Morgunblaðið - 19.06.2003, Síða 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 2003 35
✝ Kristín Ingi-mundardóttir
fæddist í Tungugröf
í Kirkjubólshreppi
hinn 4. maí 1924.
Hún lést á Land-
spítala – háskóla-
sjúkrahúsi í Foss-
vogi 11. júní
síðastliðinn. For-
eldrar Kristínar eru
Ingimundur Þórður
Ingimundarson, f.
11. september 1894
að Skarði á Snæ-
fjallaströnd, d. 30.
maí 1976, og kona
hans María Sigurbjörg Helga-
dóttir, f. 15. apríl 1890 í Goðdal í
Kaldrananeshreppi, d. 14. janúar
1966. Systkini Kristínar eru: 1)
Magnús, sjómaður og útgerðar-
maður, f. 27. desember 1922, d.
8. febrúar 1977, kona hans er
Sigrún Hulda Magnúsdóttir, f.
25. nóvember 1930. Börn þeirra
eru María Sigurbjörg, Magnús
Hans og Gunnlaugur. 2) Ingi-
mundur Kristján, skipstjóri og
útgerðarmaður í Reykjavík, f. 4.
október 1927, kona hans er Þór-
unn Þorvaldsdóttir, f. 6. janúar
1925. Börn þeirra eru Hafdís,
Ólöf, Ingimundur Þórður, Sigrún
María og Þorvaldur. 3) Helgi
Sigurður, starfsmaður Orkubús
Vestfjarða á Hólmavík, f. 27.
desember 1929, kona hans var
Sigfríður Jóhanna Björnsdóttir,
f. 8. júní 1930, d. 24. febrúar
2001. Börn þeirra eru Hilmar,
Þorvaldur Garðar og Flosi. 4)
Steinunn Helga, húsfreyja í
Reykjarfirði, f. 29. september
1901, d. 30. júli 1977. Börn Hin-
riks og Sveinfríðar eru: a) Matt-
hías, starfsmaður hjá Olís, f. 21.
júlí 1968. b) Sigrún Hanna, f. 25.
október 1974, sambýlismaður
Kristján Sveinbjörnsson, f. 8.
ágúst 1974, dóttir þeirra er
Tinna María, f. 11. maí 1998. c)
Kristín Petrína, f. 17. mars 1977.
Kristín ólst upp hjá foreldrum
sínum og flutti með þeim að
Tröllatungu í Kirkjubólshreppi
árið 1926 og þaðan að Arnkötlu-
dal í sömu sveit 1933. Til Hólma-
víkur flyst hún árið 1935 og til
Ísafjarðar 1942. Eins og títt var
um börn og unglinga á þeim ár-
um fór hún snemma að vinna,
var í vist, kaupavinnu, síldarsölt-
un og í starfi eitt sumar í Djúpa-
vík. Hún var starfsstúlka á
sjúkrahúsi Ísafjarðar um hríð og
stundaði nám við Húsmæðraskól-
ann á Ísafirði. Kristín starfaði
mikið við verslun þeirra hjóna í
Hafnarstræti 14 á Ísafirði og
hvíldi rekstur verslunarinnar að
mestu leyti á henni eftir að mað-
ur hennar varð alþingismaður
árið 1963 og má segja að heimili
þeirra hjóna hafi verið nokkurs
konar miðstöð fyrir starfsemi
Sjálfstæðisflokksins þar í bæ og
nágrenni. Árið 1974 flytur Krist-
ín alfarið frá Ísafirði en 28.
ágúst það ár varð Matthías mað-
ur hennar ráðherra. Upp frá því
var heimili þeirra í Skólagerði
63 í Kópavogi og frá árslokum
1974 í Tjaldanesi 5 í Garðabæ
þar sem þau bjuggu ávallt síðan.
Þau hjón eignuðust á árinu 1974
jörðina Trostansfjörð í Suður-
fjarðarhreppi ásamt þremur öðr-
um aðilum. Síðasta tæpa áratug
voru þau árlega í La Marina á
Spáni.
Útför Kristínar verður gerð
frá Dómkirkjunni í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
1933, maður hennar
er Hákon Salvarsson,
f, 14. júní 1923. Börn
þeirra eru Ragnheið-
ur, Ingimundur, Sal-
var og Marinó Krist-
inn.
Hinn 30. apríl 1944
giftist Kristín eftir-
lifandi manni sínum,
Matthíasi Bjarnasyni,
fyrrverandi alþingis-
manni og ráðherra, f.
