Morgunblaðið - 23.07.2003, Síða 12

Morgunblaðið - 23.07.2003, Síða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ F í t o n / F I 0 0 7 5 5 2 Ingvar Helgason notaðir bílar Ingvar Helgason hf. · Sími 525 8000 · Sævarhöfða 2 ih@ih.is · www.ih.is/notadir · opið virka daga kl. 9-18 GÓÐUR NOTAÐUR BÍLL NISSAN ALMER A Verð 1.130.000 kr. Skráður 09/2000, ekinn 44.000 km. FYRSTU sex mánuði ársins bárust Íbúðalánasjóði 5.834 umsóknir um húsbréf en á sama tímabili í fyrra voru umsóknirnar 4.863 talsins. Alls hefur umsóknunum því fjölgað um 20% á tímabilinu. Í júní bárust 1.066 umsóknir en í sama mánuði í fyrra voru þær 793 og fjölgaði því um 35% á milli mánaða. Útgefin húsbréf fyrir 28,2 milljarða Heildarfjárhæð samþykktra skuldabréfaskipta var um 45% hærri í júní í ár en í sama mánuði í fyrra. Á fyrstu sex mánuðum ársins jókst heildarfjárhæð samþykktra umsókna um 36% og er meg- inástæða þess að meðalfjárhæðir bréfa hafa aukist verulega, eða um 17%, og er að meðaltali 3,9 milljónir á fasteignabréf, samkvæmt upplýs- ingum frá Íbúðalánasjóði. Afgreidd húsbréf á reiknuðu verði voru um 16% hærri í júní 2003 en júní 2002. Alls voru gefin út húsbréf fyrir 28,2 milljarða á fyrstu sex mán- uðum ársins. Útlán til byggingaverktaka í gegnum húsbréfakerfið nema nú þegar hærri fjárhæðum en árleg heildarútlán til þeirra allt frá upp- hafi húsbréfakerfisins árið 1989, samkvæmt upplýsingum frá Íbúða- lánasjóði. „Á sama tíma stefnir í út- lán á þessu ári til bygginga og kaupa á 1.100 nýjum leiguíbúðum. Allt útlit er því fyrir mikið framboð af nýju húsnæði á þessu ári. Það sem af er árinu nema heildarútlán til byggingaverktaka í gegnum húsbréfakerfið ríflega 1,2 millj- örðum en mest hefur áður verið lánað til byggingaverktaka árin 1996 og 1997 eða um 1,2 milljarða bæði árin, en þá var fasteignamark- aðurinn í djúpum öldudal. Lán til einstaklinga með nýbyggingar eru á sama róli og á síðasta ári. Það er því ýmislegt sem bendir til þess að heldur hafi tekið að hægja á sölu nýrra eigna og birgðastaða nýs húsnæðis sé að aukast. Það ætti aft- ur að skila sér í minni þrýstingi til verðhækkana ef vænt eftirspurn- araukning verður með tilkomu hærri húsnæðislána. Á hinn bóginn má ætla að verkefnaskortur í stór- framkvæmdum hjá byggingariðn- aðinum frá miðju síðasta ári sé nú að skila sér í meiri nýbyggingum húsnæðis, það er að segja að bygg- ingariðnaðurinn hafi flutt verkefnaáherslur sínar á byggingu íbúðahúsnæðis meðan beðið var eft- ir upphafi nýrra stórfram- kvæmda,“ að því er segir í mánað- arskýrslu Íbúðalánasjóðs. Húsbréfaumsókn- um fjölgar um 20% Morgunblaðið/Kristinn Útlán Íbúðalánasjóðs til byggingaverktaka hafa aukist umtalsvert á árinu. AFKOMA Alcan-samstæðunnar á öðrum fjórðungi ársins varð betri en búist hafði verið við, þótt tap hafi orð- ið á rekstrinum. Að því er fram kom í tilkynningu frá félaginu nam tapið 89 milljónum dollara í fjórðungnum, samanborið við 71 milljónar dollara hagnað á sama tímabili 2002. Fyrirtækið, sem er