Morgunblaðið - 06.06.2003, Page 47

Morgunblaðið - 06.06.2003, Page 47
Hallgrímskirkja. Tónlistarandakt kl. 12. Prestur sr. Jón Dalbú Hróbjartsson. Magnea Tómasdóttir, sópran og Guð- mundur Sigurðsson, orgel, flytja Pass- íusálmalög. Akureyrarkirkja. Kl. 16 æfing hjá þeim börnum sem fermast eiga fyrir hádegi á hvítasunnudag. Kl. 17 æfing hjá þeim börnum sem fermast eiga eftir hádegi á hvítasunnudag. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Sam- komur alla laugardaga kl. 11:00. Bæna- stund alla þriðjudaga kl. 20:00. Biblíu- fræðsla allan sólarhringinn á Útvarp Boðun FM 105,5. Allir alltaf velkomnir. Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Kl. 21 unglingasamkoma. Dögg Harðardóttir prédikar. Hjálpræðisherinn á Akureyri. Flóamark- aður frá kl. 10-18 í dag. Kirkja sjöunda dags aðventista. Samkomur laugardag: Aðventkirkjan Ingólfsstræti 19. Biblíu- fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði. Biblíufræðsla/guðsþjónusta kl. 11. Biblíurannsókn og bænastund á fimmtudögum kl. 20. Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta kl. 11. Biblíurannsókn og bænastund á föstudögum kl. 19. Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði 40, Selfossi. Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest- mannaeyjum. Biblíufræðsla/guðsþjón- usta kl. 10.30. Biblíurannsókn og bænastund á sunnu- dögum kl. 13. Safnaðarstarf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2003 47 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake TVÍBURAR Afmælisbörn dagsins: Þú átt auðvelt með að sjá heildarmyndina og berð stóra drauma í brjósti. Leyfðu hjartanu að ráða för og þá munu þeir verða að veruleika. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Ekki undrast þó fortíðin sæki á þig í dag. Gæti verið í tengslum við vin eða hóp sem þú tilheyrðir. Vertu á varðbergi. Naut (20. apríl - 20. maí)  Ef vinur þinn stingur upp á undarlegri hugmynd í dag skalt þú hugsa þig tvisvar um. Það er engin þörf á því að ana út í óvissuna. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Ekki láta minniháttar tafir letja þig í leik og starfi. Það gæti liðið nokkur tími þar til hlutirnir taka á sig æskilega mynd. Mundu að þolinmæði er dygð. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Skyldur annarra gagnvart þér eru skyndilega í bið- stöðu. Ekki örvænta, með tímanum munt þú fá það sem þér ber. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Sambönd úr fortíðinni gætu skotið upp kollinum í dag. Ef þau voru ekki æskileg á sín- um tíma skaltu forðast að taka upp þráðinn að nýju. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Það væri góð hugmynd að slípa til vinnuaðferðir þínar. Með því ert þú að leggja grunn að betri og tryggari framtíð. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Möguleiki á óvæntu ást- arsambandi skýtur upp koll- inum. Þú verður að taka ákvörðun í skyndi því slíkt býðst ekki á hverjum degi. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Hlutir tengdir afþreyingu eru langt undan. Þó er ekk- ert að óttast. Þú færð þinn skammt af ánægju þegar þar að kemur. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Skyndilegar breytingar heimafyrir gætu átt sér stað. Kaldhæðnin er að þær eru ekki eins skyndilegar og sýnist. Þú hefur búist við breytingum. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Gríptu tækifærið og komdu þér í betra form. Kynntu þér tækni og starfsemi sem þér þykir forvitnileg. Það mun bera ríkulegan ávöxt. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Hagir þínir í vinnu gætu tek- ið breytingum. Ferill þinn fær byr undir báða vængi. Þetta mun þó gerast hægt og því er rósemi æskileg. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú gerir þér grein fyrir því að eitthvað hefur gerst of skjótt og í of miklum mæli. Þú verður að staldra við og ná áttum. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 40ÁRA afmæli. Frið-finnur Hermannsson varð 40 ára hinn 4. júní sl. Í tilefni af því tekur hann á móti vinum og velunnurum í garðinum heima hjá sér að Árholti 8, Húsavík nk. laug- ardag 7. júní frá kl. 19. 60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 6. júní, er sextugur Guðbrandur Bogason, slökkviliðsmaður og ökukennari. Af því til- efni taka Guðbrandur og eiginkona hans, Svandís Valsdóttir, á móti gestum í félagsheimili starfsmanna Orkuveitu Reykjavíkur (Rafveituheimilinu) í Elliða- árdal milli kl. 17 og 20. 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. Rf3 Bg7 5. cxd5 Rxd5 6. Bd2 c5 7. e4 Rxc3 8. Bxc3 cxd4 9. Rxd4 O-O 10. Bc4 Db6 11. Re2 Bxc3+ 12. bxc3 Be6 13. Hb1 Bxc4 14. Hxb6 axb6 15. O-O Hxa2 16. He1 Rc6 17. Rc1 Hb2 18. Dd7 Ba6 19. h4 Hd8 20. Dc7 h5 21. Df4 Bc4 22. e5 b5 23. e6 Bxe6 24. Re2 Hdd2 25. Rg3 b4 26. cxb4 Hd4 27. Dh6 Hg4 28. Re4 Bd5 Staðan kom upp í Stiga- móti Hellis sem lauk fyrir skömmu. Kristján Eð- varðsson (2238) hafði hvítt gegn Sigurbirni Björns- syni (2296). 29. Rf6+! og svartur gafst upp enda verður hann mát eftir 29... exf6 30. He8#. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. VANDAÐ úrspil byggist gjarnan á því að sameina möguleika – opna einar dyr án þess að loka öðrum. Sem er oft hægt, en ekki alltaf. Í sumum spilum verður að taka afstöðu með einni leið á kostnað annarra. Við skulum ljúka umfjöllun um Norður- landamótið í Færeyjum með því að skoða tvö spil þar sem nauðsynlegt var að velja leið snemma og ramba á þá réttu eða tapa samningnum ella. Norður ♠ ÁKG62 ♥ Á53 ♦ K87 ♣K10 Suður ♠ 4 ♥ KG84 ♦ G3 ♣ÁD7532 Mótherjarnir eru þögulir sem gröfin á meðan NS melda sig upp í sex lauf. Vestur byrjar svo á tígulás og meiri tígli. Hvernig á að spila? Eftir þessa hagstæðu byrjun á sagnhafi 11 slagi og ýmsa möguleika á þeim tólfta. Gallinn er bara sá að þeir möguleikar virðast vera gagnkvæmt útilokandi. Trompið verður auðvitað að falla 3-2 (eða gosinn að koma blankur) og ein leið er sú að taka þrisvar tromp strax í byrjun, síðan ÁK í spaða og stinga spaða. Ef spaða- drottningin kemur niður – blönk, önnur eða þriðja – þarf ekki að leita frekar, en annars má klára trompin og taka svo afstöðu í hjartalitn- um í lokin. Ekki slæm áætl- un, en kannski ekki sú besta. Önnur leið væri að byrja strax á spaðanum. Taka ás- inn og stinga spaða. Spila laufi á kóng og trompa spaða. Ef báðir fylgja lit, má taka trompin og nota síðan innkomuna á hjartaás til að taka tvo slagi á spaða. Ýmsir fleiri möguleikar búa í spilinu. Til dæmis mætti toppa hjartað og