á Ísafirði 15. ágúst
1921. Hann er sonur
hjónanna Bjarna
Bjarnasonar, verk-
stjóra á Ísafirði, f. 17. maí 1881,
d. 6. janúar 1960, og konu hans,
Auðar Jóhannesdóttur frá Nolli í
Grýtubakkahreppi, f. 26. apríl
1882, d. 28. desember 1968. Börn
Kristínar og Matthíasar eru: 1)
Auður félagsráðgjafi, f. 10. febr-
úar 1945, maður hennar er
Kristinn Vilhelmsson verkfræð-
ingur, f. 9. janúar 1946, sonur
Vilhelms Kristinssonar, fyrrver-
andi deildarstjóra hjá Sjóvá, f. 4.
júlí 1920 í Reykjavík, og konu
hans, Ólínu Guðbjörnsdóttur, f.
10. apríl 1922 á Syðra-Álandi í
Þistilfirði, d. 29. september 1992.
Sonur Auðar og Kristins er Matt-
hías, f. 11. mars 1978. 2) Hinrik,
tryggingaráðgjafi hjá Sjóvá-Al-
mennum, f. 20. nóvember 1946,
kona hans er Sveinfríður Jó-
hannesdóttir íþróttakennari, f. 7.
júní 1947. Foreldrar hennar eru
Jóhannes Sveinsson, f. 13. mars
1903, d. 29. september 1960, og
Petrína Guðmundsdóttir frá
Gelti við Súgandafjörð, f. 12. júlí
Kristín Ingimundardóttir var
Hólmvíkingur að uppruna, en kom
til starfa á Sjúkrahúsi Ísafjarðar
milli tektar og tvítugs, og þar með
voru örlög hennar ráðin. Nokkru
fyrir lýðveldisstofnunina árið 1944
giftist hún Matthíasi Bjarnasyni,
sem þá var nýlega orðinn fram-
kvæmdastjóri Djúpbátsins hf.
Hann hafði þá einnig keypt hús-
eignina Hafnarstræti 14, og þar
stóð heimili þeirra næstu þrjá ára-
tugina. Einnig festu þau hjónin
kaup á bókaverzlun, sem var á
neðstu hæð hússins í Hafnarstræt-
inu. Það kom því fljótlega í hlut
Kristínar að stýra heimili, þar sem
gestagangur var með ólíkindum
mikill, enda stóð heimilið við að-
algötu bæjarins. Kristín var mikil
húsmóðir og naut þess að veita
gestum sínum vel. Heimili þeirra
var alltaf opið vinum þeirra, sam-
herjum og frændliði. Við þessi
þáttaskil eru áreiðanlega margir,
sem minnast með þakklátum huga
glaðra stunda á heimili þeirra
hjóna í Hafnarstrætinu á Ísafirði,
þó að margir þeirra séu að vísu
horfnir yfir móðuna miklu. Umsvif
bónda hennar á hinu pólitízka sviði
fóru fljótlega vaxandi, eftir að þau
gengu í hjónaband, og kom það þá
í hlut Kristínar að stýra bókaverzl-
uninni langtímum saman.
Þegar Matthías hafði setið í
nokkur ár á þingi og annir hans
syðra fóru vaxandi kom að því að
þau yrðu að flytja heimili sitt suð-
ur. Það reyndist Kristínu erfitt á
margan hátt. Hún var löngu orðin
rótgróinn Ísfirðingur og þar var
hún vinmörg. Syðra biðu hennar
margvíslegar annir, embættis-
skyldur og ferðalög, sem eiginkonu
alþingismanns og ráðherra um
langt árabil, sem hún hafði vissu-
lega mikla ánægju af. Það kom þó
ávallt fram hjá henni, að hún taldi
Ísafjarðarárin beztu ár ævi sinnar.
Hún taldi sig alltaf vera Ísfirðing
og hugurinn var alltaf bundinn
Ísafirði, eins og hún orðaði það
gjarnan sjálf, þó að hún væri ekki
borin þar og barnfædd.
