kosningabar-
áttunni í grein sem birtist
í Morgunblaðinu. Það er
því augljóst að hlutföll
innan R-listans hafa
breyst.
Eigi R-listinn að dafna
áfram, þarf að gera nýjan
málefnasamning og end-
urskipuleggja strúkt-
úrinn. Það er ekkert sem
stendur í vegi fyrir því að
þetta verði gert – hafi
menn á annað borð vilja
til þess að reka hér um-
hverfisvæna fé-
lagshyggjupólitík. Það
þykir mörgum vænt um
R-listann enda á ferðinni
frábært bandalag sem
hefur skilað miklu. Hins
vegar verður að gæta að
fjöregginu og horfast í
augu við þá staðreynd að
traustið þarf að halda og
það verður ekki gert með
öðrum hætti en að taka
upp samninginn frá vor-
inu 2002, skoða breyttar
forsendur, gæta að því að
halda því trausti sem er
grunnurinn undir sam-
starfið.
Til þess að það megiverða þurfa flokk-
arnir þrír að koma að
endurskoðun samnings-
ins af heiðarleika og með
það að markmiði að gera
R-listann sterkari en
nokkru sinni. Listinn hef-
ur staðið af sér ágjöfina
síðastliðinn vetur þar sem
VG lagði mikla áherslu á
að upphlaup Ingibjargar
yrði ekki til þess að sam-
starfið færi út um þúfur.
Nú er komið að Samfylk-
ingunni að sýna vilja sinn
til að halda samstarfinu
áfram í verki með því að
koma að endurskoðun
samningsins með opnum
huga.“
STAKSTEINAR
Semja þarf um Reykja-
víkurlistann upp á nýtt
Víkverji skrifar...
VÍKVERJA finnst merkilegt hvaðfólk heitir stundum viðeigandi
nöfnum, út frá atvinnu sinni eða
áhugamáli. Þannig gæti íslenzki sigl-
ingakappinn, sem keppir nú á smá-
þjóðaleikunum á Möltu, tæplega heit-
ið meira viðeigandi nafni en
Hafsteinn Ægir Geirsson. Viðtalið
við Hafstein í Morgunblaðinu minnti
Víkverja á annan Hafstein, sem líka
stundaði siglingar, það er Hafsteinn
Sveinsson, sem átti og rak Viðeyj-
arferjuna. Mörgum þótti nafnið fara
eiganda slíks fyrirtækis vel, en nafnið
á manninum, sem keypti fyrirtækið
af Hafsteini og siglir nú með fólk út í
eyjarnar á sundunum, passar eig-
inlega ennþá betur; hann heitir Ey-
steinn.
x x x
LOGI Eldon heitinn var þekktur arinsmiður og margir muna eftir
Verði L. Traustasyni í starfi lög-
regluþjóns á Akureyri (L-ið stendur
fyrir Leví, ekki Laganna). Nöfn
þeirra fóru líka vel við starfsheitið.
Sama má segja um Sigurjón Jónsson
Bláfeld, loðdýraræktarráðunaut hjá
Bændasamtökunum.
Svo heita sumir nafni, sem passar
kannski ekki nákvæmlega við starfs-
heitið en býður þó upp á skemmti-
legar samsetningar; t.d. virðist Vík-
verja að sjónvarpsfréttamenn hafi
alltaf jafngaman af að spyrja Harald
Briem sóttvarnalækni: Er þetta far-
aldur, Haraldur? Ekki má heldur
gleyma Halli Hallssyni, sem var einu
sinni stjórnarformaður í fyrirtæki
sem hét Halló.
x x x
VÍKVERJA sýnist að fótbolti séhættur að vera helzta afsökun
smákrimma og ofbeldisseggja fyrir
því að sameina utanlandsferð, bjór-
drykkju, slagsmál og skemmdarverk.
Í staðinn hafa komið alþjóðlegir leið-
togafundir og ráðstefnur og lýðurinn
þykist ekki lengur vera áhangendur
fótboltaliða, heldur „andstæðingar
alþjóðavæðingar.“ Auðvitað koma
þessar toppfundabullur jafnmiklu
óorði á þau samtök, sem berjast í
raun og sann fyrir hagsmunum íbúa
þriðja heimsins og fótboltabullurnar
komu á fótboltaáhugamenn á sínum
tíma og Víkverji undrast nokkuð að
þau félagasamtök, sem um ræðir,
skuli ekki vera duglegri að sverja
þetta lið af sér.
x x x
SUMIR hafa verið hissa á því aðtoppfundabullurnar skuli hafa
gengið berserksgang í Genf í Sviss í
tilefni af leiðtogafundi átta helztu
iðnríkja heims, sem haldinn var
handan við landamærin, í smábæ í
Frakklandi. Voru þeir ekki í vitlausu
landi? hafa einhverjir spurt. Víkverja
finnst skýringin liggja í augum uppi.
Í frönskum smábæ eru ekki nándar
nærri nógu margar krár eða
skemmtistaðir til að fullnægja þörf-
um toppfundabullna, sem vilja auð-
vitað sinna fleiri áhugamálum en einu
í einu.
