Morgunblaðið - 27.06.2003, Side 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2003 11
!
!
"
# $ %
%
&' !
( #
)
# *
++# , *,
#
, #
!
,
# - #
. ! #
%
( / 0 ++#
$
#
1
)
*% # *
$
!
2 ) 1
#
#
! 3
#
)
4
#
#
)+
+#
)
+
#
+
5&
#
6#
)
7
&!
8
!8
9
:;
;<
)
7
&!
Dómsmálaráðherrar
Norðurlandanna
funduðu í gær
Barist gegn
verslun
með fólk
DÓMSMÁLARÁÐHERRAR Norð-
urlanda komu saman til fundar í
Saltsjöbaden við Stokkhólm í gær.
Björn Bjarnason, dóms- og kirkju-
málaráðherra, sat fundinn fyrir Ís-
lands hönd. Thomas Bodström,
dómsmálaráðherra Svía, stjórnaði
fundinum.
Meginumræðuefni fundarins voru
þrjú: Baráttan gegn verslun með
fólk, frumvarp að nýrri stjórnarskrá
fyrir Evrópusambandið (ESB) og
samstarf Norðurlandanna á sviði
sifjaréttar. Í ræðu sinni um frum-
varpið að nýrri stjórnarskrá ESB
varpaði Björn Bjarnason fram þeirri
spurningu hvort nauðsynlegt væri
að ganga svo langt í að takmarka
vald einstakra ríkja í eigin málum til
þess að tryggja gott samstarf þeirra
innan ESB sem gert er í frum-
varpinu. Vissulega væri gagnlegt að
samhæfa aðgerðir gegn alþjóðlegri
glæpastarfsemi en hins vegar yrði að
gæta að því að seilast ekki of langt
inn á refsiréttarsvið einstakra ríkja
með kröfum um samræmingu.
Þá taldi hann ekki til bóta að hætt
yrði að líta á samstarf ríkjanna á
sviði refsiréttar sem milliríkjasam-
starf heldur yrði það fært undir for-
ræði framkvæmdastjórnar ESB og
Evrópuþingsins. Hann hvatti til þess
að staða mannréttindasáttmála Evr-
ópu og Mannréttindadómstólsins í
Strassborg yrði efld en ekki grafið
undan henni með nýjum réttinda-
kafla í stjórnarskrá ESB.
Dómsmálaráðherra bauð starfs-
bræðrum sínum til næsta ráðherra-
fundar á Íslandi sumarið 2004, segir
í frétt frá dómsmálaráðuneytinu.
ÞRÍR samningar um Íslenska heil-
brigðisnetið hafa verið undirritaðir
af Jóni Kristjánssyni, heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra. Ís-
lenska heilbrigðisnetið er verkefni
sem heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið hefur unnið að undan-
farin ár. Því er ætlað að tengja
saman aðila í heilbrigðisþjónust-
unni og auka rafræn samskipti
innan heilbrigðiskerfisins.
Samið var við sóttvarnarlækni
um miðlægan gagnagrunn yfir
bólusetningar. Gagnagrunninum
er ætlað að vera virk skrá yfir þá
sem eru bólusettir, að sögn Har-
aldar Briem, sóttvarnarlæknis.
Hægt verður að sjá hverjir hafa
verið bólusettir, fyrir hverju og
með hvaða bólusetningarefnum.
Haraldur segir grunninn nýtast
læknum til að vita hvort einstak-
lingur er bólusettur eða ekki, og
þá jafnvel ráðleggja bólusetningu.
„Það er mjög mikilvægt að fylgjast
með aukaverkunum bólusetninga
og þá er svona skrá ómetanleg,“
segir Haraldur, og segist vona að
gagnagrunnurinn verði kominn í
gagnið á innan við ári.
Vistun sjúklinga skráð
Einnig var samið við landlækn-
isembættið um að safnað verði
með rafrænum hætti upplýsingum
um vistun frá sjúkrahúsum í land-
inu.
Safnað verður upplýsingum frá
sjúkrahúsum, heilsugæslum og
læknastofum um sjúklinga, sjúk-
dómsgreiningar, biðtíma, meðferð
og sitthvað fleira, segir Sigurður
Guðmundsson landlæknir. Er það
hluti eins stórs rafræns kerfis þar
sem meðal annars sjúkraskrár
sjúklinga verða skráðar rafrænt
og verða aðgengilegar á öllum
sjúkrahúsum landsins.
Rafrænir reikningar
sérfræðinga
Að lokum var undirritaður
samningur við Tryggingastofnun
ríkisins (TR) um nýtt sérfræðir-
eikningskerfi sem nota á í sam-
skiptum stofnunarinnar og sér-
fræðilækna sem eru á verksamn-
ingi við TR. Markmiðið með
þessum samningum er að einfalda
og draga úr vinnu samfara reikn-
ingunum. „Þetta er liður í viðleitni
TR til að taka upp rafræn viðskipti
og miðar að því að hagræða í
rekstri,“ segir Hermann Ólason,
forstöðumaður tölvu- og upplýs-
ingatæknisviðs TR. Hann segir
þetta kerfi komast í gagnið í
áföngum og að það verði hægt að
komast langt með það á næsta ári.
Heilbrigðisráðherra undirritar samninga um Heilbrigðisnetið
Gagnagrunnar um bólusetn-
ingar og vistun sjúklinga
Morgunblaðið/Jim Smart
Haraldur Briem sóttvarnarlæknir (t.v.), Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, Sigurður Guðmundsson landlæknir og Hermann
Ólason, forstöðumaður tölvu- og upplýsingatæknisviðs hjá Trygg-
ingastofnun ríkisins, undirrituðu samningana.