Morgunblaðið - 19.06.2003, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 2003 41
ALÞJÓÐLEGI meistarinn Sævar
Bjarnason (2.258) sigraði á Skákþingi
Hafnarfjarðar sem fram fór um síð-
ustu helgi. Sævar hlaut 6 vinninga,
vann fimm skákir og gerði tvö jafn-
tefli. Björn Þorfinnsson (2.324) varð í
öðru sæti með með 5½ vinning. Röð
efstu manna varð annars þessi:
1. Sævar Bjarnason 6 v.
2. Björn Þorfinnsson 5½ v.
3.–4. Halldór Brynjar Halldórsson,
Stefán Bergsson 5 v.
5.–7. Sigurbjörn Björnsson, Jó-
hann H. Ragnarsson, Þorvarður
Fannar Ólafsson 4½ v.
8.–13. Stefán Freyr Guðmundsson,
Páll Sigurðsson, Davíð Kjartansson,
Egill Þórðarson, Leifur Ingi Vilmund-
arson, Ágúst Bragi Björnsson 4 v.
14.–15. Ingi Tandri Traustason,
Auðbergur Magnússon 3½ v.
o.s.frv.
Keppendur voru 25 og er þetta eitt
fjölmennasta og sterkasta Skákþing
Hafnarfjarðar sem haldið hefur verið
í langan tíma. Það má m.a. þakka
ötulu undirbúningsstarfi þeirra Auð-
bergs Magnússonar og félaga.
Þeir Sigurbjörn J. Björnsson
(2.335) og Þorvarður Fannar Ólafs-
son (2.068) urðu efstir Hafnfirðinga á
mótinu og þurfa að tefla úrslitakeppni
um titilinn Skákmeistari Hafnar-
fjarðar 2003.
Zurab Azmaiparashvili
Evrópumeistari í skák
Zurab Azmaiparashvili (2.678)
sigraði í á Evrópumótinu í skák sem
haldið var í Tyrklandi. Sænska skák-
konan Pia Cramling (2.470) hampaði
sigri í kvennaflokki. Hannes Hlífar
Stefánsson (2.565) hlaut flesta vinn-
inga Íslendinganna þriggja sem tóku
þátt í mótinu. Hann fékk 6½ vinning,
en tapar 5 stigum eftir tap í tveimur
síðustu umferðunum. Hannes náði
sér aldrei verulega á flug í mótinu,
þrátt fyrir góða spretti inn á milli.
Helgi Ólafsson, sem stóð sig frábær-
lega framan af móti, hlaut 6 vinninga.
Hann var taplaus, þrátt fyrir mjög
sterka andstæðinga, allt þar til í tí-
undu umferð mótsins. Síðustu fjórar
umferðirna skiluðu hins vegar ein-
ungis einum vinningi. Þrátt fyrir það
hækkar Helgi um 13 skákstig og lofar
sú frammistaða góðu fyrir Helga.
Ingvar Ásmundsson (2.327) fór öðru-
vísi að en félagar hans, en endaði þó
ekki fjarri þeim í lokaröðinni. Hann
fékk 5½ vinning, en var lengi að kom-
ast í gang og allir vinningarnir skil-
uðu sér um og eftir miðbik mótsins.
Þannig fékk hann t.d. 3 vinninga í síð-
ustu fjórum umferðunum. Það var því
ekki að sjá að úthaldið skorti þótt
Ingvar væri aldursforseti hópsins, og
það svo miklu munaði. Ingvar sigraði
m.a. spænska stórmeistarann Pablo
San Segundo (2.515) í næstsíðustu
umferð mótsins.
Hvítt: Ingvar Ásmundsson
Svart: Pablo San Segundo
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 g6 4. 0-0
Bg7 5. He1 Rf6 6. Rc3 0-0 7. e5 Re8 8.
Bxc6 dxc6 9. h3 Rc7 10. b3 Re6 11.
Bb2 Dc7 12. Re4 h6
Nýr leikur í stöðunni. Þekkt er 12.
– Hd8 13. d3 a5 14. a4 b6 15. Reg5
Dd7 16. Rxe6 Dxe6 17. De2 Bb7 18.
Had1 Hab8 19. De3 h6 20. De4 Hd7
21. Rd2 Ba6 22. f4 Hbd8 23. Rc4 Bxc4
24. bxc4 Kh7 25. g4 með góðri stöðu
fyrir hvít, sem hann reyndar tapaði í
bréfskák í tölvupósti, Turcan-Otten-
weller, 2000.
13. De2 b6 14. De3 Bd7 15. c3 f5
16. exf6 exf6 17. d4 Hfe8 18. dxc5
Rxc5 19. Dd4 Rxe4 20. Hxe4 –
(sjá stöðumynd 1)
20. – f5!?
Eftir 20. – Be6 21. Dd3 f5 22. He3
Had8 23. Rd4 Bf7 24. Hxe8+ Hxe8
25. Hd1 Dd7 hefur svartur betra tafl.
21. Dc4+ Kh7?
Spænski stórmeistarinn er grun-
laus um sóknina, sem nú dynur á hon-
um. Eftir 21. – Kf8 22. Hee1 Bf6 23.
Had1 Kg7 24. Bc1 Hxe1+ 25. Hxe1
He8 þarf hann engu að kvíða.
22. Hh4! Hf8
Svartur á enga leið út úr ógöng-
unum, t.d. 22. – Dd8 23. Hd1 b5 24.