svína síðan í spaða ef þörf krefði, eða toppa spaðann og svína í hjarta. Þetta er óþolandi spil, því ekkert er öruggt og allar ákvarðanir eru endanlegar: Norður ♠ ÁKG62 ♥ Á53 ♦ K87 ♣K10 Vestur Austur ♠ 73 ♠ D10985 ♥ 10962 ♥ D7 ♦ Á1042 ♦ D965 ♣864 ♣G9 Suður ♠ 4 ♥ KG84 ♦ G3 ♣ÁD7532 Ljósbrá Baldursdóttir var í hópi þeirra sagnhafa sem stóðu frammi fyrir þessari þraut. Hún valdi að fara í spaðann: tók ásinn og stakk spaða, spilaði svo laufás og laufi á kónginn og trompaði aftur spaða. En austur átti tvílit í spaða og þriðja laufið og yfirtrompaði. Sannarlega ólánlegt (ekki síst í ljósi þess að hjartadrottningin liggur önnur í austur), en þó er þetta sennilega ein besta leiðin. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 60ÁRA afmæli. Í dag,6. júní, er sextug Guðrún Ásdís Einarsdóttir, tryggingaráðgjafi, Hæð- argarði 7b, Reykjavík. Hún býður ættingum, frændfólki, vinnufélögum og vinum ásamt mökum og börnum að gleðjast með sér á góðri stund og þiggja veitingar í Gaflinum, Dalshrauni 13, Hafnarfirði í dag kl. 19.30. 60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 6. júní, er sextug Ingrid Hall- dórsson, snyrtifræðingur. Ingrid er stödd í Þýskalandi þar sem hún mun halda upp á daginn í heimabæ sínum með fjölskyldu og vinum. Dimmalætting/Kalmar Gullbrúðkaup. Í dag, föstudaginn 6. júní, eiga 60 ára hjú- skaparafmæli hjónin Þóra Sigurjónsdóttir og Gísli Svavar Jónsson, Lækjarbakka, Gaulverjabæjarhreppi. RÁÐIÐ Hossir þú heimskum gikki, hann gengur lagið á, og ótal asna stykki af honum muntu fá; góðmennskan gildir ekki, gefðu duglega á kjaft: slíkt hefir, það ég þekki, þennan allra bezta kraft. Benedikt Jónsson Gröndal LJÓÐABROT KIRKJUSTARF KÓR Grafarvogskirkju heldur tón- leika í kirkjunni í kvöld, föstudag- inn 6. júní, klukkan 20. Aðgangur er ókeypis. Dagskráin er fjölbreytt, bæði innlend og erlend kirkjutónlist en íslenskir sálmar eru þar í meiri- hluta. Má þar finna ýmsar perlur íslenskrar sálma- og kirkju- tónlistar, svo sem elsta sálm Norð- urlanda, Heyr himna smiður, tví- söngslög, Maríukvæði Halldórs Laxness við lag Atla Heimis Sveins- son og Ég vil lofa eina þá, eftir Báru Grímsdóttur. Stjórnandi er Hörður Bragason. Einsöngvarar eru Arnþrúður Ösp Karlsdóttir og Margrét Grétarsdóttir. Söngdagskráin verður flutt í næstu viku í söngferð kórsins til Íslenskar sálma- perlur og kirkju- tónlist í Grafar- vogskirkju Morgunblaðið/Sverrir Grafarvogskirkja Englands. Þar mun hann syngja í dómkirkjunum í York og Lincoln sem og í Oxford og Scunthorpe. Í London tekur kórinn þátt í messu Íslendinga þann 15. júní í St. Pauls- kirkju í Covent Garden. ÁRNAÐ HEILLA • ÚTILÍF - Glæsibæ • ÚTILÍF - Smáralind • Músik og sport - Hafnarfirði • Maraþon - Kringlunni • Jói Útherji - Ármúla 36 • Leiksport - Hólagarði • K-sport - Keflavík • Sportbúð Grafarvogs - Hverafold • Sportver - Akureyri • Skagfirðingabúð - Sauðárkróki • Sportbær - Selfossi • Axel Ó - Vestmannaeyjum • Tákn - Húsavík • Hákon Sófusson - Eskifirði Aðeins þessa daga í eftirfarandi verslunum á meðan byrgðirnar af boltunum endast: TÓ e hf - he ild ve rs lu n Vikuna 4.–11. júní Flestir boltanna eru bláir, en ekki hvítir eins og á myndinni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.