Morgunblaðið - 23.07.2003, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 23.07.2003, Qupperneq 13
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2003 13 OD DI H F J 91 70 ...vísa þér veginnwww.lmi.is Ómissandi í ferðalagið Ferðakort 1:250 000 Norðaustur- og Austurland Þriðja og síðasta kortið í flokki nýrra vandaðra ferðakorta í mælikvarða 1:250 000 er komið út. Mjög handhægt brot sem hentar vel á ferðalögum. Mikil skörun á milli korta. Byggt á nýjum stafrænum gögnum. Kort sem ættu að vera til á hverju heimili Ný ferðakort Ferðakort 1:500 000 Vandað nýtt heildarkort af Íslandi með hæðarskyggingu og þjónustutáknum. Glæsileg og mikið breytt útgáfa af þessu vinsæla korti. Nýjustu upplýsingar um vegi landsins, vegalengdir og veganúmer, auk mikilvægra upplýsinga um ferðaþjónustu, svo sem bensínafgreiðslur, gististaði, söfn, sundlaugar, golfvelli og fleira. Kortinu fylgir nafnaskrá með yfir 3000 örnefnum. Skýringar á fjórum tungumálum. • Hæðarskygging og 50 metra hæðarlínubil • Vegir, vegalengdir, veganúmer og bensínafgreiðslur • Gisting, tjaldsvæði, sundlaugar og golfvellir • Söfn, friðlýstar minjar, hringsjár og áningarstaðir • Bæir í byggð, eyðibýli og rústir • Yfir 6000 örnefni • Upplýsingamiðstöðvar, bátsferðir og margt fleira • Skýringar á íslensku, ensku, frönsku og þýsku Útgefið 2002 Útgefið 2003 NORSK stjórnvöld hafa óskað eftir því að Noregur fái að gerast aðili að svonefndri Marco Polo-áætlun Evr- ópusambandsins (ESB), sem miðar að því að færa sem mest af þunga- flutningum af vegum á aðrar flutn- ingaleiðir, þ.e. skip og járnbrautir. Áætlunin gengur í gildi í haust, en í nafni hennar verður hægt að sækja styrki til uppbyggingar flutninga- þjónustu á sjó, vatnaleiðum og járn- brautum. Í norska dagblaðinu Nationen í gær staðfestir Arnfinn Ellingsen, ráðuneytisstjóri í norska samgöngu- ráðuneytinu, að norsk stjórnvöld hafi óskað eftir aðild að Marco Polo- áætluninni og séu tilbúin að leggja 12-14 milljónir norskra króna, and- virði 125-145 milljóna ísl. kr., í verk- efnastyrki í nafni áætlunarinnar. Þessu fagnar forstjóri norska járnbrautaflutningafyrirtækisins CargoNet, Kjell Frøyslid. „Ef Marco Polo fær yfirleitt einhverju áorkað gerir hún meira en norsk stjórnvöld [í því að stuðla að því að beina þungaflutningum af vegun- um],“ hefur Nationen eftir Frøyslid. Ellingsen ráðuneytisstjóri vísar því á bug að norsk stjórnvöld séu ekki að aðhafast neitt til að stuðla að þessu markmiði. Nefnir hann m.a. að hafnargjöld hafi verið lækkuð í þess- um tilgangi, til að bæta samkeppn- isstöðu strandflutninga. Í Þýzkalandi, þar sem aukning þungaflutninga á vegum er vaxandi vandamál, verður nú í ágúst tekinn upp nýr vegatollur af allri umferð vöruflutningabíla um þjóðvegi lands- ins. Málið í skoðun hjá íslenzkum stjórnvöldum Evrópusambandið hefur tekið ósk norskra stjórnvalda til athugunar, en framkvæmdastjórn ESB setur það sem skilyrði að Marco Polo- áætlunin verði þá gerð að hluta af EES-samstarfinu, þ.e. bætt við samninginn um Evrópska efnahags- svæðið. Því hafa Norðmenn beðið stjórnvöld á Íslandi og í Liechten- stein – hinum EFTA-löndunum sem einnig eiga aðild að EES – að taka þátt í því með sér að hefja samninga- viðræður við ESB um slíka aðlögun EES-samningsins. Í íslenzka samgönguráðuneytinu fékk Morgunblaðið þær upplýsingar að málið væri í skoðun. Vilja að Marco Polo verði bætt við EES Norðmenn vilja aðild að áætlun ESB um umhverfisvæna þungaflutninga MIKINN reyk lagði frá toppi Eiffel- turnsins í París í gær er eldur braust þar út. Engan mun hafa sak- að, en öllum var samstundis gert að yfirgefa turninn. Ekki mun eldurinn hafa verið mikill, en samkvæmt upp- lýsingum borgaryfirvalda kom hann upp í