Í byrjun áttunda áratugarins
reistu þau Matthías og Kristín sér
sumarbústað í Norðdal í Trostans-
firði, sem er einn af Suðurfjörðum
Arnarfjarðar. Þar undi Kristin hag
sínum vel, laus frá erli og skarkala
höfuðborgarsvæðisins, þó að gest-
kvæmt væri þar oft og tíðum. Þar
dvaldi hún á hverju sumri í nær
þrjá áratugi. Kristín var löngu orð-
in hluti af þessu umhverfi, svo
samgróin var hún því. Meðan
heilsan leyfði kom hún vestur á
vorin um svipað leyti og farfugl-
arnir og fór ekki aftur suður, fyrr
en seinustu farfuglarnir voru
flognir á braut. Seinasta áratuginn
höfum við hjónin átt þar athvarf í
ánægjulegu samfélagi með þeim
hjónum. Ef við vorum komin vest-
ur á undan þeim spurðu Arnfirð-
ingar gjarnan, hvenær Kristín og
Matthías kæmu. Þegar Kristín
kom heim frá Spáni í byrjun sum-
ars eftir vetrardvöl þar í landi var
það ætlun hennar að koma vestur
eins fljótt og aðstæður leyfðu, en
enginn má sköpum rennna. Lík-
amskraftar hennar voru komnir að
þrotum og henni varð ekki að
þeirri ósk sinni að koma oftar í
Trostansfjörð, eins og hugur henn-
ar stóð þó sannarlega til. Okkur,
sem höfum dvalið þar með henni
liðin sumur, finnst nú eins og stórt
skarð hafi verið höggvið í skóginn.
Trostansfjörður er einhvern veg-
inn annar en áður. Það vantar eitt-
hvað.
Að leiðarlokum þökkum við
ánægjulega samfylgd um langt
árabil og sendum Matthíasi og öll-
um hennar nánustu einlægar sam-
úðarkveðjur. Blessuð sé minning
góðrar konu.
Hulda og Jón Páll
Halldórsson.
KRISTÍN INGI-
MUNDARDÓTTIR
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
HILMARS ÓLAFS SIGURÐSSONAR.
Valgerður Bjarnadóttir,
Klara Hilmarsdóttir, Róbert Trausti Árnason,
Bryndís Hilmarsdóttir, Árni Ómar Bentsson,
Elísabet Hilmarsdóttir, Vilhjálmur Kjartansson,
Rósa Hilmarsdóttir, Bo Nico,
Valgerður Hilmarsdóttir, Jeppe Gram,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
JÓN AXEL MATTHÍASSON,
Austurvegi 14,
Þórshöfn,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga
12. júní síðastliðinn.
Útför hans fer fram frá Þórshafnarkirkju laugar-
daginn 21. júní kl. 14.00.
Matthildur Jóhannsdóttir,
Ívar Jónsson, Þórhalla Hjaltadóttir,
Sigríður Jónsdóttir, Aðalbjörn Arnarsson,
Lilja Jónsdóttir, Unnsteinn Óskarsson,
Matthías Jónsson, Birna Gestsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur
og bróðir,
RÖGNVALD KJARTANSSON,
Víðigrund 35,
Kópavogi,
lést á heimili sínu mánudaginn 16. júní.
Guðrún Magnea Tómasdóttir,
Hanna Ósk Rögnvaldsdóttir,
Kjartan Rögnvaldsson,
Tómas Þröstur Rögnvaldsson,
Sesselja Gísladóttir
og systkini hins látna.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför ástkærs eigin-
manns, föður okkar, tengdaföður, afa, langafa
og langalangafa,
BERGS ELÍASAR GUÐJÓNSSONAR,
Dverghamri 15.
Stuðningur ykkar er ómetanlegur.
Guðrún Ágústsdóttir,
Ágúst Bergsson, Stefanía Guðmundsdóttir,
Margrét Klara Bergsdóttir, Birgir Símonarson,
Kristín Bergsdóttir, Kristmann Karlsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
Útför elskulegrar móður okkar, ömmu og lang-
ömmu,
KRISTRÚNAR ÞORSTEINSDÓTTUR
CORTES,
verður gerð frá Fossvogskapellu föstudaginn
20. júní kl. 15.00.
Erla Cortes,
Kristín Björg Gunnarsdóttir,
Guðrún Cortes,
Gunnar J. Árnason, Soffía Karlsdóttir,
Kristinn H. Árnason,
Snorri Ö. Árnason, Ásdís Ásbjörnsdóttir,
Torfi Magnússon,
Gunnar Cortes Heimisson
og barnabarnabörnin.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
ELÍNBORG JÓNA JÓHANNSDÓTTIR,
Hjallabraut 6,
Hafnarfirði,
lést á heimili sínu mánudaginn 16. júní.
Magnús Þór Þórisson,
Berglind Ólafsdóttir, Helgi Þór Guðbjartsson,
Jóhann Sigurður Ólafsson,
Erlendur Jón Ólafsson, María Steindórsdóttir,
Matthías Már Magnússon, Þórunn Edwald,
Rakel, María Dís, Agnes Ýr og Þórdís.
Fleiri minningargreinar
um Kristínu Ingimundardóttur
bíða birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.