Morgunblaðið - 19.06.2003, Side 25

Morgunblaðið - 19.06.2003, Side 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 2003 25 „VIÐ eigum bæði ættir okkar að rekja vestur og konan mín er ætt- uð úr Bolungavík þar sem við eig- um hús, þannig að maður tengist staðnum sífellt betur. Guðrún er svo ættuð frá Flateyri, þar sem afi hennar var skólastjóri,“ segir Pét- ur Jónasson gítarleikari, þegar hann lýsir fyrir blaðamanni að- draganda þess að hann og Guðrún Sigríður Birgisdóttir flautuleikari ákváðu að efna til tónlistarhátíðar á Vestfjörðum, sem hefst í dag, en hátíðina kalla þau Við Djúpið. „Við Guðrún og hennar maður, Martial Nardeau, fórum vestur í nóvember á vegum Tónlistar fyrir alla, fórum á alla staðina og vorum alveg heill- uð.“ „Það var nú búið að standa lengi til hjá Pétri að fara með tón- list vestur,“ segir Guðrún, „og ferðin okkar í nóvember varð til þess að efla þessa hugmynd.“ Margir tónlistarmenn vilja vinna meira á landsbyggðinni Pétur segir að þau hafi sótt um styrk úr Menningarborgarsjóði og fengið, og þar með hafi teningun- um verið kastað. Guðrún segir það jákvæða þróun hve margar tónlist- arhátíðir hafi verið að spretta upp á landinu. Margir tónlistarmenn eigi þann draum að geta unnið meira á landsbyggðinni. „Við finn- um vissa mettun á markaðnum í borginni og líka þá miklu gleði sem flylgir því að spila úti á landi. Það hlýtur að vera rétt að beina orkunni í þessa átt.“ Pétur segir þau hafa ákveðið að til að byrja með skyldu Bolung- arvík og Ísafjörður heimsóttir, en að draumurinn sé sá að hátíðin nái til byggðarkjarnanna fimm á svæð- inu. Þau hafa fengið þrjár öflugar tónlistarkonur af svæðinu til sam- starfs við sig, Sigríði Ragnarsdótt- ur og Margréti Gunnarsdóttur á Ísafirði og Soffíu Vagnsdóttur í Bolungavík. Þau Guðrún og Pétur segja að margt frábært í menningarlífinu vestra, og að þau gangi inn í þá sterku hefð sem þar er fyrir. Þau hafa fengið tvo aðra listamenn í lið með sér, Jónas Ingimundarson pí- anóleikara og Ólaf Kjartan Sigurð- arson barítonsöngvara, en Jónas verður heiðursgestur hátíðarinnar. „Starf Jónasar hefur að miklu leyti verið unnið á landsbyggðinni, þar sem hann hefur gert ómetanlega hluti. Ólafur Kjartan er svo ætt- aður að vestan eins og við; – frá Hnífsdal. Þeir voru til í tuskið, bæði að kenna með okkur og mús- ísera.“ Íslensk tónlist á tónleikum, Metallica á námskeiði Hátíðin Við Djúpið hefst í dag og stendur til 23. júní. Tónleikar verða öll kvöldin fjögur, en á morgnana bjóða þau upp á kennslu. „Við ætlum ekki að setja nein mörk um hve langt fólk er komið í tónlistarnámi, við vonum að það verði krakkar og jafnvel fullorðnir líka.“ Á tónleikunum í kvöld leika þau Guðrún og Pétur íslensk verk fyrir flautu og gítar, allt falleg verk, segja þau. „Við fundum íslenskt efni í heilan kons- ert með sætum lögum,“ segir Guð- rún, en eftir tónleikana býður Ísa- fjarðarbær þátttakendum á námskeiðinu til móttöku að Hömr- um. Á föstudagskvöldinu spyrja þeir Jónas og Ólafur Kjartan: Hvað ertu tónlist? með svipaðri dagskrá og þeir hafa flutt hér syðra. Á laugardeginum verða há- tíðartónleikar í Bolungavík þar sem þau koma öll fram, en á sunnu- dagskvöldinu verða Jónas og Ólaf- ur Kjartan með hefðbundna söng- tónleika á Ísafirði. „Við leggjum mikla áherslu á að hátíðin tengist sem mest mannlífinu fyrir vestan. Það verða nemendatónleikar og við höfum líka boðið kirkjunum okkar þjónustu. Tvo eftirmiðdaga ætla ég svo að kenna unglinum fyrir vestan að spila lög eftir Nirvana og Met- allica,“ segir Pétur, og Guðrún ætl- ar að kenna jóga alla morgnana. Sigling og miðnæturganga Meðal annarra uppákomna verð- ur sigling