Df4 De7 25. Bc1 h5 (25. – Had8 26.
Hxh6+ Bxh6 27. Dxh6+ Kg8 28.
Dxg6+ Dg7 29. Dxg7+ Kxg7 30.
Bg5) 26. Hd6 Hed8 27. Rg5+ Kg8 28.
Hxg6 De8 29. Hxg7+ Kxg7 30. Rf3
Dg6 (30. – Dh8 31. Be3 Kf7 32. Bd4
Df8 33. Hxh5 Be6 34. Rg5+ Ke8 35.
Rxe6) 31. Re5 Dh7 32. Dg5+ Kf8 33.
Ba3+ Ke8 34. Df6 Dg8 35. De7+ mát.
Ekki gengur heldur að leika 22. –
Bf6? 23. Df7+ Bg7 24. Rg5+ Kh8 25.
Hxh6+ Bxh6 26. Dh7+ mát.
23. Rg5+ Kh8
(Sjá stöðumynd 2)
24. Hxh6+! Bxh6 25. Dh4 Kg7 26.
c4+ Hf6 27. Bxf6+ Kxf6
(Sjá stöðumynd 3)
28. Re6+! –
Ingvar gefur ekkert eftir. Nú vinn-
ur hann svörtu drottninguna og eft-
irleikurinn verður auðveldur.
28. – Kxe6 29. He1+ De5
Eða 29. – Kf7 30. He7+ Kg8 (30. -
Kf8 31. Df6+ Kg8 32. Df7+ Kh8 33.
Dh7+mát) 31. Dxh6, mátar í næsta
leik.
30. Hxe5+ Kxe5 31. Dxh6 Be8 32.
Dg7+ Ke6 33. Db7 Hd8 34. Dxa7 b5
35. De3+ Kf7 36. a4! –
Vinningsleiðin er einföld fyrir hvít.
Fyrst bindur hann svarta hrókinn við
frípeðið á a-línunni og því næst brjóta
hvíta drottningin og kóngurinn auð-
veldlega niður varnir svarts á kóngs-
væng.
36. – bxa4 37. bxa4 Ha8 38. Db3
Ha7 39. c5+ Ke7 40. Db4 Bd7 41. a5
Ha6 42. h4 Bc8 43. Dd2 Be6 44. Dd6+
Kf7 45. Dc7+ Kf6 46. Dd8+ Kf7 47.
Kh2 Bd5 48. Kg3 f4+ 49. Kxf4 Bxg2
50. Ke5 Kg7 51. Dc7+ og svartur
gafst upp. Hann verður mát í nokkr-
um leikjum, eftir 51. – Kh6 52. Kf6
Be4 (52. – Kh5 53. Df4, ásamt 54.
Dg5+ mát) 53. Df4+ Kh7 54. Dxe4
o.s.frv.
Mjóddarmót Hellis á
laugardaginn í göngugötunni
Hið árlega og vinsæla Mjóddarmót
Hellis fer fram laugardaginn 21. júní í
göngugötunni í Mjódd. Mótið hefst kl.
14 og er þátttaka ókeypis. Allir geta
tekið þátt í mótinu. Teflt er eftir sama
fyrirkomulagi og á Borgarskák-
mótinu, þ.e. skákmenn tefla fyrir fyr-
irtæki og er dregið um hvaða fyrir-
tæki hver teflir fyrir. Tefldar verða 7
umferðir eftir Monrad-kerfi, 7 mín-
útna skákir. Verðlaun verða sem hér
segir: 1. kr. 10.000, 2. kr, 6.000, 3. kr.
4.000. Skráning fer fram í tölvupósti
(hellir@hellir.is), en einnig er hægt
að skrá sig símleiðis í síma 861 9416.
Þá er skráningarform fyrir mótið á
heimasíðu Taflfélagsins Hellis,
www.hellir.is. Skákmenn eru hvattir
til að skrá sig sem fyrst þar sem þátt-
taka takmarkast við fjölda fyrirtækja.
Sævar Bjarnason sigraði á
Skákþingi Hafnarfjarðar
SKÁK
Istanbúl
SKÁKÞING HAFNARFJARÐAR
13.–15. júní 2003
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
dadi@vks.is
Stöðumynd 2.Stöðumynd 1.
Stöðumynd 3.
Er vinningur
í lokinu? Utanlandsferðir • siglingar • sjónvörp reiðhjól • myndavélar • gasgrill
kælibox í bíla • línuskautar
hlaupahjól og margt, margt fleira!
Glæsilegir vinningar
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Með kveðju.
Hákon, sími 898 9396.
REYKJAVÍK - MIÐSVÆÐIS
Mér hefur verið falið að leita eftir sérbýli
með lítilli íbúð eða aðstöðu þar sem hægt
er að innrétta litla íbúð.
Verðhugmynd 25-30 millj.
Kaupendur eru tilbúnir að veita ríflegan
afhendingatíma sé þess óskað. Áhuga-
samir vinsamlegast hafið samband og
ég mun fúslega veita nánari upplýsingar.
Hafðu samband - það kostar ekkert!
KRINGLUNNI 8-12,
SÍMI 553 3600
WWW.OLYMPIA.IS
I I - ,
Í I
. I .I
UNDIRFATNAÐUR
20% AFSLÁTTUR
KRINGLUKAST