Reuters
Vel heppnuð hópferð toppfundabullna til Genfar.
Hraðferð
án tengingar?
Í MORGUNBLAÐINU 4.
júní sl. birtist grein um
gagnvirkt upplýsingakerfi
Strætó bs. Þar kom það
fram að borgarstjóri og
framkvæmdastjóri Strætó
tóku leið 111 frá Ráðhúsinu
klukkan 15:03 og voru
komnir upp í Mjódd kl.
15:19.
Ég ráðlegg borgarstjóra
og Ásgeiri Eiríkssyni að
taka strætisvagn frá Ráð-
húsinu upp í Mjódd milli
átta og níu á morgnana og
sautján til átján á eftirmið-
dögum. Þá mun ferð þeirra
eigi ganga svo greiðlega.
Hvernig á fólk sem ekki
er nettengt að fara að ef
það þarf að finna bestu
leiðina? Þetta gengur ekki.
021225-2239.
Bravó fyrir flugsýn-
ingu í Mosfellsbæ
Í BLÍÐVIÐRINU sl.
sunnudagseftirmiðdag
endaði skemmtilegur bíltúr
með ennþá skemmtilegri
flugsýningu á himinblám-
anum yfir Mosfellsbæ.
Þetta var svo óvænt að
við hjónaleysin ókum í ein-
um grænum niður á flug-
völlinn sem er þarna á leir-
unum við sjávarsíðuna.
Eiginlega héldum við að
eitthvað væri þar um að
vera í tilefni af sjómanna-
deginum en þó svo reyndist
ekki vera var samankom-
inn múgur og margmenni,
bæði bæjarbúar og ekki
síst vel á þriðja hundrað
útlendingar, að okkur var
sagt, enda rútubílar í röð-
um á heimreiðinni.
Það sem meira er, að í
spjalli við nokkra útlend-
inga sögðust þeir vera hér-
lendis á alþjóðaráðstefnu
um flugmál í Evrópu og
Bandaríkjunum en hluti af
henni var eins konar garð-
veisla hjá Atlanta flug-
félaginu með þessari líka
fínu flugsýningu. Þeir
sögðust aldrei fyrr hafa
lent á svona sérstakri flug-
sýningu úti í guðsgrænni
náttúrunni og brostu af
ánægju út undir bæði eyru.
Við Mörlandarnir getum
ekki annað en tekið undir
þetta og sannaðist enn einu
sinni hið fornkveðna að
glöggt er gests augað.
Meira að segja betri helm-
ingurinn fékk óvæntan
fiðring í magann og vildi
ólm komast í útsýnisflug
sem því miður stóð ekki til
boða.
Þegar vel viðrar hér á
höfuðborgarsvæðinu mætti
gjarnan bjóða öðrum en út-
lendingum fleiri svona
skemmtanir með flugvélum
og útsýnisflugi. Ekki er
verra ef það gæti orðið jafn
góð landkynning og raun
bar vitni þarna uppi í Mos-
fellsbæ sl. helgi. Vinsam-
legast auglýsið það þá með
góðum fyrirvara.
291249-2689.
Tapað/fundið
Armband fannst
KVENARMBAND úr
stáli, svokallað teygju-
keðjuarmband, fannst á
þvottaplani Skeljungs við
Kleppsveg. Sakni einhver
armbandsins væri ráð að
hafa samband í síma
895 8561.
Dýrahald
Viltu gefa dýr?
ÓSKAÐ er eftir gefins
hömstrum, dverghömstr-
um eða naggrís. Þeir sem
geta hugsað sér að gefa
ofangreind dýr eru vinsam-
legast beðnir að hringja í
síma 867 0797.
Kisustrákar
leita heimilis
TVO 9 vikna kisustráka
vantar góð heimili. Annar
er gulbröndóttur og hinn
er grábröndóttur. Upplýs-
ingar fást hjá Örnu í síma
694 1367 eða 552 3240.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Myndataka í Bláa lóninu.
LÁRÉTT
1 fuglsmaga, 4 mann-
vera, 7 furðu, 8 dansar, 9
hrós, 11 komist, 13 siða-
vant, 14 stælir, 15 sára-
bindi, 17 dragi, 20 iðka,
22 fær af sér, 23 dræsu,
24 ójafnan, 25 snjó-
lausan.
LÓÐRÉTT
1 frétt, 2 talaði um, 3
þekking, 4 útlit, 5 ráð-
vönd, 6 ákveð, 10 leyfi, 12
skolla, 13 upplag, 15
snuð, 16 örbirgð, 18 íra-
fár, 19 ásynja, 20 kindin,
21 duft.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1saltpækil, 8 látin, 9 linar, 10 níu, 11 kjaga, 13
næðir, 15 hrátt, 18 gatan, 21 aft, 22 skarf, 23 aurar, 24
sakamaður.
Lóðrétt: 2 aftra, 3 tunna, 4 æxlun, 5 iðnað, 6 flak, 7 frúr,
12 get, 14 æsa, 15 hest, 16 ábata, 17 tafla, 18 glaða, 19
tertu, 20 norn.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16