næststærsti ál- framleiðandi heims, varð fyrir 146 milljóna dollara gengistapi á tíma- bilinu, auk þess sem það afskrifaði pökkunarvélar fyrir 113 milljónir dollara. Sala og framleiðslumagn hafa farið vaxandi á árinu og búist er við að aðhaldsaðgerðir muni skila árangri í ár. Tekjur á fjórðungnum námu 3,47 milljörðum dollara, samanborið við 3,15 milljarða 2002. Hrannar Pétursson, upplýsinga- fulltrúi Alcan á Íslandi, segir að rekst- urinn hafi gengið vel hér á landi, en ekki séu gefnar upp afkomutölur fyrir verksmiðjuna hér fyrr en erlenda samstæðan hafi skilað ársuppgjöri. Minna tap hjá Alcan en búist hafði verið við VÍSITALA byggingarkostnaðar hækkaði um 0,12% á milli júní og júlí og hefur hækkað um 3,3% á síðustu 12 mánuðum. Vísitalan mælist nú 286,8 stig og gildir fyrir ágúst. Launavísitala í júní 2003 er 239 stig og hækkaði um 0,2% frá fyrra mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 5,6%. Launavísitala sem gildir við út- reikning greiðslumarks fasteigna- veðlána í ágúst er 5228 stig. Byggingarvísitalan hækkar um 0,12% SAMRÆMD vísitala neyslu- verðs í ríkjum á Evrópska efna- hagssvæðinu, EES, var 113,1 stig í júní sl. og hækkaði um 0,1% frá fyrra mánuði. Frá júní 2002 til júní 2003 var verðbólg- an, mæld með samræmdri vísi- tölu neysluverðs 1,8% að með- altali í ríkjum EES, 2% á evrusvæðinu og 1,3% á Íslandi. Í frétt frá Hagstofu Íslands kemur frma að mesta verðbólg- an í ríkjum EES á þessu tólf mánaða tímabili var á Írlandi eða 3,8% og 3,6% í Grikklandi. Verðbólgan var minnst í Þýska- landi eða 0,9% og 1% í Aust- urríki. Verðbólgan frá júní 2002 til júní 2003 var 2,1% í Bandaríkj- unum og í Japan var um verð- hjöðnun að ræða. Verðbólg- an 1,8% í EES- ríkjum hlutfall (CAD-hlutfall) var 18,4% en var á sama tíma í fyrra 16,9%. Hagnaður fyrir skatta nam 123 m.kr. en var 165 milljónir fyrstu sex mánuði síðasta árs. Framlag í af- skriftarreikning útlána var 52,8 milljónir króna á fyrstu sex mánuð- um ársins og í afskriftarsjóði í lok júní voru 487,8 m.kr. sem nemur 5% af útlánum, samkvæmt tilkynningu til Kauphallar Íslands. Starfsmenn SP-Fjármögnunar eru 16 talsins. HAGNAÐUR SP-Fjármögnunar hf. nam 105,2 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma- bili í fyrra nam hagnaður félagsins 122,3 milljónum króna. SP-Fjármögnun er eignaleigufyr- irtæki og er dótturfélag Landsbank- ans sem á 51% hlutafjár en 49% eru í eigu ýmissa sparisjóða. Heildarútlán námu 9.293 milljón- um króna á fyrstu sex mánuðum árs- ins. Eigið fé SP-Fjármögnunar var 1.660,9 m.kr. í lok júní. Eiginfjár- SP-Fjármögnun með 105,2 milljónir í hagnað ORKUGEIRINN í Bandaríkjunum þjáist þessa dagana. Skemmst er að minnast risagjaldþrots Enron á síð- asta ári en nú hefur annað stórt raf- orkufyrirtæki, Mirant í Atlanta, sótt um greiðslustöðv- un. Fari félagið á hausinn verður það tíunda stærsta gjaldþrot banda- rískrar viðskipta- sögu, að því er BBC hefur eftir heimildum frá BankruptcyData.com. Skuldir Mirant nema 11,4 millj- örðum