Morgunblaðið - 23.07.2003, Page 7

Morgunblaðið - 23.07.2003, Page 7
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2003 7 Léttkaupsútborgun 1.980 kr. 1.000 kr. á mán. í 12 mán. 13.980,- Sony Ericsson T310 Njóttu fless a› vera áhyggjulaus í sumar og ná›u flér í flínar valmyndir undir Fréttir og uppl‡singar á vit.is. fiú getur m.a. fylgst me› fréttum á mbl.is og visir.is og leita› í símaskránni – flegar flér hentar. fiú getur einnig skrá› flig í áskrift á vit.is. Fá›u fréttir og uppl‡singar hvar og hvenær sem flér hentar. fiú getur líka sent SMS í 1848 og fengi› valmyndina í símann flinn mbl.is: VIT MBL 1 íflróttir á mbl: VIT MBL SPORT 1 visir.is: VIT VISIR 1 Dæmi: VIT MBL 1 – flá er mbl.is valmynd númer 1. FÁÐU FRÉTTIRNAR STRAX Eingöngu fyrir GSM kort frá Símanum GSM.  GUNNAR Mýrdal læknir, sér- fræðingur í brjóstholsskurðlækning- um,varði hinn 22. maí doktorsritgerð sína við Uppsalaháskóla í Svíþjóð. Ritgerðin heitir: „Lung Cancer Epi- demiological and Clinical studies with Special References to Surgical Treat- ment“. Andmæl- andi var prófess- or Bengt Berg- man við Sahl- grenska sjúkra- húsið í Gauta- borg. Ritgerðin fjallar meðal annars um nýgengi lungnakrabbameins í Sví- þjóð síðastliðin 40 ár og sýnir með faraldsfræðilegum aðferðum hvernig yngri konur fá oftar þennan alvar- lega sjúkdóm. Þannig hafa konur fæddar 1950-1960 fjórum sinnum meiri líkur á að fá lungnakrabbamein en konur fæddar í byrjun aldarinnar. Skurðaðgerð er sú meðferð sem gef- ur mesta von um lækningu, en ein- ungis 20% af sjúklingum með ekki smáfrumu-lungnakrabbamein eru skurðtækir við greiningu sjúkdóms- ins. Hve fáir eru meðhöndlaðir með skurðaðgerð stafar að hluta til af að sjúkdómurinn greinist seint og sjúk- dómsgreining er oft á tíðum erfið og mætti hugsanlega lækna fleiri með lungnakrabbamein ef fleiri greindust á forstigi sjúkdómsins. Um það bil 75% sjúklinga lifa í 5 ár eftir skurð- aðgerð ef sjúkdómurinn greinist á forstigum, án meinvarpa til nálægra eitla. Þó svo að skurðaðgerð við lungnakrabbamein sé stór aðgerð þar sem hluti af eða annað lunga er fjarlægt, þá eru lífsgæði þessa sjúk- lingahóps sambærileg við sjúklinga sem farið hafa í gegnum kransæða- aðgerð. Athyglisvert er einnig að þeir sjúklingar sem ekki hættu að reykja eftir lungnaskurðaðgerð hafa verri geðheilsu og almennt verri lífs- gæði en þeir sem hættu að reykja við greiningu sjúkdómsins. Lífshorfur reykingafólks var almennt verri bæði hvað varðar langtíma horfur og einn- ig fékk reykingafólk oftar alvarlega aukaverkun eftir skurðaðgerð. Bið- tími eftir að fá greiningu er of langur, svo og biðtími eftir meðferð. Þeir sjúklingar sem höfðu ólæknanlegan sjúkdóm fengu fyrr meðferð en þeir sjúklingar sem höfðu læknanlegan sjúkdóm. Það er þörf fyrir fljótvirk- ari aðferðir við greiningu lungna- krabbameins til að geta boðið fleiri sjúklingum skurðaðgerð sem gefur góðan árangur sé slíkri meðferð beitt tímanlega. Gunnar er fæddur á Akranesi 1964. Foreldrar hans eru Einar Mýr- dal skipasmiður og Hulda Haralds- dóttir f.v. innheimtustjóri. Gunnar er búsettur i Uppsölum í Svíþjóð og starfar á Háskólasjúkrahúsinu í Uppsölum sem sérfræðingur á hjarta- og lungnaskurðdeild. Eig- inkona Gunnars er Sigríður Valtýs- dóttir dr. med, sérfæðingur í lyf- og gigtlækningum við sama sjúkrahús. Doktorsvörn við Uppsala- háskóla Gunnar Mýrdal BETUR fór en á horfðist, þegar öku- maður missti stjórn á bifreið sinni á leið um nýtt hringtorg á mótum Snæfellsnessvegar og Vesturlands- vegar rétt norðan Borgarness í gær. Bifreiðin, sem var á leið suður, kom of hratt inn á hringtorgið og náði ökumaður ekki beygjunni út af því, ók á ljósastaur og kastaðist bif- reiðin þaðan á bretti af gangstétt- arhellum sem var við vegarkantinn. Engin alvarleg meiðsli urðu á fólki en bifreiðin er gjörónýt og var hún fjarlægð með kranabíl. Borgarnes Umferðar- óhapp á nýju hringtorgi ♦ ♦ ♦ ÓLYMPÍULEIKARNIR í eðlisfræði verða haldnir í Taipei á Taívan 2. til 10. ágúst næstkomandi og munu íslenskir nemendur nú taka þátt í tuttugasta skipti. Lið Íslendinga í ár samanstendur af Einari Hrafni Hjálmarssyni, Hauki Sigurðarsyni og Shlok Smára Datye, frá Menntaskólanum á Akureyri, Wing Wa Yu frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og Eysteini Helgasyni frá Verslunarskóla Íslands. Dreng- irnir hafa undanfarnar fjórar vik- ur verið í fræðilegri og verklegri þjálfun í Háskóla Íslands undir stjórn fararstjóranna Kristjáns Rúnars Kristjánssonar, doktors- nema í eðlisfræði, og Ingibjargar Haraldsdóttur, eðlisfræðikennara við Menntaskólann í Kópavogi. Að sögn aðstandenda hafa nokk- ur vandræði hlotist af því að Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunin lýsti Taívan hættusvæði í maí vegna HABL-faraldursins og var því hættuástandi ekki aflýst fyrr en í byrjun júlí. Var því leikunum frestað um þrjár vikur. Hafa nokkrar þjóðir afboðað þátttöku sína vegna þessarar frestunar, en þátttakendur í ár eru frá 48 þjóð- um. Ólympíuleikarnir í eðlisfræði Fimm Íslendingar keppa Íslenska keppnisliðið í þjálfunarbúðum í Háskóla Íslands. Frá vinstri Hauk- ur Sigurðarson, Einar Hrafn Hjálmarsson og Shlok Smári Datye frá Menntaskólanum á Akureyri, Eysteinn Helgason frá Verslunarskóla Ís- lands og Wing Wa Yu frá Menntaskólanum við Hamrahlíð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.