á laugardeginum norður á Hesteyri og miðnæturganga á Bolafjall, nætursund og grillveisla. Um þetta leyti eru sumarsólstöður og náttúrufegurðin mikil. Pétur segir að sveitarfélögin fyr- ir vestan hafi tekið þeim ákaflega vel og stutt þau með ráðum og dáð, einkum með því að útvega aðstöðu. Tónlistarskólarnir hafi líka lagt mikið af mörkum. „Svo eru enn fleiri sem hafa stutt við bakið á okkur, Hótel Ísafjörður, Flugleiðir og Sjóvá-Almennar auk Menning- arborgarsjóðsins, og ekki má gleyma Heilsubænum Bolungarvík. Það er gaman þegar fólk er tilbúið að taka þátt í þessu með okkur,“ segir Guðrún. „Það er gaman að geta dregið athyglina að þessum landshluta. Þar hefur fólki fækkað, en náttúrufegurðin er engu lík, ekki síst í náttleysinu um sumar- sólstöður.“ Nánari upplýsingar um hátíðina Við Djúpið er að finna á vef hátíð- arinnar: http://www.viddjupid.is. „Viljum að hátíðin tengist mannlífinu fyrir vestan“ Morgunblaðið/Jón Svavarsson Þau koma fram á tónlistarhátíðinni Við Djúpið: Pétur Jónasson, Ólafur Kjartan Sigurðarson, Guðrún Birgisdóttir og Jónas Ingimundarson. Klassík og rokk á tónlistarhátíðinni Við Djúpið w w w .c lin iq ue .c om www.lyfja.is 100% ilmefnalaust GÓÐ GJÖF Ráðgjafi Clinigue verður í LYFJU kl. 13-18 í dag í LYFJU Spöng Á morgun í LYFJU Garðatorgi Á laugardag í LYFJU Lágmúla *Á meðan birgðir endast. Vísindi, vatn og viska Kynntu þér nýju Water Therapy vatnsmeðferðarlínuna frá Clinique. Hún byggir á hafsjó vísindalegrar þekkingar. Clinique Water Therapy er ný lína af vörum til líkamshirðu sem eru bæði árangursríkar og sannkallaðar dekurvörur. Sérvirkjað vatn eflir rakabirgðir húðarinnar og hraðar markvissum úrbótum. Allar byggjast vörurnar á efnasamsetningu er færir húð þinni ómældan raka á stundinni en tekur svo til við að sinna sérstökum þörfum hennar, allt frá styrkingu til sefjunar. Þú finnur hvernig húð þín öll, verður mýkri, sléttari, færari til að takast á við hvað sem er - og síðast en ekki síst, unaðslega úthvíld. Nýja Water therapy vatnsmeðferðin - húðvæn, húðljúf, húðvitur. *Gjöf fylgir keyptum CLINIQUE vörum fyrir 2500 kr. og meira Söluskrifstofa Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga I Sími 5 500 600 I www.IcelandExpress.is M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN Iceland Express Open á Vífilstaðavelli GKG 28. júní Punktamót með og án forgjafar Hola í höggi. Ferð fyrir tvo með Iceland Express 1. sæti með forgjöf. Ferð fyrir tvo með Iceland Express 1. sæti án forgjafar. Ferð fyrir tvo með Iceland Express 2. og 3. sæti með forgjöf. Ferð fyrir einn með Iceland Express 2. og 3. sæti án forgjafar. Ferð fyrir einn með Iceland Express Nándarverðlaun á par 3 brautum. Ferð fyrir einn með Iceland Express Lengsta teighögg á 10. braut Ferð fyrir einn með Iceland Express Í mótslok þegar verðlaunaafhending fer fram verður efnt til leiks sem fer þannig fram: Slegið er merktum bolta af 10 teig inn á 18 flöt, þeir boltar sem þar lenda verða settir í einn pott og dregið úr þeim um utanlandsferð. Mótsgjald: 3.000 kr. Skráning er hafin á gkg.is og í síma 565 7373 Dregið verður úr skorkortum þeirra sem verða á staðnum í mótslok. Afmælisþakkir Þeim fjölda ungra og aldinna, sem glöddu mig á 70 ára afmæli mínu í Gullsmára 13, 12. júní vil ég þakka fyrir ógleymanlega kvöldstund. Sá hlýhugur, sem birtist í frumsömdum texta, flutningi tónlistar og orðum samferðamanna ásamt gjöfum og blómahafi verður mér hvatn- ing til að leggja lítið handtak til þess að brúa kynslóðarbilið og leiða fjölskylduna til önd- vegis á nýrri öld. Kærar þakkir. Hrafn Sæmundsson hrafn@ kuml.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.