lyftu efst í turninum. Um sex milljónir ferðamanna fara upp í turninn á ári hverju. Reuters Eldur í Eiffelturninum AÐ minnsta kosti 15 létu lífið og 245 slösuðust, þar af 46 al- varlega, í jarðskjálfta í Dayao- héraði í Kína seint á mánudag. Í skjálftanum sem mældist 6,2 á Richter hrundu 5.000 hús og tæplega 200.000 urðu fyrir skemmdum. Kínversk fréttastofa sagði að 2.000 hermenn hefðu verið sendir á svæðið og önnur fréttastofa hafði eftir ráðuneyti sem fer með málefni borgara, að skjálftinn hefði haft áhrif á um eina milljón manna, án þess þó að skýra frekar hver áhrifin væru. Beckham á leiðinni Jarðskjálftinn reið yfir þremur dögum áður en leik- menn knattspyrnuliðsins Real Madrid með David Beckham í fararbroddi áttu að koma í æf- ingaferð til borgarinnar Kunm- ing sem er um 180 km frá skjálftasvæðinu. Skjálftinn fannst í borginni þótt ekki hafi verið tilkynnt um skemmdir þar. Talskona knattspyrnufé- lagsins sagði að Real Madr- id-liðar hefðu ekki breytt ferðaáætlun sinni vegna skjálftans. Öflugur jarð- skjálfti í Kína Peking. AFP. Í SKÝRSLU rannsóknarnefndar full- trúadeildar Bandaríkjaþings um hryðjuverkin 11. september 2001 er komizt að þeirri niðurstöðu meðal annars, að margt bendi til að Omar al- Bayoumi, samstarfsmaður nokkurra sjálfsmorðstilræðismannanna sem drápu yfir 3.000 manns í flugráns- árásunum, hafi verið útsendari Sádi- Arabíustjórnar. Skýrslan verður birt á fimmtudag, en greint er frá þessu í nýjasta hefti vikuritsins Newsweek. Að því er fullyrt er í grein News- week segir í niðurstöðum rannsókn- arskýrslunnar að bandaríska Alríkis- lögreglan, FBI, hafi ekki fylgt eftir mikilvægri vísbendingu um starfsemi al-Qaeda-hryðjuverkasamtakanna í Bandaríkjunum. Í skýrslunni kvað vera að finna gögn sem benda til þess að al-Bay- oumi þessi hafi verið útsendari sádi- arabísku stjórnarinnar, en hann var í nánum tengslum við Khaled al-Mihd- ar og Nawaf al-Hazmi, tvo af flug- ræningjunum sem frömdu hryðju- verkin 11. september 2001. Er það gagnrýnt í skýrslunni, eftir því sem Newsweek greinir frá, að FBI skyldi ekki fylgjast skipulega með al-Bayoumi, en Alríkislögreglan hafði þá upplýsingar um að maðurinn væri sennilega leynilegur erindreki Sádi-Arabíustjórnar. Ríkisstjórnin í Washington kvað hafa neitað að heimila birtingu mik- ilvægra kafla í rannsóknarskýrslu þingsins, þar á meðal 28 blaðsíðna kafla þar sem fjallað er um hlutverk stjórnvalda í Riyadh í tengslum við hryðjuverkin. Bob Graham, öldung- ardeildarþingmaður demókrata sem fór fyrir rannsóknarnefndinni sem samdi skýrsluna, heldur því fram að ríkisstjórn George W. Bush forseta sé að „halda hlífisskildi yfir erlendri ríkisstjórn,“ að því er Newsweek greinir frá. Skýrsla um 11. september 2001 Sádi-Arabar viðriðnir hryðjuverkin? Washington, Jedda. AFP, AP. SANDSTRENDUR Bretlands gætu verið horfnar um næstu alda- mót vegna hækkandi sjávarmáls og inngripa mannsins í náttúru- lega þróun strandanna samkvæmt frétt frá BBC. Náttúruverndarfólk varar við því að ef ekkert verði að gert muni sandstrendur landsins heyra sög- unni til innan hundrað ára og flæðilendi víða hafa horfið og þar með heimkynni ýmissa dýrateg- unda, m.a. tveggja milljóna vað- fugla. Hækkuð sjávarstaða vegna loft- lagsbreytinga hefur þegar breytt landslagi við strönd eyjanna en einnig manngerðir flóðgarðar úr steypu og stáli. Talsmenn fjögurra ára samevrópsks verkefnis um verndun sjávar benda á að nauð- synlegt sé að endurskipuleggja flóðgarða með tilliti til þessara upplýsinga. Á sumarleyfisstöðum eins og Weymouth í Dorset hefur ströndin þegar minnkað og stórir saltmýr- arflákar í Essex-sýslu hafa horfið. Strendurnar að hverfa

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.