Bandaríkjadala eða um 881 milljarði íslenskra króna. Umræður um endurfjármögnum lána Mirant höfðu staðið yfir í nokk- urn tíma áður en félagið viðurkenndi fyrr í vikunni að það gæti ekki greitt 1,1 milljarðs dala afborgun sem gert hafði verið ráð fyrir og ákveðið var að sækja um greiðslustöðvun til að endurskipuleggja fjárhaginn. Félagið berst nú fyrir lífi sínu og reynir að fullvissa lánardrottna um að það muni halda samninga sem gerðir hafa verið. Um 7.000 manns starfa hjá Mir- ant, sem er eitt þeirra fyrirtækja sem legið hafa undir ásökunum um að nýta orkukreppu í Kalíforníufylki sér í hag. Mirant hefur neitað þeim ásökunum. Orkurisi á barmi gjaldþrots ar Baugs er nú um 9,2 milljarðar króna. Vegna hækkunar hlutabréfanna er óinnleystur gengis- hagnaður af fjárfestingunni nú um 5,8 milljarðar króna. HAGNAÐUR Baugs Group á fyrsta fjórðungi þessa rekstrarárs nam 3,5 milljörðum króna eftir skatta. Hagnaður sama tímabils í fyrra, 1. mars til 31. maí, nam 513 milljónum króna, en tölurnar eru ekki að fullu samanburðarhæfar þar sem uppgjör- ið nú er ekki endurskoðað. Helsta skýringin á auknum hagnaði eru fjár- festingar í verslanakeðjum í Bretlandi. Mest mun- ar um hagnað af fjárfestingum í Big Food Group, þar sem Baugur á 22,1% hlut. Óinnleystur geng- ishagnaður Baugs af þeirri fjárfestingu nam um 2,4 milljörðum króna á tímabilinu. Óinnleystur gengishagnaður vegna House of Fraser nam um 540 milljónum króna og vegna Somerfield um 350 milljónum króna. Samtals er óinnleystur gengis- hagnaður af þessum þremur fjárfestingum því um 3,3 milljarðar króna á fyrsta rekstrarfjórðungi ársins. Óinnleystur gengishagnaður Baugs vegna Big Food Group hefur verið mun meiri ef reiknað er frá því kaup í því félagi hófust. Kaupin áttu sér að- allega stað seint á síðasta ári og markaðsverð hlut- Í fréttatilkynningu frá Baugi segir að stjórn Bonus Stores, sem er bandarískt dótturfélag Baugs Group, hafi ákveðið að selja um 214 af þeim 330 verslunum sem félagið rekur í suðausturhluta Bandaríkjanna. Dregur sig út úr rekstri í Bandaríkjunum Viðræður standi nú yfir við fimm verslanakeðj- ur um sölu á hluta eða öllum þessara verslana. Baugur Group stefni að því að draga sig út úr rekstri í Bandaríkjunum og einbeita sér að frekari uppbyggingu á Norðurlöndum og í Bretlandi þar sem félagið hefur fjárfest á undanförnum miss- erum með góðum árangri. Hlutabréf Baugs Group voru afskráð úr Kaup- höll Íslands hinn 11. þessa mánaðar og félagið mun hér eftir ekki birta ársfjórðungsleg uppgjör með sama hætti og verið hefur og reglur um skráð félög segja til um. Baugur er útgefandi skulda- bréfa sem skráð eru í Kauphöllinni og þess vegna mun félagið áfram birta uppgjör tvisvar á ári í samræmi við reglur um upplýsingagjöf. Hagnaður 3,5 milljarðar Afkoma Baugs Group á fyrsta rekstrarfjórðungi ársins 2003 Um 3,3 milljarða króna óinn- leystur gengishagnaður vegna hlutabréfafjárfestinga Morgunblaðið/Kristinn ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.